Þjóðviljinn - 30.09.1983, Side 11

Þjóðviljinn - 30.09.1983, Side 11
Föstúdagiír* 30. september 1983 l>JÓÐVILJINN SÍtíÁ 11 • Umsjón: Víöir Sigurðsson Víkingur-Kolbotn á sunnudagskvöldið: „Þurfum meiri baráttu og góða semmningu” Fyrsti stórleikurinn í handknatt- leiknum á þessum vetri verður háð- ur í Laugardalshöllinni á sunnu- dagskvöldið. íslandsmeistarar Vík- ings mæta þar Kolbotn frá Noregi í Evrópukeppni meistaraliða. Þetta er síðari leikur liðanna en þeim fyr- ri, sem fram fór um síðustu helgi, lauk með sigri norsku meistaranna, 20-18. „Við getum leikið mun betur hér heima en í Osló. Við þurfum meiri baráttu og áhorfendur geta hjálpað mikið til með góðri stemningu", sagði Havlik, hinn tékkneski þjálf- ari Víkings. „I Osló sýndum við góðar 20 mínútur í byrjun en síðan misstum við einbeitingu og ögun og fengum á okkur fjögur mörk á stuttum kafla. Víkingur getur sig- rað á sunnudagskvöldið og komist í 2. umferð, á því er enginn vafi“. Norska liðið er að leika í fyrsta skipti í Evrópukeppni en það varð meistari í fyrra í fyrsta skipti. Það er skipað reyndum og harð- skeyttum leikmönnum og þrír þeirra eru núverandi landsliðs- menn. Það eru hornamennirnir Vi- dar Bauer og Sven Ivar Storkaas sem mikið er byggt uppá og skyttan Lars Christian Hanneborg. Sá síð- astnefndi er skotharður með af- brigðum, mælingar hafa sýnt 110 km hraða á knettinum í skotum hans, og hann hefur fengið tilboð um að leika með hinu geysisterka spænska félagi Atletico Madrid. „Það er draumurinn að komast í 2. umferð og mæta þar Kiel frá Hvað gera Viggó Sigurðsson og fé- lagar gegn norsku meisturunum Kolbotn á sunnudagskvöldið? HM 1985 ÍR er efst Heimsmeistarakeppni félagsliða verður að ölium líkindum haldin í Englandi árið 1985. Um hana samein- ast enska knattspyrnusambandið, enska deildakeppnin, UEFA og FIFA. Talsmaður enska sambandsins sagði í fyrradag að enn væri undirbúningur á frumstigi en mjög líklegt væri að af keppninni yrði. Tólflið tækju þátt í keppninni.. Sex fyrrverandi og núverandi Evrópu- og Suður-Ameríkumeistarar, eitt lið frá Afríku, eitt frá Asíu, eitt frá Mið- Amcríku og þremur Iiðum yrði síðan séstaklega boðin þátttaka. -VS KA-Valur Einn leikur verður í 1, deildakeppn- inni í handknattleik í kvöld. KA og Valur mætast á Akureyri og helst viðureignin kl. 20. í 2. deild mætast gömlu Víkingarnir, Bogdan Kow- alczyk, sem þjálfar nú Breiðablik, og Þorbergur Aðalsteinsson, sem.þjálfar Þór, Eyjum. Leikur liðanna fer fram í íþróttahúsinu í Kópavogi og hefst kl. 20. Þrír ieikir verða í 2. deild á morg- un. HK og Grótta leika kl. 14, ÍR og Þór Eyjum kl. 14 og Fram-Reynir Sandgerði kl. 15.15. Tveir síðarnefn- du leikirnir fára fram í íþróttahúsi Seljaskóla en sá fyrsti í Kópavogi. ÍR tók forystuna í Reykjavíkurmót- inu í körfuknattleik í fyrrakvöld með því að sigra Fram 74-68. Þá léku einn- ig ÍS og KR og sigruðu KR-ingar 70- 57. Staðan í mótinu er þessi: ÍR.............2 2 0 169-137 4 Valur..........2 2 0 135-126 4 KR.............2 1 1 133-128 2 Fram...........3 1 2 201-199 2 IS.............3 0 3 187-235 0 Mótinu lýkur um helgina. Á morg- un leika ÍR og KR kl. 14 og Valur-IS kl. 15.30. Á sunnudag leika KR og Fram kl. 14 og ÍR-Valur kl. 15.30. Keppni í kvennaflokki lýkur einnig. ÍR og ÍS leika kl. 17 á morgun og IR og KR á sama tíma á sunnudag: Allir leikirnir fara fram í Hagaskóla. ViljaWatson West Ham, efsta liðið í 1. deild ensku knattspymunnar er reiðubúið til að kaupa hinn tvítuga fyrirliða Norw- ich, Dave VVatson. Watson átti snill- darleik með enska landsliðinu 21 árs og yngri sem vann Dani 4-1 í síðustu viku og þar fylgdist John Lyall, fram- kvæmdastjóri West Ham, með hon- um. Wolves, sem ekki hefur unnið leik til þcssa í 1. deild, er á höttunum eftir einum efnilegasta framhcrja Skota. Maurice Johnston heitir hann og skorar grimmt fyrir Partick Thistle í skosku 1. deildinni. -VS Tvö laus RM í blaki Þrjú lið heyja á næstu dögum bar- áttu um tvö iaus sæti í 1. deild karla í blaki. þau eru Víkingur, Fram og Samhygð. Víkingur hafnaði í neðsta sæti 1. deildar í fyrra en Fram og Samhygð urðu jöfn í 2.-3.. sæti 2. deildar. Vegna þess að Bjarmi og UMSE hafa dregið sig útúr I. deildinni losnuðu tvö sæti þar. Fyrsti leikur úrslitakcppninnar fer fram á þriðudagskvöldið og eigast þá við Fram og Víkingur. . HK-fundur Aðalfundur blakdeildar HK verður haldinn mánudaginn 3. október að Hamraborg 1 (niðri), Kópavogi. Fundurinn hefst kl. 19.30. Venjuleg aðalfundarstörf. Reykjavíkurmótið í blaki hefst um hclgina með tveimur leikjum í karla- flokki og einum í kvennaflokki. Leikið verður í Hagaskóla á sunnudags- kvöld. Kl. 19.10 mætast ÍS og Þróttur í karlaflokki, kl. 20.30 Víkingur og Fram í karlaflokki og loks kl. 21.50 Víkingur og ÍS í kvennaflokki. Sektaðir! Allt knattspyrnulandslið Chile, að markverðinum undanskildum, hefur verið sektað stórlcga fyrir slælega frammistöðu. Chile missti af sæti undanúrslitum Ameríkubikarsins með jafntefli, 0-0, í Venezuela, og knattspyrnusamband landsins ásakar leikmenn fyrir áhugaleysi og ábyrgð- arleysi. Vestur-Þýskalandi, liði Jóhanns Inga Gunnarssonar, sagði Ólafur Jónsson, fyrrum landsliðsmaðurog leikmaður Víkings sem nú helgar sig starfsemi handknatt- leiksdeildarinnar. „Við treystum á að áhorfendur fjölmenni, við þurf- um 2500 manns í Höllina til að sleppa fjárhagslega frá þessum leikjum við Kolbotn", sagði Ólafur. Víkingar hafa oft náð góðum ár- angri í Evrópukeppni og unnið sigra á liðum eins og Tatabanya frá Ungverjalandi og Dukla Prag frá Tékkoslóvakíu. Þeir þarfnast góðs stuðnings áhorfenda til að vinna upp forskot norsku nieistaranna en stemningin í Höllinni hefur oft fleytt íslenskum liðum yfir erfiða hjalla í Evrópuleikjum og lands- leikjum. Forsala aðgönguniiða verður í Laugardalshöllinni á rnorgun, laugardag, frá kl. 13- 16. Á sunnu- dag verður byrjað að selja miða þar kl. 17. -VS Armann fallinn Skallagrímur heldur stigum sínum úr viðureigninni við Ár- mann í A-riðli 3. deildar í knattspyrnu. Þetta var niður- staða dómstóla ÍSÍ á þriðjudag en áður höfðu Ármcnningum verið dæmd stigin af héraðs- dómi. Þar með eru Ármenning- ar endanlega fallnir í 4. deild. Næsta þriðjudag tekur dómstóll ÍSÍ fyrir kæru Selfyssinga á hendur Skallagrími. Selfossi var dæmdur sigur fyrir héraðs- dómstóli en Skallagrímur áfrý- jaði til ÍSÍ, eins og fyrri kærum. Úrslitaleikir 3. deildar fara því í fyrsta lagi fram um aðra helgi og verður líklega leikið á snjó- þrúgum. -VS Falla Keflvíkingar þrátt fyrir allt? Eða verður aukaleikur um 1. deildarsæti? Ekki virðist öruggt að Keflvíkingar haldi sæti sínu í 1. deild íslandsmótsins í knattspyrnu, þótt Eyja- mönnum hafi vcrið vísað úr deiidinni fyrir að leika með ólöglegan leikmann í síðasta leik mótsins. Sani- kvæmt reglugerðum KSÍ falla tvö lið ár hvert úr 1. deild og Eyjamenn féllu ekki, þeim var vísað úr keppni. Þar með eru Keflvíkingar í næstneðsta sæti deildarinnar. Þetta kom í ljós í samtali við einn forráðamanna KSÍ í gær og taldi hann ekki skýrt hvað gera skyldi. Fella Keflvíkinga beint í 2. deild og færa FH upp eða koma á aukaieik milii Keflavíkur og FH (um 1. deildarsætið. Stjórnarfundur verður haldinn hjá KSÍ á mánu- dag eða þriðjudag að viðstöddum forráðamönnum ÍBV. Þar verður væntaniega tekin ákvörðun um hvar Eyjamenn leika næsta sumaren menn deila nú mjög um hvort þeir eigi að leika í 2. eða 4. deiitj að ári. Það virðist oröið nokkuð ljóst að Eyjamenn notuðu umræddan leikmann, Þórð Hallgninsson, í þeirri trú að hann hefði aðeinsfengið eins ieiks bann og því yrði áð teljast all harkalegt að láta þá byrja að nýju í 4. deild. -VS / Iþróttafélagið Leiknir að rísa úr öskustónni? „Viljum öflugt fé- lag í okkar hverfi Það hefur ekki mikið farið fyrir íþróttafélagi því í Reykjavík sem Leiknir nefnist undanfarin misséri. Félagið, sem hefur aðsetur í Breiðholtinu, er tíu ára gamalt um þessar mundir en afmælisfögnuður er ekki mikill. Nú á dögunum var kjörin ný öflug stjórn hjá Leikni, undir forystu Andra Bachman, og kjörorðið er, að hans sögn: „Við viljum öflugt félag í okkar hverfi“. „Tíu ár í sögu félagsins hafa ver- ið unnin fyrir gýg. Við ætlum hins vegar ekki að líta mikið um öxl, heldur horfa fram í tímann. Breiðholtið er stærsta úthverfi á landinu og það er óeðlilegt að börn þaðan þurfi kannski alla leið vestur í bæ til að stunda sína íþrótt“, sagði Andri á blaðamannafundi sem hin nýkjörna stjórn hélt í vikunni. Leiknismenn ætla að byrja alger- lega frá grúnni og starfið er þegar komið í fullan gang. Fyrsta verk stjórnarinnar var að samþykkja lög félagsins sem höfðu verið ósam- þykkt í tíu ár, einhverra hluta vegna. Fyrsta árið verður eingöngu helgað knattspyrnu og byrjað verð- ur í kjallaranum, áhersla lögð á yngri fiokkana. Ljóst er að 3. , 4. og 5. flokkur verða sendir í ísland- smótið næsta sumar og ekki er úti- lokað að 2. og meistaraflokkur komist þá einnig í gagnið á nýjan leik. Mestu erfiðleikarnir sem Leiknismenn hafa rekið sig á í haust er hve erfitt er að fá tíma í íþróttahúsum. „Við þurfum að sanna okkur, einstaklingar og fyr- irtæki fá tíma á kostnað íþróttafé- laga en við getum ekki sannað okk- ur nema við fáum tækifæri til þess. Þetta er hfingrás sem erfitt er að komast inní“, sögðu talsmenn félagsins. Samstarf við skólana í Breiðholti er ofarlega á stefnuskrá hinnar nýju stjórnar. Félagið mun standa fyrir hugmyndasamkeppni í skól- unum, þar verður félagið kynnt, og stefnan er að konia á íþróttamótum milli einstakra skóla. Þá er ætlunin að stofna foreldrafélag til aðstoðar við starfið í yngri flokkunum. Leiknir hefur ráðið framkvæmda- stjóra, Guðmundur Guðmundsson heitir hann og veitir allar upplýs- ingar um félagið í síma 77748. -VS Talsvert um félagaskipti í blakinu: HK fær liðsstyrk og Sveinn fer til Fram Óvenju mikið hefur verið um félaga- skipti í blaki í sumar og haust og ætla margir að reyna fyrir sér hjá nýjum félögum. Hér koma þeir helstu: Sveinn Hreinsson. ianúsliðsmaður úr Þrótti, þjálfar Framara í vetur og leikur að sjálfsögðu með þeim jafnframt. Guðmundur Pálsson kemur frá Nor- egi þar sem hann hefur lcikið með KFUM Osio og gengur til liðs við Þrótt. Jason ívarsson, aðaldriffjöðrin hjá Samhygð, leikur einnig með Þrótti í vetur. Haraldur Geir Hlöðversson, Eyja- maðurinn hávaxni, leikur með nýliðum HK. Þangað fer cinnig Benedikt Hö- skuldsson. fyrrum Þróttari, sem var í Bandaríkjunum í fyrra. Fyrir hjá Kópa- vogsliðinu eru Hreinn Þorkelsson og Samúel Örn Erlingsson svo það gæti hæglega veitt Þrótti og IS keppni um íslandsmeistaratitilinn. ÍS hefur misst tvo lykilmenn frá því í fyrra. Sigurður Þráinsson er farinn til Bandaríkjanna og Hollendingurinn Wim Buys er kominn til síns heima- lands. Hann er þó jafnvel væntanlegur aftur um áramót. Á móti hefur ÍS feng- ið þá Finnboga Magnússon úr Fram og Stefán Magnússon, sem dvalið hefur í Noregi. -VS

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.