Þjóðviljinn - 01.07.1983, Síða 3
Föstudagur l.'júlí 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Sameiginlegur fundur allra þingflokka:
Á að afnema
þingræðið?
Fáheyrð pólitísk
staða í þing-
ræðisríki, segir
Svavar Gestsson
- Við spurðum hvort ætti að af-
nema þingræðið, sagði Svavar
Gestsson eftir fund formanna allra
þingflokkanna sem haldinn var í
gær. - Það varð fátt um svör hjá
stjórnarliðinu enda fáheyrð staða
uppi:
- Stjórnarandstaðan er að von-
um sáróánægð með öll vinnubrögð
ríkisstjórnarinnar gagnvart rétt-
kjörnu alþingi þjóðarinnar. Það er
ekki einungis varðandi þinghald í
sumar heldur nánast í öllum atrið-
um sem ríkisstjórnin treður á þing-
ræðinu og þá sérstaklega stjórnar-
andstöðunnar. Það er verið að
skipa samninganefndir og stóriðju-
nefnd án þess að nokkur fulltrúi
stjórnarandstöðunnar skipi þar
sæti. Þetta er ný lenska sem upp er
tekin og maður kannast við af af-
spurn frá einræðisríkjum.
- Við spurðum talsmenn stjórn-
arflokkanna hvort meiningin væri
sú að Jón Helgason landbúnaðar-
ráðherra segði af sér sem forseti
alþingis og að varaforseti Karl
Steinar Guðnason tæki við sem
handhafi forsetavalds. Við
spurðum hvort utanríkisnefnd væri
kölluð saman af fyrrverandi for-
manni hennar, sem ekki á lengur
sæti á alþingi en það er Geir Hall-
grímsson utanríkisráðherra. Eða
er Kjartan Jóhannsson varafor-
maður nefndarinnar orðinn for-
maður hennar?
- Þá spurði ég hvað liði fjárlaga-
gerð, en í leyniplaggi ríkisstjórnar-
innar er sagt að fjárveitinganefnd
verði með í ráðum um fjárlaga-
gerð. Einnig spurðum við hvort
þingið yrði kallað saman fyrr í
haust vegna þessara mála. Tals-.
maður Framsóknarflokksins á
fundinum ætlaði að leita svara við
þessum spurningum á þingflokks-
fundi Framsóknarflokksins sem
haldinn verður 7. júlí næstkom-
andi.
Við í stjórnarandstöðunni erum
að sjálfsögðu sáróánægð með
hvernig ríkisstjórn Framsóknar og
Sjálfstæðisflokks vanvirðir þing-
ræðið. Og það er óþolandi að rétt-
kjörnir alþingismenn skuli ekki fá
lágmarksupplýsingar í afdrifarík-
um málum þessar vikurnar.
Stjórnarandstaðan mun ekki una
því þegjandi, sagði Svavar Gests-
son að lokum.
-úg
Heiðursmálarinn Stefán V. Jónsson frá Möðrudal varð 75 ára á Jónsmessunni. í dag opnar Listmunahúsið
og Morkinskinna sýningu í tilefni af afmæli fjallakúnstnersins. Margir hafa lagt hönd á plóginn til að gera
sýninguna mögulega og verður m.a. boðið upp á Hólsfjallahangikjöt og saltrey.ð (silung) úr Mývatni þegar
sýningin verður opnuð kl. 18.00 í dag. Myndin var tekin í gær þegar Stefán var að Iíta yfir verk sín í
Listmunahúsinu. Ljósm. - Leifur.
Fjórðungsmót norðlenskra hestamanna hófst í gær:
Úrslit á tölvuskermi jafnóðum
„Við erum tilbúin til að taka á
móti nánast ótakmörkuðum fjölda.
Hér er búið að stækka svæðið til
muna og bæta mjög alla aðstöðu og
við vonumst eftir miklum fjölda
gesta. Það sem ef til vill er þó ný-
stárlegt við þetta mót er að nú
verða öll úrslit og einkunnir sýnd á
Getur frestun á greiðslu húsnæðislána komið í bakið á húseigendum?
Ekkí gert ráð fyrir þessu
segir Jens Sörensen forstöðumaður Veðdeildarinnar
Lands-
Margir fasteignaeigendur sem
eru með húsnæðislán hafa verið í
vafa hvort rétt væri að taka boði
ríkisstjórnarinnar um frestun á
25% afborgun húsnæðislána, þar
sem slíkt gæti komið þeim í koll er
þeir ætluðu að selja íbúðina.
Kaupandi teldi sig þá ekki skyldan
að taka við hinum frestuðu
greiðslum veðlánsins.
„Það hefur ekki reynt á þetta og
aldrei verið gert ráð fyrir þessu.
Hins vegar ef einhverjum dettur í
hug að setja slíka kröfu fram, þe.
að fyrri eigandi greiði upp þessa
frestun, þá skal ég ekkert segja um
það hvaða viðhorf kæmi upp. Ég sé
engan tilgang í því að fara fram á
slíkt,“ sagði Jens Sörensen for-
stöðumaður veðdeildar
banka íslands.
„Okkar hugsun hefur verið sú,
eins og segir í lögunum, að þetta
bætist við höfuðstól lánsins og
komi til greiðslu eftir að venju-
legum eða eðlilegum lánstíma sé
lokið. Þannig verður þetta sett upp
hjá okkur. Kaupandi fasteignar
tekur við láninu alveg eins og verið
hefur, eins og það er á hverjum
tíma, eins og eftirstöðvar lánsins
eru þegar hann festir kaup á henni.
Það á ekki að verða nein eðlis-
breyting á því.“ - lg.
Fráleitt það dragi úr sölu
segir Pétur Þór hjá Fjárfestingarfélaginu
„Það er fráleitt að slíkt dragi úr
sölumöguleikum. Ef rétt er tekið á
þessum málum þegar eign fer á sölu
og hún reiknuð upp miðað við þess-
ar breytingar, á það ekki á nokk-
urn hátt að spilla fyrir sölunni“,
sagði Pétur Þór Sigurðsson lög-
fræðingur hjá fjárfestingarmark-
aði Fjárfestingaféiagsins
aðspurður hvort frestun á greiðslu
húsnæðislána gætu komið illa við
fasteignaeiganda sem hyggðist síð-
an selja eign sína.
„Það hafa verið farnar tvær leiðir.
Annars vegar að fresta núna 25%
af heildarafborgun og jafna því á
þær greiðslur sem eru eftir. Hins
vegar hefur sú leið verið farin að
lengja lánið um eina eða tvær af-
borganir. Það er alveg sama hvor
leiðin er farin, það er á hverjum
tíma mjög auðvelt að reikna lánið
upp og að sjálfsögðu á kaupandi að
taka við láninu eins og það er að
þessu breyttu“.
Pétur sagði einnig,að hafi verið
leitað eftir þessari frestun á
greiðslu afborgunar geti kaupandi
og seljandi samið um að seljandi
klári að greiða upp frestunina.
„Slíkt er þá einungis samkomulag
þeirra á milli og ekki spurning um
ótvíræðan rétt annars hvors aðila“,
sagði Pétur Þór.
-Jg-
tölvuskjá jafnóðum. Sjónvarps-
skermi verður komið fyrir við
áhorfendabekkina og þar geta
menn því fylgst með. Þetta mun
vera í fyrsta sinn sem slíkt er gert á
hestamannamóti,“ sagði Gunnar
Egilsson, formaður framkvæmd-
anefndar fjórðungsmóts norð-
lenskra hestamanna, sem haldið er
á Melgerðismelum 30. júní til 3.
júlí.
Mikill undirbúningur hefur stað-
ið yfir undanfarnar vikur og eru
það einkum hestamannafélögin
Léttir, Funi og Þráinn, sem hafa
staðið að honum. Mótið var sett í
gær kl. 10.00 f.h. og strax að setn-
ingunni lokinni var byrjað að
dæma. í gærkvöldi voru um 600
manns komnir á mótið. Kvöldvaka
verður á laugardagskvöld, en mót-
inu verður slitið um kl. 18.00 á
sunnudag. Aðstaða verður fyrir
gesti í Hafralækjarskóla.
-þs
EDIÁI CA EEDEI
rn|AUÍ% ■ ElmEP
AHSTER
DAM
OGINTER RAILMm
LERTARKORT #
11.875I<R
BROTTFARIR: þriðjudaga og (immtudaga
PARIS
OGINTER RAIL
LESTARKORT
10.975I<R
BROTTFÖR: 17. júlí
AMSTER
DAM
ÁEIGIN
VEGUM
BROTTFARIR: þriðjudaga og fimmtudaga
FER.ÐA
SKRIFSTOFA
STÚDENTA
Hringbraut, síml 16850