Þjóðviljinn - 01.07.1983, Qupperneq 2
2.SÍPA — ÞJÓÐVILJINN,. FösXudagur l. júlí 1983.
Skák
Karpov að tafli - 16*
Einn af fjölmörgum sovéskum gyöingum
sem flust hafa frá Sovétríkjunum er stór-
meistarinn Vladimir Liberzon sem tefldi á
svæöamótinu í Reykjavík 1975. Liberzon
hefur oft náð góðum árangri viö skák-
boröið en dottið niöur þess á milli. Hann
getur t.d. státaö af því aö hafa sigrað í
tvígang á Luis Statham-mótunum í Lone
Pine. Karpovog Liberzon tefldu í 6. umferð
á skákmótinu í Bad Kissingen og Karpov
yfirspilaði andstæðing sinn eftir öllum
kúnstarinnar reglum:
Karpov - Liberzon
Hver er besti leikur hvíts? Svartur hótar
illilega 49. - Hd2 og virðast því góð ráð dýr.
Karpov hafði séð þessa stöðu langt frammí
tímann og lék nú einföldum en þráðsnjöll-
um leik...
Bx7 50. Re3 mát!)
49. Hc7-!l
(Sáraeinfalt. Ef 49. ■
49. .. Kd5
50. Hc5+ Ke6
51. Rd4+ Kf7
52. Hxb5 Be3
53. Hb7+ Kg8
(Hvilikt undanhald. Á örstuttum tima hefur
svarti kóngurinn verið keyrður niöur á 8.
reitaröð.)
54. Rf5 Hd2+
55. Kb3
- og hér gafst svartur upp. Eftir 6 um-
ferðir var Karpov langefstur á mótinu, hafði
hlotið 5'/2 vinning. Róbert Hubner var
næstur með 4 v.
Bridge
Frá Stefáni Vilhjálmssyni Akureyri
bárust nokkurspilumdaginn. Þau
eru frá bikarleik úr 1. umferð, milli
sveita Stefáns og Baldurs -
Bjartmarss., Rvík.
Að sögn Stefáns voru gjarnan á
lofti mikil spil, stórar sagnir og
sviptingar. Farið var i slemmur í
einum 7 spilum (af 40). Við skulum
líta héráeina:
xxx
DGIOxx
KGx
Gx
ADxx
Kxxxxx
K10xx
Áx
ÁKDxxxx
xx
x
Gx
ÁD1 Oxxxxx
xxx
Norður Austur Suður Vðstur
(Guðm.S)(Stefán V.)(Sigu.'t:;.Á)
(Haukur J.)
Pass 2lauf 5 tíglar 5 hjörtu
Dobl 6lauf Pass 6spaðar?
7 tíglar 7spaðarAllirpass.
Þetta voru sagnirnar. 2 lauf er Ac01
(gamekrafa) aðrarsagnireins
„eðlilegar" og hægt er að ætlast til
eftir 5 tígla Suðurs. En spurningin er,
hvað gerist ef Norður segir 6 tígla í
stað þess að dobla? Norður hugsaði
sig dálítið um, en lét svo út tígulkóng
og þarmeð var spilið í höfn.
Alslemman í laufi eða spaða er alltaf
þótt í Austur. Á hinu borðinu fóru
sagnir hægt af staö og enduðu í 6
laufum unnin sjö. Sveit Stefáns
græddi því 11 impa á spilinu.
Basl við
myndun
bœjar-
stjórnar
Þannó. janúar 1849 átti að
kjósa einn fulltrúa úr hópi
tómthúsmanna í bæjarstjórn
Reykjavíkur. En skömmu fyrir
kjörfund tóku að berast kærur út
af kjörskránni. Lutu þær bæði að
því, að ýmsa vantaði á hana sem
þar ættu að vera en aðrir væru
þar hinsvegar skráðir, sem þar
ætti ekki að vera, svo sem menn,
sem orðið höfðu borgarar eftir að
kjörskráin varsaminogaðrir,
sem ekki gætu talist til tómthús-
manna, svo sem embættismenn,
sem ekku væru þó húseigendur en
hafði verið smeygt inn á
tómthúsmannakjörskrána svo
þeir væru ekki „algerlega
útilokaðir frá hluttekningu í
bæjarins málefnum“.
Stiptamtið féllst á rök kærenda
og voru þessir menn strikaðir út
afkjörskrá. Enúrþvíþeim var
þannig meinað að neyta
atkvæðisréttar og höfðu heldur
ekki fengið að kjósa við
kosningarnaráriðáður, varðað '
ráði að dæma þá kosningu ógilda
og efna til nýrra kosninga á
borgarafulltrúunum. Fórhún
fram 2. febr. en kosning á
tómthúsmannafulltrúanum 20.
jan. ÚrþeirrahópihlautJón
Jónsson, prentari íHákonarbæ
kosningu með 43 atkv. af 62 en 84
voru á kjörskrá. Afhálfuborgara
voru kosnir Pórður Jónassen
yfirdómari með51 atkv., Egill
Jónsson, bókbindari með 37
atkv., Diðrik Knudsen,
trésmiður með 34 atkv., Jón
Thorstensen, landlæknir með 25
atkv. ogH.St. Johnsen
kaupmaður með25 atkv. Á
kjörskrá voru 59 en 52 kusu.
Af þeim fjórum kaupmönnum,
sem kosnir voru árið áður, náðu
nú 3 ekki kjöri: Tærgesen,
BieringogHavsteen. Sennilegt
er að kjósendum hafi þótt
kaupmenn vera orðnir full
fyrirferðarmiklir í
bæjarstjórninni þar sem 4
bæjarfulltrúar af 6 voru úr þeirra
röðum.
En það ætlaði ekki að reynast
fyrirhafnarlítið að ganga til fulls
fráskapan bæjarstjórnarinnar.
Diðrik Knudsen taldi sig ekki
geta setið í bæjarstjórn vegna
mægða við Þórð Guðmundsson,
settan bæjarfógeta. Varáþað
fallist og enn efnt til kosningar á
fulltrúa í hans stað. Hnossiðhlaut
dr. Pétur Pétursson, lektor, með
25 atkv. Og þar með tókst loks,
eftir þrennar kosningar á sama
árinu, að koma saman
bæjarstjórn Reykjavíkur á því
herrans ári 1849. -mhg
„Við verðum að fá kjarnorku-
sprengju, jafnvel þó að við
neyðumst til að bíta gras“. Zia
hershöfðingi í Pakistan hefur lagt
allt kapp á að búa til kjarnorku-
sprengju. Um þessar mundir eru
málaferli í Þýskalandi gegn verk-
fræðingi sem á að hafa hjálpað til
við þetta fyrirtæki í Pakistan.
„Margar nýjungar í sumar“, segir Gurinar Sveinsson.
Gunnar Sveinsson framkvœmdastjóri
Félags sérleyfishafa og BSI:
Nýtt Egó
í Safarí
í kvöld
Mannabreytingar hafa orðið í
hljómsveitinni Egó og kemur hún
f fyrsta sinn fram í þessari nýju
mynd í kvöld í Safarí við Skúla-
götu. Nýju mennirnir eru Gunn-
ar Rafnsson hljómborðsleikari,
lengst til vinstri á myndinni, og
Jökull Úlfsson trommari, lengst
til hægri. Á milli þeirra má sjá
gömlu Egóistana: Rúnar bassa,
Bubba Morthens og Begga gítar-
leikara.
Helmingi ódýrara
að ferðast með
áætlunarbíl en fljúga
við Umferðarmiðstöðina 11. júní.
„Við urðum varir við greini-
lcga aukningu strax eftir þennan
kynningardag og við eigum von á
að sú aukning muni halda áfram.
Það er orðið nær hclmingi ódýr-
ara að ferðast með áætiunarbíl
um landið, en fljúga, og hjón sem
fara hringinn spara um 4000,-
krónur á því að taka áætlunarbíl í
stað þess að aka á eigin bíl“, sagði
Gunnar Sveinsson, fram-
kvæmdastjóri Félags sérleyfis-
hafa og BSÍ þegar við ræddum
við hann um ferðakynninguna,
sem Félag sérleyfishafa stóð fyrir
11. juní s.l.
„Teknar verða upp næturferðir
til Akureyrar, hringferðir um
Vestfirði, Hólmavíkurferðin
verður lengd, þannig að hægt er
að tengja gönguferðir um Horn-
strandir við áætlunarbílinn og
tekin verður upp hringferð frá
Húsavík um Melrakkasléttu,
Raufarhöfn, Þórshöfn, Vopnafj-
örð og Mývatn. Allar þessar
leiðir eru nýjung, sem við teljum
að mikill áhugi sé á. Við munum
einnig bæta leiðsögumönnum í
sumar áætlunarferðirnar t.d.
Frá kynningardeginum
verður leiðsögumaður í hring-
ferðinni um Vestfirði.“
Er mikið ódýrara að ferðast
með áætlunarbíl en eigin bíl?
„Já, það er enginn vafi á því og
munurinn er þó ennþá meiri ef
um flug er að ræða. Hér áður fyrr
var nánast sama verð á flugi og
áætlunarferð, en bilið hefur stöð-
ugt breikkað. Við erum einnig að
reyna að ná til útlendinganna og
höfum tekið upp ýmsa afsláttar-
miða, sem við teljum að geti spar-
að bæði íslendingum og útlend-
ingum mikið fé“, sagði Gunnar.
Þess má geta að lokum að sér-
leyfishafar á íslandi eru 28 talsins
og aka 44 leiðir, samtals um 6.500
kílómetra.
þs.