Þjóðviljinn - 26.10.1983, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 26. október 1983, ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
íþróttir Víðir Sigurðsson
Nyilasi
meiddur
Danir leika einhvern sinn þýðing-
armesta knattspyrnulandsleik frá
upphafi í kvöld er þeir mæta Ung-
verjum í Búdapest. Með sigri í
kvöld komast Danir í úrslit Evr-
ópukeppni landsliða sem fram fara
í Frakklandi næsta sumar. Þeir
fengu góðar fréttir í gær, fyrirliði
Ungverja, Tibor Nyilasi, getur
ekki leikið í kvöld vegna slæmra
meiðsla á ökkla og veikir það að
líkindum ungverska liðið talsvert.
Vestur-Þjóðverjar leika við
Tyrki í kvöld og geta tekið forystu í
sínum riðli með góðum sigri.
Möguleikar V-Þjóðverja eru mjög
miklir, þeir eiga síðan eftir heima-
leiki gegn Albaníu og Norður-
írlandi.
-VS
Sá stærsti á
Reyðarfjörð
í 9. leikviku Getrauna komu
fram 5 seðlar með 12 réttum og var
vinningur fyrir röðina kr. 89.430 og
með 11 rétta reyndust vera 103
raðir og vinningar fyrir hverja kr.
1.860. Það var kona á Reyðarfirði
sem fékk hæsta vinningin, hún var
með 12 rétta á 36 raða kerfisseðli
(bleikunr), og fær kr. 100.590.
Þorgils Óttar Mathiesen og Kristján Arason í hatrammri baráttu á línu Tékkanna í gærkvöldi en þrátt fyrir
tilþrifin slapp tékkneska markið í þetta skiptið.
Bogdan á mlkið
verk framundan
Bogdan Kowalczyk landsliðs-
þjálfari í handknattleik á mikið
starf
fyrir höndum, það kom berlega í
Ijós en íslenska landsliðið tapaði
fyrir lítt sannfærandi liði Tékka,
17-21, í Laugardalshöllinni í gær-
kvöldi. ísland lék vel fyrstu tuttugu
mínúturnar, en þá seig á ógæfu-
hliðina, Tékkar reyndust sterkari
aðilinn og unnu sannfærandi sigur.
Bætti metið
Sigurður P. Sigmundsson úr
FH setti nýtt íslandsmet í mara-
þonhlaupi um helgina er hann
keppti í New York. Hann hljóp
42 kflómetrana á 2:23,42
klukkustundum en gamla metið
hans var 2:27,05.
Dortmund rak
þjálfarann
Vestur-þýska knattspyrnu-
liðið Borussia Dortmund rak í
fyrradag framkvæmdastjóra
sinn, UIi Maslo. Dortmund hcf-
ur tapað sex af ellefu leikjum
sínum í Bundesligunni í haust og
er í hópi neðstu liða.
-VS
Aðalfundur
Aðalfundur knattspyrnu-
deildar Brciðabliks verður
haldinn laugardaginn 29. októ-
ber nk. kl. 13 í Félagsheimili
Kópavogs. Dagskrá: Venjuleg
aðalfundarstörf.
ísland byrjaði vel, sérstaklega í
vörninni, og það tók Tékkana sjö
mínútur að komast á blað. Einar
Þorvarðarson varði þrjú fyrstu
skotin og Alfreð Gíslason kom ís-
landi yfir eftir skemmtilegt gegn-
umbrot. Forystan fór í hendur
Tékka tvívegis, 2-3 og 3-4, en þá
komu þrjú stórgóð íslensk mörk,
tveir þrumufleygar frá Alfreð og
hraðaupphlaup frá Bjarna, og
staðan 6-4. Síðan varð hún 7-5, 8-6
og 9-7, en síðustu tíu mínútur fyrri
hálfleiksins voru hörmulegar,
Tékkar komustí9-ll en PállÓlafs-
son lagaði stöðuna fyrir hlé, 10-11.
ísland jafnaði, 11-11 og 12-12, í
upphafi síðari hálfleiks, tvær
bombur frá Alfreð, en þá komu
öðru sinni fjögur tékknesk mörk í
röð. Staðan var orðin 12-16 og ís-
land átti aldrei möguleika eftir
það. Þó var tveggja marka munur
tvívegis, 14-16 og 16-18, en Tékkar
skoruðu þrjú mörk á lokamínútun-
um og sautjánda mark íslands
gerði Bjarni Guðmundsson í sömu
andrá og lokaflautið gall við, 17-
21.
Það er tæpast sanngjarnt að ráð-
ast mjög harkalega að íslenska lið-
inu eftir þennan leik og það sýndi,
eins og svo oft áður, að mikið býr í
því. Spurningin er bara hvernig
Bogdan tekst til við að móta það
eftir sínu höfði og fá leikmenn til að
meðtaka hinn agaða og árang-
ursríka „Víkingshandbolta".
Það voru ýmsir ljósir punktar í
fyrri hálfleiknum, vörnin og mark-
varsla Einars framan af, og ekki
síst kraftur Alfreðs sem var bestur
íslensku leikmannanna. Skoraði
gullfalleg mörk en varnarhliðin hjá
honum brást af og til. Svo var um
fleiri, og allt of oft tapaðist boltinn
fyrir helberan klaufaskap, var t.d.
tvívegis gefinn beint í hendur
Tékka í upphafi sóknar og þeir
þökkuðu pent fyrir sig með mörk-
um. Kristján Arason var sem klett-
ur í vörninni og átti góðar línusend-
ingar en tapaði boltanum einum of
oft og var of óframfærinn í sókn-
inni. Bjarni var frískur en hann og
fleiri fóru illa með dauðafærin.
Alltof oft varði tékkneski mark-
vörðurinn af línu og úr opnum
færum og þegar slík færi nýtast
ekki, vinnast ekki leikir. Páll Ól-
afsson átti ágæta kafla en aðrir
voru daufir. Sigurður Gunnarsson
og Sigurður Sveinsson fengu ekki
að spreyta sig nægilega, það er ekki
nógu sniðugt að kalla í Sveinsson
frá V.-Þýskalandi og láta hann
bara spila þrjár síðustu mínúturn-
ar. Einar Þorvarðarson sýndi góð
tilþrif í markinu.
Alfreð skoraði 7 markanna,
Bjarni, Kristján og Páll 3 hver og
Þorgils Óttar Mathiesen eitt.
Dönsku dómararnir dæmdu
þokkalega en hafa sýnt betri
frammistöðu hér á landi. - VS.
Gert ráð
fyrir
Dallas!
HSÍ gerir sér fyllilcga grein fyrir
vinsældum Dallas meðal hand-
knattleiksunnenda. Þar af leiðandi
hefst síðari landsleikur íslands og
Tékkóslóvakíu, sem fram fer í
Laugardalshöllinni í kvöld, kl.
19.30. Tilvalið að kíkja á strákana
Og hvetja þá og fara síðan í róleg-
heitunum heim og hvetja JR....
Þurfa meira þrek
„Eg er ánægður méð fyrri hálflcikinn, og þá einkuin varnarlcik
íslenska liðsins. Ilann var reyndar ágætur lengst af. Þessi tcgund
varnar, 3-2-1, er leikin alls staðar, henni þurfum við að beita og
komum til með að gera það í framtíðinni”, sagði Bogdan Kow-
alczyk, landsliðsþjálfari, eftir leikinn.
„Lítil samæfing bitnaði á sóknarleiknum og strákarnir fóru illa
með góð færi. Sumir leikmanna eru ekki komnir inní þá hluti sem
verið er að æfa. Þetta tékkneska lið æfir tíu sinnum í viku og hcfur
gífurlegan kraft og úthald. Við getum barist gegn þeim í þrjátiu
mínútur á fullu eins og málin standa í dag en ekki mikið lcngur.
Mínir menn þurfa að ná upp meira þreki til að standast þeim
snúning. Leikurinn í kvöld er stór spurning, ég veit ekki hve mikinn
kraft íslensku leikmennirnir hafa til að leika tvo svona erfiða leiki í
röð, enda hef ég einungis þjálfað þá í eina viku”.
- Hvers vegna var Kristján Arason ekki hvíldur þegar á leið og
Sigurði Sveinssyni gefi meira tækifæri?
„Sigurður hafði litla sem enga samæfingu fengið með liðinu
þannig að erfitt var að nota hann mikið. Kristján lék alls ekki illa,
hann opnaði t.d. mikið fyrir Alfreð og Bjarna”, sagði Bogdan.
Hann reiknaði með sáralitlum breytingum á íslenska liðinu fyrir
leikinn í kvöld.
-VS
Annar grundvöllur
„Byrjunin var góð hjá okkur en liðið skortir samæfingu”, sagði
Bjarni Guðmundsson frá Wanne-Eickel í Vestúr-Þýskalandi eftir
tapið gegn Tékkum í gærkvöldi. „Þetta er svipaður hópur og við
höfum verið með en nú er æft á allt öðrum grundvelli en áður.
„Bogdan leggur áherslu á það sama og hjá Víkingi, taktiskan
handknattleik, aga og ákveðni. Hann þarf tíma með landsliðið, og
fáist hann, er hægt að ná langt. Viljinn er fyrir hendi, við erum
búnir að hjakka lengi í sama farinu og menn eru reiðubúnir að
leggja mikið á sig. Við berjumst annað kvöld og erum staðráðnir í
að bæta okkur,- gegn þessu tékkneska liði verður allt undir þriggja
marka tapi skref fram á við”, sagði Bjarni Guðmundsson.
-VS
Komast inn í kerfin
„Maður þarf lengri tíma til að komast inn í kerfin hjá Bogdan,
einkum eftir að hafa leikið mjög frjálsan handknattleik með Essen
að undanförnu. Hann er hins vegar afburða þjálfari og mér líst vel á
framtíðina, einkum ef vörnin bætir sig”, sagði Alfreð Gíslason,
stórskyttan frá Akureyri sem nú leikur með Essen í Vestur-
Þýskalandi. „Ég hef lært mikið á stuttum tíma hjá Essen, rúmenski
þjálfarinn okkar er frábær, og liðið leikur geysilega skemmtilegan
handknattlcik. Þetta er samt harður „bíssness” og maður verður
svo sannarlega að skila sínu”, sagði Alfreð.
-VS