Þjóðviljinn - 01.07.1983, Side 12

Þjóðviljinn - 01.07.1983, Side 12
16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fðstudágur 1. júlí 1983 Tónleikaferð um Svíþjóð Hálft í hvoru Sönghópurinn „Hálft í hvoru“ er þessa dagana á tveggja vikna tón- leikaferðaiagi um Svíþjóð. Söng- hópurinn þáði boð frá „Sveriges Rikskonserter“ um að koma fram á alls 11 stöðum, bæjum og þorpum í Svíþjóð, og flytja þar íslenska tón- list, bæði á mannamótum og á göt- um úti. Ferðalag þetta spannar allt norðan frá Helsingjabotni og suður Skán. Þetta er í annað skipti sem „Hálft í hvoru“ er boðið til Sví- þjóðar, en í fyrrasumar var söng- hópurinn í eina viku við tónlistar - flutning í Norður-Svíþjóð. ALÞYÐUBANDALAGIÐ Tilkynning frá skrifstofu Aiþýðubandalagsins Frá og með mánudeginum 13. júní til 1. september verða skrifstofur okkar að Hverfisgötu 105 opnar frá kl. 8 árdegis til kl. 4 síðdegis mánudag til föstudags. Fastur viðtals- og símatími framkvæmdastjóra flokksins er frá kl. 9-11 árdegis. Egilsstaðir Almennur stjórnmálafundur Almennur stjórnmálafundur með Svavari Gestssyni formanni Alþýðubanda- lagsins verður haldinn í Valaskjálf, mánudaginn 4. júlí kl. 21.00. Einnig verða á fundinum alþingismennirnir Helgi Seljan og Hjörleifur Gutt- ormsson. Fundurinn er öllum opinn. Alþýðubandalagið. Sumarmót AB - Norðurlandskjördæmi eystra Sumarmót AB í Norðurlandskjördæmi eystra verður haldið í Hrísey dagana 8.-10. júlí. Gist verður í tjöldum. Fólk hafi með sér grilltól. Fastar ferðir frá Árskógsströnd föstudag og laugardag. Dagskráin í stórum dráttum: Útsýnis- ferð um eyjuna, kvöldvaka á laugardag með tónlistaleikverki (musikteater) „Aðeins eítt skref" með Kolbeini Bjarnasyni flautuleikara og Jóhönnu Þórhalls- dóttur söngkonu. Fleira verður sér til gamans gjört. Varðeldur og fjöldasöngur með mararorganundirspili. Upplýsingar gefa Steinar í 21740, Erlingur í 25520 og Hilmir í 22264. Áætlun Hríseyjarferjunnar: Alla daga frá Hrísey kl. 9.00-13.00-17.30. Frá Árskógssandi kl. 9.30-13.30-18.00. Miðnæturferðir þriðjudaga-föstudaga-sunnudaga frá Hrísey kl. 23.30 og frá Litla Árskógssandi kl. 24.00. í athugun er að láta ferjuna fara aukaferðir m.a. til Grenivíkur á föstudag. - Nefndin Norðurlandi eystra. Neskaupstaður Almennur stjórnmálafundur Almennur stjórnmálafundur verður haldinn með Svavari Gestssyni formanni Alþýðubandalagsins í Egilsbúö þriðjudaginn 5,júlí 20.30. Einnig verða á fundinum alþingismennirnir Helgi Seljan og Hjörleifur Guttorms- son. Fundurinn er öllum opinn. - Alþýðubandalagið. Sumarfrí og samvera á Laugarvatni Enn pláss 4.-10. júlí Enn er hægt að fá pláss í sumarfrí og samveru Alþýðubandalagsins á Laugar- vatni vikuna 4. til 10. júlí næstkomandi, en ekki er ráðlegt að draga pantanir lengur. Uppselt er síðustu tvær vikurnar í júlf. Þeir sem hug hafa á að panta dvöl á Laugarvatni vikuna 4. til 10. júlí eru vinsamlega beðnir að snúa sér til flokksmiðstöðvar Alþýðubandalagsins aö Hverfisgötu 105, Reykjavík, sími 17500, þersónulega eða í síma, og festa sér pláss. Dvalarkostnaður fyrir fullorðna er kr. 2800, kr. kr. 1600 fyrir börn á aldrinum 6 til 12 ára og kr. 300 fyrir börn fyrir börn að sex ára aldri. Innifalið í verðinu er fullt fæði, gisting í 2-3ja manna herbergjum (með rúmföt- um), leiðsögn í ferðum, barnagæslu, miðar í sund og gufubað, og margskonar skemmtan og fræðsla. Laugarvatn og umhverfi þess er kjörið til sumarleyfisdvalar og útivistar. í sumarfríi og samveru Alþýðubandalagsins verður farið í sameiginlegar göngu- ferðir undir leiðsögn heimamanna, farið í skoðunarferð um uppsveitir Suður- lands, efnt til fræðslufunda um staðinn og til spilakvölda og skemmtikvölda, þar sem þátttakendur og góðir gestir munu standa fyrir dagskránni. Á Laugarvatni er báta- og hestaleiga, og aðgangur að íþróttamannvirkjum. Síðast en ekki síst er það samveran með góðum félögum sem gerir Laugarvatnsdvöl ánægjulega og rómað atlæti hjá Rúnari Jökli Hjartarsyni bryta og starfsfólki hans í Héraðs- skólanum. Svavar - Gísli B. Birglr Þorbjörg Alþýðubandalagið Austurlandi Ráðstefna á Hallormsstað 2. - 3. júlí Efni: Alþýðubandalagið - störf, stefna, skipulag. Ráðstefnan hefst á laugardagsmorgun kl. 9 og meðal dagskrárliða eftir hádeg- ið er framsöguerindi Svavars Gestssonar formanns Alþýðubandalagsins og nokkrar ábendingar Gísla B. Björnssonar um kosningastarf. Þá ræðir Birgir Stefánsson um ný viðhorf og skipulagsbreytingar. Þá mun Þorbjörg Arnórs- dóttir fjalla um uppeldi, skóla og jafnrótti. Ráðstefnunni lýkur kl. 16 á sunnudag. Þátttaka tilkynnist til Einars Más Neskaupstað, s. 7468, Jórunnar Bjarnadóttur Eskifirði, s. 6298 eða Kristins Árnasonar Egilsstöðum s. 1286. Ýtarleg dagskrá ráðstefnunnar hefur birst í Austurlandi. Stjórn Kjördæmisráðs. Iðnaðarbankinn 30 ára Nú á dögum voru rétt 30 ár liðin frá stofnun Iðnaðarbanka íslands h.f. I tilefni afmælisins hefur bank- inn sent fjölmiðlum sögulegt yfírlit um starfssemi sína og ýmsar fleiri upplýsingar um starf bankans. Þar segir m.a. „Um þessar mundir er þess minnst, að Iðnaðarbanki íslands hf. hefur starfað í 30 ár, en bankinn hóf starfsemi sína 25. júní árið 1953. Aðdragandinn að stofnun bankans var nokkuð langur, eða 10 ár, því það var á Iðnþingi íslend- inga í september 1943, sem hug- myndin um sérstakan banka fyrir íslenskan iðnað kom fyrst fram. Þessi hugmynd fékk frá upphafi | góðar undirtektir iðnaðarins og voru samþykktar áskoranir þar um til Alþingis næstu árin á eftir. Árið Frá Grensásútibúi Iðnaðarbankans. 1947 var ekki látið við það sitja að skora á Alþingi, heldur var einnig komið á fót sérstakri samstarfs- nefnd Landssambands iðnaðar- manna og Félags íslenskra iðnrek- enda, og fékk sú nefnd það verk- efni að semja drög að frumvarpi um iðnaðarbanka. Nefndin skilaði frá sér frumvarpi til laga um Iðnaðarbanka fslands hf. í apríl mánuði 1949. f greinargerð með því frumvarpi komu fram helstu rök samtaka iðnaðarins fyrir nauð- syn þess að stofnaður yrði sérstak- ur iðnaðarbanki, en þau voru, að enginn ríkisbankanna þriggja, sem þá voru einu viðskiptabankar landsins, hefði talið það skyldu sína að aðstoða við fjármögnun iðnfyrirtækja. Því hefði verið svo komið, að atvinnuvegur, sem ná- lega þriðjungur landsmanna hefði framfærslu af, væri settur hjá í bankakerfinu.“ Þá 3, nú 129 starfsmenn Stofnfundur bankans var svo haldinn 18. október 1952, og hóf bankinn starfsemi sína 25. júní 1953, eins og áður sagði. í fyrstu voru starfsmenn bankans einungis þrír, og innlánin í lok fyrsta starfs- ársins ekki néma 17,4 miljónir g.kr. Á síðasta ári voru starfsmenn Iðnaðarbankans hins vegar 129, þar af 57 í aðalbankanum við Lækj- argötu, en bankinn starfrækir nú einnig 7 útibú. Heildarinnlán í Iðnaðarbankan- um námu þann 31. maí s.l. 763 miljónum króna. Fyrsti bankastjóri Iðnaðarbank- ans var Helgi Hermann Eiríksson og gegndi hann starfi bankastjóra til ársins 1955. Þá tók við Guð- mundur Ólafs, og gegndi störfum bankastjóra í 9 ár. Árið 1964 tóku þeir Bragi Hannesson og Pétur Sæmundsen svo við störfum sem bankastjórar, og gegnir Bragi starfinu enn, en Pétur Sæmundsen lést á síðasta ári. Við fráfall Péturs Sæmundsen var Valur Valsson ráð- inn bankastjóri og gegnir hann starfinu nú ásamt Braga. Aðstoðarbankastjóri er Ragnar Önundarson, og formaður banka- ráðs Davíð Scheving Thor- steinsson. Æskulýösfylking Alþýðubandalagsins Þórs- merkur ferð Síðasti hluti spurningakeppninnar: Þessi Ijósmynd sýnir nokkra Merkurfara grilla sér pylsur og annað góðgæti við heldur frumstæðar aðstæður. Börnin fylgjast spennt með, en mest gaman þótti þeim vera: a) Þegar Óttarri Magna tókst eftir klukkutíma basl að fá uþp eld í tunnunni. b) Þegar eldurinn magnaðist svo mjög að matargerðarmenn hrökkluðust undan og komust hvergi nærri vegna reyks og hita. c) Þegar Unnur Kristjánsdóttir uppgötvaði að hún hafði lagt mikla vinnu í að baka skemmdu kartöflurnar. Krossið við líklegasta svarið og hafið auglýsinguna meðferðis í rúturnar í kvöld (munið: þær fara frá Hverfisgötu 105). Börnin sem með okkur verða, munu draga úr réttum svörum og afhenda vegleg verðlaun á kvöldvökunni annað kvöld. 1 .-3. júlí Um Þórsmerkurferðina er þetta að segja: Lagt verður af stað frá Flokksmiðstöð Alþýðubandalagsins að Hverfisgötu 105 föstudagskvöldið 1. júlí klukkan hálf níu stundvíslega. Nauðsynlegur farangur: Góða skapið og gönguskórnir, tjald og svefnpoki, nesti og hlífðarföt. Eftir hádegi á laugardag verður farið i gönguferðir um Þórsmörkina, síðdegis verður kveikt upp I grillinu og að kvöldverði loknum er lofað ógleymanlegri kvöldvöku. Hvað þar verður sér til gamans gert veit nú enginn (eða vill ekki upplýsa) fyrirfram, en hinu skal ekki leynt að hinn óviðjafnanlegi Tarsan mun hafa gítarinn meðferðis. Heimleiðis verður haldið síðdegis á sunnudag, undir ábyrgri fararstjórn. Við þurfum að vita hvað þarf stóra rútu. Skráið ykkur því sem fyrst í Þórsmerkur- ferð ÆFAB í síma 17500. Ferðin kostar krónur 500 (sem er gjafverð).

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.