Þjóðviljinn - 29.07.1983, Qupperneq 8
8 SÍÐA - ÞJÓÐYILJINN Föstudagur 29. júlí 1983
Blaðað í Ferðasögu Árna frá Geitastekk
Konungshöllin í Kaupinhafn: Árni var lítt hrifinn af því að þéna danska kónginum...
...hins vegar var hann yfir sig hrifinn af Katrínu miklu.
„Vor kæra keisarainna“
/Oss sýndist gott um þetta
tilboð, fórum með þessari hóru-
vertinnu, komum í hús hennar.
Voru þar þrjú uppbúin rúm og
þrjár hórur. Vér fórum að drekka
kaffi og te hjá þessari konu. Síðan
skyldum vér dansa með þessum
hórum, en eg afsakaði mig frá
þeirra dansi, setti mig á einn stól og
féll í svefn og vaknaði ei, fyrr en
vor loss kom eftir oss um morgun-
inn tíðlega. Þá vöknuðu mínir
kammerater, og hafði hver þeirra
eina hóru í sæng hjá sér. /... / Eg fór
um kvöldið til þessarar Karenar,
en hún talaði mér illa til, að eg
hefði verið so stórlátur að ei vildi
þiggja uppbúna sæng hjá sér, en
mínir kammerater hefðu verið
mikið skikkanlegir. Eg sagði
henni, eg hefði ei haft neina hóru-
peninga hjá mér að betala henni
með. Eg hefði og annað að brúka
peninga til en að gefa þá út fyrir
hórur, sem væri bæði skaði og
skömrn..."
Það siðferðisbjarg sem hér segir
frá er Árni Magnússon frá Geita-
stekki. Árni þessi var einn þeirra
íslendinga sem víðförlastir hafa
orðið; futtugu og sjö ára gamall
tekur hann sig upp frá búi sínu og
jörð og leggst í siglingar. Hann
ferðast til Grænlands og er í sig-
Iingum til Pétursborgar, Königs-
berg, Bordeaux og Kína. Á
leiðinni til Kína kemur skipið hans
við á Grænhöfðaeyjum og fá eyja-
skeggjar þessa einkunn hjá íslend-
ingnum:
„ versta fólk
undir sólunni“
„ Allt þetta hyski var þjófgefið og
Akureyringar bæjargestir
Hótel KEA býður
Gistiherbergi Veitingasal Matstofu Bar
Minnum serstaklega á
Veitingasalinn II. hæð:
Góður matur á vægu verði
Dansleikir laugardagskvöld
Hinn landskunni
'é Ingimar Eydal
skemmtir matargestum
öil kvöld í sumar
morðingar. Kort sagt: Það var það
versta fólk undir sólunni, sem eg
hefi heyrt og séð./... / Fátt kvenfólk
sá eg þar, sem hafði allan klæðnað.
Svartar voru þær sem kol á kroppn-
um, hverjar þó vildu narra vort
fólk til holdlegs samræðis þar út í
skógnum. Og kannske nokkrir af
vorum stýrimönnum urðu af þeim
narraðir og fengu mörgum pening-
um tapt við sömu lélegheit, er
skeðu við þá orsök, að þeirra eigið
fólk kom yfir þá, þegar þessi verkn-
aður var framinn, sem var undirtal-
að af þeim, áður en þessi gjörning-
ur skyldi gjörast..."
Og áfram halda þeir til Kína og
þegar þangað kemur ber margt ný-
stárlegt fyrir sjónir. Árni hefur
skýringar á reiðum höndum á ýmsu
því sem framandlega orkar - hann
sér hina reyrðu fætur kvenfólksins
og skýrir með því að „... þetta
skyldi vera þeirra straff fyrir undan
farin svik og pretti við þeirra
keisara, og skyldi sú kynkvísl bera
þetta straff, so lengi þar var einn
maður af henni lifandi. “
Eftir Kínaferðina siglir hann til
Bordeaux, þar sem hann kemst í
kast við Karenu hóruvertinnu sem
fyrr segir frá; hann sest síðan að í
Kaupmannahöfn - en aðeins um
skeið, því ævintýrin kalla. Hann
gengur í rússneska herinn til að
stríða við Tyrkjann og er Katrínu
miklu hollur þegn:
Uppsikt til
keisarainnu
„Kort sagt: Eg vil heldur þéna
Rússum í tíu ár en þeim dönsku í
fimm daga, bæði upp á atlæti og
aðbúnað, því þeir Rússar hafa
meiri uppsikt til þeirra kóngs eður
keisara en þeir dönsku. Vor kæra
keisarainna heldur mikið meir með
þeim gemena manni en hennar of-
ficere. Hún er hörð við hennar of-
Ólafsvík!
heitir og kaidir réttir
opið allan daginn
frá kl. 8 til 23
Verið velkomin
„á.
HOTEL KEA AKUREYRI
SÍMI9B-22200
Komið og njótiðfegurðar Snæfellsness og ná-
vistar jökulsins. Gistið hjá okkur, erum á
annarri hœð, erum með 38 2ja manna her-
bergi, vistlegan matsal og setustofu með sjón-
varpi. Opið frá kl. 7.30 - 23.00 alla daga
vikunnar. Matur ísérflokki,fljót oggóð þjón-
usta.
Allar veitingar.
Verið velkomin. Ferðir daglega frá BSÍ.
Hótel NES
Ólafsbraut 19
Ólafsvík, Sími 93-6300.