Þjóðviljinn - 22.09.1983, Blaðsíða 10
22 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN Fimmtudagúr 22. september 1983
Brunborgar-
styrkur
Úr Minningarsjóði Olavs Brun-
borg verður veittur styrkur að upp-
hæð fimm þúsund norskar krónur á
næsta ári. Tilgangur sjóðsins er að
styrkja íslenska stúdenta og kandí-
data til háskólanáms í Noregi.
Umsóknir um styrkinn, ásamt.
námsvottorðum og upplýsingum
um nám umsækjenda, sendist
skrifstofu Háskóla íslands fyrir 15.
október 1983.
Leiðrétting
Missagt var í „Klippt og Skorið“
í gær að Sigurður Þ. Guðmundsson
læknir hefði skrifað grein í Tíman-
um á dögunum sem vitnað var til í
dálkunum. Það var alnafni hans
sem reit umrædda grein. Þjóðvilj-
inn biðst velvirðingar á þessum
mistökum.
Aukatekjur
Aukið tekjur ykkar um aílt
aö dkr. 2000 á viku meö
léttri heima- og tómstund-
avinnu.
Hugmyndabæklingur meó
100 tillögum á Iskr. 200
sendur án buröargjalds ef
borgað er fyrirfram, en ann-
ars meö póstkröfu + burðar-
gjaldi. Fullur skilaréttur
innan 8 daga.
Daugaard Trading
Claus Cortsensgade 1,
DK 8700 Horsens
Danmark.
Sextug í dag
Guðrún Jónsdóttir Kópareykjum,
Borgarfirði, er 60 ára í dag. Hún
| verður að heiman.
| Viðskipta-
bankar með
gjaldeyri
Viðskiptaráðherra samþykkti í
gær tillögu Seðlabankans um að
viðskiptabönkum, sem sótt hafa
um leyfi til gjaldeyrisverslunar,
verði veitt leyfi til að versla með
erlendan gjaldeyri. Fyrst um sinn
verða heimildir bankanna miðaðar
við að þeir sinni tvenns konar þjón-
ustu, opnun innlendra gjaldeyris-
reikninga og gjaldeyrisviðskiptum
við ferðamenn. Viðskiptaráðherra
mun einnig gera ráðstafanir til þess
að unnt sé að veita sparisjóðum
sams konar gjaldeyrisréttindi og
viðskiptabönkum.
1X2 1X2 1X2
4. leikvika - leikir 17. sept. 1983
Vinningsröð: 111-122-112-211
1. Vinningur: 12 réttir - kr. 304.525.-
8920('/i2, e/11)
2. vinningur: 11 réttir - kr. 3.346.-
1516 7083 38123 39955 43932+ 85248 92769 90793(Vn)
2793 13602 38213 42675 43948+ 88956+ 2180(Vu)
6476 13940 38226 42678 49839 90060 42419(Vn)
6851 37719+ 39057+42682 50482 92772 46273(2/n)
Kærufrestur er til 10. október kl. 12 á hádegi. Kærur skulu vera
skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og á skrifstof-
unni í Reykjavík.
Vinningsupphæðir geta lækkað, ef kærur verða teknar til greina.
Handhafar nafnlausra seðla (+) verða að framvísa stofni eða
senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til
Getrauna fyrir lok kærufrests.
Gera má ráð fyrir verulegum drætti á greiðslu vinninga fyrir
númer, sem enn verða nafnlaus við lok kærufrests.
Getraunir - íþróttamiðstöðinni - Reykjavík
Söluskattur
Viðurlög falla á söluskatt fyrir ágúst-mánuð
1983, hafi hann ekki verið greiddur í síðasta
lagi 26. þ.m. Viðuriög eru 4% af van-
greiddum söluskatti fyrir hvern byrjaðan virk-
an dag eftir eindaga uns þau eru orðin 20%,
en síðan eru viðurlögin 5% til viðbótar fyrir
hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með 16.
október.
Fjármálaráðuneytið,
16. september 1983.
Sovésk sjónarmið
Sovéski sagnfræðingurinn dr. Boris I. Mar-
úskin verður öðru sinni gestur f MÍR-salnum,
Lindargötu 48, í kvöld, fimmtudag kl. 20.30,
og spjallar um nýjustu viðhorfin í alþjóðamál-
um og skýrir viðhorf Sovétmanna til ýmissa
þeirra. Aðgangur er öllum heimill.
Stjórn MÍR.
íþróttir
✓
Islandsmótið í handknattleik — 1. deild karla:
Ótrúlega auðvelt hjá
FH gegn Stjömunni!
FH hafði ótrúlega yfirburði gegn
Stjörnunni í 1. deildinni í hand-
knattleik í gærkvöldi. Leikurinn
fór fram í Hafnarfirði og var nánast
einstefna á Stjörnumarkið, ef hægt
er að tala um slíkt í handbolta þar
sem liðin sækja jú til skiptis. Loka-
tölurnar urðu 34:14, tuttugu
marka sigur, en staðan í hálfleik
var 19:7.
FH var komið í 6:1 eftir átta mín-
útur og sú þróun hélt áfram til
leiksloka. Helstu tölur 15:4, 19:7,
27:9, 33:13 og loks 34:14. Óþarft
að fjölyrða meira um það.
Munurinn á þessum tveimur lið-
um sem höfnuðu í þriðja og fjórða
sæti 1. deildarinnar í fyrra var
gífurlegur. FH lék sem ein heild,
hvergi veikan hlekk að finna í
sókn, vörn, né hjá Sverri Krist-
inssyni í markinu sem varði stórvel.
Kristján Arason og Atli Hilmars-'
son voru þó langbeslir, það verður
erfitt fyrir varnir l.deildarliðanna
að stöðva þessar geysiöflugu
skyttur í vetur. Allir voru frískir og
gaman að sjá vel útfærð hraða-
upphlaup FH-inga sem oftast
skiluðu marki.
Fallbarátta bíður Stjörnunnar ef
svo verður haldið áfram. Það er þó
fullsnemmt að spá nokkrum óför-
um. Enginn var öðrum skárri,
skipulagsleysið algert og í sókninni
lá við að hver hlypi annan niður.
Stjörnumönnum hlýtur þó að vera
huggun að verra leika þeir vart í
vetur.
Mörk FH: Kristján 13 (6 víti),
Atli 7, Þorgils Óttar 6, Hans 4,
Guðjón Á. 2, Guðmundur M. og
Pálmi eitt hvor.
Mörk Stjörnunnar: Eyjólfur 8
(7), Magnús T. 3, Bjarni Bessa,
Guðmundur Þ. og Hannes eitt
hver.
- MHM/VS
Kristján Arason skoraði 13 mörk
Haukar stóðu í Vík-
iingi í 40 mínútur
Þegar tíu mínútur voru liðnar af
síðari hálfleik hjá Víkingi og
Haukum i 1. deildinni í handknatt-
leik, skildu leiðir með liðunum.
Leikurinn var búinn að vera jafn,
staðan 14:14, en Víkingar stungu af
og unnu öruggan sigur, 28:20.
Haukar voru frískari í byrjun,
komust í 3:1 en liðin leiddu til
skiptis í fyrri hálfleik. Staðan í
leikhléi var 10:9, Haukum í hag.
Síðan var jafnt á öllum tölum uppí
14:14 en þá skoraði Víkingur
fjögur mörk í röð og eftir það var
aldrei spurning um úrslit. Munur-
inn jókst smám saman, var orðinn
tíu mörk rétt fyrir leikslok, en ný-
liðarnir úr Hafnarfirði skoruðu tvö
síðustu mörkin.
Leikurinn var sæmilega leikinn
af báðum liðum. Víkingar voru þó
alltaf sterkari en hafa oft sýnt betri
leik. Víkingsvörnin var ekki nógu
þétt og sóknarleikurinn oft full ein-
hæfur. Viggó Sigurðsson var alltaf
ógnandi og skoraði grimmt og
i Hörður Harðarson átti ágætan
j leik. Guðmundur B. Guðmunds-
j son frá Akureyri lék vel í vörninni
og skoraði drjúgt í þeim fáu sókn-
um sem hann tók þátt í.
Haukarnir komu mér á óvart
fyrir góða baráttu þær 40 mínútur
sem þeir héldu í við Víking. Þeirra
sóknarleikur var einnig einhæfur,
mikið keyrt á sama leikkerfinu, og
óöguð brot í vörninni voru tíð. Þór-
ir Gíslason var þeirra frískastur og
Gunnlaugur Gunnlaugsson lék vel
í markinu. Mikið fór fyrir stuðn-
ingsmönnum Haukanna í Höllinni,
engu líkara en þeir lékju á heima-
velli.
Mörk Víkings: Viggó 10 (3 víti),
Guðmundur B. G. 5, Hörður 5,
Guðmundur G. 3, Steinar 3 og
Hilmar 2.
Mörk Hauka: Þórir 6, Hörður S.
3, Sigurjón 3, Jón H. 3, Oddur 2,
Ingimar 2 og Snorri eitt.
Rögnvaldur Erlingsson og Stef-
án Arnarson dæmdu og hefðu mátt
taka strangar á brotum. Fullharka-
legt þó hjá þeim að útiloka Hauka-
manninn Helga Harðarson eftir 20
mínútna leik fyrir fyrsta brot.
- Frosti
Viggó Sigurðsson gerði tíu marka
Víkings.
| KR-ingar mæta frískir tii leiks:
Lögðu Reykjavíkur
meístarana 18:14
Nýkrýndir Reykjavíkurmeistar-
ar Vals máttu sætta sig við tap í
sínum fyrsta leik á íslandsmótinu í
handknattleik. Þeir mættu KR-
ingum í Laugardalshöllinni í gær-
kvöldi og þeir síðarnefndu sigruðu
18-14. KR var óskrifað blað fyrir
þennan leik, hafði sent 2. flokkinn í
Reykjavíkurmotið.
Liðunum gekk illa að skora
framan af. Fyrri hálfleikur var jafn
en sterk KR-vörn, sem lék nokkuð
framarlega, gerði sókn Vals erfitt
fyrir. Staðan í hálfleik var 9-8, KR í
hag, en flautað var til hálfleiks um
leið og knötturinn hafnaði í
Valsmarkinu eftir skot Björns Pét-
urssonar. Markið var ekki gilt.
í síðari hálfleik jókst forysta KR
smám saman og Valsmönnum
gekk enn verr í sóknarleiknum en
fyrir hlé. KR komst í 16-11, þá
reyndu Valsmenn að taka tvo
þeirra úr umferð og síðan léku þeir
maður á mann. Þeim tókst ekki að
saxa á forskotið svo einhverju
næmi og útkoman fjögurra marka
sigur KR, 18-14.
Hjá KR var það liðsheildin sem
skóp sigurinn. Jens Einarsson var
þó bestur, að öðrum ólöstuðum, og
varði meistaralega. Friðrik Þor-
björnsson átti góðan leik og Björn
Pétursson, sem nú hefur tekið
skóna fram að nýju, skoraði
grimmt. KR missti Jakob Jónsson
útaf í fyrri hálfleik, hann þurfti að
fara á slysavarðstofuna eftir að
hafa fengið skurð á augabrún.
Valsliðið var í slakara lagi og
hlýtur að geta gert betur. Þar stóð
Einar Þorvarðarson markvörður
uppúr og varði meðal annars þrjú
vítaköst.
Mörk KR: Björn 5 (2), Friðrik 4,
Jakob 4, Ólafur I. 2, Guðmundur
A, Jóhannes og Willum eitt hver.
Mörk Vals: Brynjar H. 5,
Stemdór 4, Stefán H. 2, Jakob, Jú-
líus og Valdimar eitt hver.
- VS