Þjóðviljinn - 25.08.1983, Page 11
Fimmtudagur 25. ágúst 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA II
íþrÓttír VííW Sigurðsson
Guðmundur Torfason kom Fröm-
urum á bragðið gegn KA í gær-
kvöldi.
Fram
slapp
með stig
Eftir að hafa komist í 2-0 í upp-
hafi mátti Fram þakka fyrir annað
stigið út úr toppuppgjöri 2. deildar-
innar í knattspyrnu gegn KA á Ak-
ureyri í gærkvöldi. Fram átti fyrsta
korterið en KA sótti linnulítið eftir
það, úrslitin 2-2.
Guðmundur Torfason skoraði
fyrir Fram úr þröngu færi strax á 7.
minútu og á 14. mínútu bætti Hall-
dór Arason öðru við eftir að Viðar
Þorkelsson halði skotið í stöng. KA
vaknaði við þetta og hafði rétt
minnkað muninn á 36. mínútu,
Hinrik Þórhallsson komst einn inn-
fyrir en Guðmundur Baldursson
markvörður Fram hirti af honum
boltann.
Þorvaldur Jónsson markvörður
KA kom liði sínu til bjargar á 57.
mínútu, varði þá skalla Halldórs af
stuttu færi, mjög vel. Fimm mínút-
um síðar fékk Steingrímur Birgis-
son boltann frá Jóhanni Jakobssyni
og skoraði með hörkuskoti af víta-
teigshorni, 1-2. Á 78. mínútu kom
svo hár bolti fyrir mark Fram,
Guðmundur kýldi hann í þverslá og
út þar sem Jóhann hamraði upp í
þaknetið af markteig, 2-2.
Góður lcikur hjá KA ef fyrsta
korterið er undanskilið, mikið
jafnræði meðal lcikmanna beggja
liða. Hjálmar dæmdi og fórst það
ágætlega úr hcndi.
-K&H/Akureyri
„Þetta má nú kalla
meis taraheppni! ”
„Þetta má nú kalla mcistara-
heppni,“ heyrðist í einum Akurnes-
ingi eftir leik ÍBK og ÍA í I.
deildinni í knattspyrnu í Keflavík í
gærkvöldi. Víst má það til sanns
vegar færa þar sem Kcflvíkingar
áttu mun meira í leiknum en Skaga-
menn skoruðu eina markið, sigr-
uðu 0-1, og eru þar með komnir
með aðra höndina á Islandsbik-
arinn.
Keflvíkingar komu ákveðnir til
leiks og fengu ágæt færi snemma.
Ragnar Margeirsson skaut rétt
framhjá og Ingvar Guðmundsson
var tvívegis vel staðsettur á mark-
teig í A en náði í hvorugt skiptið að
hemja boltann.
Á 25. mínútu fékk ÍA sitt eina
marktækifæri í fyrri hálfleik og það
var nýtt til fullnustu. Árni Sveins-
son tók aukaspyrnu, gaf vel fyrir
mark IBK, við fjærstöng skallaði
Sigurður Halldórsson þvert fyrir á
ný þar sem Sigurður Lárusson var
einn og óvaldaður og átti ekki í
erfiðleikum með að skora. 0-1.
Eftir það var lítið um skemmti-
leg atvik í fyrri hálfleik. Freyr
Sverrisson átti þó gott skot rétt
framhjá marki ÍA eftir fyrirgjöf
Ingvars.
Síðari hálfleikur var ekki gamall
þegar Magnús Garðarsson fékk
ágætis færi við mark ÍA en missti
boltann frá sér. Rétt á eftir var hon-
um vikið af leikvelli fyrir að sparka
í Árna Sveinsson og Keflvíkingar
því einum færri eftir það. Þeir virt-
ust þó frekar eflast og vildu víta-
spyrnu stuttu síðar er Ragnar var
felldur á vítateigslínu.
ÍA komst betur inní leikinn um
miðjan síðari hálfleik og fór að
skapa sér færi. Þorsteinn Bjarna-
son, markvörður fBK, varði frá
Herði Jóhannessyni, Árni og Sig-
þór áttu hörkuskot rétt framhjá og
síðan varði Þorsteinn stórvel frá
Ólafi Þórðarsyni á 75. mínútu. Það
sem eftir var sóttu liðin til skiptis,
Freyr skallaði framhjá marki ÍA,
hinum megin komst Sígurður Lár-
usson í dauðafæri eftir að Þorsteinn
hafði varið frá Ólafi en tókst á
furðulegan hátt að skjóta framhjá
markinu. Björgvin Björgvinsson
átti tvö hörkuskot að marki IA,
bæði í varnarmann og afturfyrir. Á
síðustu sekúndunum, þegar sjö
mínútum hafði verið bætt við
vegna tafa, dansaði knötturinn
fram og til baka í markteig ÍA og
var staddur þar þegar flautað var til
leiksloka.
Keflvíkingar áttu góðan leik,
hefðu átt skilið a.m.k. annað stigið
en urðu að sætta sig við sitt fimmta
tap í röð og fallhættan er orðin
hrikaleg. Allir börðust af krafti og
ekki hægt að taka einn framyfir
annan.
Skagamenn voru einnig frískir
en hafa þó oft leikið betur. Sigurð-
ur Jónsson og Árni voru bestir,
áttu báðir mikið af stórkostlegum
sendingum, og þá stóð Siguröur
Lárusson sig vel.
Víkingar sóttu en
Þróttur nýtti færin
Þeir nýttu færin vel, Þróttararn-
ir, þegar þeir léku við Víking í 1.
deildinni í knattspyrnu á Valbjarn-
arvelli í gærkvöldi. Aðcins tvívegis
ógnuðu þeir Víkingsmarkinu svo
einhverju næmi og í bæði skipti
skoruðu þeir. Víkingar höfðu
nokkra yfirburði allan tímann en
urðu að sætta sig við jafntefli, 2-2.
Þorvaldur Þorvaldsson var hetja
Þróttara, nýtti sér varnarmistök
Víkinga og sendingu félaga síns, Jú-
líusar Júlíussonar og skoraði jöfn-
unarmarkið af stuttu færi tveimur
mínútum fyrir leikslok.
í hotskurn gekk leikurinn þannig
að Víkingar sóttu og Þróttarar
vörðust. Víkingar komust yfir á 17.
mínútu, Ómar Torfason var fljótur
að taka aukaspyrnu, renndi boltan-
um í gegnum óviðbúna Þróttara-
vörn á Aðalstein Aðalsteinsson
sem sendi hann í netið, framhjá
Guðmundi Erlingssyni markverði.
Aðeins sjö mínútum síðar léku
Þróttarar sama leik. Ásgeir
Elíasson gaf eldsnöggt fyrir mark
Víkings og Júlíus jafnaði af stuttu
færi, 1-1. Víkingar fengu nokkur
Þorvaldur Þorvaldsson bjargaði
stigi fyrir Þrótt á síðustu stundu.
góð marktækifæri sem ekki nýttust
í fyrri hálfleik.
Sama í síðari hálfleik og Víking-
ur tók forystuna á ný á 58. mínútu.
Heimir Karlsson skaut með jörðu
af 25 m færi, í bláhornið, 2-1. Eftir
það gátu Víkingar hæglega bætt við
mörkum, Guðmundur varði stór-
vel frá Aðalsteini og Heimi. Síðan
kom jöfnunarmarkið, rétt þegar
menn töldu aðeins formsatriði að
ljúka leiknum, en á síðustu sek-
úndunni komst Ómar í dauðafæri,
einn innan við Þróttarvörnina, en
Guðmundur bjargaði frábærlega
með úthlaupi. Búið.
Víkingar léku oft vel saman í
leiknum, sóknar- og miðjumcnn-
irnir börðust af krafti og gáfu Þrótti
engan frið til að byggja upp sóknir.
Aðalsteinn var yfirburðamaður á
vellinum, mikil yfirferð, góðar
sendingar og fer ótrúlega létt með
að renna sér með boltann framhjá
andstæðingunum. Heimir lék einn-
ig vel, svo og Magnús Þorvaldsson.
Kristján Jónsson var langbesti
leikmaður Þróttar, bakvörður sem
erfitt er að fara framhjá, auk þess
sem hann á drjúgan þátt í að byggja
upp sóknir. Guðmundur lék vel í
markinu, og Ásgeir seigur að
vanda, nú sent miðvörður.
Baldur Scheving dæmdi. illa
framan af en honum óx ásmegin
eftir því seni á leiö.
-VS
Sigurður Lárusson skoraði sigur-
mark ÍA í Keflavík í gærkvöldi.
Þeir Skagamenn eru í seilingarfjar-
lægð frá því að hampa tveimur
mestu bikurum í íslenskri knatt-
spyrnu.
Áhorfendur um eitt þúsund -
Ragnar Örn Péturson dæmdi ágæt-
lega.
-gsm/Keflavík
Fimmtán
mínútna
martröð
Fimmtán mínútna kafli í fyrri
hálfleiknum var hreinasta martröð
fyrir okkur. Þá skoruðu sænsku
stúlkurnar öll sín fimm mörk og við
réðum ekkert við þær. Eftir það
gekk okkur betur og síðari hálfleik-
urinn var góður af okkar hálfu.
Það ber ölluni saman um að þetta
sænska lið sé það sterkasta í Evr-
ópu um þessar mundir og við þurf-
um ekkert að skammast okkar fyrir
úrslitin. Nú verðum við bara að
vinna í Finnlandi, það ætlum við
okkur svo sannarlega,“ sagði Ásta
B. Gunnlaugsdóttir, miðherji ís-
lcnska kvcnnalandsliðsins í knatt-
spyrnu, í samtali við Þjóðviljann í
gærkvöldi.
Það var góð barátta í íslenska
liðinu en sænsku stúlkurnar höfðu
alltaf undirtökin í leiknum. ísland
átti nokkrar ágætar sóknartil-
raunir, Ásta fékk besta færið í lok
fyrri hálfleiks, komst í gegnum
sænsku vörnina en markvörðurinn
bjargaði með úthlaupi.
Ásta, Erla Rafnsdótir og
Guðríður Guðjónsdóttir mark-
vörður áttu bestan leik í íslenska
liðinu. Stúlkurnar halda nú til
Finnlands þar sem þær leika síðasta
leik sinn í Evrópukeppninni að
þessu sinni á laugardaginn.
-VS
Stórsókn Isflrðlnga
bar ekki árangur
1. deild
Úrslit lcikja í 1. deildinni í knatt-
spyrnu í gærkvöldi og staðan að
læim loknum:
Þróttur-Vikingur................. 2-2
Keflavik-Akranes...................0-1
Ísafiörður-KR......................1-1
Vestmeyj.-Brelðabl.............frestað
Akranes.............16 10 2 4 28-10 22
KR..................16 5 9 2 18-18 19
ÞórAk...............15 5 6 4 18-14 16
Breiðablik....i.....15 5 6 4 17-13 16
Víkingur............16 4 8 4 19-18 16
Þróttur.............16 5 5 6 21-29 15
Keflavik.......... 16 6 1 9 20-27 13
ísafjörður.........16 2 9 5 15-22 13
Vestm.eyjar.........13 4 4 5 21-18 12
Valur...............15 4 4 7 21-29 12
Leikur Eyjamanna og Breiðab-
liks fer fram í kvöld cf veður leyfir.
Markahæstir:
Ingi Björn Albertsson, Val.......10
SiguröurGrétarsson, Breiðabl......9
Heimir Karlsson, Vfkingi........ 8
Hlynur Stefánsson, Vstm...........7
Kristínn Kristjánsson, ísaf..... 7
Sigþór Ómarsson, Akranesi....... 7
ísfirðingar og KR-ingar deildu
með sér stigum, jafntefli, 1-1, þeg-
ar félögin mættust á ísafirði í 1.
deildinni í knattspyrnu í gærkvöldi.
Veðurblíða fyrir vcstan og 450
áhorfcndur fengu að sjá ágætlega
lcikinn og skemmtilegan leik.
í fyrri hálfleik var mikið jafnræði
með liðunum, ísfirðingar meira
með boltann ef eitthvað var. Lítið
var um marktækifæri, Jón Oddsson
og Ámundi Sigmundsson fengu
þau bestu fyrir Isfirðinga, en KR
skapaði sér engin sem orð er á ger-
andi.
Fljótlega í síðari hálfleik dró til
tíðinda. Á 53. mínútu náðu ís-
firðingar góðu upphlaupi. Hinn
kornungi Atli Einarsson hljóp af
sér vörn KR, sendi fyrir markið,
Guðmundur Jóhannsson kom bolt-
anum til Kristins Kristjánssonar
sem skoraði með viðstöðulausu,
fallegu skoti úr miðjum vítateig, 1-
0 fyrir ÍBÍ.
Ekki hélst forystan lengi, aðeins
í þrjár mínútur. Þá fengu KR-ingar
hornspyrnu sem Sæbjörn Guð-
mundsson framkvæmdi. Óskar
Ingimundarson fékk boltann inn
við marklínu og þurfti aðeins að ýta
honum yfir hana, 1-1.
Eftir þetta var stanslaus pressa á
mark KR og ísfirðingar fengu mý-
grút tækifæra, allt til leiksloka.
Framherjarnir, Jón, Ámundi og
Kristinn, voru ekki á skotskónum,
annaðhvort skutu þeir framhjá eða
Stefán markvörður varði hjá þeim.
Jafntefli því niðurstaðan, dýrmætt
fallbaráttustig ísfirðinga en KR
færist stigi frá meistaratitlinum.
ísfirðingar áttu flestir góðan leik
og liðið var jafnt. Atli var þó einna
bestur. Jóhann Torfason, Bene-
dikt Einarsson, Kristinn og Rúnar
Vífilsson stóðu honum ekki langt
að baki.
Sæbjörn og Óskar voru bestir í
þokkaíega frísku liði KR-inga, og-
Stefán stóð sig með prýði í
markinu.
Óli Ólsen dæmdi og komst ágæt-
lega frá hlutverki sínu.
-P/VS
Leiftur vann á Blönduósi
Úrslitakcppnin í 4. deildinni í knattspyrnu hófst í gærkvöldi með
tveimur leikjum. Víkverji og Stjarnan skildu jöfn, 2-2, á Melavellinum
í A-riðli og á Blönduósi vann Leiftur frá Ólafsfirði Hvöt 2-0 í B-
riðlinum. Næstu leikir verða á laugardag.