Þjóðviljinn - 28.07.1983, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 28.07.1983, Blaðsíða 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINNJ Fimmtudagur 28. júlí 1983 síðan Spilið í dag er frá Sumarkeppninni í Domus og er skemmtilegt dæmi um takmarkað val á samgang milli handa: Norður S KD, H 10962 TK854 L A63 Vestur S G832 H D85 T G10762 L 5 Austur S 75 H AKG73 TD93 L DG8 Suður S A10964 H 4 T A L K109742 Spilið kom upp í 10- para riðli og ansi misjafn árangur, spilaður stubb- ur, úttekt og slemmur í N-S. En við erum í óskasamningnum, 4 spöðum í suður, austur vakti á 1- hjarta og útspilið erhjarta-5. Hefðir þú náð 10 slögum, eða látið þér lynda aðeins 8, eins og tveir sagn- hafa? Þú trompaðir hjarta áframhaldið og tókst tvisvar tromp og vonar allan tímann að svörtu litirnir „brotni" ekki báðir, þú er jú í fjórum. Gott ef aðeins annar íiturinn plummar sig. En hvað ef þeir liggja 4-2 og 3-1? Nú, tígull á ás og spaðaás, síðan færð þú í laufið...og færð átta slagi. En þú vissir (vonaðir) jú að spilið lægi ekki of þægilega. Tígulás er geymdur. Laufi er spilað á kóng og tekinn spaðaás. Gott. Lauf á ásinn, vestur kastar tígli, eða hjarta, skiftir ekki máli. Austur á laufslaginn næst og spilar væntanlega hjarta, sem er tromp með tíu. Laufið verður síðan tromp á vestur og hann fær aðeins slag þar og tígulás- inn er nú þægilegt spil að vita af á höndinni. Vel á minnst, hjarta opnun austurs lofaði 5-lit. Enda töluvert lakara ef aðeins reyndist um 4-lit að ræða. Skák Karpov að tafli - 175 Karpov átti afar erfitt updráttar á byltingarmótinu í Leningrad. Hann vann Smejkal í 3. umferð mótsins, en tapaði síðan í 5. umferð fyrir landa sínum Beljavskí. Tapið bar við með heldur óvenjulegum hætti, því Karp- ov fékk yfirburðastöðu út úr byrjun- abcdefgh Karpov - Beljavskí Flókin staða er komin upp þar sem svartur á í vök að verjast. Karpov var hinsvegar kominn í geypilegt tíma- hrak, sem telja verður heldur óvenju- legt fyrir hann. 35.b4 (Ef 35. Hxg5 þá 35. - Dbl + og 36. - Hxg5.) 35. ..De6 36. hxg5 He8 37. a3 Kg6! 38. He4 Hh8 39. Dd3 Db6+ - Merkileg staða. Hvítur hefur enn betra tafl leiki hann 40. De3. En Karpov ætlaði aldrei að geta ákveðið sig, klukkan tifaði og að lokum fór fallöxin niður. Karpov hafði í fyrsta sinn á ferlinum tapað á tíma. Ný heilsurœktarbók: „Eitthvað fyrir alla, konur og kalla . . .' Samtalsbrotum við Sigrúnu Stefánsdóttur raðað saman Hverjar eru óskið þínar og sérþarfir í heilsuræktinni? Al- menn heilsurækt? Megrunarleik- fimi? Slökun eftir streitu? Þessum og fleiri spurningum er varpað fram á bókarkápu nýútkominnar líkamsræktarbókar eftir Sigrúnu Stefánsdóttur fréttamann og íþr- óttakennara. í bókinni leiðbeinir Sigrún lesendum skref fyrir skref í heilsuræktinni og er með æfing- ar fyrir alla, ungt fólk, fólk yfir fertugt, sextuga og eldri, barns- hafandi konur, þá sem þjást af bakveiki, og þá sem þurfa að styrkja magavöðvana eða lagfæra línurnar. Semsagt eitthvað fyrir alla, konur og kalla eins og segir í dægurflugu sem vinsæl var fyrir einhverjum árum síðan. Við spurðum Sigrúnu hvers vegna hún hefði ráðist íað setja saman þessa bók. „Það hefur skort tilfinnanlega bækur á íslensku til þess að leiðbeina fóki við líkamsrækt. Það er mikil þörf á slíkum bókum því mjög mikilvægt er að fara að öllu með gát í byrjun og ætla sér af. Það sem vakti fyrir mér var að setja saman bók sem gæti þjónað öllum aldurshópum, hvort sem fólk stundaði keppnisíþróttir eða trimmaði sér til heilsubótar.“ - Hefur það tekist? „Það vafðist nú dálítið fyrir okkur í upphafi hversu víðtæk svona bók ætti að vera, en ég held að allir eigi að finna æfingar við sitt hæfi. Það má t.d. benda á að í bókinni eru æfingar fyrir fólk sem er rúmliggjandi og flestar æfing- arnar eru þannig að ekki þarf nein hjálpartæki til að geta gert þær.“ - Ertu búin að vera lengi með bókina í smíðum? „Ég hef unnið við þetta í uþb. eitt ár. Ég byrjaði á þessu eftir að ég fór í frí frá sjónvarpinu. Ég hef verið í námi í Bandaríkjunum og þar hefur mér gefist tími til að vinna við þetta.“ - Trimmarðu sjálf? „Já það geri ég. Síðustu árin hef ég æft reglulega og byrja því daginn einum tíma fyrr. Það hef- ur gefist mjög vel og núna er þetta orðinn fastur liður á dags- prógramminu. Það er meira að segja svo að ég finn mun á mér ef ég missi úr 1-2 daga. Enda er það staðreynd að maður er síður til þess fallinn að glíma við erfiða vinnu ef maður er ekki í góðri þjálfun.“ - Er þörfin á heilsuræktarbók meiri núna en fyrir nokkrum árum síðan? „Þessi mál hafa breyst mjög mikið á nokkrum árum. Þeir sem voru að hlaupa fyrir nokkrum árum síðan og reyna að halda sér í fullu fjöri voru taldir hálf skrýtnir en núna hefur orðið mikil vakn- ing á þessu sviði, eins og sést best á öllum heilsuræktarstöðvunum. Þörfin á svona bók er því örugg- lega til staðar.“ Nú þekkja flestir þig einungis sem fréttamann sjonvarpsins. Hvenær laukstu íþróttakennara- prófi? „Ég tók próf frá íþróttakenn- araskólanum á Laugarvatni árið 1970. Ég stundaði kennslu áður en ég fór útí fréttamennskuna og hef jafnan haft hana sem hluta- starf. -áþj Stórmenni á ferð ogflugi Það er ekki sama Jón og séra Jón. Arnarflug státar af því í Fréttabréfi sínu að „kunnur fjár- málasérfræðingur, Paul A. Volk- er, seðlabankastjóri Bandaríkj- anna hafi verið við laxveiðar í boði Seðlabankans norður í1 landi, en þurft skyndilega að fara til fundar í London. Tóku banda- rísk stjórnvöld þá á leigu skrúfu- þotu hjá Arnarflugi til að flytja hann á sem skemmstum tíma. Flaug vélin til Blönduóss og sótti Volker og flutti hann til Heat- hrow flugvallar í London." íslensk hönnun í vetur sem leið lauk hönnun á íslenskri SSB talstöð fyrir milli- bylgjusvið (1,5-5 MHz). Fyrsta tækið var sett upp í veðurathug- unarstöðinni á Hveravöllum í marsbyrjun og hefur reynst mjög vel. Talstöðin er sérstaklega hönn- uð með rekstraröryggi og af- skekkta staði í huga. Allar meg- inrásir viðtækis og lágaflshluta sendis eru í skúffu, sem auðvelt er að skipta um. Knýstig og út- gangsstig sendis eru bæði tvöföld, og hlutarnir þannig samtengdir, að skammhlaup eða bilun í öðr- um gerir ekki hinn óvirkan. Ný gerð hálfleiða, aflfetar er notuð í mögnurum sendis. f bígerð er smærri útfærsla fyrir bifreiðar. Hún yrði með inn byggðu stillitæki fyrir loftnet. Hönnuður er Vilhjálmur Þór Kjartansson, rafmagnsverk- fræðingur. U 20 „stœrstu hlutverk Shake- speares 1. Hamlet 1422 línur í leikrit- inu Hamlet. 2. Falstaff 1178 línur í Hinriki IV. (Einnig í „Kátu kon- unum frá Windsor,“ þar sem hann er með 436 línur, samtals 16141ínur). 3. RíkharðurlII 1124 línur í Ríkharði III. 4. Jagó 1097 línur f Óþelló. 5. Hinrik V. 1025 línur í Hinrik V. 6. Óþelló 860 línur í Óþelló. 7. Vincentio 820 línur í „Measure for measure“. 8. Coriolanus 809 línur í Coriolan- us. 9. Timon 795 línur í Timon frá Aþenu. 10. Anton 766 línur í Anton og Kleópatra. Því má svo bæta við að texta- mesta kvenhlutverk Shakespear- es er Rósalind í „Sem yður þókn- ast“, 668 línur, og er stór hluti textans fluttur þegar hún er klædd í karlmannsgervi. Hvítingarnir í Árnesi voru heima- kærir. Hvítir œðarungar Margt er undarlegt í náttúr- unnar rfki. Árni G. Pétursson, hlunnindaráðunautur Búnaðar- félags Islands segir frá því í síð- asta tbl. Freys, að í Árneseyju, sem tilheyrir jörðinni Árnesi á Ströndum, hafi í fyrra fundist í hreiðri tveir hvítir æðarungar. í hreiðrinu voru þrír aðrir ungar raeð eðlilegum lit. Hvítingarnir voru fluttir heim í Árnes og aldir þar fram í nóv- ember. Fór þeim vel að og voru heimakærir. Hvítingsfuglar, (albínóar), eru sjaldgæfir. Segir Arni engan ís- lending, sem hann þekki til, hafa áður séð hvíta æðarunga. - mhg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.