Þjóðviljinn - 10.06.1983, Síða 15
-
Föstudagur 10. júní 1983. ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
RUV ©
7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn. Gull i
mund. 7.25 Leikfimi.
8.00 Fréttir. 8.15 Veöurfregnir. Morgun-
orð: Guðrún S. Jónsdóttir talar
9.00 Fréttir
9.05 Morgunstund barnanna: „Disa á
Grænalæk, eftir Kára Tryggvason
Elísabet Þorgeirsdóttir lýkur lestrinum
(S).
9.20 Tónleikar a. Carmen svíta nr. 1 eftir
Georges Bizet. Sinfóníuhljómsveit Lund-
úna leikur; Neville Marriner stj. b. „Ha-
banera" úr óp. Carmen eftir Georges
Bizet. Marilyn Horne syngur. Óperu-
hljómsveit Vínarborgar leikur meö; Henry
Lewis stj. c. „Blómasöngurinn" úr óper-
unni Carmen eftir Georges.Bizet. Nicolai
Gedda syngur, Óperuhljómsveitin í Paris
leikur með; Georges Prétre stj.
9.40 Tilkynningar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forustugr.
dagb. (útdr.).
10.35 „Það er svo margt að minnast á“
Torfi Magnússon sér um þáttinn.
11.05 „Ég man þá tið Leg frá liðnum árum.
Umsjón: Hermann Ragnar Stefánsson.
11.35 „Maya-heimspekin“ Knútur R.
Magnússon les úr bókinni Indversk heim-
speki eftir Gunnar Dal.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
. ingar. Tónleikar.
14.00 „Gott land“ eftir Pearl S. Buck i
þýðingu Magnúsar Ásgeirssonar og
Magnúsar Magnússonar. Kristin Anna
Þórarinsdóttir les (18)
14.30 Á frívaktinni Sigrún Sigurðardóttir
kynnir óskalög sjómanna.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir.
16.20 Miðdegistónleikar a. Rapsódía op.
43 eftir Serge Rakhmanínoff um stef eftir
Paganini. Vladimir Ashkenazy leikur á
píanó með Sinfóníuhljómsveit Lundúna;
André Previn stjórnar. b. „Gullrokkurinn"
sinfónískt Ijóð op. 109 eftir Antonín
Dvorák, Tékkneska fílharmóníusveitin
leikur; Zdenek Chalabala stjórnar.
17.05 Af stað í fylgd með Ragnheiði Da-
viðsdóttur og Tryggva Jakobssyni.
17.15 Upptaktur - Guðmundur Benedikts-
son. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.50 Við stokkinn Guðni Kolbeinsson
segir börnunum sögu fyrir svefninn.
20.00 Lög unga fólksins. Þórður Magnús-
son kynnir.
20.40 Sumarið mitt Þáttur I umsjá Oddrún-
ar Völu Jónsdóttur.
21.30 Vínartónlist og óperettulög a. Lög
úr „Meyjaskemmunni", söngleik eftir
Heinrich Berté við tónlist eftir Franz
Schubert. Erika Köth, Rudolf Schock,
Erich Kunz, Rosemarie Raabe og fleiri
syngja ásamt Gunther Arndt kórnum og
hljómsveit undir stjórn Frank Fox. b.
Óperuhljómsveitin i Vín leikur Vínar-
valsa; Josef Leo Gruber stj.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morg-
' undagsins. Orð kvöldsins
22.35 „Sögur frá Skaftáreldi" eftir Jón
Trausta Helgi Þorláksson fyrrv. skóla-
stjóri les (3).
23.00 Náttfari Þáttur i umsjá Gests Einars
Jónassonar (RÚVAK).
00.50 Fréttir. 01.00 Veðurfregnir.
01.10 Á næturvaktinni -ÁsgeirTómasson.
03.00 Dagskrárlok
RUV
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Á döfinni Umsjónarmaður Karl Sig-
tryggsson. Kynnir Birna Hrólfsdóttir.
20.50 Steini og Olli Skopmyndasyrpa með
Stan Laurel og Oliver Hardy.
21.15 Þróun kjarnorkuvígbúnaðar Ný,
bresk-bandarísk heimildarmynd sem lýs-
ir því kappi sem Bandaríkjamenn hafa
iagt á kjamorkuvopnaframleiðslu undan-
farna tvo áratugi. Ennfremur er fjallað um
vígbúnaðarkapphlaup stórveldanna,
sem mörgum þykir nú mál að linni,
styrjaldarhættu og afvopnunarviðræður.
Þýðandi Bogi Arnar Finnbogason.
22.15 Barnabrek (To Find a Man) Banda-
rísk bíómynd frá 1971. Leikstjóri Buzz
Kulik. Aðalhlutverk: Pamela Martin, Dar-
ell O'Connor og Lloyd Bridges. Mynd um
fyrstu kynni unglinga af ástinni. Þegar
vinkona söguhetjunnar leitar liðsinnis
hans við að fá fóstureyðingu á hann úr
vöndu að ráða. Þýðandi Kristrún Þórðar-
dóttir.
23.50 Dagskrárlok
fr
ndum
,Hinsta kveðja‘
til Ara Trausta
Vegna greinar eftir Ara
Trausta, sem birtist í þessum
dálki 4. maí s.l. ætla ég að gera
lokatilraun, í bili að minnsta
kosti, til að svara útúrsnúningum
hans, til þess að koma í veg fyrir
að þeir valdi meiri misskilningi en
þörf krefur.
Mér finnst ekki veruleg ástæða
til að fjalla um moldviðri það,
sem hann þyrlar upp í upphafi
greinarinnar enda eru ásakanir
hans um „sjálfumgleði og
heimskulegan hroka“ og fleira í
þeim dúr aðeins steinkast úr gler-
húsi. Aðeins vil ég árétta það að
endurskoðunarstefnan er enginn
innantómur frasi heldur bitur
raunveruleiki.
Þá er rétt að snúa sér að þeim
fimm púnktum, sem Ari setur
fram sem „gagnrýni“ á BSK.
1. BSK hafa gagnrýna afstöðu
til sjálfra sín. Samtökin eru ung
og fremur reynslulítil og hafa gert
ýmis mistök, sem þau gætu ekki
dregið rétta Iædróma af nema
með sjálfsgagnrýni. Það hefur
hins vegar sýnt sig að Ari og hans
kollegar hafa lítinn áhuga haft á
að kynna sér sjónarmið BSK
heldur lagt ofurkapp á að stimpla
samtökin með öllu því, sem er
löngu þekkt úr vopnabúri
auðvaldsins. BSK hafa hins vegar
enga gagnrýni á marxismann
enda er hann alhliða leiðarvísir
verkalýðsstéttarinnar í barátt-
unni fyrir sósíalismanum. Ari
skýtur því að marxisminn þróist,
og það er hárrétt. En hvemig hef-
ur marxisminn þróast? Fyrst og
fremst frá því að vera almennar
kenningar um frelsun verkalýðs-
stéttarinnar undan arðráni og
kúgun yfir í það að vera stöðugt
fullkomnari leiðarvísir fýrir
stjómlist og baráttuaðferðir
verkalýðsins. Reynsla verka-
lýðsbaráttunnar hefur auðgað og
fullkomnað marxismann og
stöðugt staðfest grundvallarinn-
tak hans, kenninguna um byl-
tingu verkalýðsins og alræði ör-
eigans sem endurskoðunarsinn-
arnir reyna að gefa í skyn að sé
úrelt með almennu tali um að
„marxisminn þróist“.
2. BSK hafa á engan hátt for-
kastað 10 ára reynslu maóista-
hreyfingarinnar. Það hefur ofl
komið fram í máli samtakanna að
þau líta svo á að sú hreyfing hafi
allan áttunda áratuginn ein-
kennst af baráttu milli byltingar-
sinnaðra sjónarmiða annars veg-
ar en hins vegar hentistefnuhug-
mynda, sem fyrst og fremst áttu
rót sína að rekja til „Kommúnist-
aflokks“ Kína og Maós Zedong.
Samtökin leitast við og munu
halda áfram að leitast við að
skilja þar rétt frá röngu til þess að
reynslan megi koma að notum og
ennfremur skora þau á þá sem
hafa verið viðriðnir maóista-
hreyfinguna að taka þátt í barátt-
unni fyrir nýjúm kommúnista-
flokki. Það er það takmark, sem
stærstur hluti þessa fólks barðist
fyrir í raun og veru um árabil.
Hvað varðar sanngirni í dóm-
um þá hefur mér virst að BSK
hafi að sumu leyti jákvæðari af-
stöðu til pólitískrar fortíðar Ara
Trausta og hans kollega, heldur
en þeir sjálfir.
3. og 4. punkti er óþarfi að
svara sérstaklega. Það sem er
nokkur glóra í þar er svo sjálfsagt
mál að það þarfnast ekki frekari
umræðu hér.
5. Stuðningur BSK við Flokk
Vinnunnar í Albaníu er ekki skil-
yrðislaus eins og Ari heldur fram.
Hann er háður því skilyrði að
flokkurinn sé trúr marxisman-
um-lenínismanum, sem hann og
hefur verið frá upphafi. Hvergi
hef ég séð pólitískt grundaða
gagnrýni frá Ara á Flokk Vinn-
unnar í Albaníu, heldur hefur
hann fyrst og fremst tekið undir
dylgjur um kosningasvik í Al-
baníu og fleira í þeim dúr. En
kannski hinn „alvitri“ Ari geti þá
upplýst það hver voru hin raun-
verulegu kosningaúrslit í Albaníu
í haust og nú í vor og hverjir
frömdu „kosningasvindlið“ og
hvernig.
Loks er rétt að geta þess að það
var ekki „Sovéttryggðin", sem
varð gamla kommúnistaflokkn-
um að fjörtjóni. Miklu frekar það
að hann skyldi ekki notfæra sér
reynslu sovéska flokksins. Og þó
að Ari og nokkrir fleiri úr maóist-
ahreyfingunni hafi látið Kínverj-
ana draga sig á asnaeyrunum
árum saman eftir að pólitík þeirra
varð lýðum ljós, þá þarf hann
ekki að alhæfa slíka blindni fyrir
alla. Samskipti albanska flokks-
ins við aðra kommúnistaflokka á
ekkert skylt við yfirdrottnunarp-
ólitík Kínverjanna. Auk þess
væri fróðlegt að vita hvernig
stuðningur BSK við Flokk Vinn-
unnar í Albaníu hefur hindrað
sjálfstæða stefnumótun samtak-
anna hér heima.
Að endingu ætla ég að tilfæra
hér tilvitnun, sem Ari tekur úr
minni fyrri grein en hún hljóðar
svo: „Sannleikurinn er hins vegar
sá að yfirlýstur reynslutími er
auðvitað enginn mælikvarði á
réttmæti þeirrar stefnu, sem
viðkomandi reynir að halda á
lofti eins og dæmin sanna“. Þetta
kallar Ari blinda trúhyggju og
vanmat á reynslunni, sem mikil-
vægasta dóm um eigið starf. í
þessum lúmska útúrsnúningi snýr
hann staðreyndunum við. Því að
þarna er alls ekki um að ræða
vanmat á reynslunni. Síður en
svo, því hér er undirstrikað að
kommúnistamir og aðrir verka-
lýðssinnar verða sjálfir að meta
reynsluna og draga af henni lær-
dóma en ekki bara að kasta sér
blint í fangið á þeim, sem mesta
reynslu segist hafa. Sagan hefur
einnig kennt okkur að margir af
forystusauðum hinna ýmsu hent-
istefnustrauma hafa átt langa
sögu í byltingarhreyfingu verka-
lýðsins.
Þá fyrst kemur reynslan að
gagni þegar hún er skoðuð í ljósi
hinnar ódauðlegu kenningar
marxismans-lenínismans.
Reykjavík 6. maí 1983
Þorvaldur Þorvaldsson
barnahorn
Skrýtlur
Tveir múrarar gengu eftir
götunni og héldu handleggj-
unum upp í undarlegri stell-
ingu. Ung kona lítur á þá og
segir:
„Afsakið afskiptasemina,
en af hverju gangið þið
svona?“
Sá sem gekk á undan snýr
sér við, lítur á vin sinn og
segir:
„Fjandinn sjálfur, við höfum
gleymt stiganum!“
„En hvað hundurinn er lík-
ur Möggu frænku.“
„Uss, ekki segja svona.“
„Ó, heldurðu að hann skilji
hvað ég segi?
„Þjónn, þú lítur út fyrir að
vera nýr á þessum stað. Hvað
er langt síðan þú byrjaðir
hérna?“
„Fjórir dagar, herra minn.“
„Nú, þá hefur það ekki ver-
ið þú sem tókst við pöntuninni
minni.
*****
Ég þekki kisu sem pissar
út um mela og móa. Á
henni er falleg rófa.
(Þórdfs Eik í 7 ára bekk Æfingaskólans).
o gusmM
DAi/tÐ
lyfíú^a/í
Borgarstjórinn
„Borgarstjórinn Davíð í lyftunni“, heitir þessi fína
mynd, sem við fengum nýlega. Þar má sjá Davíð
borgarstjóra í Reykjavík inni í lyftu, sem okkur sýn-
ist vera stopp. Kannski hann sé ennþá fastur í lyft-
uskömminni?