Þjóðviljinn - 17.10.1983, Síða 5

Þjóðviljinn - 17.10.1983, Síða 5
Iðntæknistofnun Tækni- þróun og aukin fram- leiðni Ingjaldur Hannibalsson forstöðumaður: Reynum að veljaokkurverkefnisem leiðatil skjótrarhagnýtingar. Margþætt starfssvið NÝ SÓKN Stefán Björnsson og Sigurður Mar beita hljóðbylgjutækni við leit að sprungu í höggpressuöxli. Ljósm. E.ÓI. Starfssvið Iðntæknistofnun- ar íslands er mjög víðfemt og starfsmenn stofnunarinnar gegna fjölbreyttum störfum, en þeir eru nú um 60 talsins. Hérna er unnið að rannsókna- störfum, námsskeiðahaldi, ýmiss konar þjónustu við fyrir- tæki o.fl., sagði Ingjaldur Hannibalsson, forstöðumaður Iðntæknistofnunar ( samtali við Þjóðviljann nýlega. lenskum iðnaði með því að veita iðnaðinum sem heild, sérstökum greinum hans og iðnfyrirtækjum, sérhæfða þjónustu á sviði tækni og stjórnunarmála og stuðla að hagkvæmri nýtingu íslenskra auðlinda til iðnaðar.” Stofnunin fær fjárveitingu af fjárlögum, á þessu ári um 40 milljónir króna. Eigin tekjur eru einnig umtalsverðar. Stofnunin fær að sjálfsögðu greitt fyrir þá tækjum á Islandi það nýjasta á hverjunr tíma. Ég er þeirrar skoðunar að með stórbættum tækjakosti og um 80 starfsmönn- um ætti þessi stofnun að verða nálægt því takmarki að geta gegnt hlutverki sínu sómasamlega.” Hvernig verkefni eru það sem mest áhersla er lögð á hjá ykkur? „Við reynum að velja okkar verkefni sem eru líkleg til að geta tiltölulega fljótt leitt til hagnýt- ingar. Nú erum við með í gangi rannsóknarverkefni sem við höldum að muni verða hagnýtt innan tíðar ef allt heppnast vel. Þarna er um að ræða vinnslu zeó- líta úr íslenskum jarðefnum. Zeólítar eru mikið notaðir í hreinlætisiðnaði og víðar. Það er ekki langt í að niðurstöður fáist úr þessu verkefni. Én það er ekki nóg að gera rannsóknir á rannsóknir ofan ef enginn er til að taka við niður- stöðurn. Það er ekki alltaf áhugi fyrir því innan fyrirtækjanna að fara út í nýjungar og sumir hrein- lega geta það ekkivegna smæðar sinnar. Það er einnig mikilvægt að hjá fyrirtækjunum séu starf- andi tækni- og viðskiptam- enntaðir menn, sem kunna skil á þeim möguleikum sem boðið er upp á,” sagði Ingjaldur. -gg Unnur Sveinsdóttir við störf á efna- og rannsóknardeild. Þar fer fram ýmis starfsemi, m.a. efnagreiningar á matvælum, þar er fylgst með mengun í álver- inu, vöruþróun og gæöaeftirlit. Ljósm. E.ÓI. ^HÚSNÆÐIS SPARNAÐUR Iðntæknistofnun var sett á fót árið 1978 með sameiningu Rannsóknastofnunar iðnaðarins og Iðnþróunarstofnunar íslands. Starfsemin var upphaflega til húsa á þremur stöðum á höfuð- borgarsvæðinu, en vorið 1984 var hún flutt upp í Keldnaholt þar sem hún er nú. Eins og áður segir starfa um 60 manns við stofnun- ina. Þetta er fólk með margvís- lega menntun, enda verkefnin margþætt. í lögum um Iðntækni- stofnun segir: „Hlutverk stofnun- arinnar er að vinna að tækniþró- un og aukinni framleiðni í ís- þjónustu sem hún veitir fyrir- tækjum og að sögn Ingjalds verða tekjurnar um 25 milljónir króna á þessu ári. „Það sem helst skortir á hjá okkur er aukið fjármagn til kaupa á nauðsynlegum búnaði, en fram til þessa hefur allt of litlu fé verið veitt til þess. Þó hefur þar orðið aukning á. Á þessu ári fara t.d. 9 milljónir króna í þennan lið. En skortur á nýtískulegum tækjum takmarkar mjög starfs- svið okkar. Tækniþróun í ýmsum iðngreinum er mjög hröð og við eigum erfitt með að kynna fyrir- • skattafsláttur • lántökuréttur 0 háirvextir Alþydubankinn hf. við gerum vel við okkar fólk Fimmtudagur 17. október 1985 ÞJÓOVILJINN — SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.