Þjóðviljinn - 22.09.1983, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 22,'september, 1985 ’ ÞJÓÐVILJINN —'SÍÐA‘5
Innréttingar í leitarstöð Krabbameinsfélagsins:
Allar íslenskar
Útboð fara brátt fram á fyrsta
hluta innréttinga í leitarstöð
Krabbameinsfélags ísiands en
fé t leitarstöðina var fengið
með „Þjóðarátaki gegn
krabbameini“, iandssöfnun
sem fram fór á þéssu ári.
Byggingarnefnd
leitarstöð varinnar hefur
undanfarið unnið að
útboðsgögnum og stefnir nú í
það að boðnir verði út þrír
hlutar á almennum markaði
innanlands.
Að sögn innanhússarkitekts
lcitarstöðvarinnar, Sturln M.
Jónssonar, þá er ætlað að fyrsta
útboð fari fram um mánaðamótin
október - nóvember en þá verður
boðið út í skilveggi, gólf, ioft,
hurðir o.s.frv.
Upp úr áramótum verða boðn-
ir út aðrir innviðir leitarstöðvar-
innar, innréttingar í kaffistofu,
biðstofu og rannsóknarstofu, fat-
ahengi, gluggafrágangur o.s.frv.
Húsgögn eru síðasti liðurinn á
innkaupalistanum og sagði
Sturla, að undanfarið hefði verið
unnið á vegum byggingarnefndar
að könnun á verði hinnar inn-
lendu framleiðslu.
Sturla sagði, að aðeins í þeim
tilvikum, þar sem ekki yrði öðru
við komið, yrði efniviður 1' leitar-
stöðina sóttur erlendis til, og í
þeim tilvikum naumast um annað
en tækjakaup að ræða í stöðina.
Sturla nefndi sem dæmi að sér-
hæfður búnaður í rannsóknar-
stofu yrði allur framleiddur hér
innanlands, enda væri það yfir-
lýst stefna byggingarnefndar að
leita til íslenskra framleiðenda.
í byggingarnefnd, leitarstöðv-
arinnar eiga sæti Guðlaugur
Geirsson yfirlæknir sem er for-
maður, Þórður Þorbjarnarson
borgarverkfræðingur og Magnús
Gústafsson forstjóri. Ráðgjafi
nefndarinnar er Vilhjálmur Þor-
láksson verkfræðingur.
Stefnt er að því að taka nýju
leitarstöðina í notkun seinni part
sumars á næsta ári. - hól.
Ráðning iðnráðgjafa á Suðurlandi
Leiklistardeild Útvarpsins
- Sú meginbreyting verður á til-
högun leikritaflutnings hljóðvarps-
ins í vetur, að útsendingum á nýj-
um upptökum verður fækkað úr
þremur í tvær á mánuði. Með þess-
ari breytingu er horfið frá þeirri
stefnu að flytja ævinlega eitt leikrit
í viku en því marki hefur verið náð
með því að flytja þrjú ný og eitt
endurtekið verk í mánuði. Þannig
fórust leiklistarstjóra Útvarpsins,
Jóni Viðari Jónssyni orð er hann
kynnti vetrardagskrá leiklistar-
deildar á blaðamannafundi í gær.
Þessi breyting er þó ekki gerð í
sparnaðarskyni, heldur til að fá
svigrúm til þess að fást við stærri
verk og mannfrekari og að fá rýmri
tíma til æfinga eða, eins og leik-
listarstjóri orðaði það: „bera meira
í einstök verk en verið hefur". Hér
er þó aðeins um tilraun að ræða en
ekki stefnumörkun fyrir framtíðina
og að því er stefnt að taka fram-
haldsleikrit á dagskrá næsta vor,
eftir að flutningi barnaleikrita lýk-
„Meira borið í einstök
verk en verið hefur“!
jónssonar og Ódauðleiki, sem
Þorgeir Þorgeirsson hefur gert eftir
smásögu Heinesens um skáldið Lin
Pe og tömdu trönuna hans. En sem
áður verða erlend leikrit í meiri
hluta og verður þeirra getið síðar.
Stök leikrit verða flutt annað
hvert fimmtudagskvöld og byrja að
jafnaði kl. 20.00. í ráði er að eldri
upptökur verði endurfluttar síðla á
mánudagskvöldum um kl. 22.30,
en ekki jafn reglubundið og áður
hefur verið.
Barnaleikrit verða flutt kl. 20.00
á þriðjudagskvöldum. Af þeim ber
hæst framhaldsleikritið Tordýfill-
inn flýgur í rökkrinu, eftir Kay
Pollak og Maríu Gripe. Er það í 12
þáttum og hefst flutningur þess í
byrjun október.
- mhg
ur.
Ætlunin er að leiklistardeildin
sendi frá sér í vetur 16 nýjar upp-
tökur leikrita. Hefst vetrardag-
skráin í raun í kvöld með flutningi
Nashyrninganna eftir Ionesco.
Seinna í vetur kemur svo Ivanov
Tsjekhovs í þýðingu Geirs Krist-
jánssonar. Af nýjum íslenskum
verkum má nefna útvarpsleiki
Andrésar Indriðasonar, Fiðrildi og
Fimmtudagskvöld, tvær nýjar leik-
gerðir: Tólfkóngavit, sem Páll H.
Jónsson hefur samið upp úr sam-
nefndri sögu Guðmundar Frið-
Nú er’ann
enn á norðan
Þessi norðan átt er búin að vera
árviss á Reykjavíkurmarkaði
undanfarin 11 haust, þegar Torgið
og Sambandsverksmiðjurnar á Ak-
ureyri slá dyrum upp á gátt fyrir
Reykvíkinga á þessum tíma í Hús-
gagnahöllinni á Bíldshöfða. Núna
verður þetta 29. september n.k.
Hér er um að ræða margt for-
vitnilegt í framleiðsluvörum Sam-
bandsins á Akureyri. Nöfn eins og
Gefjun, Iðunn og Hekla láta kunn-
uglega í eyrum en móðurskipið í
byrjun var Gefjun í Austurstræti
10, sem í dag heitir Torgið á sama
stað. Þessi verslun hét annars í
Skógræktargirðingar
Á vegum skógræktarfélaganna
var varið til nýrra girðinga kr. 102
þús, á sl. ári og kr. 81 þús. til við-
halds girðinga.
Haldið var áfram að girða Foss-
árland í Hvalfirði. Sett var upp
1400 m. löng girðing austan Fossár
og er nú hlíðin austan árinnar
friðuð. Gerðar voru endurbætur á
girðingu skógræktardeildarinnar
Aspar í Hamarslandi í Borgarfirði.
Á Gunnfríðarstöðum í Langadal
var bætt staurum í báðar girðing-
arnar þar og í Skarðsdal í Siglufirði
var 200 m. kafli endurnýjaður og
færður vegna snjóþyngsla. Þá var
girðing um Stafnsskóg í Reykjadal
mikið lagfærð.
Skógræktarfélag Reykjavíkur
setti upp nýja girðingu á Reyni-
völlum í Kjós og Skógræktarfélag
Mýrdælinga fékk til afnota 8 ha.
land til skógræktar í landi,
Skammadalshóls í Mýrdal. Land
þetta er í Brynjudal og var byrjað á
undirbúningsvinnu á sl. hausti.
- mhg
Verksmiðjusala
Sambands-
verksmiðjanna
á Akureyri
að hefjast
í Reykjavík
byrjun Gefjunarútsala og byrjaði á
Laugavegi 33 árið 1931.
■ Alveg frá því fyrsta fram á þenn-
, an dag hefir aðalsöluvaran verið
i framleiðsluvörur Sambandsverk-
smiðjanna á Akureyri.
Alltaf er eitthvað nýtt á döfinni.
Stórúrval af gallabuxum, úlpum,
peysum og sokkum á alla aldurs-
flokka. Sama á við um skóna, þeir
i eru í öllum regnbogans litum og af
mörgum gerðum. Gefjun hefur
! alltaf boðið upp á margskonar
teppa- og efnisbúta, þar á meðal
nýju tískuna í teinóttu terylene á-
klæði, gluggatjöld og ullarteppi að
ógleymdu úrvali í garni, loðbandi
og lopa. Hér er það nýtt að vinda
garnhankirnar upp í stórhespur á
hagstæðara’ verði.
Skinnadeildin er tiltölulega ný á
útsölunni og kennir þar margra
grasa af eldri lagerum af leðri,
mokkaskinni og gærum í fjöl-
breyttu litavali og auðvitað glæsi-
legur mokkafatnaður, húfur og
lúffur.
Þá má ekki gleyma fjölbreyttu
úrvali margskonar fatnaðar sem
Torgið býður sérstaklega upp á.
Fataverksmiðjan Gefjun í Reykja-
vík býður upp á úrval af jakkaföt-
um á herra, stakar buxur og jakka
og efnisbúta margskonar.
Straumhvörf
í þessum
málum
Það urðu straumhvörf í þessum
málum á Suðurlandi þegar við
fengum sérstakan iðnráðgjafa fyrir
tveimur árum, en þá hóf Þorsteinn
Garðarsson störf hjá okkur, sagði
Hjörtur Þórarinsson fram-
kvæmdastjóri Samtaka sveitarfé-
iaga á Suðurlandi á fundi, sem þeir
Þorsteinn héldu með blaðamönn-
um í fyrradag. Var tilgangurinn
með fundinum sá, að kynna iðn-
þróunarverkefni, sem nú er unnið
að á Suðurlandi.
Á sl. ári skipaði stjórn Samtak-
anna sérstaka nefnd til þess að
vinna að athugun á möguleikum á
orkufrekum iðnaði á Suðurlandi.
Nefndina skipa: Páll Zóphanías-
son, tæknifræðingur Vestmanna-
eyjum, formaður, Hafsteinn Krist-
insson, framkvstj. Hveragerði,
Hafsteinn Þorvaldsson, forstöðu-
maður Selfossi, Páll G. Björnsson,
framkvstj. Hellu og Þorsteinn
Garðarsson, iðnráðgjafi Þorláks-
höfn.
Nefndin byrjaði á réttum enda,
sem ekki er kannski alltaf gert.
Hún tók þegar fyrir ákveðin verk-
efni og kannaði arðsemi þeirra til
hlítar.
Athugun á þeim verkefnum,
sem um var fjallað, er mismunandi
langt komið, en eitt er þó í burðar-
liðnum, álsteypa, eða framleiðsla á
steikarpönnum úr áli, og var sú at-
hugun gerð í samvinnu við danska
ráðgjafarfyrirtækið Scankey a/s.
Hugsanlegt er að danskt fyrirtæki
verði aðili að þessari framleiðslu.
Frá þessu verkefni var skýrt hér í
blaðinu í gær.
Þá stendur yfir arðsemisathugun
á framleiðslu á kertum og lýkur
henni væntanlega upp úr næstu
áramótum. Mundi sú framleiðsla
fara fram í húsi verndaðs vinnu-
staðar í Vestmannaeyjum. Starfs-
menn yrðu trúlega 20 og stofn-
kostnaður 9 milj. Fyrirhugað er að
kanna markaðsmöguleika með
þeim hætti að flytja inn erlend kerti
nú fyrir jólin, pakka þeim hér og
setja á jólamarkað.
I forathugun er og framleiðsla á
kísilkarbíð og munu niðurstöður
þeirrar athugunar liggja fyrir í
næstu viku. Þá er í frumkönnun, -
en í meiri fjarlægð - framleiðsla á
C-vítamíni og hitaþolnum efnum.
Um kostnað og fjármögnun er
það að segja, að í öllum verkefnun-
um hefur verið gert tilboð um ák-
veðna upphæð, sem komi til
greiðslu í þrennu lagi: við undirrit-
un samnings, á miðju tímabili og er
skýrslu er skilað. Sótt hefur verið
um áhættulán til Iðnþróunarsjóðs,
Iðnaðarrannsókna og Iðnrekstrar-
sjóðs, er nema 50% af samnings-
upphæðinni. Sótt var og um áhætt-
ulán eða styrk til Byggðasjóðs. Og í
samræmi við þá breytingu, sem
gerð hefur verið á reglugerð fyrir
Iðnþróunarsjóð Suðurlands, hefur
hann einnig veitt áhættulán til
verkefnanna.
-mhg
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið Reykjavík
Starfshópur um menntamál
Fyrsti fundur starfshóps um menntamál verður miðvikudaginn 28.
september kl. 20.30 að Hverfisgötu 105.
Nánar auglýst síðar.
Umsjónarmenn
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Starfshópar
Á næstu dögum og vikum taka til starfa á vegum Alþýðubanda-
lagsins í Reykjavík starfshópar um margvísiega málaflokka.
Markmið starfshópana er að móta tillögur ABR sem lagðar verða
fyrir landsfund Alþýðubandalagsins 17.-20. nóvember.
Starf hópanna er opið öllum félagsmönnum og hvetjum við sem
flesta að taka þátt í starfinu. Fundir hópana verða auglýstir íflokksdálki
Þjóðviljans nú á næstu dögum.
Eftirtaldir hópar munu starfa:
Starfshópar um laga- og skipulagsmal:
Umsjón: Arthúr Morthens og Guðbjörg Sigurðardóttir
Starfshópur um utanríkis- og friðarmál:
Umsjón: Helgi Samúelsson.
Starfshópur um húsnæðismál:
Umsjón: Einar Matthíasson.
Starfshópur um efnahags- og kjaramál:
Borghildur Jósúadóttir.
Starfshópur um menntamál:
Umsjón: Stefán Stefánsson
Starfshópur um sjávarútvegsmál:
Umsjón: Ólafur Sveinsson
Starfshópur um örtölvumál:
Umsjón: Þorbjörn Broddason
Starfshópur um náttúruverndarmál
Fundir ofanskráðra hópa verða auglýstir næstu daga. Allar frekari
upplýsingar veita umsjónarmenn og skrifstofa ABR.
Stjórn ABR