Þjóðviljinn - 22.09.1983, Blaðsíða 16
DWÐVIUINN
Fimmtudagur 22. september 1983
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tima er haegt að ná í blaðamenn og aðra starlsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
..... __ ____ Al-
þýðusamband íslands og Verka-
mannasambandið þyrðu ekki í „al-
menna leynilega atkvæðagreiðslu
um hug fólks til málsins. Þess í
stað fara þeir í gang með undir-
skriftasöfnun og hræða fólk til að
skrifa undir mótmæli gegn stefnu
stjórnarinnar. Fólk skrifar undir
vegna þess að það óttast að lenda
á svörtum lista verkalýðsforyst-
unnar. Fólk hefur hringt til mín
i.og látið í ljós andúð á þessum
vinnubrögðum, sem eru raunar
dæmigerð fyrir aðferðir kommún-
ista. Þeir sjá tvo möguleika til að
ná völdum í þjóðfélaginu, annars
vegar er það blóðug bylting og svo
undirróður af þessu tagi, sem þeir
eru að fara út í núna. Þeir nota sér
ótta fólksins, sem ekki vill láta
btelja sig óstéttvíst og hræðist þar
í að auki hugsanlegar gagnaðgerðir
af hálfu verkalýðsforystunnar. Þú
heyrir vel, að ég mun ekkert mark
taka á þessum undirskriftalistum,
þegar og ef þeir koma. Fólkið í
landinu verður að fara að átta sig
á vinnubrögðum kommúnistanna í
verkalýðshreyfingunni," sagði Al-
bert Guðmundsson að lokum.
Albert Guðmundsson í Morgunblaðinu:
„Vinnubrögð kommúnista
í verkalýðshreyfingunni”
Björn Þórhallsson varaforseti ASÍ:
„Öfgar“
„Við þessum ummœlum ráðherra sem eru svo öfgakermd er
ekkert svar. Þau eru einfaldlega ekki svaraverð. “
Magnús Geirsson formaður Rafiðnaðarsambandsins:
„Endemis rugl“
„Maður kemur nú varla upp orði til þess að tjá sig um þetta
endemis rugl í ráðherranum... En það eru til svartir listar-og þeir
eru hjá Vinnuveitendasambandinu. “
Magnús L. Sveinsson formaður VR:
„Lítilsvirðing“
„Mér finnst það einnig bera vott um lítilsvirðingu Alberts
gagnvart launþegum að halda þá svo ósjálfstœða í skoðunum sem
hann gefur svo sterklega í skyn. Ég þekki ekki marga af því tagi
sem hann lýsirþarna. Þetta eru að mínum dómifurðuleg brigslyrði
í garð forystumanna verkalýðshreyfingarinnar. “
Bjarni Jakobsson formaður Iðju:
„Vísað á bug“
„Ef svo fer að umtalsverður fjöldi fólks skrifar undir þessi
mótmœli, þá er það í meira lagi hœpið að taka ekki mark á því. Ég
vísa því algerlega á bug að hér séu kommúnistar á ferð með
undirróðursstarfsemi. “
Gunnar Gunnarsson framkvæmdastjóri SFR:
„Lýsir ótta“
„Mér finnst þessi ummœli ráðherrans fyrst ogfremst lýsa hugar-
heimi hans og jafnframt ótta við niðurstöður könnunarinnar. Þetta
eru staðlausirstafir, og tel ég ekkiþörfá þvíað fœra umrœðuna um
þjóðfélagsmál niður á þetta plan. “
Sjá nánar ummæli forystumanna stéttarfélaganna á
bls 6.
Vinnustaðir heimsóttir og
Þjóðviljinn boðinn til kynningar
Mjög góðar
undirtektir
— Markmiðið —
1000 nýir áskrifendur fyrir áramót!
„Undirtektir manna á
vinnustöðum hafa verið mjög
góðar og fólk virðist sannarlega
vera þeirrar skoðunar að
Þjóðviljinn eigi erindi, enda hafa
menn tekið boðum um
tilraunaáskriftir vel“, sögðu þær
Sigríður Þorsteinsdóttir og
Margrét Guðmundsdóttir, sem
undanfarna daga hafa heimsótt
vinnustaði á höfuðborgarsvæðinu
og boðið Þjóðviljann til kynningar.
I gær fóru þær og heimsóttu
verkamenn í álverksmiðjunni í
Straumsvík og einnig í Skála II við
Sundahöfn. „Þegar við yfirgáfum
starfsmennina við höfnina voru
þeir komnir í hörkuviðræður um
Þjóðviljann og pólitíkina og um það
bil sem við yfirgáfum kaffistofuna
kailaði einn þeirra á eftir okkur að
hann hefði ekki fengið neitt blað“,
sögðu þær Sigríður og Margrét.
„Það hefur vel komið í ljós í
þessum heimsóknum okkar á vinn-
ustaði undanfarna daga að menn
vilja gjarnan kynnast Þjóðviljan-
um og telja að erfitt sé að fylgjast
með málunum nema lesa þetta eina
málgagn stjórnarandstöðunnar.
Starfsmenn álverksmiðjunnar í Straumsvík flettu Þjóðviljanum spenntir í gærmorgun er þeim var boðinn
hann til kynningar. Ljósm. Magnús.
Fréttir um viðbrögð verkalýðs-
hreyfingar gegn kjaraskerðingu
ríkisstjórnarinnar, um húsnæðis-
málin og um annað það sem til um-
ræðu er hverju sinni, geta menn
lesið í Þjóðviljanum og það með
talsvert öðrum hætti en hin blöðin
setja þær fram“.
Askriftarátakið stendur nú sem
hæst, en því á að vera lokið fyrir
mánaðamótin næstu. Menn eru
hvattir til að verða sér úti um sér-
staka söfnunarseðla og bjóða sem
flestum vinum og kunningjum á-
skrift að blaðinu fyrir oíctóber-
nóvember á sérstökum afsláttar-
kjörum. Ávísanir á álík kjör liggja
frammi í flokksmiðstöð Alþýðu-
bandalagsins Hverfisgötu 105 og á
Þjóðviljanum Síðumúla 6. Þar er
síminn 81333 og geta menn beðið
um að fá sendan bunka af ávísun-
um heim til sín.
Takmarkið með þessari áskrift-
arherferð er 1000 nýir áskrifendur
að blaðinu fyrir næstu áramót og er
þessi söfnun kynningaráskrift fyrir
október-nóvember, fyrsti liðurinn í
því.
- v.
Kvíslarveitumar fá þungan dóm
Slá Kröflumístökm út
Mesta afstyrmi í virkjunum á íslandi, segir Sigurjón Rist vatnamælingamaður
„ Þegar málin eru skoðuð ofan í
kjölinn, þáeru Kvíslarveiturnar
líklega mesta afstyrmi í
virkjunumáíslandi. Þærslá
mistökum einsog Kröflu og
lekanum í Sigöldu við,“ sagði
Sigurjón Rist, vatnamælinga-
maður í viðtali við Þjóðvijann í
gær. Sigurjón lýsti í blaðaviðtali
þegar í október í fyrra vantrú
sinni á Kvíslarveitum.
Jóhannes Nordal heldur því
fram í fjölmiðlum í gær að mikil-
vægast sé að halda Kvíslarveitun-
um fyrir ofan Þórisvatn áfram, þó
aðrar virkjanaframkvæmdir stöðv-
ist vegna fjárskorts.
Sigurjón Rist kvað nafnið á
Kvíslarveitum ekki vera
traustvekjandi. Þetta væru smá ár
og þarna væri verið að gera hverja
stórstífluna á eftir annarri til þess
að reyna ná þeim yfir hæð og koma
þeim frá Þjórsá inní Köldukvísl.
í fyrsta lagi væri verið að taka
vatn sem lenti hvort eð er inní Búr-
felli, svo að vatnið notaðist aðeins
fyrir Sigöldu og Hrauneyjarfoss. í
öðru lagi væri þarna verið að
byggja stíflu yfir sprungið land í
Eyvindarveri, þarsem lindir koma
upp og hætta væri á að þær færu
hina leiðina eftir að lónið er komið
upp; landið yrði lekt. „En þetta er
sérfræði jarðfræðinga en ekki
vatnamælingamanna, svo ég hef
fyrirvara", sagði Sigurjón Rist.
Sigurjón kvað fráleitt og furðu-
legt í Ijósi þessa að það skuli vera
lagt í svo dýrar framkvæmdir og
ótryggar einsog Kvíslarveitur.
Gæti verið um dapurleg mistök að
ræða. Þá kvað Sigurjón nafnið
Sultartangavirkjun vera villandi.
Þar væri einungis um miðlun að
ræða.
Sigurjón Rist hefur áður reynst
sannspár um virkjanir hér á landi
einsog t.d. þegar hann sagði fyrir
um ísinn í Búrfelli og fleiri
meinbugi á þeirri virkjun.
-óg