Þjóðviljinn - 10.06.1983, Qupperneq 11
íþróttir
Föstudagur 10. júni 1983. ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA ljl
Umsjón:
Víðir Sigurðsson
Auðveldur
sigur
Stuttgart
gegn
V íkingum
Vfb Stuttgart með Asgeir Sigur-
vinsson í broddi fylkingar átti ekki í
niiklum erfíðleikum með að sigra
Islandsmeistara Víkings, 3:0, í
heldur tilþrifalitlum leik á Laugar-
dalsvelli í gærkvöldi. Leikurinn
mótaðist af slæmum aðstæðum,
rennblautum velli, rigningu mestan
part leiks og kulda. Ásgeir Sigur-
vinsson á allan heiðurinn af því að
hafa komið 3-4 þús. manns til að
horfa á þennan leik og þrátt fyrir
allt fengu áhorfendur talsvert fyrir
peningana. Það duldist engum sem
á vellinum var að lið Stuttgart er
skipað mörgum afbragðs góðum
knattspyrnumönnum og oft á tíð-
um voru leikbrellurnar á veliinum
með þeim hætti að unun var á að
horfa.
Ásgeir stóð fyllilega undir því
mikla lofi sem á hann hefur verið
borið í vetur. Leikur hans allur ein-
kenndist af frábærri knattmeðferð,
þaulhugsuðum sendingum og því,
sem e.t.v. mest er um vert, afskap-
lega jöfnum orkuútlátum sem
bendir til þess að hann eigi langt
eftir í fremstu röð knattspyrnu-
manna. Það var aðeins í fyrri hálf-
leik sem bar á markatilraunum frá
hans hendi, en skot hans geiguðu
flest.
Stuttgart hafði yfir í hálfleik.
Allgöwer skoraði þegar á 10 mín-
útu eftir að Ásgeir hafði stjakað til
hans boltanum upp úr aukaspyrnu.
í síðari hálfleik bætti Peter
Reichert tveim mörkum við fyrir
Stuttgart, hið fyrra eftir hreint frá-
bæran samleik liðsmanna upp allan
völlinn. Mörkin komu á65. mínútu
og82. mínútu. Síðari hálfleikur var
mun frískari en sá fyrri sem datt
niður eftir mark Allgöwer. Áttu
Víkingar nokkur hættuleg tæki-
færi. Þannig komst Aðalsteinn
Aðalsteinsson einn innfyrir vörn
Stuttgart og Sigurður Aðalsteins-
son átti einnig gott færi en í báðum
tilvikum tókst markverði Stuttgart
að verja mjög vel.
Arnór ekki með
Maðurinn sem allra augu beindust að í gær, Asgeir Sigurvinsson. Hann olli ekki vonbrigðum jafnvel þó svo
hann skoraði ekki í leiknum. Frábært vald hans yfír öllum athöfnum á vellinum, samfara mýkt og ögun,
einkenndi allan leik hans í gærkvöldi.
Eusebio kemur ekki!
Arnór Guðjohnsen lék ekki með
Víkingum í gærkvöldi eins og látið
hafði verið í veðri vaka í DV í gær.
Gamlar erjur frá þeim tíma er Arn-
ór gekk til liðs við Lokeren fyrir
fimm árum áttu þar stærstan hlut
að máli, en þegar þau mál öll stóðu
sem hæst gaf Arnór út þá yfirlýs-
ingu að hann myndi aldrei framar
leika með Víkingum. Óvænt til-
kynning í útvarpinu í gær þess efnis
að Arnór myndi ekki leika með
Víkingum gegn Stuttgart þykir
hafa rennt stoðum undir það hald
manna að fyrri yfirlýsingar séu í
fullu gildi.
„Við vorum að fá heldur slæmar
fréttir. Eusebio kemur ekki. Um
nánari ástæður er ekki annað vitað
en það að forseti portúgalska fél-
agsins Benfica, hafí stoppað hann
af, ekki gefíð honum leyfí til að
halda í leikinn á laugardaginn. Við
vorum búnir að ganga frá öllum
okkar málum varðandi komu þessa
fræga knattspyrnumanns, höfðum
fengið vilyrði fyrir komu hans með
milligöngu náins vinar hans í Por-
túgal. Þetta setur auðvitað stórt
strik í reikninginn, því Eusebio var
okkar aðaltromp í leiknum við
Stuttgart á laugardaginn“, sagði
Guðgeir Leifsson knattspyrnu-
kappi og einn af forsvarsmönnum
Vfkings vegna komu v-þýska knatt-
spyrnuliðsins Stuttgart hingað til
lands. Eusebio átti að koma frá
Spáni á miðvikudagskvöldið, en
þegar til kom var hann ekki í vél-
inni.
Koma Eusebio hefði að því leyti
orðið merkileg að í ár eru 15 ár
síðan hann kom hingað til lands og
lék með Benfica gegn Val á
Laugardalsvellinum. Þá ætlaði allt
vitlaust að verða, 19 þúsund manns
komu á völlinn og er það met sem
seint verður slegið.
Guðgeir sagði að knattspyrnu-
stjarnan væri samningsbundinn
hinu portúgalska liði. Hann hefði
þar séð um þjálfun. Stjarna hans
skein hæst í kringum HM í Eng-
Iandi 1966, en eftir það fór veru-
lega að draga úr getu hans. Hin
síðari ár hefur hann m.a. ferðast
um, komið fram við ýmis tækifæri
tengd knattspyrnunni og minning-
unni um hina kynngimögnuðu
keppni í Englandi fyrir 17 árum.
Stjörnulið Víkings gegn Stuttgart:
lóhannes leikur með
Jóhannes Eðvaldsson leíkmaður
skoska liðsins Motherwell leikur
með stjörnuliði Víkings gegn Stutt-
gart á laugardaginn. Eins og kunn-
ugt er þá var málum svo komið að
litlar líkur voru taldar á því að Jó-
hannes gæti komið í leikinn m.a.
vegna þess að nokkrir óvandanðir
menn lögðu „pub“ hans í Glasgow,
því sem næst í rúst. En Jóhannes
kemur og leikurinn sem fram fer á
Laugardalsvellinum hefst kl. 14.30
á laugardaginn. Stjörnulið Víkings
er þannig skipað:
Piet Schriyvers Ajax,
Jóhannes Eðvaldsson Motherwell,
Jan Hamilton Sunderland,
Alan Kamere Darlington,
Mac Lean Darlington,
Arent Haan Eindhoven,
Willy Boskamp Lierse,
Pier Jansen Waterschei,
Lárus Guðmundsson Waterschei,
Sævar Jónsson C.S. Brúgge,
Magnús Bergs Tongeren,
Ragnar Margeirsson C.S. Brugge,
Guðgeir Leifsson Víkingur,
Diðrik Ólafsson Víkingur,
Guðmundur Þorbjörnsson Valur.
Dómarar í verkfall?
Talsverðar líkur eru taldar á því
að dómarar muni ekki láta sjá sig í
boðuðum leikjum í 1. deild um
helgina og í kvöld. Deilur KDSÍ,
við knattspyrnuyfirvöld hafa enn
ekki fengið neina lausn og er fundi
hjá KDSl í gærkvöldi lauk var allt
útlit fyrir að dómarar myndu sitja
heima. Lítilfjörleg þræta um
boðsmiða á leiki, bæði í Reykjavík
og úti á landi, mun hafa valdið mest
um stöðu mála.
1. deildin:
2 leikir í
Tveir leikir verða í 1. deild ís-
landsmótsins í knattspyrnu í
kvöld. ÍBV og Þór leika á Akur-
eyrarvelli í kvöld kl. 20 og á sama
tíma hefst leikur Þfóttar og Vals á
Laugardalsvellinum. Þetta éru
tveir fyrstu leikirnir í 5. umferð
mótsins, en umferðin tekur enda
á sunnudag með þrem leikjum.
Kl. 14 leika á Kópavogsvelli
Breiðablik og ÍBÍ, kl. 14.30 leika
á Akranesvelli ÍA og KR og kl.
20 leika á Laugardalsvelli Víking-
ur og Keflavík. Staðan í 1. deild
að loknum fjórum umferðum er
þessi:
kvöld
Vestm.eyjar......4 3 0 1 11-3 6
Akranes...........4 3 0 1 6-1 6
KR................4 2 2 0 6-4 6
Keflavik..........4 2 0 2 7-6 4
Valur.............4 2 0 2 4-8 4
Brelóablik.......4 112 2-3 3
Þróttur...........4 112 4-83
Isafjör&ur........4 112 5-8 3
Vikingur..........4 112 4-63
ÞórAk.............4 0 2 2 3-5 2
í 2. deild fer einnig fram heil
umferð með leikjum í kvöld.
Reynir og Fylkir leika kl. 20 á
Sandgerðisvelli í kvöld, en á
laugardag leika Einherji og FH,
Fram og Víðir, og Njarðvík og
KS. Á sunnudaginn leika svo KA
og Völsungur.