Þjóðviljinn - 01.07.1983, Qupperneq 11

Þjóðviljinn - 01.07.1983, Qupperneq 11
Föstudagur 1. júlí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15 ' íþróttir Umsjón: Víðir Sigurðsson Unglingar á Nesvelli Unglingameistaramótið í golfi fer fram nú um helgina, laugardag og sunnudag. Leiknar verða 36 hol- ur hvorn dag og verður mótið hald- ið á Nesvellinum á Seltjarnarnesi en hann er nú í mjög góðu ástandi. Leikið verður í fjórum flokkum: stúlkur 15 ára og yngri og 16-21 árs, drengir 15 ára og yngri og pilt- ar 16-21 árs. Reikna má með mjög spennandi og skemmtilegri keppni þar sem margir af okkar bestu kylflngum, m.a. landsliðsmenn og konur sem leika í eldri flokkunum, koma beint úr Evrópukeppni. Þá eru margir meistaraflokksmanna í þessum aldurshópum. / Ovænt tap Árroðans Vaskur frá Akureyri vann óvæntan sigur á Arroðanum, 2:1, að Laugalandi í fyrrakvöld þegar félögin léku þar í E-riðli 4. deildar- innar í knattspyrnu. Hilmar Bald- ursson skoraði í fyrri hálfleiknum fyrir Árroðann en Hákon Hákon- arson og Hallur Gunnarsson tryggðu Akureyringunum vösku sigur með tvcimur mörkum í síðari hálfleik. Staðan er tvísýn í E-riðli, Leiftur hefur 6 stig, Reynir, Vor- boðinn og Vaskur 4 stig hvert en Svarfdælir ekkert. - KK/VS ✓ lslandsmótið í knattspyrnu — 1. deild kvenna: Brelðabliksllðlð sigraði Skagastúlkurnar örugglega Þrátt fyrir snara snúninga Skaga stúlknanna í gærkvöldi í leik þeirra við stúlkurnar í Breiðabliki, urðu þær að lúta í lægra haldi fyrir Kópavogsbúunum. Lauk leiknum með því að Blikarnir skoruðu eitt mark en Skagaliðið ekkert. Breiðablik siglir því áfram í 1. deild kvenna í íslandsmótinu án þess að hafa tapað stigi. Fyrri hálfleikur var frekar jafn en Skagastúlkurnar sóttu þó frekar Egilsstaðastúlkurnar stefna hröðum skrefum á 1. defld Höttur frá Egilsstöðum, sem nú leikur í fyrsta skipti í 2. deild kvenna í knattspyrnu, stefnir hröðum skrefum að 1. deildarsæti eftir 2:1 sigur á Súlunni á Stöðvar- fírði á þriðjudagskvöidið. Höttur hefur aðeins tapað einu stigi til þessa og Egilsstaðastúlkunum til mikillar ánægju tapaði skæðasti keppinauturinn, FH, 2:1 fyrir Fram í fyrrakvöld. Staðan í A-riðlinum í 2. deild kvenna er nú þessi: Höttur..............5 4 1 0 14:2 9 FH...................4 3 0 1 8:3 6 Fram.................6 2 1 3 6:6 5 Fylkir...............3 2 0 1 3:1 4 Súlan................5 2 0 3 7:7 4 Afturelding..........5 0 0 5 0:19 0 Þess ber að gæta að Höttur og FH eiga eftir báða innbyrðis leiki sína, liðin mætast á Egilsstöðum á sunnudaginn, og Fylkisstúlkurnar geta enn blandað sér í baráttuna, hafa aðeins tapað tveimur stigum. í B-riðli hafa síðustu úrslit orðið þau að Akureyrarliðin KA og Þór skildu jöfn, 2:2, Haukar töpuðu 0:12 fyrir ísafirði og í fyrrakvöld vann Hveragerði Hauka 3:0 í Hafnarfirði. Staðan í B-riðlinum er nú þannig: leika í B-riðli en dró sig útúr keppni á síðustu stundu. Sigurvegararnir í riðlunum fara beint upp í 1. deild og vegna fjölg- unar í 1. deildinni úr sex liðum í átta mætast lið nr. tvö í riðlunum í úrslitaleik um hvort þeirra tekur sæti neðsta liðs 1. deildar. - VS Ís á. Tíu mínútum fyrir lok fyrri hálf- leiks var dæmt víti á Skagaliðið og skoraði Bryndís Einarsdóttir ör- ugglega sigurmark Breiðabliks. Úrslit leiksins mega teljast sann- gjörn. Stúlkurnar af Akranesi sóttu stífar en á móti sköpuðu Blik- arnir hættuleg tækifæri með skyndisóknum sínum. Eins og áður sagði hefur Breiðablik ekki tapað stigi í deildinni og er nú með 8 stig eftir 4 leiki. KR hefur 6 stig eftir 4 leiki, Akranes með 4 eftir 4 leiki, Valur með 4 eftir 4 leiki, Víkingur með 2 stig eftir 4 leiki og Víðir Garði með ekkert stig eftir 4 leiki. - MHM KA 4 2 4 2 Hveragerði 4 2 Þór Ak 21 Haukar 4 0 2 0 1 1 0 2 1 0 0 4 18:5 6 22:4 5 5:13 4 4:3 3 0:24 0 ísafjarðarstúlkurnar eru búnar með útileikina og eiga alla fjóra heimaleikina eftir. Keflavík átti að Fréttir úr ensku knattspyrnunni: E verton gef ur fjórum þekktum frjálsa sölu Aston Villa kaupir einn þann efnilegasta Listi yfir þá leikmenn í ensku knattspyrnunni sem gefin hefur verið frjáls sala frá félögum sínum, þ.e. geta gengið til liðs við önnur lið án kaupverðs, hefur verið birt- ur. Á honum gefur að líta mörg kunnugleg nöfn en mesta athygli vekur að Everton vill vill þannig losa sig við fjóra þekkta leikmenn, Trevor Ross, Alan Ainscow, Mike Walsh (það var hann sem sparkaði Pétur Ormslev niður í Dublin sl. haust) og Billy Wright. Argentínumaðurinn Ricky Villa og miðvörðurinn John Lacy eru á listanum hjá Tottenham, mark- vörðurinn og fuglaskoðarinn Ge- orge Wood hjá Arsenal, David „Super-sub“ Fairblough hjá Li- verpool, Dennis Tueart hjá Manc- hester City, Martin Buchan, fyrr- um fyrirliði, hjá Manchester Unit- ed en hann fer líklega til Stoke, Mike Buckley hjá Sunderland og Ross Jenkins hjá Watford. f 2. deild gefur að líta Mike Doyle hjá Bolton, AJan Stevensen hjá Burn- ley en hjá félaginu því sem féll í 3. deild virðist John Bond ætla að losa sig þannig við hálft liðið frá því í fyrra, David Shearer, aðalmark- askorarinn hjá Middlesboro, og sjálfan John Kichards hjá Wolves. Þriðjudeildarliðið Bradford City er til sölu, félagið .er á hausnum og hefur ekki getað greitt leikmönn- unum kaup að undanförnu. Leeds hefur boðið 10.000 pund í hinn spil- andi framkvæmdastjóra liðsins, Trevor Cherry, sem áður lék ein- mitt með Leeds og enska lands- liðinu. Tottenham hefur keypt miðvörðinn Gary Stevens frá Brig- hton og bakvörðurinn Danny Thomas frá Coventry og á því loks frambærilega varnarmenn. Aston Villa hefur keypt einn efnilegasta sóknarleikmann Bret- landseyja, enska unglingalands- liðsmanninn Paul Rideout frá Swindon, fyrir heil 200.000 pund. Rideout er aðeins 18 ára gamall og skoraði 23 mörk fyrir Swindon í 4. deildinni sl. vetur. Robbie James, fyrirliði Swansea, sem hefur leikið með félaginu síð- an það var í 4. deild, er líklega á förum þaðan. Swansea þarf að draga saman seglin í fjármálunum eftir fallið í 2. deild sl. vor og hefur tæpast efni á að semja áfram við leikmann á borð við James. Mark Wallington, sem hefur leikið í markinu hjá Leicester í ell- efu ár, hefur hótað að yfirgefa fé- lagið. Hann er ekki ánægður með nýjan samning sem honum hefur verið boðinn. Óþekktur Skoti, hinn tvítugi Ste- ve Evans hjá Albion Rovers, er mjög eftirsóttur þessa dagana. Se- villa á Spáni og FC Brúgge í Belgíu hafa bæði sýnt honum mikinn áhuga. Ipswich hefur fengið 22 ára gamlan Hollending, Cor Lems, að láni til næsta vors. Félagið hefur rétt til að kaupa hann frá Dor- drecht í desember en getur líka látið hann fara hvenær sem er. Barnsley, sem leikur í 2. deild, reynir nú mjög vel að fá til sín tvo Paul Rideout, nýi miðherjinn hjá Aston Villa, á að læra listirnar af landsliðsmanninum Peter Withe og taka síðan stöðu hans með tíman- um. Rideout er 18 ára, Withe 32. þekkta Skota, Ðerek Johnstone og Colin McAdam frá Rangers. Mark Hateiey, miðherji Coven- try, hefur gengið til liðs við Port- smouth, sigurvegarana í 3. deild sl. vetur. Leeds hefur keypt hinn 23 ára gamla Andy Watson frá skosku Evrópubikarmeisturunum Aber- deen á 60.000 pund. - VS Álafoss- hlaupið Álafosshlaupið víðfræga fer fram á sunnudaginn, 3. júlí, og hefst kl. 10 við Kaupfélagið í Mos- fellssveit. Keppendur þurfa að mæta kl. 9.30 til skráningar. Hlaupið verður eftir Vesturlands- vegi til Reykjavíkur, um Bílds- höfða, gömlu Elliðaárbrúna, Ell- iðavog, Holtaveg, niður í Laugar- dal, þar eftir Engjavegi, Þvotta-- laugavegi, innum hliðið hjá Jaka- bóli og lýkur hlaupinu síðan með einum hring á íþróttavellinum. Þá hafa hlaupararnir lagt að baki alls um 14 kílómetra. Skorað er á alla hlaupara og heilsubótarskokkara að mæta í hlaupið. Verðlaun verða veitt fyrir þrjá fýrstu í eftirtöldum flokkum karla og kvenna: 16 ára og yngri, 17-20 ára, 21-30 ára, 31-40 ára, 41-50 ára og 51 árs og eldri. Ála- fossverksmiðjan gefur verðlaunin og einnig farandbikar til þess kepp- anda sem fyrstur lýkur hlaupinu Víðir vann í gærkvöldi fór fram leikur Víðis og Fylkis í annarri deild karla. Víðir sigraði örugglega í leiknum og náðu leikmenn liðsins að skora 4 mörk á móti 2 mörkum andstæð- inganna. v*®v\6ýb Um helgina verður leikin níunda umferð 1. deildar karla í knatt- spyrnu og að henni lokinni verður fyrri hlutanum lokið, allir hafa leikið við alla cinu sinni, með þeirri undantekningu að Víkingur og Keflavík eiga eftir að mætast. Fjórir þessara leikja eru á dag- skrá á morgun, laugardag. Kl. 14 hefjast leikirnir ísafjörður- Hálfnuð eftir helgina morgun kl. 14 og Njarðvík-Fram á Breiðablik..8 3 3 2 7-5 9 sunnudagskvöldið kl. 20 Heil um- fcZZZrZIa 3 2 3 itis 8 ferð verður í 3. og 4. deild, atta Isafjörður..8 2 4 2 8-10 8 leikir að vanda í 3. deild og sautján ÞórAk.......8 1 5 2 8-9 7 í þeirri fjórðu. f,r,ó,tturR.8 2 3 3 9'13 7 Vikingur.......7 1 4 2 5-7 6 Staðan í 1. deild íslandsmótsins í ..IV....72 1 4 8-13 5 knattspyrnu eftir leikina í fyrra- Markahæst.r: lrvrilrl- Ingi Bjorn Albertsson, Val.6 K ulu' Hlynur Stefánsson, Vestm...4 Vestm.eyjar...8 4 2 2 15-7 10 Kári Þorleifsson, Vestm....4 Akranes.......8 4 1 3 12-5 9 Sigþór Ómarsson, Akranesi...4 Keflavtk og Breiðablik-Þór, á Akranesi byrja ÍA og Þróttur kl. 14.30 og viðureign Reykjavíkurfé- laganna Víkings og Vals hefst kl. 16. Lokaleikur 9. umferðarinnar verður svo á Laugardalsvelli á sunnudgskvöldið, KR mætir Eyja- mönnum og hefst sá leikur kl. 20. í 2. deild mætast Reynir-FH, KS-Völsungur og Einherji-KA á

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.