Þjóðviljinn - 30.09.1983, Síða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 30. september 1983
Kjósarsýsla:
Og enn
„blakta“
hœnsnin
Árið 1981 áttu íbúar Kjósarsýslu
944 nautgripi. Þeir voru orðnir
991 ári síðar og hafði þannig
fjölgað um 47. Sauðfé fór hins-
vegar talsvertfækkandi. Það var
6728 kindur 1981 en 6196 1982.
Fækkunin nam 532 kindum.
Hrossum fækkaði einnig ofur-
lítið. Árið 1981 voru þau 716 í
sýslunni en 1982 584,32 færri.
Svínin voru 164 1981 en 176 1982
og hossar sú fjölgun ekki hátt.
Það er fyrst þegar kemur að
hænsnunum sem bragð verður að
búskapnum. Arið 1981 voru þau
81184 en eru orðin 92151 1982.
Fleygir hænsnastofninum þannig
fram um 10967 fugla á einu ári.
Heyfengurinn er talsvert meiri
1982 en 1981. Fyrra árið var hann
39800 rúmm. af þurrheyi og 2146
rúmm. af votheyi en 1982 var
þurrheyið 44107 rúmm. og vothe-
yið 2479 rúmm. Kartöflurækt er
lítil í Kjósarsýslu. Hún var aðeins
17 hektokg. 1981 og 16 hektokg.
1982. Sýslubúar seiglast meira
við rófnaræktina. Uppskera
þeirra af rófum var 61 hektokg.
1981 og 82 hektokg. 1982.
- mhg.
Fallbyss-
urnar
fengust ekki
Dátarnir hans Trampe höfðu lok-
ið við að hlaða upp Battcríið vor-
ið 1852. Þóttu þær hervarnir hin-
ar myndarlegustu. En fyrir lítið
kemur hervarnarvirki ef engin
vopn eru þar fyrir. Þetta var
Trampe, yfirauditör úr danska
hernum auðvitað Ijóst.
Því fór hann fram á það við
stjórnina að hún sendi sér 5 fall-
byssur, annað hvort 12 eða 18
punda, til þess að koma fyrir í
virkinu. Skyldu þær hvíla á fær-
anlegu undirlagi svo auðveldara
væri að „fíra“ í allar áttir, ef á
þyrfti að halda. En stjórninni
leist ekki sem best á þetta fyrir-
tæki, hefur sennilega sýnst að
herví.rnir á íslandi yrðu nokkuð
kostnaðarsamar. Trúlega þótt
það alveg nóg að halda hér uppi
herliði til þess eins að endurreisa
minnismerki hundadagakon-
ungsins, þótt ekki væri nú þar að
auki farið að flytja hingað fall-
byssur og skotfæri. Endaði þetta
með því að stríðsmennirnir voru
kallaðir heim til Danmerkur um
vorið. Lauk þar með hersetu
hinni fyrri.
Einn af hagyrðingum bæjarins,
Brynjólfur Oddsson, bíikara-
sveinn, gerði sér lítið fyrir og orti
einskonar eftirmæli um herliðið
og hreystiverk þess. Voru það
hvorki meira né minna en 109 er-
indi og dýrt kveðin að auki.
- mhg.
Söngsveitin Fílharmónía
Viðmikil vetrardagskrá
Bubbi Morthens heldur tónleika á Austurlandi vikuna 3.10-9.10. A
tónleikunum leikur Bubbi lög af sólóplötu sinni „Fingraför“ og einnig
lög af eldri plötum. Tónleikarnir verða sem hér segir: Mánud. 3. okt.
kl. 9.00 Félagshcimilinu Þórshöfn, þriðjud. 4. okt. kl. 9.00 Valaskjálf
Egilsstöðum, miðvikud. 5. okt. kl. 9.00 Félagsheimilinu Herðubreið j
Seyðisfirði, fimmtud. 6. okt. kl. 9.00 Félagsheimilinu Félagslundur
Reyðarfirði, laugard. 8. okt. kl. 9.00 Egilsbúð Neskaupstað, sunnud.
9. okt. kl. 9.00 Félagsheimilinu Sindrabæ Höfn Hornafirði.
Aldrei aftur
á Logalandi í kvöld
Sl. miðvikudag birtist hljóm- Lyngbrekku í kvöld, föstudag.
leikaskrá Aldreiafturhérá2. síð- Rétt staðsetning mun hinsvegar
unni og sagði að þau yrðu í vera Logaland, kl. 21.00.
Forsetaheimsóknin
aftur í Austurbœjarbíói
Á laugardagskvöldið hefjast
að nýju sýningar hjá Leikfélagi
Reykjavíkur á franska gaman-
leiknum Forsetaheimsókninni,
sem sýndur var í Iðnó í fyrravetur
við miklar vinsæidir. Áð þessu
sinni verður leikritið sýnt á mið-
nætursýningum í Austurbæjarbí-
ói og hefjast þær að venju kl.
23.30.
Gamanleikurinn Forsetaheim-
sóknin er eftir tvo kunna franska
háðfugla, Regó og Bruneau, en
Þórarinn Eldjárn hefur þýtt
leikinn á íslensku. Leikritið fjall-
ar um venjulega fjölskyldu sem
fær Frakklandsforseta í- heim-
sókn og gerist margt sögulegt í
því boði.
Tólf leikarar koma fram á sýn-
ingunni. Með stærstu hlutverk
fara Kjartan Ragnarsson, Soffía
Jakobsdóttir, Sigríður Hagalín,
Guðrún Ásmundsdóttir, Gísli
Halldórsson, Guðmundur Páls-
son, Margrét Helga Jóhannsdótt-
ir og Hanna María Karlsdóttir.
Aðrir leikendur eru Steindór
Hjörleifsson, Karl Guðmunds-
son, Harald G. Harálds. Leik-
mynd og búningar eru eftir fvar
Török en leikstjóri er Stefán
Baldursson.
Á myndinni eru Kjartan Ragn-
arsson og Guðrún Ásmundsdótt-
Söngsveitin Fílharmónía á þegar
allmörgárað baki. Upphafhenn-
ar er að rekja til ársins 1959. Þá
var stofnað félag, sem hafði það
að markmiði að koma á fót blönd-
uðum kór, sem hefði til þess burði
að flytja stærri kórverk með sin-
fóníuhljómsveit. Kórinn var
stofnaður og söngstjóri ráðinn
dr. Róbert A. Ottósson, frábær
tónlistarmaður og kórstjóri.
Stjórnaði hann síðan söng-
sveitinni þar til hann andaðist 10.
mars 1974.
Ekki leið á löngu þar til fyrstu
tónleikarnir voru haldnir. Fóru
þeir fram í Þjóðleikhúsinu í apríl
1960. Flutti kórinn þá Carmina
Burana eftir Carl Orff. Þjóð-
leikhúskórinn og Sinfóníuhljóm-
sveitin tóku og þátt í flutningnum
en einsöngvarar voru Kristinn
Hallsson, Þorsteinn H. Hannes-
son og Þuríður Pálsdóttir.
Aðalverkefni Söngsveitarinn-
ar hafa allt frá upphafi verið
flutningur kórverka með Sinfóní-
uhljómsveitinni. Eftir að ísinn
hafði verið brotinn með því að
flytja Carmina Burana tók hvert
stórverkið við af öðru: Sálumess-
ur Brahms, Mozarts og Verdis,
Messias Hándels, Missa Solemn-
is og 9. sinfónía Beethovens, sem
Söngsveitin flutti fyrst 1966 og
vakti svo mikla hrifningu að hún
var flutt fimm sinnum, fyrir fullu
húsi í Háskólabíói.
Mesta stórvirki kórsins mun þó
efalaust teljast flutningur hans á
Missa Solemnis í maí 1970. Er
vandséð að sá flutningur hafði
verið mögulegur án áræðis, dugn-
aðar og snilli dr. Róberts. Þegar
hann féll óvænt frá fannst mörg-
um, bæði söngfólki og öðrum, að
komið væri að leiðarlokum fyrir
Söngsveitinni. Er og ekki að vita
hvernig farið hefði ef svo hefði
ekki viljað til að hún hafði tekið
að sér að syngja Völuspá Jóns
Þórarinssonar á þjóðhátíðinni.
Varð úr að Jón tæki sjálfur að sér
að æfa verkið og stjórnaði hann
frumflutningi þess á Arnarhóli 3.
ágúst 1974.
Ýmsir mætir tónlistarmenn
hafa síðan stjórnað Söngsveit-
inni, Marteinn H. Friðriksson,
dómorganisti þó þeirra lengst.
Haldið hefur verið áfram flutn-
ingi klassískra tónverka ásamt ís-
lenskum verkum og upp á síð-
kastið hafa óperur einnig verið á
dagskrá.
I fyrrahaust réðist Guðmundur
Emilsson til Söngsveitarinnar
sem stjórnandi hennar. Og sl.
vetur, frá áramótum að telja,
voru verkefni Söngsveitarinnar
kórhlutverk óperunnar Tosca,
Requiem eftir Fauré og 9. sinfón-
ían í byrjun júní. Á síðasta starfs-
ári fór Söngsveitin í fyrsta sinn út
á land með Sinfóníuhljóm-
sveitinni, þegar óperan Tosca var
flutt á Akureyri í maílok. Von-
andi verður framhald á slíkum
ferðum.
Mikil bjartsýni ríkir hjá söng-
félögunum nú í byrjun þessa
starfsárs ekki síst vegna þess, að
Guðmundur Emilsson hefur
tekið að sér stjórnina áfram. „Því
reynslan hefur sýnt“, segja þeir,
„að það er algert grundvallarat-
riði í svona starfsemi að hafa
traustan og öruggan stjórnanda
til frambúðar, þannig að það geti
skapast góð samvinna og traust á
milli kórfélaga og stjórnanda.“
Aðalverkefni Söngsveitarinn-
ar nú í vetur verða þessi:
Requiem eftir Jón Leifs.
„Dies Irae“ (Auschwits Orat-
orium), eftir pólska tónskáldið
Penderecki. Það var samið vorið
1967, að beiðni alþjóðlegrar
nefndar, sem undirbjó minning-
arathöfn um fórnarlömb nasista í
Auschwits fangabúðunum.
Verkið fram frumflutt í apríl
Guðmundur Emilsson, stjórn-
andi Fflharmóníunnar.
sama ár og fóru tónleikarnir fram
á rústum þessara mikilvirkustu
útrýmingarbúða Hitlers. Verkið
er samið í kjölfar Lúkasarpassíu
Panderecki, sem talið er mikil-
fenglegasta kórverk, sem samið
hefur verið á seinni hluta 20.
aldar. „Dies Irae“ svipar mjög til
passíunnar nema hvað óratorían
er styttra verk, tekur tæpan hálf-
tíma í flutningi. „Dies Irae“ er
samið fyrir stóra hljómsveit, kór
og einsöngvara. Það er nú flutt í
tilefni af friðarumræðu. Flutning-
ur þessara verka fer fram í Há-
skólabíói 19. jan. n.k.
Lucia di Lammermoor eftir ít-
alska tónskáldið Donizetti verð-
ur flutt í Háskólabíói 1. marsn.k.
Donizetti samdi þessa óperu
1835. Var hún frumflutt í Napolí
sama ár. Texti óperunnar er
byggður á skáldsögu eftir Walter
Scott og saminn af Salvadore
Cammerano. Þetta er „tragisk"
ópera í 3 þáttum og eitt af þekkt-
ustu og stórbrotnustu verkum
Donizettis. Kórarnir eru mjög
fallegir og bæði fyrir karlakór og
blandaðan kór.
Kórfantasía í c-moll op. 8 eftir
Beethoven verður flutt í Háskól-
abíói 17. maí í vor. Kórfantasían
er samin 1808, frumflutt í Vínar-
borg sama ár, um líkt leyti og 5.
og 6. sinfónía hans. Verkinu svip-
ar til eins kafla úr píanókonsert
og er kórsöngur í lokin. Hlutverk
kórsins er því fremur lítið en
mjög skemmtilegt. Minnir á 9.
sinfóníuna. Auk kórsins koma
fram 6 einsöngvarar og hljóm-
sveit. Fantasían er sungin á þýsku
en höfundur kvæðisins er óþekkt-
ur. Kórfantasían var sungin af
Fílharmóníu 1978.
Stjórn Söngsveitarinnar Fíl-
harmóníu skipa nú: Dóróthea
Einarsdóttir, formaður, Gunnar
Böðvarsson, varaformaður,
Anna María Þórisdóttir, ritari,
Jóhanna Ögmundsdóttir, gjald-
keri og Sigríður Ása Ólafsdóttir,
meðstjórnandi.
- mhg.