Þjóðviljinn - 20.05.1983, Page 16
ÞWÐVIUINN
Föstudagur 20. maf 1983
Símvirkjar
álykta einróma:
Nordal
óþarfari
en vísi-
tölu kerfið
Á fundi 5. deiidar Félags ís-
lenskra símamanna (símvirkjar)
var einróma samþykkt eftirfarandi
ályktun:
„Nú hefur helsti efnahagspostuli
landsins flutt sína árlegu prédíkun.
Helsti boðskapur hans, sem að
launamönnunt snýr, er afnám
verðtryggingar launa.
Í 30 til 80% verðbólgu undanfar-
andi ára hefur vísitölutrygging,
jafnvel þótt skert sé, verið brjóst-
vörn okkar gegn kjaraskerðingu,
og stuðlað að friði á vinnumark-
aðinum, launamönnum og
þjóðinni allri til h.eilla.
Sjálf verðbólgan, sem vísitalan
mælir, er afleiðing en ekki orsök
bágborinnar stjórnar efnahags-
mála þjóðarinnar.
Helstu afrek Jóhannesar Nordal'
í þágu launamanna og þjóðar eru
þessi:
Semja tvisvar af sér við ísal og
Alusuisse.
Þenja á 20 árum Seðlabanka ís-
lands úr einu herbergi í Lands-
bankanum í það að vera stærsti
seðlabanki á Norðurlöndum með
fleira starfsfólk en öll ráðuneytin til
samans.
Koma upp einu glæsilegasta
bókasafni landsins, en þar á þjóðin
að vísu engan aðgang.
Hafa svo frábæra stjórn á og
eftirlit með bafikakerfinu, að
hveigi höfum við spurnir af jafn
viðamiklu bankakerfi eða jafn-
miklum bankakostnaði og hér-
lendis.
Fundur í 5. deild F.Í.S. haldinn
17. maí 1983 telur JóhannesNordal
miklu óþarfari þjóðinni en vísitölu-
kerfið."
Aðalsími Þjóðviljans er 61333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er
hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er
hægt að ná í afgreiðslu blaðsins i sima 81663. Prentsmiðjan Prent hefur sima 81348
og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld.
Aðalsími
81333
Kvöldsfmi Helgarsími
81348 81663
Geimferjan bandaríska, Enterprise, flaug í gær yfir Reykjavík á gripur á mikilli flugsýningu. Sendiherra Bandaríkjanna og Stein-
baki Bocing 747-þotu. Þær lentu á Keflavíkurflugvelli um níuleytið grímur Hermannsson tóku á móti áhöfninni við flugskýli á Kefla-
að viðstöddu fjölmenni. Geimferjan, eða geimskutlan, fer leiðar víkurflugvelli. Ljósm. - eik.
sinnar aftur í dag til Parísar þarsem hún verður glæstur sýningar-
Fræðslust j óramálið:
Hefndarráðstöfun
- Hér er um hcfndarráðstöfun
meirihluta borgarstjórnar að
ræða, sögðu talsmcnn minnihlut-
ans á fundi borgarstjórnar í gær-
kvöldi er verið var að ræða
breytingar á skipan fræðslustjóra-
embættisins í Rcykjavík. Bentu
borgarfulltrúarnir á otTors og
hamagang meirihlutans allt frá því
Áslaug Brynjólfsdóttir var skipuð
fræðslustjóri í andstöðu við vilja
Sjálfstæðisflokksins sem vildi gera
Sigurjón' Fjeldsted borgarfulltrúa
að fræðslustjóra síðasta vetur.
Ðavíö Oddsson og Markús Örn
Antonsson drógu heldur ekki
fjöður yfir að skipun menntamála-
ráðherra í embættið hefði verið
kveikjan að þessum aðgerðum.
Borgarfulltrúar Alþýðubanda-
lags, Framsóknar og Kven.nafram-
boðs gagnrýndu harðlega vinnu-
brögð meirihlutans í þessu máli.
Alþýðubandalagsmenn lögðu fram
meirihlutans
frávísunartillögu og Kvennafram -
boðið varatillögu um frestun af-
greiöslu. Gagnrýndi minnihlutinn
„hroka, valdníðslu, pukur og ó-
lýðræðisleg vinnubrögð" Davíðs
borgarstjóra og meirihluta hans.
Davíð Oddsson, borgarstjóri
Sjálfstæðisflokksins var stórorður.
Hann sagði menntamálaráðherra
hafa gert starfsmenn ráðuneytisins
„ærulausa", hann hafi sýnt þeim
„undarlegan ódrengskap“, og mál-
flutningur „þessa blessaða manns“
væri „bara bull". Davíð sagði að
Alþýðubandalagið hefði reynt að
koma af stað múgsefjun vegna
málsins. „Alþýðubandalagið gekk
meira að segja svo langt að halda
fund um rnálið", sagði borgar-
stjóri.
Þegar blaðið fór í prentun höfðu
umræður staðið hátt á fimmta
tíma, og afgreiðsla málsins ekki í
sjónmáli. _óg.
Flosi: Mér finnst mest gaman að skopast að því sem mönnum er heilagast í
sjálfu hofinu, höfuðstöðvunum, Þjóðviljanum. Ljósm.: Kristján Arn-
grímsson.
í helgarblaðinnu á morgun:
Flosi byrjar aftur
á vikuskammtinum
Þegar Flosi Ólafsson hætti að skrifa sína vikuskammta í Þjóðviljann í fyrra
vakti það töluverða athygli og blaðaskrif. Þau tíðindi hafa nú gerst að Flosi hefur
ákveðið að hefja vikuleg skrif sín í Sunnudagsblaðið á nýjan leik og því var ekki
úr vegi að grípa í skottið á honum á göngum Þjóðviljahússins þegar hann vár að
skila sinni fyrstu grein og spyrja hann dálítið út í þetta.
- Hvað olli því, Flosi, að þú hættir í fyrra?
- Þegar ég var búinn að skrifa í 10 ár í Þjóðviljann
nær óslitið á hverjum laugardegi datt það í mig að
setja saman bók fyrir réttu ári síðan og ákvað að gera
hlé á skrifum í Þjóðviljann, fékk frí, fór upp í Borgar-
fjörð og skrifaði bókina í kvosinni.
- Nú var ýmsum öðrum getum að því leitt hvers
vegna þú hættir?
- Já, ýmsir getspakir menn gerðu því þá skóna að
ég hefði verið rekinn af Þjóðviljanum fyrir andfélags-
legar skoðanir og kvenhatur - en víst var ég ekki
rekinn hvað sem um þessar skoðanir má segja.
- En hvers vegna Þjóðviljinn?
- Ég býst við að ég gæti fengið að skrifa í hvaða
blað sem er, en einhvern veginn finnst mér að mest
gaman sé að skopast að því sem mönnum er heilagast í
sjálfu hofinu, höfuðstöðvunum, Þjóðviljanum. Gott
tækifæri til að pirra marga á skömmum tíma. Kannski
ber ég einhverjar taúgar til Þjóðviljans eða er það
kannski meðfædd íhaldssemi að mér virðist erfitt að
skipta um skoðanir hvað þá blað til að skrifa í.
Fyrsti vikuskammturinn birtist í Þjóðviljanum á
morgun og var Flosi boðinn velkominn til starfa á
nýjan leik. _ GFr