Þjóðviljinn - 20.05.1983, Qupperneq 12
20 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 20. maí 1983
ALÞÝÐUBANDALAGID
Frá Æskulýðsfylkingu
Alþýðubandalagsins.
Friðarvaka um hvítasunnu.
Æskulýðsfylkingin hefur fyrirhugað að efna til hópferðar á Snæfellsnes um
hvítasunnuna. Haldið verður til í félagsheimilinu Skildi við Stykkishólm og
farið þaðan í skoðunarferðir um nágrennið undir leiðsögn heimamanna.
Svo verða friðarmálin rædd á samkomum í félagsheimilinu. Farið verður á
laugardaginn 21. maí og komið til baka á mánudeginum 23. mai. Verði
verður mjög stillt í hóf. Þeir ungu sósíalistar sem hefðu áhuga á að koma
með eru vinsamlegast beðnir um að tilkynna þátttöku í síma: 17500. -
Dagskrá auglýst nánar síðar í Þjóðviljanum. - Undirbúningsnefnd.
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Aðalfundur
Stjórn Alþýðubandalagsins í Reykjavík boðar til fundar í félaginu, fimmtu-
daginn 26. maí kl. 20.30 að Hverfisgötu 105.
Dagskrá fundarins verður nánar auglýst siðar. Tillaga kjörnefndar um
stjórn félagsins og endurskoðaðir reikningar munu liggja frammi á skrif-
stofu félagsins frá og meö þriöjudeginum 24. maí. - Stjórn ABR.
5. deild - Breiðholt
Aðalfundur 5. deildar Alþýöubandalagsins í Reykjavík, Breiöholtsdeildar,
verður haldinn þriðjudaginn 24. maí nk., kl. 20.30. Fundurinn verður hald-
inn í nýju Menningarmiðstöðinni við Geröuberg. Dagskráin verður nánar
auglýst síðar. - Stjórn 5. deildar.
Alþýðubandalagið Akureyri
Bæjarmálaráðsfundur
Fundur veröur haldinn í bæjarmálaráði mánudaginn 23. maí (annan
hvítasunnu) kl. 20.30 í Lárusarhúsi. - Mætið vel og stundvíslega.
Alþýðubandalagið
í Reykjavík
Aðalfundur
Stjórn Alþýöubandalagsins í Reykjavík
boðar til aöalfundar í félaginu, fimmtudaginn
26. maí kl. 20.30 aö Hverfisgötu 105.
Dagskrá fundarins verður nánar auglýst síð-
ar. Tillaga kjörnefndar um stjórn félagsins og
endurskoðaðir reikningar munu liggja
frammi á skrifstofu félagsins frá og með
þriðjudeginum 24. maí - Stjórn ABR.
Frá tónlistarskóla
Kópavogs
Skólanum veriður slitið í Kópavogskirkju
laugardaginn 21. maí kl. 11.00 f.h.
Skólastjóri
24 létust í
umferðar-
slysum
í fyrra
— alls slösuðust 744
Umferðarráð hefur gefið út
bráðabirgðatölur um slys í umferð-
inni í fyrra. Það er athyglisvert að
þessar tölur breytast tiltölulega
Íítið á milli ára, en þó fer fjöldi
slasaðra vaxandi og hafa aldrei
ileiri slasast í umferðinni en í fyrra.
Gífurleg aukning á fjölda ökutækja
spilar þar stóra rullu.
í fyrra slösuðust í umferðinni
744, en 1981 voru þeir 707. Árið
1980 slösuðust 686 og árið 1979
slösuðust 588. í fyrra létust 24 í
umferðinni en tala látinna í um-
ferðinni breytist sáralítið milli ára.
Á 7 ára tímabili létust mest 37 í
umferðinni árið 1977, en minnst 19
manns árið 1976. Karlar slasast
mun oftar en konur. í fyrra slös-
■ uðust 479 karlar, en 289 konur.
Meiri háttar meiðsli í umferðinni í
fyrra voru 349 og minni háttar slys
voru 395.
Áfangar
komnir út
Tíunda tölublað tímaritsins
Áfangar er nýkomið út. Efni rits-
ins er fjölbreytt að vanda. Birt er
litmyndasyrpa úr Flatey á
Breiðafirði, grein um
þjóðgarðinn í Skaftafelli prýdd
stórum og fögrum litmyndum,
grein um vélsleðaferð um hálendi
lslands ásamt gullfallegum lit-
myndum. Þá er grein um jarð-
fræði íslands og síðast en ekki síst
er í þessu tölublaði samantekt um
ferða- og náttúruverndarmál á ís-
landi. Fram kemur í þessari
samantekt að um 170.000 manns
ferðuðust um ísland síðasta sum-
ar. Birtir eru úrdrættir úr fróð-
legum skýrslum landvarða á hin-
um ýmsu ferðamannastöðum, en
í þeim kemur fram hversu gífur-
lega yfirgripsmikið starf land-
varða er, og að ferðamál og nátt-
úruverndarmál eru að miklu leyti
afskipt af hálfu hins opinbera.
Friöarvaka
um hvítasunnu
Æskulýðsfylking Alþýðu-
bandalagsins boðar til
mikilla aðgerða um Hvíta-
sunnuna.
Það er: Hópferð á Snæfells-
nes. Gist verður í félags-
heimilinu Skildi í Helga-
fellssveit. Þar verða
rædd friðar- og afvopnun-
armál og höfð uppi ýmis
skemmtan á kvöldvökum.
Frá félagsheimilinu verður
farið í skoðunarferðir á fal-
lega staði á nesinu undir
leiðsögn heimamanna.
Dagskrá (í gróf-
um dráttum)
Laugardagur 21. maí
kl. 9.00 Brottför frá flokks-
miðstöð Alþýðubandalags-
ins Hverfisgötu 105.
- 13.00 Komið að Skildi
- 14.00 Skoðunarferð
- 19.00 Kvöldverður
- 21.00 Friðarvaka, spjall
um friðar og afvopnunar-
mál. Glens og gaman.
Sunnudagur 22. maí
kl. 12.00 Hádegisfriður
- 14.00 Skoðunarferð
- 20.00 Kvöldverður
- 22.00 Kvöldvaka undir
beru lofti ef veður leyfir
Mánudagur 23. maí
kl. 13.00 Tiltekt og brottför
- 17.00 Komið til Reykja-
víkur
Tvær heitar máltíðir eru
innifaldar (laugardags- og
sunnudagskvöld) en annan
mat verður hver og einn að
hafa með sér. Fyrir utan
svefnpokann væri æskilegt
að fólk hefði með sér litla
dýnu. Og svo er að sjálf-
sögðu góða skapið alltaf
með í förum.
Verð er áætlað u.þ.b. kr.
600.
Allir ungir og hressir sósíal-
istar eru eindregið hvattir til
að koma með og tilkynna
þátttöku í síma 17500 í síð-
asta lagi í kvöld.
Sjáumst hress og kát.
Undirbúningshópur
Til félagsmanna
Bygginga-
samvinnufélags
Kópavogs
í ráöi er að stofna byggingaflokk innan fél-
agsins til aö hefja byggingu á 16 raðhúsum
við Sæbólsbraut 1-31, sem eru til úthlutunar
hjá Kópavogsbæ, ef næg þátttaka fæst. Vak-
in er athygli á, að umsóknarfrestur hefur
vegna þessa verið framlengdur til 30. maí
n.k.
Þeir félagsmenn sem óska að vera með í
þessum byggingaáfanga skulu snúa sér til
skrifstofu félagsins, þarsem umsóknareyðu-
blöð og byggingaskilmálar liggja einnig
frammi.
Við úthlutunina mun bærinn taka tillit til bú-
setu, fjölskyldustærðar og fjármögnunar-
möguleika, en auk þess aðildar að
Byggingasamvinnufélagi Kópavogs, vegna
staðsetningar.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrif-
stofu Byggingasamvinnufélags Kópavogs,
Nýbýlavegi 6.
Opið alla daga milli kl. 12 og 16.
Stjórn
Byggingasamvinnufélags
Kópavogs
Fjórðungs-
sjúkrahúsið
á Akureyri
óskar eftir að ráða læknaritara á bæklunar-
deild sjúkrahússins. Um heilsdags starf er
að ræða.
Góð íslenskukunnátta og vélritunarkunnátta
nauðsynleg.
Upplýsingar veitir læknafulltrúi bæklunar-
deildar, Kolbrún Magnúsdóttir (sími 96-
25064).
Umsóknum sé skilað til fulltrúa fram-
kvæmdastjóra eigi síðar en 10. júní n.k.
Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri
Fjórðungssjúkra-
húsið
á Akureyri
Staða yfirlæknis á Svæfinga- og Gjör-
gæsludeild F.S.A. er laus til umsóknar.
Umsóknir er greini námsferil og fyrri störf
sendist framkvæmdastjóra F.S.A., sem gef-
ur nánari upplýsingar.
Umsóknarfrestur er til 1. ágúst 1983.
Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri
Alliance Francaise
Framhalds aðalfundur verður haldinn mið-
vikudaginn 25. maí kl. 20.30 að Laufásvegi
12 II. hæð.
Stjórnin
A/ið þökkum af alhug öllum þeim sem minntust
Björns Eiríkssonar
frá Sjónarhóli,
Hafnarfirði,
við andlát og útför hans.
Ykkar hlýhugur var okkur mikils virði.
Guð blessi ykkur öll.
Guðbjörg Jónsdóttir
og börnin.