Þjóðviljinn - 30.09.1983, Side 6

Þjóðviljinn - 30.09.1983, Side 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVIL.ÍINN Föstudagur 30. september 1983 Minning Dr. Gunnar Thoroddsen fyrrverandi forsætisráðherra f. 29. desember 1910 d. 25. september 1983 Því var haldið fram er Gunnar Thoroddsen varð forsætisráðherra að þar hefði hann framar öðru látið undan eigin metnaði; hann hafi ekki vílað fyrir sér að yfirgefa flokksfélaga sína í þessu skyni. Um það voru skrifaðar margar greinar og ljótar og ræður fluttar á alþingi af sama toga. Þeir textar gleymast vonandi fljótt, en eftir stendur í mínum huga önnur staðreynd: Gunnar Thoroddsen tók pólitíska áhættu í febrúar 1980 vegna þess að hann var sannfærður um að þjóð- inni gæti stafað hætta af því að ut- anþingsstjórnir tækju hér völdin. Slíkt gæti haft varanleg og háskaleg áhrif á stjórnkerfi landsins og lýð- ræðislegar leikreglur þjóðarinnar til frambúðar. Það var rétt ályktun, en hún var grundvöllur stjórnar- myndunar hans 1980. Ég hafði ekki kynnst manninum áður; ég man ekki eftir hvort við höfðum nokkurn tímann hist fyr en haustið 1978. Ég hafði mínar skoð- anir á pólitískri stefnu hans og skoðun, og hef enn að sjálfsögðu. Ég hafði skrifað fjöldann allan af greinum, iöngum og stuttum, um stefnu þeirrar ríkisstjórnar sem Gunnar Thoroddsen sat í 1974- 1978, sem ég taldi og tel að hafi verið vond ríkisstjórn. Þrátt fyrir það er athyglisvert að það er ein- mitt úr ráðuneyti Gunnars Thor- oddsen í þeirri ríkisstjórn - félags- málaráðuneytinu - sem einna helst ber á jákvæðum málefnum sem eru byggð á „mannlegum sjónarmið- um“. Þar vil ég nefna lögin um vinnuvernd og lögin um verka- mannabústaði. Hann hafði mikla ánægju af því að þoka þeim málum fram í sinni ríkisstjórn og studdi mig drengilega í þeim efnum þrátt fyrir gagnrýni annarra ráðherra. Þegar árásirnar á húsnæðiskerfið stóðu sem hæst tók hann upp hanskann fyrir þær breytingar og varði verkamannabústaðakerfið af miklu afli og var raunar eini sam- starfsmaður minn sem gaf þeim málum einhvern gaum. Jafnframt þessum félagslegum málefnum rík- isstjórnar Gunnars Thoroddsen sem skipa íslandi sérstöðu meðal Norðurlandaþjóða síðustu árin lagði hann áherslu á margvíslega þætti sem sumir þokuðust nokkuð í stjórnartíð hans. Meðal annars lagði hann mikla áherslu á jafnvægi í ríkisfjármálum og veitti Ragnari þar stuðning þegar fast var sótt að ríkissjóði. Hann var kappsmaður um þróun íslensks iðnaðar og sótt- ist ekki eftir alræði erlendra stór- fyrirtækja í íslensku atvinnulífi. Gunnar Thoroddsen var alinn upp í umhverfi menntunar og menningar; sjálfstæðisbaráttan var umræðuefni á bernskuheimili hans og við ræddum stundum um þessi mál þegar tóm varð til. Honum gast ekki að hugmyndum um út- færslu herstöðvarinnar. Hann ieit á herinn sem illa nauðsyn en ekki æskilegan hluta þjóðlífsins eins og ætla má stundum. Gunnar var stað- fastlega þeirrar skoðunar að bandaríski herinn hefði hér hlut- verki að gegna um sinn, en hann vildi setja skorður við athöfnum hersins á öllum sviðum. Ég gat þess að ég hafði ekki þekkt Gunnar fyrr en stjórnin varð til veturinn 1980. Hann var þá nokkurn veginn nákvæmlega tvis- var sinnum eldrí en ég og hug- myndir mínar um manninn voru blendnar. Eftir þvf sem lengra leið á samstarf okkar eyddist efinn æ meir, og ég undraðist það og undr- ast það enn að slíkur maður skuli ekki hafa verið settur á fremsta bekk í sínum eigin stjórnmála- flokki. Það er undarlegur stjórn- málaflokkur sem ekki þorir að meta hæfileika Gunnars Thorodd- sen. Gunnar var laginn samninga- maður; þegar spennan var mest á ríkisstjórnarfundum dugði ein góð saga að vestan til þess að breyta stemmningunni. Gunnar hafði líka lag á því að orða flókin ágreinings- mál á þann hátt að allir gátu vel við unað. Hann var þannig í senn skarpur og skemmtilegur meistari málamiðlunarinnar. Ríkisstjórn Gunnars Thorodd- sen hélt 374 fundi; hann sat þá nærri alla sjálfur. Ég tók eftir því á síðasta fundinum að honum var nokkuð brugðið og í rauninni voru það veikindi hans sem komu í veg fyrir það að hann héldi áfram í stjórnmálabaráttu síðustu kosn- inga. Greinilegt var af síðustu þing- ræðu hans að hann var enn með hugann við að halda áfram barátt- unni. Auk þeirra funda sem ríkis- stjórnin hélt hittumst við jafnoft ýmist tveir til að ræða málin eða með Steingrími. Það voru yfirleitt góðir og heiðarlegir fundir þar sem málin voru metin af óvenjulegri hreinskilni. Þessir aukafundir sem Ólafur Jóhannesson kallaði stund- um í gamni „æðsta ráðið“ voru mikilvægur þáttur í að halda stjórn- inni saman. Af þessu sést að það var mikið verk að stýra stjórn ólíkra sjónarmiða og það var ekki á færi annars manns en Gunnars Thoroddsen. Svo harðar voru deil- urnar stundum milli okkar og Framsóknar; samstarf Alþýðu- bandalagsins við forsætisráðherr- ann var hinsvegar gott allan tím- ann. Um Gunnar Thoroddsen er ekki hægt að skrifa stutta grein; um hann verða vonandi skrifaðar bækur. í þessu greinarkorni hef ég aðeins tínt saman fáein atriði úr samstarfi okkar. Ég tel að með Gunnari Thoroddsen hafi hið mannlega sjónarmið misst öflugan iiðsmann, sem einmitt nú hefði þurft að vera á vettvangi þegar fast er sótt að mannlegum verðmætum. Ég og konan mín eignuðumst góða kunningja í þeim Gunnari og Völu. Völu flytjum við samúðar- kveðjur, svo og börnum þeirra og öðrum aðstandendum. Þau eiga í fórum sínum minningu um mikil- hæfan mann sem skildi eftir sig spor í þjóðlífinu öllu; sú minning verður best geymd í sátt við mannleg sjónarmið. Svavar Gestsson Ég ólst upp við þær aðstæður að margir fóru um hlaðið. Hallorms- staðaskógur laðaði til sín fólk úr fjarlægum landshlutum, einkum eftir að staðurinn komst í vegasam- band á fjórða áratug aldarinnar. Það var einn lognkyrran sumar- dag nálægt stríðslokum að ég sat á barði við kirkjugarðinn rétt utan við bæinn. Þá gengu þar hjá eftir þjóðveginum karl og kona prúðbú- in og glæsileg að mér þótti og leiddust arm í arm. Ég þóttist bera kennsl á karlmanninn af myndum úr ísafold og Verði og fékk þa£ staðfest inni í bæ skömmu síðar, að Gunnar Thoroddsen alþingismað- ur dveldi í Húsmæðraskólanum með konu sinni Völu. Þessi mynd af þeim hjónum á morgungöngu í hásumarblíðunni festist í huga mér, sennilega af ýms- um ástæðum. Forystumenn úr Sjálfstæðisflokki voru ekki dag- legir gestir á Héraði á þeim árum og glæsibragur og fas þessara ungu hjóna var heldur ekki í ætt við hversdaginn. Síðan liðu yfir 30 ár og ég var áhorfandi úr fjarska að göngu Gunnars Thoroddsens um refil- stigu stjórnmálanna, upp og niður, meðal annars í forsetakosningum 1968, þar sem hann hlaut dræmar undirtektir hjá Austfirðinguni.Hins vegar voru það aðrir og honum ná- tengdari í flokki sem settu steina í götu hans á þessum árum. Líklega átti Gunnar Thoroddsen fremur auðvelda leið til metorða framan af ævi, þar sem meðfæddir hæfileikar og heimanfylgja lögðust á eitt. En á þessu varð breyting og Gunnar er að minni hyggju gott dæmi um mann sem herðist við mótlæti og náði því að endurmeta eigin stöðu nánast frá grunni, þá kominn yfir miðjan aldur. Síðsumars 1978 tók ég við lyklin- um að iðnaðarráðuneytinu úr hendi Gunnars Thoroddsens og hafði þá ekki hitt hann fyrr. í því ráðuneyti hafði hann verið hús- bóndi í fjögur ár, og jafnframt gegnt því starfi félagsmálaráð- herra. í félagsmálaráðuneytinu var Gunnar m.a. í snertingu við sveit- arstjórnarmálefni, sem hann var gjörkunnugur frá starfi sínu í borg- arstjórn Reykjavíkur um langt ára- bil. Þau tengsl urðu honum nota- drjúg ekki síður en reynslan af þingmennsku sem fulltrúi dreifbýl- iskjördæmis framan af ævi. Gunn- ar þekkti mikinn fjölda manna af vettvangi sveitarstjóra víða á landinu og var þannig í snertingu við viðfangsefni og hag fólks í dreifbýli. Þetta setti mark á starf hans sem ráðherra, m.a. í orku- og iðnaðarmálum. Hann hafði áhuga á hitaveituframkvæmdum víða um land og góðan skilning á að þörf væri á að ráðast í virkjanir víðar en á Suðurlandi. Þrátt fyrir mikinn ágreining við Alþýðubandalagið á sviði iðnaðar- og orkumála varð Gunnar ekki talsmaður þeirra sem afhenda vildu útlendingum tögl og hagldir í stóriðju og hagnýtingu orkulind- anna. Þar eins og á mörgum öðrum sviðum greindi hann á við sterk öfl í sínum flokki. Persónuleg kynni hafði ég aðeins af Gunnari hin síðustu ár sem ég starfaði undir forsæti hans í ráðu- neyti. Án þeirrar nálægðar hefði mat mitt á stjórnmálamanninum og einstaklingnum Gunnari Thor- oddsen eflaust orðið með talsvert öðrum hætti að leiðarlokum. Við myndun ríkisstjórnarinnar f febrúarbyrjun 1980 bar hæst óvanalega djörfung og þá áhættu sem Gunnar var reiðubúinn að taka. Margir hafa látið að því liggja að persónulegur metnaður hafi þar mestu ráðið og verið driffjöðrin. Þegar litið er til baka tel ég hins vegar ljóst að málefni og næmt stöðumat stjórnmálamannsins hafi ráðið miklu um að Gunnar ákvað að rjúfa sjálfhelduna og afstýra myndun utanþingsstjórnar. Með þeirri ákvörðun og því bandalagi sem þá tókst að mynda voru stöðv- uð þau öfl sem nú reyna á ný að brjóta sér farveg í þjóðmálunum. Sem forsætisráðherra var Gunn- ar einkar laginn verkstjóri og hann átti jafnframt mestan þátt í að efla vinsældir og styrk stjórnarinnar út á við og sætta ólík sjónarmið innan hennar. í augum almennings naut hann eflaust þess frumkvæðis sem hann tók með myndun stjórnarinn- ar svo og hæfileika sinna og öruggr- ar framgöngu. Þær eigindir voru ekki nýjar af nálinni heldur agaðar og ræktaðar á löngum starfsferli. Mér kom hins vegar á óvart það mikla starfsþrek og sú elja sem þessi sjötugi maður bjó yfir allt fram á síðasta vetur. Við Alþýðubandalagsmenn sem störfuðum með Gunnari Thorodd- sen í ríkisstjórn hljótum þó um- fram allt að meta að verðleikum þau mannlegu sjónarmið, sem hann gerðist talsmaður fyrir í vax- andi mæli hin síðustu ár og andúð hans á kaldri auðhyggju, sem nú reynir að villa á sér heimildir undir merkjum svonefndrar frjáls- hyggju- Á þessi viðhorf sín minnti Gunn- ar skilmerkilega og að gefnu tilefni stuttu fyrirandlátið. Á þau varnað- arorð hans og viðhorf mættu nú margir hlusta. Með Gunnari Thoroddsen er genginn einn svipmesti stjórnmála- foringi úr röðum íslenskrar borgar- astéttar á þessari öld. Hann var skæður andstæðingur á pólitískum velli, en hlýr og skemmtinn í sam- starfi og daglegri umgengni og kunni vel þá list að stilla saman ólíka strengi. Sem barn horfði ég til hans og Völu ganga hjá við kirkjugarðinn heima. Þá grunaði mig síst að eiga eftir að njóta góðra stunda á heim- ili þessara elskulegu hjóna, hvað þá að eiga samleið með húsbónd- anum spölkorn á vettvangi stjórnmálanna. Nú þegar Gunnar er allur heldur Vala áfram veginn með það ágæta vegarnesti sem henni er gefið, glaðværð og þrótt sem minnir á æsku, þótt árunum fjölgi. Um leið og ég minnist Gunnars Thoroddsens með virðingu og hlý- hug vottum við Kristín Völu og börnum þeirra einlæga samúð okk- ar á þessum vegamótum. Hjörleifur Guttormsson Endurminningin merlar œ í mánasilfri, hvað sem var. (G. Th.) Þegar Gunnar frændi minn er dáinn, þyrpast minningarnar að. Minningar frá í gamla daga. Hann var einn af systkinum móður minnar sem gengu mér lítilli í föð- urstað, og er í dag kvaddur síðastur bræðranna, sem allir hafa nú látist með tiltölulega stuttu millibili. Þegar ég var að alast upp voru móðursystkini mín mér eins sjálf- sögð og andrúmsloftið, ég vissi að það gæti aldrei komið neitt veru- lega alvarlegt fyrir mig, af því að ég átti þau að. Gunnar var guðfaðir minn og vitneskjan um að það skipti mig alltaf miklu máli, ekki kannski svo mikið af trúarlegum ástæðum sem vegna hefðarinnar sem í því fólst. En hefðir eru nauðsynlegar manninum og gefa honum tilfinninguna um að hann tilheyri einhverjum og einhverju, sé hluti af sögunni sem gengur hægt en markvisst fram. í þeim finnum við líka oft best þá mannlegu sam- kennd og það öryggi sem við þörfn- umst. Allt í sambandi við Gunnar var hefð. Gunnar að halda ræðu á Arn- arhóli 17. júní. Gunnar að spila á píanóið eða orgelið hans afa í fjöl- skylduboðum. Gunnar að koma úr siglingu með einhverja spennandi gjöf frá útlöndum í farangrinum. Og fyrsta gjöfin, sem ég man eftir að hafa fengið, var frá Gunnari. Það var líka fyrsta dúkkan mín. Gul tuskudúkka, eins og þær gerð- ust bestar á fyrstu árum stríðsins, og var að sjálfsögðu látin heita Gunna. Líklega hefur Gunnar ver- ið einn í búð að velja þessa dúkku, því að þetta var fyrir daga Völu. Gamlárskvöldin hjá Gunnari og Völu á Oddagötunni voru líka hefð. Þau voru með því skemmtilegasta sem ég vissi, og ég hlakkaði til þeirra alit áriö. Það var Dr. Kristján Eidjárn forseti íslands veitti dr. Gunnari Thoroddsen umboð til stjórnarmyndunar þriðjudag- inn 5. febrúar 1980.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.