Þjóðviljinn - 30.09.1983, Page 1
Þessa
stundina heldur
Sverrir
Hermannsson
um öll ráðuneyti
Sjálfstæðis-
flokksins.
Sjá 16
september 1983
föstudagur
222. tölublað
48. árgangur
Bílarúlletta Steingríms í nýju ljósi:
N ÝI BÍLLINN GEFINS
Og
400.000
kr. til
viðbótar
í vasann!
Hjá Véladeild Sambandsins stend-
ur nú Blazer-jeppi brúnn að lit, ár-
gerð 1979. Hann er til sölu á kr.
430.000, ekinn 60 þúsund kíló-
metra, með útvarpi og segulbandi.
Seljandi er Stcingrímur Hermanns-
son forsætisráðherra. Bíllinn, sem
er af stærri gerðinni, var keyptur
árið 1979 með sérstökum samningi
Innkaupastofnunar ríkisins og
Steingríms Hermannssonar þáver-
andi dóms- og landbúnaðarráð-
herra.
Þær reglur hafa gilt um afskriftar-
peninga til ráðhera, sem nota
eigin bíla í vinnunni, að þeir fá
greitt árlega 1/10 hluta af
kaupverði nýrrar bifreiðar af sömu
gerð. Samkvæmt þessari reglu hef-
ur Steingrímur Hermannsson frá
1979 fengið í sinn hlut greiðslu ár-
lega tíunda hluta af kaupverði nýs
Blazer-jeppa.
í ár kostar Blazer-jeppi af stærri
gerð 1.3 milljónir króna.
Steingrímur hefur því fengið árlega
sem nemur 130 þúsund að núvirði í
afskriftarpeninga. Ljóst er því að á
tímabilinu frá 1979 hefur forsætis-
ráðherra fengið í afskriftarpeninga
nær alla þá fjárhæð, 500 þúsund
krónur, sem hann þurfti að greiða
fyrir nýja Blazerinn af minni gerð-
inni, eftir að 700 þúsund króna að-
flutningsgjöld höfðu verið felld
niður. Hann fær því Blazerinn nýja
nær gefins og auk þess í aðra hönd
söluandvirði gamla Balzersins,
rúmlega 400 þúsund krónur.
Afskriftarpeningar eru greiddir
fyrir eigin bíla ráðherra sem þeir
nota í vinnunni, auk reksturs-,
viðhalds- og bensínkostnaðar.
Þessir peningar eru greiddir einu
sinni á ári. Leitað er eftir upplýs-
ingum um hvað bíllinn kostar nýr
og af því greiddur tíundi hluti, sam-
kvæmt upplýsingum Gísla Árna-
sonar í forsætisráðuneytinu. Þann-
ig ætti forsætisráðherra nú að fá
tíunda hluta árlega af 1.3
milljónum króna eins og nýr Blazer
kostar í dag, en ekki tíunda hluta af
500 þúsund krónum, sem var það
verð er hann fékk bifreiðina keypta
á.
Gísli Árnason sagði í gær, að
þetta væri aðeins „almenn vinnu-
regla og ekki áfrávíkjanleg, enda
fyndust þess dæmi að ekki hafi ver-
ið farið eftir henni. Sjálfur segir
forsætisráðherra í viðtali við Morg-
unblaðið í gær: „Þá má geta þess að
auk rekstrar bireiðarinnar greiðir
ríkið afskriftir og þá eingöngu af
því verði sem ég borga fyrir bílinn,
þannig að það verða minni
greiðslur heldur en ef ég hefði
greitt tollinn sjálfur". Það er því
ljóst að þessi yfirlýsing forsætisráð-
herra stangast á við hina „almennu
vinnureglu“ sem tíðkast hefur við
afgreiðslu ráðherrafríðinda í bfla-
málum.
-hó/ekh/ór.
Blazerinn frá 1979 á bílasölunni
apeninga" vegna þessa bíls.
gær. Á hverju ári síðan 1979 hefur Steingrímur fengið úr ríkissjóði jafngildi 130.000 kr. að núvirði í „afskrift-
Vasapeningar gamla fólksins:
Ekkí sök T ry ggingaráðs
Atvinnumál kvenna og launamis-
rétti kynjanna er til umfjöllunar í
opnu blaðsins í dag. Sagt er frá um-
ræðum á ráðstefnunni á Seltjarn-
arnesi um síðustu helgi.
segir Jóhanna Sigurðardóttir
kynna sér allar hliðar þessa „vasa-
peningamáls”, fletta samþykktum
Tryggingaráðs og blaðafregnum.
„Það er fráleitt að Tryggingaráð
hafi samþykkt eitthvað um að
skerða lögbundinn rétt þessa fólks.
Þvert á móti hefur ráðið staðið í
stríði um að fá að gera meira fyrir
bótaþega Tryggingastofnunar”,
sagði Jóhanna Sigurðardóttir, al-
þingismaður og fulltrúi í Trygg-
ingaráði í gær.
í blaðaviðtali við skrifstofustjóra
heilbrigðis- og tryggingaráðuneytís
í gær kemur fram að ráðuneytið
skýtur sér bak við fundargerð
Tryggingaráðs frá 1. júní til að hvít-
þvo hendur sínar af málinu.
Jóhanna sagðist nú vera að
„Sá gangur mála á Tryggingaráðs-
fundi sem Morgunblaðið lýsir”,
kemur mér mjög á óvart”, sagði
Jóhanna, „og sat ég þó fundinn.
Það er útilokað að Tryggingaráð
geti gert samþykktir sem brjóta í
bága við lög og reglugerðir og á
fundinum 1. júní var ekkert „sam-
þykkt” um 8% verðbótahækkun.
Hún var einfaldlega lögboðin, rétt
eins og áfangahækkunin”, sagði
Jóhanna að lokum.
Sjá viðtöl á síðu 3. ~ÁI
Útför Gunnars í dag
Útför dr. Gunnars Thoroddsen fyrrum forsætisráðherra fer fram
ídagfrá Dómskirkjunni. Hefst athöfnin kl. 13.30 ogmunséra Þórir
Stephensen dómskirkjuprestur jarðsyngja. Útförin er á kostnað
ríkisins í virðingarskyni við hinn látna, og verður henni útvarpað.
Kaupmenn í
Reykjavík ekki
hrifnirafþvíað
Hagkaup fái að
reisa
stórmarkað í
nýja miðbænum
í Kringlumýri.
Ráðherrar Alþýðubandalags og Alþýðuflokks:
Notuðu ekki bflafríðindin
Fréttin um 7Ö0.00Ö kr. bíla-
fríðindi Steingríms Hermanns-
sonar hefur vakið mikla athygli
um allt land. Forsætisráðherra er
nú að nýta sér heimild sem ráð-
herrarnir í ríkisstjórninni 1978-
1979 lýstu yfir að ckki ætti að
beita. Það voru ráðhcrrar Al-
þýðuilokksins og Alþýðubanda-
lagsins scm höfðu forgöngu um að
ráðherrar ættu að afsala sér þess-
um afsláttarrétti við bílakaup.
Síðan 1978 hafa Svavar Gests-
son, Kagnar Arnalds og Hjör-
leifur Guttormsson verið ráð-
herrar Alþýðubandalagsins og
hal'a þeir allir starfað í samræmi
við yfirlýsingu um afsal á bílafríð-
indum ráðherra scm gefin var
1978. Sama gerðu ráðhcrrar Al-
þýðuflokksins í ríkisstjórnunum
1978-1979 og 1979-1980. Þá voru
Bcncdikt Gröndal, Kjartan Jó-
hannsson, Sighvatur Björgvins-
son, Magnús H. Magnússon,
Bragi Sigurjónsson og Vilmundur
Gylfason ráðherrar fyrir Alþýðu-
flokkinn.
Þegar Steingrímur Hermanns-
son notfærir sér nú að fá 700.000
kr. fríöindi við bílakaup er hann
að brjóta gegn vfirlýsingu sem
hann stóð að 1978.
Ragnar Arnalds og Hjörleifur
Guttormsson greiddu fullt verð
fyrir sína ráðherrabtla sem þeir
áttu sjálfir. Svavar Gestsson not-
aði bíl sem félagsmálaráðuneytið
átti og gekk til eftirmanns hans í
ráðherrastól.
-ÁI
uúanum