Þjóðviljinn - 01.07.1983, Qupperneq 1
WÐVIUINN
Síðari hluti sérrits
Þjóðviljans um
veiðar í ám og
vötnum fylgir
blaðinu í dag.
Sjá 9
Ijúlí 1983
föstudagur
144. tölublað
48. árgangur
#
ÁriÍAf
Frá orðum Vcrslunarráðsins til athafna
Sjálfstæðisflokksins gæti þessi mynd
heitið. Þarna er Ragnar Halldórsson,
formaður Verslunarráðs og Árni Árna-
son framkvæmdastjóri þess að afhenda
fjármálaráðherra og fyrrverandi for-
manni Verslunaráðs enn eitt „Frá
orðum til athafna" plaggið. Þar eru til-
lögur um tröllaukinn niðurskurð á lífs-
kjörum almennings og enn stærri niður-
skurð á félagslegri samhjálp og upp-
byggingu. Þarna slá hjörtun í takt.
Enda hefur fjármálaráðherra boðað
„afsósíaliseringu" þjóðfélagsins.
Ljósm. -eik.
,,Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá”
BLEKKINGAR
Segir Jóhannes Gunnarsson formaður Neytenda-
félags Reykjavíkur um tollalækkanimar
„Þessar tollalækkanir eru að ver-
ulegu lcyti ljölmiðlaleikur,“ sagði
Jóhannes Gunnarsson formaður
Neytendafélags Reykjavíkur um
tollalækkanir ríkisstjórnarinnar á
grænmeti og ávöxtum:
- Það er engu líkara en fjármála-
ráðherra sé að hvetja til óhollustu í
matarvenjum, því tollalækkunin á
ávöxtum gildir ekki fyrir ávexti al-
mennt, heldur einungis frysta
ávexti með sykri. Af þessu eru toll-
arnir lækkaðir úr 80% í 40%. Toll-
ar á ósykruðum frystum ávöxtum
eru ekki lækkaðir einsog skilja
mætti af fréttum fjölmiðla um þetta
mál.
Einnig blekking
með grænmetið
- Tollalækkunin á grænmeti nær
einungis yfir þurrkaðar döðlur og
fíkjur nýjar og þurrkaðar. Hins
vegar er það grænmeti sem venju-
legt fólk notar í ríkum mæli eins og
gulrætur og allar káltegundir áfram
í sama tollflokki, méð 70% tolli.
Það er því eins og hver annar
brandari að grænmeti og ávextir
lækki í verði svo almenningur njóti
góðs af í einhverjum mæli.
Það er máske dæmigert fyrir
þessar tollalækkanir að „Coco
Puffs“, súkkilaðihúðað korn lækk-
ar í verði. Það er heldur ekki líklegt
að almennt launafólk fagni t.d.
tollalækkun á mávastelli. Að einu
leyti er ástæða til að fagna tolla-
lækkuninni verulega, en það er að
tollur sé felldur af lífsnauðsyn-
legum hjálpartækjum og gler-
augum. Eins fagnar maður tolla-
lækkun á barnavögnum. En á barn-
avögnum lækkar tollurinn einungis
um 10%, úr 50% í 40%.
Után þessara atriða fæ ég ekki
betur séð en tollalækkunin sé
moldviðri, sagði formaður
Neytendafélags Reykjavíkur að
lokum.
-óg
Fáliðað í flug-
umsjón á Reykjavíkur-
flugvelli
Þarf
að
leysa
málið
segir Haukur
Hauksson settur
Flugmálastjóri
„Það kom upp vandamál í
gærkvöldi þannig að ekki
tókst að manna vaktina eins og
vera skyldi. Það hefur verið
mikið álag á mönnum vegna
manneklu sem er hér, það hef-
ur fækkað í starfsliði flugum-
ferðarstjórnarinnar. Fjórir
menn frá, cinn hættur og þrír
vegna veikinda. Þessu þarf að
mæta með aukavinnu sem við
erum að reyna að leysa“, sagði
Haukur Hauksson settur flug-
málastjóri í samtali við Þjóð-
viljann.
Allt einkaflug lagðist niður
við Reykjavíkurflugvöll í
fyrrakvöld, vegna þess að
aðeins einn flugumferðar-
stjóri var á vakt, og ekki tókst
að fá aðra flugumferðarstjóra
á aukavakt. Aðspurður hvort
um langvarandi vanda væri að
ræða við fluggæslu, sagði
Haukur Hauksson að hann
gæti ekki svarað því að svo
stöddu, málið þyrfti að leysa
með samkomulagi við Félag
flugumferðarstjóra og við-
ræður við félagið hæfust á
næstunni.
Eru þetta kannski duldar
aðgerðir með veikindum?
„Eg get ekkert sagt um það.
Slíkt liggur alls ekki fyrir. Þetta er
vandi sem er fyrir hendi. Ég get
varla sagt að um beinar aðgerðir
sé að ræða. Þetta er vandi sem
þarf að leysa með samstilltu
átaki.“
Áttu von á frekari röskun á
flugstjórn?
„Eg vona að það takist að manna
vaktirnar á meðan viðræður
standa yfir við flugumferðar-
stjóra," sagði Haukur. -lg.
Landssmiðjan á sölulista
Sverrir vfll
ekki selia
„Ég er með þær upplýsingar frá
iðnaðarráðuneytinu að í því ráðu-
neyti séu ekki uppi neinar ráða-
gerðir um eignabreytingar á fyrir-
tækinu. Það eru upplýsingar sem
ég fékk í fyrradag. Ég veit að það er
sjálfsagt uppi einhver skoðana-
munur milli ráðuneyta í þessu máli,
en við heyrum undir iðnaðarráðu-
neyti og meðan að ekkert liggur
fyrir um það í því húsi að það eigi
að selja þetta og gera einhverjar
breytingar, þá höfum við ekkert
frekar um þá hluti að segja“, sagði
Sigurður Daníclsson framkvæmda-
stjóri Landssmiðjunnar í samtali
við Þjóðviljann í gær.
Sem kunnugt er, er Lands-
smiðjan ofarlega á þeim óskalista
sem Albert Guðmundsson fjármál-
aráðherra hefur lagt fyrir samráð-
herra sína um fyrirtæki í eigu ríkis-
ins sem hann telur að selja eigi ein-
staklingum. Samkvæmt ofansögðu
eru menn ekki á eitt sáttir í ríkis-
stjórninni um sölu einstakra ríkis-
fyrirtækja.
Hagnaður hefur verið af rekstri
Landssmiðjunnar undanfarin ár.
Mynd - Leifur.
í opnu Þjóðviljans í dag er fjall-
að um tillögu fjármálaráðherra um
sölu Landssmiðjunnar og rætt við
starfsmenn smiðjunnar og for-
mann félags járniðnaðarmanna.
-Ig-
Alþingi sniögengið
Vinnubrögö ríkisstjórnarinnar
fáheyrð, segir Svavar Gestsson
Stjórnarandstaðan er sáróánægð með öll vinnubrögð ríkis-
stjornarinnar gagnvart réttkjörnu alþingi þjóðarinnar, og lét þá
óánægju í ljósi á sameiginlegum fundi þingflokksformanna sem
haldinn var í gær. Spurðu fulltrúar stjórnarandstöðunnar fulltrúa
Sjálfstæðisflokks og Framsóknar hvort ætti að afnema þingræðið í
landinu. Bentu talsmenn þingflokkanna á að alþingi væri snið-
gengið í veigamiklum málum. Þá var gent á þá fáheyrðu stöðu að
forseti alþingis væri einnig landbúnaðarráðherra og spurt hvort
hann myndi segja af sér sem forseti alþingis. Enn fremur var bent á
að formaður utanríkisnefndar væri ekki kjörinn alþingismaður, og
að utanríkisnefnd hefði ekki verið kölluð saman þó afdrifarík mál
þyrftu þar umfjöllunar við. Viðtal við Svavar Gestsson um þessi
mál eru í blaðinu í dag. _ óg
Sjá 8
Sjá 3