Þjóðviljinn - 28.07.1983, Síða 1

Þjóðviljinn - 28.07.1983, Síða 1
 Verslunarmanna- helgín er á næstu grösum. Við gerum grein fyrir helstu útisamkomum, sætaferðum, veðri og vegaþjónustu. Sjá 10 júlí 1983 fimmtudagur 166. tölublað 48. árgangur Frestur til uppsagna samninga rennur út um mánaðamót Flest stœrri félögin hafa sagt upp Flest stærri félögin hafa nú sagt upp samningum frá mánaða- mótum ágúst og september að sögn Asmundar Stefánssonar forseta ASÍ. Heildaryfirlit um þau félög sem nú draga sverð úr siíðr- um fæst hinsvegar ekki fyrren eftir versiunarmannahelgi, en frestur til að segja upp samning- unum rennur út um mánaðamótin næstu. „Við höfum enn ekki tekið á- kvörðun um meiriháttar fundi eða ráðstefnur á næstunni", sagði Ásmundur Stefánsson í spjalli við Þjv. í gær, „ætlum að herða róðurinn á kynningarstarfi og upplýsingamiðlun. Við höfum dreift fréttabréfi ASÍ í geysilegu upplagi og ýmsir minni fundir hafa verið haldnir í félögunum og á vinnustöðum. Það má búast við að áhrifin af kjaraskerðingum og verðhækkunum verði mönnum ljósari eftir hásumarið og skatta- lausa mánuðinn.“ Ásmundur sagði frekari tíðinda að vænta af andófi verkalýðs- hreyfingarinnar um miðjan ágúst. - m. Leikrit eftir Svövu frumsýnt í Færeyjum Nýtt leikrit eftir Svövu Jakobsdóttur, „Lokaæfingin“, verður frumsýnt í hinu nýja Norræna húsi í Þórshöfn í Fær- eyjum í Iok ágúst. Það er hópur frá Þjóðleikhúsinu sem hefur æft verkið undir stjórn Bríetar Héðinsdóttur, en þau fara utan 27. ágúst. Leikritið fjallar um hjón sem ætla sér að lifa af kjarn- orkustyrjöld. Leikendur eru Edda Þórarinsdóttir, Sigurður Karlsson og Sigrún Björns- dóttir, en leikmynd gerir Birgir Engil- berts. Mikil hætta á atvinnuleysi á Patreksfirði Penmgar verða að koma í vikumii Annars verður að segja fólki upp Aðstoð verður að berast Hraðfrystihúsinu á Patreks- firði þegar í þessari viku, annars stöðvast allur rekstur- inn og segja verður starfsfólkinu upp, segir Jón Krist- insson framkvæmdastjóri í viðtali við Þjóðviljann í dag. Byggðarsjóður hefur málefni frystihússins til umfjöllunar en ekkert hefur heyrst frá ríkis- stjórn eða lánastofnunum. Útgerðar- og fiskvinnslufyrir- tækið á við gífurlegan fjár- magnsvanda að etja. Hraðfrystihúsið hefur verið tíu ár í smíðum og um það stóðu pólitískar deilur á sínum tíma, en sú andstaða sagði til sín í lánastofnunum, segir Jón Krist- insson. Þetta er stærsta atvinn- ufyrirtæki á Patreksfirði og á annað hundrað manns hafa beina atvinnu af rekstrinum. Það er blóðugt að komast ekki á sjó, segir Hlöðver Har- aldsson skipstjóri á Sigurey, togaranum sem liggur bundinn við bryggju vegna fjárhags- örðugleikanna. Þetta skip kom úr síðasta róðri með 144 tonn og á miðunum er mokveiði. Þetta sama skip skilaði 20 mill- jón króna aflaverðmæti í fyrra. -óg. Þetta unga fólk úr Vinnuskóla Reykjavíkur fór í Viðey í gær- morgun og var þar ýmislegt að- hafst, keppt í fótbolta og þyrla færði þeim hádegismatinn. Á morgun er síðasti dagurinn í Vinnuskólanum. Myndin er tekin þegar unga fólkið var að leggja í hann uppúr 8 í gær- morgun. - Ljósm. -eik. Ársskýrsla Hús- næðisstofnunar fyrir áriðl981er komin út. Þar koma ýmsir merkilegir hlutirí húsnæðismálum ís- lendinga i ljós. Skattar hækka meir en atvimmtekjumar! í frásögnum dagblaðanna í gær af hækkun áiagðra skatta gætti nokkurs misræmis. Þann- ig talaði Morgunblaðið um 55% skattahækkun í Reykjavík milli ára, en Þjóðviljinn um 65% hækkun. Hvorug talan er rétt, og byggist villan m.a. á því að launaskattur var talinn með í heildarupphæðinni í fyrra en ekki nú í ár. Það rétta er að þeir skattar sem einstaklingum er gert að greiða hækka milli ára í Reykjavík um 60,7%, en skattahækkunin hjá fyrirtækjum og stofnunum nemur 54,7%. Þannig verður hækkun heildarálagningar í Reykjavík 58,9%. Séu þessar skattahækkanir bom- ar saman við spátölur Þjóðhags- stofnunar frá 8. júní sl. um hækk- un atvinnutekna milli ára, þá kem- ur í ljós að skattar einstaklinga hækka töluvert meira milli áranna 1982 og 1983 heldur en nemur tekj- uhækkuninni. Þannig gerði Þjóð- hagsstofnun ráð fyrir 54% hækkun atvinnutekna milli ára, sem gerir 52,5% hækkun á mann, en skattar á einstaklinga í Reykjavík hækka hins vegar um full 60% eins og áður sagði. I áætlun Þjóðhagsstofnunar um hækkun atvinnutekna er samt gert ráð fyrir að tekjurnar hækki 4% meira en svarar krónutöluhækkun kauptaxta, og þá vegna aukinna yfirborgana, sem hæpið hlýtur að teljast að treysta á, og margir njóta alls ekki. Við biðjum velvirðingar á þeim villum, sem slæddust inn í skatt- aútreikninginn í gær, en upplýsing- ar um prósentuhækkun milli ára fylgdu ekki fréttatilkynningu skattstjórans í Reykjavík. Sjá nánar um skattana á síbu 9

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.