Þjóðviljinn - 22.09.1983, Side 2
2 SÍÐAj- ÞJÓÐVILJINN1 Fimmtudagur 22. september 1983
Bingó í
Gamla bíói
Bingó, til styrktar fslensku
óperunni, verður haldið í Gamla
bíói í kvöld, fimmtudag 22. sept.,
og hefst kl. 20.30. Spilaðar verða
12 umferðir og vinningar eru
m.a. glæsileg ferð með Ferða-
skrifstofunni Úrvali að verðmæti
30.000 kr., Philips heimilistæki
frá Heimilistækjum hf. og úttekt-
ir í verslununum Víði, Casio,
Clöru, Fiðrildinu og Valborg. -
Stjórnandi bingósins er Kristinn
Hallsson.
-mhg
Örn Þorsteinsson hefur að
undanförnu sýnt í Gallerí Grjót
við Skólavörðustíg en sýningu
hans lýkur í dag. Ljósm. eik.
Gallerí Grjót
Sýningu Arnar
lýkur í dag
Nú er að Ijúka sýningu Arnars
Þorsteinssonar á myndum úr
Þúsundmyndasafni í Gallerí
Grjót og hefur mikill fjöldi komið
að sjá myndvérk hans. Sýning-
unni lýkur á morgun, fimmtudag.
Að sögn Arnar hafa margar
myndir selst og kvaðst hann
ánægður með þessa fyrstu einka-
sýningu sína.
Á föstudag, hinn 23. septemb-
er kl. 12 verður síðan opnuð sýn-
ing á myndverkum og listmunum
þeirra sjö listamanna sem að
Galleríinu standa. Það eru þau
Hjördís Gissurardóttir með
skartgripi, Jónína Guðnadóttir
með leirmuni, Magnús Tómas-
son með myndverk, Malín Ör-
lygsdóttir með modelfatnað,
Ófeigur Björnsson með listmuni
úr gulli og silfri, Ragnheiður
Jónsdóttir með grafík og Örn
Þorsteinsson með myndverk.
Að sögn Arnar Þorsteinssonar
má gera ráð fyrir því að síðla í
vetur sýni aðrir félagar í Gallerí
Grjót „á palli“ líkt og Örn gerir
nú.
Unnið að undirbúningi 10 ára afmælis Menntaskólans í Kópavogi. „Hér leggja allir sameiginlega hönd að verki, skólastjóri, kennarar og
nemendur“, sagði Ingólfur A. Þorkelsson, skólameistari. Mynd: M.
Menntaskólinn í Kópavogi
Skólasetning
og opið hús
Menntaskólinn í Kópavogi var settur í fyrsta sinn í Félags-
heimili Kópavogs 22. sept. 1973 að viðstöddu fjölmenni. Skólinn
er því 10 ára um þessar mundir og nú í dag, 22. sept., verður
afmælisins minnst. Munu þá nemendur, kennarar, foreldrar og
gestir þá gera sér nokkurn dagamun.
Skólasetning fer fram við há-
tíðlega athöfn í Kópavogskirkju
kl. 15 og verður menntamálaráð-
herra þar viðstaddur. Að skóla-
setningunni aflokinni verður
„opið hús“ ískólanum, frá kl. 16-
19. Þar má sjá, á veggspjöldum
og ljósmyndum í anddyri hinar
helstu upplýsingar um stofnun
skólans og starf í 10 ár. Hafa
skólastjóri, kennarar og nemend-
ur unnið að því sameiginlega
undanfarna daga, að skipuleggja
þetta, ganga frá veggspjöldum og
myndum og koma fyrir. - Nem-
endur munu svo kynna félags-
starfsemi sína í stofu nr. 19.
f salnum verður selt kaffi og
margskonar meðlæti en kennarar
og nemendur ganga um beina.
Og á meðan gestir gæða sér á
kaffinu og skoða myndir,
skemmta nemendur þeim með
einum og öðrum hætti, m.a. með
píanóleik, söng og upplestri.
Verður trúlega margt um gest og
gangandi í húsakynnum skólans í
dag. -mhg
Salon Nes
Fyrsta hárgreiðslustofan á Seltjarnarnesi var opnuð nýlega að Austurströnd 1 (í húsi Nesskips) undir
nafninu Salon Nes, sími 26065, og veitir alla alhliða hársnyrtiþjónustu. Hárgreiðslumeistarar og eigendur
eru Sigríður Garðarsdóttir ög Helga Jóhannsdóttir, sem sjást hér í húsakynnum Salon Ness.
„Búið um
eins og reifabörn“
Fleira gerðist frásagnavert á
árinu 1851 en Þjóðfundar-
haldið með sínum sviplega
endi og koma dátanna hans
Trampe. Það má einnig teljast
til tíðinda að Englendingar
hófu nú í fyrsta skipti kaup á
hrossum hér, til útflutnings.
Keyptu þeir 30 hross.
Það þótti einnig eftirtektar-
verð nýjung að P.C. Knutzon lét
nú „skrínuleggja saltfisk til út-
flutnings, (5 lbs í hverja skrínu)
og búa um eins og reifabörn“,
eins og það var orðað. Skyldi
fiskur þessi fara til Suður-
Ameríku.
Dr. Sveinbirni Egilssyni var nú
veitt lausn frá rektorsembættinu
og Bjarni Jónsson, yfirkennari
við latínuskólann í Horsens, skip-
aður í hans stað. Tók hann við
embættinu um haustið. Björn
Gunnlaugsson var skipaður yfir-
kennari í stað Hallgríms Sche-
vings og einnig var Jónas Guð-
mundsson, cand. theol. skipaður
kennari við skólann.
-mhg
Fyrirlestur
í HÍ
Dr. Milliam W. Koolage flytur
fyrirlestur í stofu 102 í Lögbergi
húsi Lagadeildar á háskólalóð.
Fyrirlesturinn er á vegum félags-
vísindadeildar Hí og heitir
„Language interpreter in Cana-
dian Health Care“.
Dr. Koolage er prófessor við
háskólann í Manitoba og hefur
skrifað fjölda ritgerða og flutt
fyrirlestra á sviði þjóðfélags-
fræða, og m.a. stundað rann-
sóknir í heilbrigðisþjónustu fyrir
indíána í Kanada. Fyrirlesturinn
er öllum opinn og hefst kl. 17.00 í
dag.