Þjóðviljinn - 30.09.1983, Page 3
Föstudagur 3tí. septembér 198á ÞJÖÐVlLJINN — SÍÐA 3
Ný hlið á „vasapeningamálinu”:
Tryggingaráð sniðgekk fyrirmæli okkar
segir heilbrigðis- og tryggingaráðuneytið
Heilbrigðis- og tryggingaráðu-
neytið telur að Tryggingaráð hafi
vísvitandi þverbrotið bréfleg fyrir-
mæli ráðneytisins á fundi sínum 1.
Rangt
segir
Stefán Jónsson
„Hvaðan svo sem þeir ráðu-
neytismenn hafa fregnir af umfjöll-
un Tryggingaráðs um þetta mál, þá
eru þær nú ekki réttar”, sagði Stef-
án Jónsson, formaður Tryggingar-
áðs í gær. „Ur því sem komið er, er
bersýnilegt að Tryggingaráð þarf
að fjalla um málið og láta frá sér
heyra”, sagði hann.
Stefán sagði að á fundinum 1.
júní hefði ekki verið lagt fram neitt
bréf frá ráðuneytinu og ekkert
hefði komið fram um að einhver
bréfaskipti hefðu farið milli þess og
Tryggingastofnunar. „Bráða-
birgðalögin voru aðeins nokkurra
daga gömul”, sagði Stefán, „og
lögfræðingarnir voru ekki vissir um
hvort þau næðu til hækkunar á
tryggingabótum, þótt ráðsmenn
væru allir þeirrar skoðunar að svo
væri ekki. Það lá ekkert fyrir um
það hvernig ráðuneytið ætlaði að
túlka þetta og því var tveimur lög-
fræðingum falin afgreiðsla máls-
ins.”
-Á1
Stórmarkaður Hagkaupa í Kringlumýri
kaupmenn vilja
fresta úthlutun
„Mér finnst þeir sem stóðu að
þessari ályktun mjög skammsýnir
og ekki mikill baráttuhugur í þeim.
Þeir horfa ekki fram á veginn”,
sagði Gísli blöndal framkvæmda-
stjóri Hagkaupa í samtali við Þjóð-
viljann í gær.
Á almennum fundi Kaupmann-
asamtakanna í fyrrakvöld var sam-
þykkt ályktun þar sem beint er ein-
dregnum tilmælum til borgarráðs
og borgarstjórnar að frestað verði
úthlutun lóðar undir verslunarhús í
Kringlumýri. Segir í ályktuninni að
kanna beri gaumgæfilega hvort
þörf sé á svo mikilli aukningu versl-
unarrýmis í borginni á tímum
minnkandi verslunar, og samdrátt-
ar í fjárfestingum hjá öðrum
atvinnugreinum. f>á sé nauðsynlegt
að gera borgarbúum grein fyrir rót-
tækum breytingum á aðliggjandi
gatnakerfi, sem stórverslanir á
Kringlumýrarsvæðinu krefjast og
þeim kostnaði serfi slíkum
breytingum eru samfara.
stí-l tMBtK 1S8S
S!®ífe6áíIH5?
IÉ
JOÐVIUIN,
[700.000 kr.fríðindij
UikivNjúður hjnlpar fonxliwaMicrra aft eigiuo 1200 þút.króna Ularcr J
lu.ushifrcið tyrir S00 þu.. • -Ágóðinn ncmur inlaunum 5 .crka I
manna • ..Þj.iðin þarf nft lcggja harl aft scr'' ncgir Slcinjjrimur
Tilgangurinn augljós
Meö hverjum deglnum veröur lesendum Þjóövlljans þaö
IJósara aö Ólalur R. Grimsson notar aöstööuna ó ritstjóm
blaósins miskunnarlaust i innantlokksátökum. Hann lærir sig
silellt meira upp ó skattió gagnvart Svavari Gestssyni og
tyrrverandi ráöherrum tlokksins. Nú er árósum beint gegn
Stelngrimi Hermannssyni tli aö vekja athygli ó bilakjörum
ráöherra sem þeir Svavar, Ragnar og Hjörleltur hata notió
undanfarin þrju ár og njóta nú f nokkra mánuöi eftlr aö þeir
hættu ráöherrastörfum, ef reglunum hefur ekki veriö breytt.
Tilgangurlnn hjá Ólafi R. Grimssynl er þeim augljós sem
þekkja innviöi Alþýöubandalagsins: Hann er aö undirbúa
framboö til varaformanns ó landsfundinum i nóvember — ef
^hann hefur ekki Svavar sjálfan f slgti.
júní s.I. og ákvcðið að láta 8%
verðbótahækkunina ekki rciknast
ofaná áfangahækkun vasapcninga,
heldur á „eldri og lægri grunn, rétt
eins og reglugerðirnar hafi aldrei
veri settar.”
Þetta kemur fram í bréfi sem
Þjóðviljanum barst í gær frá ráðu-
neytinu og sama túlkun kemur
fram í ummælum skrifstofustjóra
þess í viðtali við Morgunblaðið í
gær. Vegna plássleysis er ekki hægt
að birta bréfið fyrr en á morgun, en
það er á fjórðu vélritaða síðu. Þá
verður einnig hægt að skýra frá við-
brögðum Tryggingaráðs, sem
væntanlega mun funda í dag.
í bréfinu segir m.a. að Kristján
Sturlaugsson deildarstjóri endur-
skoðunardeildar TR hafi í vor sent
ráðuneytinu fyrirspurn um það
hvort bráðabirgðalögin tækju til
þessara bóta. Ráðuneytið hafi
svarað um hæl með bréfi 31. maí á
þá leið að svo væri ekki. Það bréf
hafi verið lesið upp í Trygginga-
ráði, svo og reglugerðirnar, en hins
vegar hafi „niðurstaða Trygginga-
ráðs verið einróma sú að sniðganga
túikun ráðuneytisins”.
Ráðuneytið harmar að „slík mis-
vísun” í fyrirmælum ráðherra og
í miðbæjarskipulaginu fyrir
Kringlumýri er gert ráð fyrir versl-
unarrými upp á 25 þús. ferm. Þar af
hyggst Hagkaup reisa stórmarkað
á 15 þús. ferm. en húsnæði undir
valvöruverslanir á um 10 þús.
ferm.
Gísli sagði að auk þess sem versl-
un Hagkaupa í Skeifunni yrði lögð
niður yrði önnur starfsemi fyrir-
tækisins í nágrannasveitarfélögum
flutt í Kringlumýrina.
Hvort hann teldi hagsmunum
hverfisverslana í nágranni Kring-
lumýrar ekki stefnt í voða, sagði
hann svo ekki vera. Hagkaup væri
grenndarverslun og yrði það ekki í
Kringlumýrinni. Hvort ekki væri
orðið nóg um stórmarkaði í
Reykjavík sagði hann að verslunin
væri búin að sprengja utan af sér
núverandi húsnæði og yrði að
tryggja sinn hag, m.a. í samkeppni
við stórmarkað SÍS og kaupfélag-
anna sem opnar innan tíðar í
Holtagörðum. -lg.
Vill Ólafur Ragnar verða varaformaður AB?
„Venjulegt
Morgunblaðsrugl”
„Hinar dramatísku frásagnir
Morgunblaðsins um eftirsókn mína
eftir vegtyllum og varaformennsku
í Alþýðubandalaginu eru bara
venjulegt Morgunblaðsrugl”, sagði
Ólafur Ragnar Grímsson þegar
Þjóðvilinn spurði hann um síend-
urteknar fullyrðingar Morgun-
blaðsins um meinta eftirsókn hans
eftir varaformennsku í Alþýðu-
bandalaginu á komandi lands-
fundi.
„Það er óneitanlega dálítið
skemmtilegt, að Morgunblaðinu
skuli sárna svona hinar ítarlegu
fréttir Þjóðviljans, sem einsog
dæmin sanna eru byggðar á
traustum heimildum, um ástandið í
Sjálfstæðisflokknum. Þetta rugl
þeirra Morgunblaðsmanna um Al-
þýðubandalagið, sem er uppdiktað
í skapvonsku á ristjórninni er ein-
göngu til þess gert að klóra yfir
vandræðaganginn í kringum Geir
og væntanlegan landsfund Sjálf-
stæðisflokksins”, sagði Ólafur
Ragnar Grímsson. _óg
SJUKRALIÐAR
Opið hús að Grettisgötu 89 laugardaginn 1.
október. Húsið opnað kl. 1.
Kaffi - Frjálsar umræður.
Stjórnin
ráðuneytis annars vegar og í á-
kvörðun tryggingaráðs hins vegar
skuli ekki hafa uppgötvast strax,
eða verið tilkynnt. Þar kennir
ráðuneytið unt „aðgæsluleysi” og
segir að treysta verði framkvæmda-
valdinu til að framkvæma lög og
reglugerðir eins og fyrir er lagt af
bæru yfirvaldi.
-ÁI
Eggert G. Þorsteinsson:
,Beið eftir
nánari reglum’
„Eg hlaut að vita um þetta og ber
því mína ábyrgð á þessu”, sagði
Eggert G. Þorsteinsson, forstjóri
Tryggingastofnunar. „Ég beið eftir
tiilögum frá lögfræðingum stofnun-
arinnar um útfærslu á grciðslu
vasapeninga, - það var aldrei mcin-
ingin að taka þessa aura af fólk-
inu”.
Eggert sagði að á milli Trygging-
astofnunar og ráðuneytis hefði ver-
ið lögfræðileg deila um liversu víð-
tæk bráðabirgðalögin frá í vor
væru. Hins vegar hefði í trygginga-
ráði einróma komið fram sú skoð-
un að setja ætti áfangahækkunina í
gang þrátt fyrir bráðabirgðalögin
og hefði tveimur lögfræðingum TR
verið falið að semja nánari starfs-
reglur urn greiðslu vasapeninga á
fundinum 1. júní s.l. Þær reglur
hefðu ekki legið fyrir og hefðu þær
strandað á fyrrnefndri deilu.
Að lokum sagði Eggert að lögin
um málefni aldraðra og öryrkja
virtust stangast á við núgildandi lög
unt almannatryggingar í mörgum
atriðum og væri töluverð vinna
framundan í að samræma þessa
lagabálka. _ÁI
V9
Opið hús í menningarmiðstöðinni Gerðubergi nk. laugardag 1. októ-
ber kl. 15.00.
Kynnir: Vernharður Linnet.
Dagskrá:
1. Páll Pálsson les úr væntanlegri skáldsögu sinni, um Hlemm-
æskuna.
2. Símon ívarsson leikur á gítar.
3. Elísabet Þorgeirsdóttir les frumort Ijóð.
4. Ólafur Haukur Símonarson les úr nýrri skáldsögu sinni „Vík milli
vina“.
5. Sigrún V. Gestsdóttir syngur með undirleik Hrefnu Eggertsdóttur.
Kaffistofan opin fyrir og eftir.
Allir velkomnir.
Aðgangseyrir kr. 20 fyrir fullorðna. ABR Breiðholts.
FÖSTUDAGSKVÖLD
í JliHÚSINU 11JIBHÚSINU
OPIÐ i ÖLLUM DEILDUM T1L KL. 10 i KVÖLD
EUROCARD
V J
NYJUNG
vei
JL grillið
OP'® ^. a Grillréttir allan daginn
lfs\u°attl Réttur dagsins
MATVÖRUR
FATNAÐUR
HÚSGÖGN
HÚSGA GNA ÚR VA L
Á TVEIMUR
HÆÐUM.
RAFTÆKI
RAFLJÓS
REIÐHJÓL
0PIÐ LAUGARDAG FRÁ KL. 9-12