Þjóðviljinn - 20.05.1983, Síða 15
Föstudagur 20. maí 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 23
RUV ©
frá lesendum
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Gull í mund.
7.25 Leikfimi.
8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð:
Bernharður Guðmundsson talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: „Leitin að
guði" eftir Gunnar M. Magnúss. Jóna Þ.
Vernharðsdóttir lýkur lestrinum.
9.20 Leikfimi. Tilkynnfngar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (utdr.).
10.35 „Mér voru fornu minnin kær". Einar
Kritjánsson frá Hermundarfelli sér um þátt-
inn (RÚVAK).
11.05 „Ég man þá tíð“. Lög frá liðnum árum.
Umsjón Hermann Ragnar Stefánsson.
11.35 Frá norðurlöndum. Umsjónarmaður:
Borgþór Kjærnested.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynning-
ar, Á frivaktinni. Margrét Guðmundsdóttir
kynnir óskalög sjómanna.
14.30 „Gott land" eftir Pearl S. Buck I þýð-
ingu Magnúsar Ásgeirssonar og Magnúsar
Magnússonar. Kristín Anna Þórarinsdóttir
les (4).
15.00 Miðdegistónleikar Kristin Merscherog
Sinfóníuhljómsveit Berlínarútvarpsins leikar
„Rondo brillante" í Es-dúr fyrir píanó og
hljómsveit eftir Felix Mendelssohn; Marek
Janowski stj. I Filharmóníusveitin i Los Ang-
eles leikur „Orustuna við Atla Húnakonung"
ettir Franz Liszt; Zubin Metha stj. / Placido
Domingo syngur með Fílharmóníusveitinni í
Los Angeles ariur úr óperum eftir Giacomo
Meyerbeer og Georges Bizet; Carlo Maria
Guilini stj.
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir.
16.20 Útvarpssaga barnanna: Sögur frá
æskuárum frægra manna ettir Ada Hen-
sel og P. Falk Rönne. „Undir gömlu
eikinni", saga um Oliver Cromwell. Ás-
tráður Sigursteindórsson les þýðingu sína
(15).
16.40 Litli barnatiminn. Stjórnandi: Gréta Ol-
afsdóttir (RÚVAK).
17.00 Með á nótunum. Létt tónlist og
leiðbeiningar til vegfarenda. Umsjónar-
menn: Ragnheiður Davíðsdóttir og Tryggvi
Jakobsson.
17.30 Nýtt undir nálinni Kristín Björg Þor-
steinsdóttir kynnir nýútkomnar hljómplötur.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir
19.40 Tilkynningar. Tónleikar.
20.00 Lög unga fólksins. Þóra Björg Thor-
oddsen kynnir.
20.40 „Ungfrú Samba og herra Jass“ Tania
Maria Correa Reis og Niels Henning Örsted
Pedersen syngja og leika í útvarpssal. -
Kynnir: Vernharður Linnet. (fyrri hluti).
21.40 „Hve létt og lipurt“ Fimmti þáttur Hö-
skuldur Skagfjörð.
22.05 Tónleikar.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins. Orð kvöldsins
22.35 „Örlagaglíma" eftir Guðmund L.
Friðfinnsson. Höfundur les (17).
23.00 Kvöldgestir - Þáttur Jónasar Jónas-
sonar.
00.50 Fréttir. 01.00 Veðurfregnir.
01.10 Á næturvaktinni - Sigmar B. Hauks-
son - Ása Jóhannesdóttir.
03.00 Dagskrárlok.
Tap F ramsóknar
Eðlilega liggur Framsókn nú og
sleikir sár sín, er hún hlaut í síð-
ustu kosningum. Einnig hlýtur
hún að leita svara við hinu mikia
tapi sem flokkurinn hlaut. Skyldi
flokkurinn leiða huga að því að
þctta gæti stafað af innviðum
flokkins sjálfs, t.d. herstöðvamál-
ið? Frá upphafi hefur hann þóst
vera á móti hersetu hér á landi, en
svo í hvert sinn hefur andstaða
við herinn gufað upp og fylgi hans
við herinn sífellt virst aukast.
Guðmundur Þórarinsson hét
einn alþingismaður Framsóknar
og virtist hann heitur frið-
armaður og hreyfði því á Alþingi
að við ættum að friðlýsa landið og
landhelgina og banna öll atóm-
vopn á þessu svæði. Hefur ekki
heyrst að hann berðist fyrir þessu
áhugamáli sínu, enda ekki tekið
undir það af flokksmönnum
hans, og honum hvergi ýtt fram í
kosningaslagnum nú og hafði
hann þó gengið fram fyrir skjöldu
í nýjasta óskamáli Framsóknar:
að skríða fyrir Alúsviss og níða
Hjörleif Guttormsson fyrir störf
hans í álmálinu.
Væri ekki athugunarvert fyrir
Framsókn að athuga hvort ekki
geti skeð að gæfuleysi hennar
gæti átt rætur að rekja til sífellt
meiri þjónkunar við herinn og
vaxandi herbúnaðar USA? Er nú
víst að þjóðin kæri sig nokkuð um
að fylgja Ólafi Jóhannessyni, sem
verið hefur utanríkisráðherra,
við að reyna að veita hernum all-
ar þær óskir sem hann og USA
fara fram á hér?
Vonandi er það af því að
þjóðin vill ekki fylgja Ölafi á
þessari algeru undirlægjuleið, að
hann drepur nú af sér þingmann í
Reykjavík og þingmanninn á
Reykjanesi, einmitt þá sem eru
næst og ef til vill mest í herfylk-
ingunni.
Svo mætti Framsókn athuga
hvort það er beint til áljtsauka að
taka að sér málstað auðhringsins
Alúsviss og reyna að níða æruna
af þeim íslendingunt sem standa
uppréttir fyrir álhringnum og
heimta að hann standi við samn-
inga og falsi ekki reikninga sér í
hag.
Framsókn og sérstaklega þeir
sem nú ráða stefnu Framsóknar
ættu að gera sér Ijóst að þeir fá
alls ekki flokksmenn sína til að
elta sig til aukinnar þjónustu
undir erlenda herstjórn, og allra
síst að þeir fáist til að elta þá til
þjónustu undir Alúsviss-
auðhringnum.
Gamall Framsóknarmaður
Spurningar til gatnamálastjóra
Hvers vegna
þessi mikla
saltnotkun?
Vegfarandi spyr:
Sjálfsagt hafa allir tekið eftir
því hversu götur hér í Reykjavík
koma illa undan vetri. Hvernig
stendur á þessu? Eru það nagl-
arnir? Eða hinn hömlulausi salt-
austur borgaryfirvalda? Mér er
sagt að þessi ntikla saltnotkun á
strætisvagnaleiðum éti upp as-
faltið óg að malbikið losni þess
vegna í sundur. Hvers vegna er
saltið notað svona mikið? Eg hef
ferðast erlendis á vetrum (það
eru nefnilega vetur víðar en á
Fróni) og þar minnist ég þess ekki
að hafa séð þennan saltaustur.
Hefur þetta verið rannsakað til
hlítar, þ.e. hvaða áhrif saltið hef-
ur á malbikið? Það væri líka gam-
an að fá að vita livað skattborgar-
arnir þurfa að greiða á hver j u vori
fyrirgjöreyðilagðargötur. Ogein
að lpkum: Nú eru allir bifreiða-
eigendur skikkaðir til að nota
nagla undir sína bíla. Hvers
vegna ekki SVR? Spyr sá sem
bíður eftir svari frá t.d. gatna-
málastjóra.
Hefur verið rannsakað hvaða áhrif hinn mikli saltaustur á götur borg-
arinnar hefur á malbikið?
barnahorn
RUV
19.45 Fréttaágrip á táknmáll
20.00 Fréttir og veöur
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.30 Á döfinni Umsjónarmaður Kari Sig-
tryggsson. Kynnir Birna Hrólfsdóttir.
20.55 Steini og Olli. Strákar í stuttum pil-
sum - 1924 Skopmyndasyrpa með Stan
Laurel og Oliver Hardy.
21.15 Umræðuþáttur
22.10 Reikningsskil (The Reckoning) Bresk
biómynd frá 1971. Leikstjóri Jack Gold. Að-
alhlutverk: Nicol Williamson, Ann Bell og
Rachel Roberts. Með hörku og dugnaði het-
ur ungur Iri öðlast frama I viðskiptalifinu I
London. Hjónabandserfiðleikar og svip-
legur dauði föður hans beina honum síðan á
nokkuð hálar brautir. Þýðandi Björn Bald-
ursson.
00.00 Dagskrárlok
Reiknings-
skil
Kvikmyndin, sem sjónvarpið sýnir í
kvöld, er bresk, árgerð 1968. Hún ber
heitið „Reikningsskil" á íslensku.
Ungur (ri, sem Nicol Williamson
leikur, hefur með mikilli hörku og
dugnaöi öðlast frama í viðskiptalífinu í
London. Hann fyrirlítur hræsni sam-
starfsmanna sinna og leiðist óhemju-
lega samkvæmislífið. Kona hans er á
fullu í því lífi og írinn ber ekki lengur
ástarhug til hennar.
Faðir hans lætur sviplega lífið í
slagsmálum og írinn ungi neyðist til
að gera eitthvað í því máli. Óhætt er
að segja, að hann lendi á hálum
brautum.
Myndin fær þokkalega dóma í
handbókum blaösins.
Föndur
Hefur ykkur nokkurn tíma
dottið í hug að hægt væri að
smíða skip úr korktöppum? Nei,
líklega ekki, en þetta er nú samt
hægt. Þið skerið tappann í tvennt
eins og sýn er á myndinni og tálg-
ið hann svo til, og setjið lítinn
nagla í endann. í mastur er ágætt
að nota títuprjóna. Ef þið getið
orðið ykkur úti um segulstál get-
ið þið stjórnað skipinu með
því. Þið festið segulstálið á
endann á langri spýtu og þegar
það nálgast títuprjónana kemst
hreyfing á skipið.
Eins og þið sjáið á meðfylgj-
andi myndum geta skipin verið
æði margvísleg. Til dæmis má
hæglega búa þau til úr pappa en
þá má auðvitað ekki setja þau í
vatn. En það getur verið
skemmtilegt að sigla skipum á
pappaspjaldi. Þið fáið ykkur
stórt pappaspjald og á það getið
þið teiknað siglingaleiðirnar,
hafnir og bryggjur. Skipin eru út-
búin úr pappa eins og sýnt er á
meðfylgjandi myndum og neðan
á þau er sett málmplata eða títu-
prjónn. Þá getið þið hreyft
skipin með því að færa segulstál-
ið undir pappaspjaldinu. Ef þið
teiknið á pappann mjóa skipa-
skurði og aðrar hættur getur ver-
ið erfitt að halda skipunum á
réttri leið. Ef þið viljið hafa þetta
virkilega skemmtilegt getið þið
búið til hús og annað úr litlum
spýtukubbum eða pappa. Skipin
verða auðvitað að vera alveg flöt
að neðan svo að þau geti siglt á
spjaldinu.