Þjóðviljinn - 25.08.1983, Síða 10

Þjóðviljinn - 25.08.1983, Síða 10
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 25. ágúst 1983 Mynd Lárusar Ymis frumsýnd á föstudag Annað kvöld hefjast sýn- ingar á myndinni ANNAR DANS eftir Lárus Ými Ósk- arsson, sem er gerð á vegum sænsku kvikmyndstofnun- arinnar. í myndinni eru leiddar saman tvær konur: önnur lífsreynd og klók í að bjarga sér og hin saxófón- leikari og listamaður, önnur notar líkama sinn og hin heil- ann, önnur tekur virkan þátt í grimmu lífinu, hin fylgist með því og skráir skilmerki- lega. Við fylgjumst með þeim á ferðalagi í gegnum Svíþjóð og breytingar og þroska- merki á þeim báðum eru t augsýn þegar myndin endar. Lisa Hugoson í hlutverki Jo sem alltaf er að taka myndir. „Loksins sænskur galdur“ sögðu blöð Þessari mynd var tekið fagnandi þegar hún var sýnd í Svíþjóð á sín- um tíma. „Loksins sænskur gald- ur“ skrifaði Jurgen Schildt í Afton- bladet og segir að ekki hafi verið hægt að væna myndir áttunda og níunda áratugarins um töfra: „Grátt er grátt og grænt er grænt og þar á miili hefur ekki listin verið, heldur atvinnumálapólitík. Ef ekki er reiknað með Ingmar Bergman og „Einfalda morðingjanum" hans Hasse Alfredson, er minna um list- rænan galdur en af leigubílum í Austur-Berlín. Með þetta í huga stendur ís- lendingurinn Lárus Óskarsson eins og fleygur í kvikmyndagerð hér- lendis. Hann tekur hugsýnina frani yfir eftiröpunina, ljóðið fram yfir veruleikann, flugið fram yfir sænsku plattfætuma..." Þannijvirtist „Annar dans“hafa verið rétt mynd á réttum tíma í Sví- þjóð. Almennt ber gagnrýnendum saman um að hún sé sérlega ósænsk og í hæsta máta frumleg og per-, sónuleg. Sven E. Olson hjá Arbet- et segir að þessi mynd hafi sjald- gæflega persónulegan tón, sem sé að finna í hrynjandi atriðanna. „Hann heyrist í myndunum, sem sýna persónurnar og dramað í breytilegu landslagi. Hann ljómar í ljóörænu hiutunum, sem alltaf koma öðru hverju, nokkurs konar millifyrirsagnir í Ijóði..." Þessi mynd hefur líka lyft fleiri gagnrýnendum á flugið: Helena von Zweigbergk segir í blaðinu Recreation undir fyrirsögninni „hugdirfska og gáfur": /.../ Mynd- irnar lifa sínu eigin lífi, fegurð þeirra er slík að mann verkjar undan henni. Sumir hlutar mynd-. árinnar líkjast draumi. /.../ maður: verður stórkostlega glaður að sjá þessa mynd. Glaður yfir að það eru gerðar vel heppnaðar tilraunir með kvikmyndamálið, að fundnar eru nýjar leiðir. Lárus Óskarsson sýnir hugrekki og gáfur í sköpunarverki sínu og situr ekki fastur í stíl nokk- urs annars né kvikmyndalegri skúffu.“ í Svíþjóð LárusÝmir Óskarsson er fæddur í Reykjavík árið 1949 og lærði í Reykjavík og seinna í Stokkhólmi. Hann lauk námi árið 1978 og var lokaverkefni hans við kvikmynda- skólann myndin „Fugl í búri“ sem sýnd hefur verið á kvikmyndahá- tíðum og einnig hér í sjónvarpinu. Hann hefur leikstýrt víða hér, í sjónvarpi og útvarpi, hjá ieikfélagi Akureyrar, Alþýðuleikhúsinu og Þjóðleikhúsinu. Konurnar tvær í myndinni leika þær Kim Anderson og Lisa Hugo- son og hafa þær báðar hlotið afar lofsamlega dóma fyrir leik sinn Lárus Ýmir. þar. Kim Anderson er þekkt leik- kona í Svíþjóð og varð landsfræg fyrir leik sinn í leikritum Dario Fo sem hefur skrifað sérstaklega fyrir hana. Einhverjir kynnu að kannast við hana úr myndunum „Sállskaps- resan“ og „Göta kanal“ sem báðar hafa verið sýndar hér. Lisa Hugo- son hefur verið fastráðinhjáRiks- teatern síðan hún lauk námi en hlutverk Jo í þessari mynd er fyrsta stóra kvikmyndahlutverkið henn- ar. Hjá Riksteatern hefur hún m.a. leikið Ófelíu. í myndinni bregður Sigurði Sig- urjónssyni fyrir sem fordrukknum Islendingi og eins sést leikstjórinn : sjálfur rétt í svip. Myndin er eins og sænsku blöðin segja Ijóðræn og fal- leg og skemmtileg. -gat Kim Anderson leikur Önnu ■, ö

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.