Þjóðviljinn - 30.09.1983, Síða 16
DJÚÐVIUINN
Föstudagur 30. september 1983
Aöalsími Þjóöviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt aö ná í blaðamenn og aöra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt aö ná í afgreiðslu blaðsins i síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
Flakkið og utanreisurnar segja til sín:
Auðir stólar í ráðherra stað
Ráðuneytin orðin rugluð í
hver fer með hvað
Aðeins 3 ráðherrar sátu stuttan ríkisstjórnarfund í
gærmorgun, 3 voru á ferðalögum úti um land en 4
ráðherrar Sjálfstæðisflokksins voru enn erlendis.
Albert Guðmundsson er væntanlegur heim í dag en Geir
Hallgrímssyni, og nöfnunum Matthíasi Bjarnasyni og
Mathiesen mun dveljast lengur ytra.
Endalaus þeytingur ráðherra
Sjálfstæðisflokksins í og úr landinu
hefur valdið starfsmönnum ráöu-
neyta þeirra miklum heilabrotum
enda ekki alltaf auðvelt að fylgjast
Fá starfsmenn
utanríkisráðuneytis
bílafríðindi?
Mis-
skiln-
ingur
segir skrifstofu-
stjóri ráðuneytisins
„Það er misskilningur að starfs-
menn utanríkisráðuneytisins fái
felld niður aðflutningsgjöld af bifr-
eiðum”, sagði Ólafur Egilsson,
skrifstofustjóri utanríkisráðuneyt-
isins í gær, en í viðtali Mbl. við
Steingrím Hermannsson forsætis-
ráðherra í gær kemur fram að svo
sé.
Ólafur sagði að hins vegar giltu
þær reglur um starfsfólk utanríkis-
þjónustunnar að eftir a.m.k. 3ja
ára búsetu erlendis mætti það taka
heim með sér bifreið án greiðslu
aðflutningsgjalda. „Þetta er aðeins
heimilað einu sinni á hverju 7 ára
tímabili”, sagði Ólafur, „og því
fylgir sú kvöð að ekki má selja bíl-
inn hér innanlands fyrr en eftir 3 ár
nema aðflutningsgjöldin séu
endurgreidd.”
Ólafur sagði að þessi heimild
helgaðist m.a. af því að bílar starfs-
fólks í utanríkisþjónustunni væru
meira og minna notaðir í þágu
sendiráðanna erlendis án þess að
nokkrar sérstakar greiðslur kæmu
fyrir þau afnot.
-ÁI
Skólabúiö á Hólum
Afburöavænir
dilkar
I gær var slátrað á Sauðárkróki
160 dilkum frá skólabúinu á Hólum
í Hjaltadal. Meðalfallþungi þessara
160 dilka var 18,4 kg og 38 föll fóru
yfir 20 kg. Enginn skrokkur var
felldur í mati fyrir of mikla fitu.
með hver fer með viðkomandi
ráðuneyti á hverjum tíma. Dæmi-
gert um þennan rugling er svarið
sem blaðamaður Þjóðviljans fékk í
utanríkisráðuneytinu á þriðjudag,
þegar hann spurði hver færi með
ráðuneyti Geirs þá stundina:
„Hvað er klukkan hjá þér?” var
spurt á móti. „Vantar kortér í
fjögur.”-„Nú, þáer það Ragnhild-
ur Helgadóttir.”
Starfsmenn annarra ráðuneyta
voru ekki allir eins vissir í sinni sök.
Venjan er að ákveðinn ráðherra
sama flokks fari með ráðuneyti
þess sem er utanlands hverju sinni
og. eiga allir ráðherrarnir sér því
e.k. varamann. En þegar varamað-
urinn fer úr landinu líka, fer málið
að vandast og um síðustu helgi átti
skrifstofa Sjálfstæðisflokksins í
miklum erfiðleikum með að
tryggja að alltaf væri a.m.k. einn
ráðherra flokksins heima á hverj-
um degi.
Þannig var það t.d. á fimmtuegi
og föstudegi að Ragnhildur Helga-
dóttir fór með öll ráðuneyti Sjálf-
stæðisflokksins, en þegar hún fór
utan um helgina tók Sverrir Her-
mannsson við og fór með öll ráðu-
neytin á mánudag og fram til
klukkan hálf fjögur á þriðjudag að
Ragnhildur lenti.
' -ÁI
Auðum stólum í ríkisstjórnarsaln-
um fækkar um einn í dag, en þá-
kemur Albert Guðmundsson
fjármálaráðherra heim frá Banda-
ríkjunum. Llósm -eik.
Svavar Gestsson um áskriftasöfnun Þjóðviljans
Allir þurfa að fá
Síðustu forvöð
að skila ávísun-
um í dag
„Það er mikil nauðsyn
allri þjóðmálaumræðu á
íslandi að efla Þjóðviljann
og gera hann að sem bestu
baráttutæki”, sagði
Svavar Gestsson
formaður Útgáfufélags
blaðsins í tilefni af
áskrifendasöfnun þeirri
sem nú fer fram.
Þjóðviljin hefur einsett sér
að safna þúsund nýjum
áskrifendum til áramóta.
Svavar Gestsson: „Síðustu forvöð eru að skila inn ávísunum að áskriftum í
dag.”
í vor fæddust á Hólum 190 lömb
eftir hverjar 100 ær. Er því ljóst, að
flest hafa þessi 160 lömb verið tví-
lembingar. Þetta er árangur, sem
vert er að vekja athygli á.
-mhg
Nú er síðasti dagurinn sem safn-
ararí fyrstu lotu áskriftaherferðar-
innar hafa til að skila inn ávísunum
á kynningaráskrift október-
nóvember. Nöfn allra kynningar-
áskrifenda þurfa að hafa borist
Þjóðviljanum fyrir kl. 19 í kvöld, s.
81333 en úti á landi þurfa umsjón-
armenn söfnunarinnar að hafa gert
skil við umboðsmenn blaðsins fyrir
kl. 16 í dag.
„Við þær pólitísku aðstæður sem
eru í landinu í dag er ljóst að ríkis-
stjórnin getur komið sínum sjónar-
miðum fram í 100 þúsund ein-
tökum á dag meðan stjórnarand-
staðan teflir á móti 15 þúsund ein-
tökum eða svo. Þarna er gífurlegur
aðstöðumunur, þó að fjölmiðlun
öll hafi færst í frjálslyndara horf en
áður. Engu að síður er það nú enn
svo að Tíminn og Morgunblaðið
't.d. eru fyrst og fremst flokksblöð
þótt annað fljóti með.
Allir heiðarlegir menn sem vilja
mynda sér sálfstæðar skoðanir á
því sem er að gerast, hvað svo sem
þeir kjósa í kosningum, þurfa að
kynna sér sjónarmið Þjóðviljans
um leið og þeir meta stöðu mála á
hverjum degi. Þeir láta ekki segja
sér hvað stendur í Þjóðviljanum
heldur kaupa hann.
Ég hvet því alla stuðningsmenn
og velunnara blaðsins og lýðræðis-
legrar skoðanamyndunar að taka
vel á í áskrifendasöfnun Þjóðvilj-
ans”, sagði Svavar Gestsson.
blaðið