Þjóðviljinn - 26.10.1983, Síða 9
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 26. október 1983
Miðvikudagur 26. október 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9
BENSÍNHALLIRNAR
Á fjórða tug bensínstöðva eru nú
starfræktar á Stór-
Reykjavíkursvæðinu, ein er í
smíðum og vilyrði hefur verið gefið
fyrir að reisa þrjár aðrar
bensínstöðvar í borgarlandinu,
auk þess sem til stendur að
endurbyggja eitthvað af eldri
sölustöðvum.
Mönnum þykir kannski ekki
undarlegt að eitthvað hafl orðið að
fjölga bensínstöðvum á
höfuðborgarsvæðinu samfara
gífurlegri aukningu ökutækja á
síðustu árum, en staðreyndin er
hins vegar sú að bensínsalan hefur
nær ekkert aukist þrátt fyrir
stóraukna bíleign, bæði vegna þess
að nýjir bílar eru mun
sparney tnari en þeir eldri og eins
hefur almenningur dregið mjög úr
svokölluðum „óþarfa“ akstri.
Hjá olíufélögunum þremur sem öll selja sama
bensínið undir sitthvoru nafni en á sama verði,
hefur samkeppnin á síðustu árum þróast út í alls
kyns þjónustu- og varahlutaverslun á
bensínafgreiðslum til viðbótar við bensínsölu.
Nýjar útsölustöðvar hafa sprottið upp og eldri
útsölur verið endurnýjaðar. Hafa margir haft á
orði að bensínstöðvar væru „musteri nútímans"
slíkur væri íburðurinn.
Skeljungur rekur flestar bensínstöðvar í Stór-
Reykjavík eða 13 talsins, jsar af tvær stöðvar í
sameign við Olíuverslun Islands, Olís. Olíufélagið
h/f Esso, rekur 10 bensínstöðvar á þessu svæði og
Olís einnig 10 þar af 2 í sameign með Shell.
Árið 1970 var gert samkomulag milli
borgaryfirvalda og olíufélaganna um hvernig
skyldi hafa skiptingu bensínafgreiðslustaða í
nýbyggingarhverfum sem þá voru áskipulagi. Nú
er það samkomulag nær uppfyllt og félögin hafa
ekki komið sér saman um h vernig standa ber að
innbyrðis skiptingu útsölustöðva í samráði við
viðkomandi borgar- og bæjaryfirvöld í náinni
framtíð. Er farið að gæta nokkurrar togstreitu
milli félaganna þar sem deilt er um hver hafi átt að
fá að reisa þessa stöð eða aðra.
Samkvæmt gamla samkomulaginu sem áður var
nefnt var Breiðholtshverfunum þremur skipt á
milli félaganna þriggja en í Breiðholti 2 á Esso eftir
að reisa bensínstöð, þar sem ekki hefur ennþá
ák veðin lóð undir stöðina af borgaryfirvöldum.
Hins vegar hefur Esso nýlega sett upp bensínsölu í
samvinnu við eigendur Nestis norðanvert við
Ártúnsbrekkuna og það eru forráðamenn hinna
félaganna ekki sáttir við. Þá hefur Esso einnig
nýlega reist nýja bensínstöð við Stórahjalla í
Kópavogi og endurnýjað bensínstöðvar sínar í
Hafnarstræti og við Nesveg/Ægisíðu.
Olís hefur sótt um að fá að reisa bensínstöð við
Vesturlandsvegá móts við Höfðabakka. Þá telur
félagið sig eiga eftir að fá úthlutaðri lóð fyrir
bensínstöð við Ánanaust í Vesturbænum
Hvað segja
stjórnendur
olíufélaganna?
Þjóðviljinn
á morgun
Þessi glæsilega bensín- og smurstöð reisti Shell fyrir ekki löngu síðan við Vífi|staðaveg í Garðabæ. Útlitið
dregur bílana að eða hvað???
Mynd - eik.
Nokkur hundruð metrum neðan við Shell stöðina í Garðabæ hefur Olís alveg nýverið tekið f notkun
bensínstöð við Hafnarfjarðarveginn... Þetta var ekki dýr framkvæmd segir fulltrúi Olís.
Mynd - eik.
samkvæmt samkomulaginu frá 1970. Þá hefur Olís
nýlega byggt glæsilega bensínstöð við
Hafnarfjarðarveg í Garðabæ og er að byggja
ásamt Shell nýja bensínstöð í Mosfellssveit við
Vesturlandsveg. Einnig stendur til að
endurbyggja bensín- og smurstöðina við Klöpp nú
ánæstunni.
Skeljungur rekur flestar bensínstöðvarnar af
oiíufélögunum hér á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Félagið er nú að byggj a ásamt Olís í Mosfellssveit
og byggði ekki fyrir löngu síðan glæsilega
bensínstöð ásamt Olís á Seltjarnarnesi. Þar fyrir
utan má nefna að félagið hefur nýlega reist
glæsilega bensínstöð í Borgarnesi við brúarendann
og aðra til á Akranesi í sameign með Olís. Utan af
landsbyggðinni er það einnig að frétta, að Olís og
Esso hafa nýlega opnað nýjar og glæsilegar
bensínstöðvar í Hveragerði og altalað er í þorpinu
að Skeljungur ætli ekki að vera minni maður,
heldur byggja glæsistöð þar Iíka andspænis Eden.
Eins og áður sagði þá hefur bensínsala í landinu
ekki aukist svo nokkru nemi á síðustu árum, þrátt
fyrir að bifreiðaeign landsmanna hafi nærri
tvöfaldast á síðasta áratug. Árið 1972 voru
rúmlega 52 þúsund fólksbifreiðar skráðar í
landinu samkvæmt tölum frá bifreiðaeftirlitinu og
10 árum síðar var fjöldi fólksbifreiða orðinn um 96
þúsund sem er nærri 85% fjölgun. Á sama tíma
hefur bensínsala í landinu aðeins aukist úr
rúmlega 70 þúsund tonnum á ári í 90 þús. tonn eða
um 28%. Að sögn forráðamanna olíufélaganna
hefur bensínsalan síðustu fjögur árin nær staðið í
stað. Á sama tíma hefur hins vegar orðið geysileg
útþensla og endurnýjun á bensínstöðvum hj á
öllum olíufélögunum ekki bara á Stór-
Reykjavíkursvæðinu heldur einnig víðsvegar á
þéttbýlisstöðum úti um land.
En hver er þörfin fyrir þessa útþenslu og hvað
þurfa bíleigendur að borga í hærra bensínverði
fyrir þessa uppbyggingu og endurnýjun. Einnig
má spyrja hvert stefnir í samkeppni olíufélaganna
um að fá að selja bíleigendum sama bensínið á
sama verði, þegar fyrir liggur að bensínstöðvar eru
ekki lengur einvörðungu bensín- og olíusölur
heldur meiriháttar varahlutaverslanir og Olís
hefur í áætlun að opna gos og sælgætissölu í
bensínstöðvum sínum á Reykjavíkursvæðinu og
hefur matvöruverslun í nýrri bensínstöð sinni í
Hveragerði.
Þessum spurningum og ýmsum öðrum svara
stjórnendur olíufélaganna í Þjóðviljanum á
morgun þar sem fram verður haldið úttekt
blaðsins á útþenslubensínstöðvakerfisins. -Ig.
Aðeins nokkur hundruð metra frá Esso stöðinni í Hafnarstræti er bensín- og smurstöð Olís við
Klöpp. Hún er vissulega komin til ára sinna og nú stendur til að endurbyggja á sama stað.
Mynd - eik.
Þeir hjá Olís eru með margt fleira á prjónunum. Hér við Ananaust ekki langt frá bensínstöð sama
félags og Shell við Suðurströnd, telur Olís sig eiga rétt á lóð undir nýja bensínstöð. Mynd - eik.
Við Höfðabakka hjá Vesturlandsvegi vill Olís einnig reisa nýja „hraðbrautarbensínstöð“ en
aðcins nokkur hundruð metra í burtu, í Ártúnsbrekku cru tvær „hraðbrautarbensínstöðvar“
sem Esso rckur. Mynd - Magnús.
Bensínstöðvar
á Stór-
Reykjavíkur-
svæðinu
Esso:
Ártúnshöfða
Bíldshöfða
Borgartúni
Hafnarstræti
Stóragerði
Stórahjalla, Kópavogi
Nesti, Fossvogi
Ægisiðu
Reykjavikurvegi, Hafnarfirði
v/Bjarkarholt Mosfellssveit
Fyrirhugaö
og í smídum:
Breiðholt 11
Olís:
Álfabakki
Álfheimar
Fellsmúli
Háaleitisbraut
Klöpp, Skúlagötu
Vitatorg
Hamraborg, Kópavogi
v/Hafnarfjarðarveg, Garðabæ
Vesturgata, Hafnarfirði
Hvaleyrarbraut, Hafnarfirði
með Shell
Suðurströnd, Seltjarnarnes.
með Shell
Fyrirhugaö og
í smíðum:
Vesturlandsvegur v/Höfðabakka
Við Ánanaust
Mosfellssveit með Shell
Klöpp, endurbygging
Shell:
Við Birkimel
Bæjarbraut, Garðabæ
Hraunbæ
Kleppsvegi/Langholtsvegi
Kópavogshálsi
við Miklubraut x 2
við Reykjanesbraut
Laugavegi
Umferðarmiðstöðin
Suðurströnd með Olis
■ Reykjavíkurvegi, Hafnarfirðí
Hvaleyrarbraut, Hafnarfirði
með Olis
Fyrirhugaö og
í smíðum
Mosfellssveit við Vesturlandsveg
með Olís
Bensínsölur f
Mosfellssveit.
Útsölustaðir olíufélaganna á
Stór-Reykjavíkursvæðinu
Fyrirhugaðar bensinstöðvar.
Bensinstöðvar i Haf narf irði og Garðabæ.
Þessi bensínstöð Esso í Hafnar ber merki glæsistílsins. Hún var byggð fyrir örfáum árum í stað eldri
stöðvar sem var á svipuðum slóðum.
Mynd - eik.
MUSTERINUTIMANS