Þjóðviljinn - 10.06.1983, Page 3
Fðstudagur 10. júin 1983. !ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3.
Starfsfólk í mötuneyti Álversins leit við í kersmiðjunni meðan á aðgerðum stóð í gær og heilsaði upp á starfsbræður sína. Myndir: -eik.
Víðtæk samstaða starfsmanna
„Mikil þögn grúfði yfir athafnasvæði ÍSAL í Straumsvík um
miðjan dag í gær, þegar blaðamenn Þjóðviljans komu á stað-
inn. Öll vinnutæki höfðu verið stöðvuð og varla sást maður á
ferli. Inni á verkstæðum og í kerskálum hafði verkafólk safn-
ast saman til að ræða viðbrögð forráðamanna Álversins við
kröfum starfsfólks um afturköllun hópuppsagna nú í haust.
Menn höfðu margt að ræða og lá öll vinna niðri á svæðinu í
tvær klukkustundir.
Þjóðviljamenn litu inn í kersmiðjuna þar sem tugir verka-
manna ræddu málin á kaffistofunni, auk þess sem starfsfólk í
mötuneyti leit við í kersmiðjunni stuttu síðar til að kynna sér
aðstöðu starfsbræðra sinna og heyra í þeim hljóðið. Sam-
staðan var greinilega mikil í þessum víðtæku aðgerðum
starfsmanna Álversins.
-ig-
Sýnum
fram á
sam-
stöðuna
sagði aðaltrúnaðar
maður starfsmanna
í Alverinu
Örn Friðriksson
„Við erum að ganga hér um
svæðið og funda með fólki. Kynna
því vinnuaðstöðu samstarfsmanna
sinna. Það er margur sem aldrei
hefur komið hingað inn, þótt hann
hafi unnið hér á svæðinu í fjölda
ára. Um leið erum við að sýna fram
á samstöðu í þessum stóra hóp á
þessum stóra vinnustað“, sagði
Órn Friðriksson aðaitrúnaðar-
maður sem fylgdi starfsfólki úr
mötuneyti um sali kerskálans.
Við áttum ekki von á þessum
svörum sem við fengum hjá yfir-
mönnum Álversins, hvorki að efni
til né á þann máta sem þau voru
fram sett. Tómt nei við öllu. Og
forstjórinn hefur líklegast haft ein-
hverju mikilvægara að sinna en að
ræða þessi mál við okkur.“
Hvert verður næsta skref í
aðgerðum starfsmanna?
„Við höfum ekki þá stefnu að
vera með aðgerðir heldur erum við
að bera fram óskir. En þau við-
brögð sem við höfum mætt nú um
alllangt skeið eru þess eðlis að við
viljum gjarnan vekja athygli á þeim
meðal starfsmanna. Við höfum
ekki verið að álykta einungis gegn
einhverju heldur benda á ýmis at-
riði, t.d. að tækninýjungar hér hafa
ekki skilað sér nema að óverulegu
leyti. Einnig er ekki verið að draga
saman seglin hjá þessari verk-
smiðju, heldur á að auka fram-
leiðsluna í 100% afköst nú í haust.
Við höfum spurt, hvað tekur við
15. september nú í haust, hvaða
hugmyndir stjórnendur séu með
varðandi skipulagningu vinnu og
verkefni í einstökum deildum. Við
þessum spurningum höfum við
ekki fengið nein svör. Þessa hluti
höfum við verið að kynna fyrir
starfsmönnum“, sagði Orn
Friðriksson.
-Ig-
Verkstjóri
í kersmiðju
Ég er
alveg
hlutlaus
„Ég er ekki í neinu verkfalli, þeg-
ar menn leggja svona niður vinnu
þá túlka ég það sem verkfall“, sagði
Sigurður Kristjánsson verkstjóri í
Kersmiðjunni.
Aðspurður um álit hans á kröf-
um verkafólks, sagðist hann ekki
leggja neinn dóm á þær. „Ég er
alveg hlutlaus í þeim efnum en ég
Baldur Baldursson
T rúnaðarmaður
í kersmiðju
Ekki
hlustað á
okkar rök
„Uér er alveg full samstaða um
aðgerðir og það er (jóst að ef þeir
taka ekki við sér þá er aiveg öruggt
að við munum fylgja þessu eftir
með öðrum aðgerðum“, sagði
Baldur Baldursson trúnaðarmaður
starfsmanna í kersmiðju.
t>að virðist ekki vera hlustað á
okkar rök í einu né neinu, og for-
stjórinn sá ekki einu sinni ástæðu
til að mæta á fundinn. Við lítum á
það sem lítilsvirðingu gagnvart
verkalýðshreyfingunni af hans
hálfu.
Baldur sagði sérkennilegt, að á
sama tíma og tugum manna væri
sagt upp þá væri búið að fjölga
starfsmönnum í kersmiðjunni einni
um rúmlega helming.
-lg-
Sigurður Kristjánsson
er á móti þessum aðgerðum. Alveg
hiklaust.“
Sigurður sagði að áhrif þessarar
vinnustöðvunar myndu verða þó
nokkur. „Það verða tafir á vinnu og
hlaðast hér upp verkefni. Það
virðist vera mikil samstaða um
þessar aðgerðir, því hér hefur öll
vinna lagst niður;“
-*g-
Innan við helmingur breta kaus Thatcher
Ihaldmu er spáð fylgistapi
Ihaldsflokkurinn samt með mikinn þingmeirihluta
Allt bendir til þess að íhalds-
flokkurinn fái mikinn meirihluta
þingsæta í kosningunum í Bret-
landi, þrátt fyrir að flokkurinn fái
innan við 45% atkvæða. Þegar bú-
ið var að telja í 80 kjördæmum af
650 sl. nótt sagði Denis Healey
varaformaður Verkamanna-
flokksins, að hlutverk miðju-
bandalagsins í þessum kosningum
hefði verið að kljúfa andstæðinga
Thatcher-stjórnarinnar.
Um miðnætti virtist sem svo, að
Verkamannaflokkurinn hefði unn-
ið kjördæmi af klofningsmönnum,
sem stofnuðu til miðjubandalags-
ins með frjálslyndum. Höfðu þeir
unnið þingsæti í aukakosningum,
sem þeir nú tapa til Verkamanna-
flokksins aftur. Mikið bar á því að
andstæðingar Thatcher-
stjórnarinnar kysu „taktíst“, þ.e.
að þeir kusu þann stjórnarand-
stöðuflokkinnsemlíklegri var til að
vinna þingsæti af íhaldsflokknum.
Denis Healey sagði í sjónvarpi í
gærkveldi,að Margreth Thatcher
nyti einungis fylgis um 45% þjóð-
arinnar. Og að það væri hlutverk
hins nýja flokks frjálslyndra og
hægri krata (SDP) að kljúfa and-
stæðinga ríkisstjórnar Thatcher.
Það þykir og ljóst að frjálslyndir
hafi traustara fylgi en kratarnir í
miðjubandalaginu. Þannig höfðu
frjálslyndir haldið sínum þing-
sætum þegar búið var að telja upp
undir þriðjung atkvæða í nótt en
kratarnir í bandalaginu tapað af
sínum þingsætum.
Samkvæmt spám um miðnættið
átti íhaldsflokkurinn að fá milli 380
og 390 þingsæti (140 í meirihluta),
Verkamannaflokkurinn 210 þing-
sæti, frjálslyndir 20-30 sæti, krat-
arnir í bandalaginu 3 þingsæti og
aðrir 23 þingsæti.
Þrátt fyrir að íhaldsflokknum sé
spáð um 2% fylgistapi mun hann
stórauka þingstyrk sinn um 140
þingsæti, og var mikið rætt um að
miðjubandalagið ætti þar stærstan
hlut að máli auk þess sem einmenn-
ingskjördæmakosningarnar bresku
væru ekki lýðræðislegasta form
sem til er.
Talið er líklegt að Michael Foot
muni segja af sér formennsku í
breska Verkamannaflokknum eftir
þessi kosningaúrslit og yngri mað-
ur muni taka við forystu flokksins.
-ös/óg