Þjóðviljinn - 01.07.1983, Síða 8
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur L júlí 1983
Nakasone forsætisráðherra Japans með Reagan í Williamsburg á dögunum. Þar var hann á leiðtogafundi sjö
voldugustu ríkja heims og þótti Japan færast lengra inní blokk Bandaríkjanna og Nató eftir þann fund.
Nakasone á grænni grein
Stjórnarflokkurinn
vann mikinn sigur
Lítil þátttaka í kosningunum
Stjórnarflokkurinn í Japan,
„FrjáIslyndi-lýðræðisflokkurinn“
vann kosningasigur í kosningunum
sl. helgi. Flokkurinn vann 68 þing-
sæti af 126 sem kosið var um til efri
deildar þingsins. Kosningaþátttaka
var mjög dræm innan við 60% en í
kosningunum 1980 var hún 75%.
Margir telja að ný kosningalög hafi
átt þátt í því hve kosningaþátttaka
var léleg.
Litiö er svo á að Nakasone for-
sætisráðherra hafi með úrslitum
þessum fengið stuðning kjósenda
við nýja pólitík, sem felurm.a. ísér
nána samvinnu við Bandaríkin.
Aðeins var kosið um helming
252 þingsæta í efri deild þingsins og
hefur stjórnarflokkurinn íhalds-
sami nú 137 þingsæti - fjölgaði
þeim um fjögur í kosningunum.
Eftir kosningarnar hefur flokkur-
inn meirihluta í öllum nefndum
þingsins, sem auðveldar tök hans á
gangi mála.
Kosningaþátttakan í Japan þótti
í daufara lagi. Kosið var um helrn-
ing þingsæta í efri deild þingsins.
Þetta voru fyrstu kosningar þar
sem Yashuhiro Nakasone 65 ára
gamall leiðtogi „Frjálslynda -
lýðræðisflokksins" fór í fylkingar-
brjósti. Hann hefur þótt í meir'a
lagi uppá Reaganlínuna kominn. Á
leiðtogafundinum í Williamsburg
undirstríkaði hann sérstaklega
samband Japans við Nató og teng-
slin við bandaríska herinn, sem
stefnt væri gegn Sovétríkjunum.
Hann hefur einnig lagt mikla
áherslu á aukinn vígbúnað heima
fyrir og meira að segja sett fram
hugmyndir um að létta af banniríu
við að Japan taki þátt í stríði. Sósí-
alistaflokkurinn aðvaraði kjósend-
ur fyrir kosningar með því að segja
að sigur Nakasones gæti leitt
þjóðina tíl stríðs.
í kosningabaráttunni var. einnig
rætt nokkuð um spillingu, og þá
sérstaklega stjórnarflokksins. Tan-
aka fyrrverandi forsætisráðherra
var ilíilega flæktur í Lockhead-
mútumálið og á yfir höfði sér dóm í
haust. Stjórnarandstaðan hefur ár-
angurslaust reynt að fá samþykki
fyrir því að þinghelgi hans verði
rofin.
Við kosningarnar voru nýjar
kosningareglur og skoðanakönnun
fyrir kosningar sýndi að yfir 40%
kjósenda skildu ekki nýju reglurn-
ar. Samkvæmt nýju reglunum
verður fólk að kjósa flokk og per-
sónur, en áður nægði að kjósa ein-
ungis persónur.
Það er meðal annars af þeim
ástæðum að fjölmargir nýir flokkar
komu til sögunnar að þessu sinni.
Alls tóku 18 flokkar þátt í kosning-
unum, þar af 12 nýstofnaðir. Flest-
ir nýju flokkanna eru undir stjórn
þekktra fjölmiðlamanna, aðallega
úr sjónvarpinu. Slíkir menn hafa
verið mjög áberandi í þessari kosn-
ingabaráttu og reyndar allt frá því
1970. Meðal nýrra framboða voru
flokkar um einstaka málaflokka:
svo sem föðurlandsvinir, flokks-
leysingjar, flokkur þeirra sem leita
menntunar og svo mætti lengi telja.
Meiraðsegja bauð einn flokkur
fram með því eina markmiði að fá
Tanaka sparkað útaf þingi vegna
mútumálanna.
-óg.
Fljúgandi
diskar
Tveir sovéskir vísindamenn, dr.
Andrei Monin, félagi í sovésku vís-
indaakadcmíunni og Gcorgi Bar-
enblatt, prófessor, hafa uppgötvað,
hvernig disklaga hlutir, sem þekkt-
ir eru undir heitinu fljúgandi disk-
ar, verða til í andrúmsloftinu.
Andrúmsloft jarðar er, eins og
vatnshjúpur jarðarinnar, myndað
af lagskiptu efni, sem er á stöðugri
hreyfingu. Oldur, sem myndast á
markalínum laga, geta bólgnað út,
hnyklast og kollsteypst líkt og yfir-
borðsöldur sjávar. Við það mynd-
ast „blettir“ - loftsvæði, sem eru
frábrugðin efninu umhverfis þau
að þéttleika, hitastigi og öðrum
eiginleikum. Eftir skamma hríð
taka slíkir blettir að breiðast út.
Við rannsóknir á reglufestu
þessarar blettaútbreiðslu leiddu
dr. Barenblatt og dr. Monin út
stærðfræðilega jöfnu, sem fyrir-
bærið stjórnast af. Með því að beita
samskonar reikniaðferð uppgötv-
aöi Jelena Tikjomirova,
stærðfræðingur við tölvumiðstöð
sovésku vísindaakademíunnar,
furðulegt einkenni blettadreifing-
arinnar. Hver sem upprunaleg
lögun þeirra var, hvort heldur þeir
voru ferningar, þríhyrningar eða
krosslaga. þá varð bletturinn
hringlaga eftir smátíma og dreifðist
margfalt hægar heldur en hinar
þekktu hvítu rákir, sem þotur
mynda.
Hjá haffræðistofuninni voru hin-
ar fræðilegu formúlur prófaðar í
lagskiptum vökva í sérstaklega út-
búinni tilraunastöð. Þróunin varð
hin sama og útreikningarnir gerðu
ráð fyrir. Þótt vísindamennirnir
reyndu að koma í veg fyrir myndun
kringlóttra bletta, tóku þeir alltaf á
sig hringlaga mynd.
Hvað gerist þegar „diskur“
mætir aerosolögnum, sem fyrir-
finnast í andrúmsloftinu og eru á
hreyfingu niður á við? Útreikning-
ar gefa til kynna, að „diskar" verki
sem gildrur fyrir þá. Þegar diskarn-
ir hafa safnað í sig mörgum aeroso-
lögnum, hættaþeirað veragagnsæ-
ir og verða sýnilegir.
Loftdiskarnir eru þannig mynd-
aðir af samsöfnuðu lofti og efni-
sögnum í aridrúmsloftinu. Efnis-
agnirnar, sent diskarnir gleypa i
sig, eru mjög léttar og minnsti and-
vari nægir til þess að diskurinn
þeytist burt á miklum hraða eða
skiptir skyndilega um hreyfingar-
stefnu. Þegar diskurinn hefur safn-
aö í sig nægilega miklu af slíkum
ögnum tekur hann að að síga niður
á við og sveiflast til líkt og haust-
lauf.
Meira um kosningarnar á Ítalíu
Ættaðirfrá
Mussolini
Menningarmálaráðherra í stjórn
Mussolinis er flokksleiðtogi nýfas-
istanna sem fengu 6.8% í kosning-
unum á Ítalíu. Greinilegt er að
flokkur þeirra hefur fengið at-
kvæði frá kristilegum demókrötum
sem eru óánægðir með flokk sinn.
Um 7 miljónir kjósenda sátu heima
eða skiluðu auðu við kosningarnar.
Miklar vangaveltur eru nú um
stjórnarmyndun eftir kosningarnar
en Sósíalistarnir sem fengu 11.4%
atkvæða hafa lýst því yfir að þeir
vilji ekki í stjórn með kommúnist-
um. Hins vegar hefur í fyrsta sinni
frá stríðslokum skapast raunhæfur
möguleiki til að mynda ríkisstjórn
án þátttöku kristilegra demókrata.
Og ef það verður gert verður það
þvert á niðurstöður kosningaúrslit-
anna um sl. helgi.
Samkvæmt frétt í „Information“
bættu nýfasistar við sig einu og
hálfu prósenti frá síðustu kosning-
um. Sósíaldemókratar fengu 4.1%
(3.8% 1979), Republikanar 5.1%
(3.0% 1979), Frjálslyndir 2.9%
(1.9% 1979) og róttækir 2.2%
(3.4% 1979). í blaðinu í gær var
sagt frá fylgi þriggja stærstu flokk-
anna Kristilegra, Kommúnista og
Sósíalista. Kommúnistaflokkurinn
mun að þessu sinni hafa notið
stuðnings hins vinstri sinnaða
flokks PDUP. Fréttaskýrandi einn
sagði að kosningaúrslitin sönnuðu
að Evrópa væri ekki bara á hrað-
ferð til hægri. -óg
Tapaði mestu. Ciriaco De Mita leiðtogi Kristilega Demókratafiokksins var
greinilega mjög sleginn á blaðamannafundi eftir kosningarnar. Flokkur
hans fékk minna fylgi en nokkru sinni frá stofnun hans 1943. Búist er við
hreinsunum og persónubaráttu innan flokksins.
Þar sem diskurinn þenst hægt út
breytist ástandið innan hans smám
saman þar til hann loks blandast
loftinu umhverfis og hverfur á
„dularfullan hátt“.
Allt skýrir þetta ágætlega þau
furðulegu fyrirbæri í gufuhvolfinu
sem einstaklingar hafa séð og lýst,
svo sem skyndilega hraða-
aukningu, furðulegar og snöggar
hreyfingar og að diskarnir hverfa
fyrirvaralaust.
Þótt það módel, sem dr. Baren-
blatt og dr. Monin hafa gert komi
ekki heim við öll fyrirbæri í and-
rúmsloftinu, sern hafa verið flokk-
uð undir hugtakiö fljúgandi diskar,
þá gefur það skynsamlega skýringu
á þeim algengustu.
Þeir, sem trúa á fljúgandi diska
kunna að segja, að jafnvel þótt
náttúrlegir diskar kunni að finnast í
andrúmsloftinu og hafinu, þá séu
þeir ekki til úti í geimnum, þ.e.a.s.
í tóminu. En engu að síður fyrir-
finnist þar sants konar hlutir! En
þótt álitið sé, að þeir fyrirfinnist í
geimnum, þá eru í reynd engin
skráð dæmi um það. Sovéskir
geimfarar hafa nokkrum sinnum
Séð brot úr málmþynnum, sem
hafa losnað úr geimstöðvum. Þar
sem þessir hlutir ljóma í sólargeisl-
unum hefur þessum leiftrandi
smástirnum stundum verið ruglað
saman við geimhluti. En leyndar-
dómurinn var fljótt uppgötvaður
og nú er fyrirbærið vel þekkt. Engir
geimfarar, hvorki sovéskir né
bandarískir, hafa nokkru sinni rek-
ist á neina aðra dularfulla hluti í
geimnum.
APN (Úr Isvestia -
Spútnik, 1. hefti 1983)