Þjóðviljinn - 26.10.1983, Blaðsíða 15
RUVO
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. A virkum
degi. 7.25 Leikfimi.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorð Erlingur Lottsson talar.
9.00 Fréttir
9.05 Morgunstund barnanna: „Leitin að
vagnhjóli" ettir Meindert DeJong
Guðrún Jónsdóttir les þýðingu sina (19).
9.20 Leikfimi. 9.30Tilkynningar. Tónleikar.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.).
10.35 íslenskir einsöngvarar og kórar
syngja.
11.00Ur ævi og starfi íslenskra kvenna
Umsjón: Björg Einarsdóttir.
11.30 „Islenskt mál Endurtekinn þáttur
Jóns Aðalsteins Jónssonar frá laugar-
deginum.
11.40 Freddy Breck og Erling Grönstedt
syngja og leika
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 Létt popplög
14.00 „Kallað í Kremlarmúr" eftir Agnar
Þórðarson Höfundur les (2).
14.30 Miðdegistónleikar Arthur Grumiaux
og Arrigo Pelliccia leika Dúó fyrir fiðlu og
víólu í G-dúr K423 eftir Wolfgang Am-
adeus Mozart.
14.45 Popphólfið - Pétur Steinn Guð-
mundsson.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar. Sinfóníuhljóm-
sveitin i Detroit leikur Tékkneska svitu
op. 39 eftir Antonín Dvorák; Antal Dorati
stj. / Filharmóníusveitin i Berlín leikur
Sinfóníu nr. 39 i Es-dúr K543 eftir
Wolfgang Amadeus Mozart; Karl Böhm
stj.
17.10 Siðdegisvakan
18.00 Snerting Þáttur Arnþórs og Gísla
Helgasona.
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.50 Við stokkinn Stjórnendur: Guðlaug
M. Bjarnadóttir og Margrét Ólafsdóttir.
„Kallað f Kremlarmúr" kl. 14.00.
Agnar Þórðarson heldur áfram lestri
sfnum.
20.00 Ungir pennar Stjórnandi: Hildur
Hermóðsdóttir.
20.10 Útvarpssaga barnanna: „Peyi“ eftir
Hans Hansen Vernharður Linnet les
þýðingu sína (3).
20.40 Kvöldvaka Umsjón: Helga Ágústs-
dóttir.
21.10 Einsöngur Edda Moser syngur lög
eftir Richard Strauss. Christoph Eschen-
bach leikur á píanó.
21.40 Útvarpssagan: „Hlutskipti manns“
eftir André Malraux Thor Vilhjálmsson
les þýðingu sína (12).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.35 í útlöndum Þáttur i umsjá Emils
Bóassonar, Ragnars Baldurssonar og
Þorsteins Helgasonar.
23.15 íslensk tónlist a. Fimm pianólög op.
2 eftir Sigurð Þórðarson. Gísli Magnús-
son leikur. b. Þrjár orgelprelúdíur eftir
Friðrik Bjarnason. Victor Urbancic leikur.
c. Lög eftir Bjarna Þorsteinsson. Sinfón-
íuhljómsveit Islands leikur.
23,45 Fréttir. Dagskrárlok.
RUV
18.00 Söguhornið Pönnukökukóngurinn
- Myndskreytt ævintýri. Sögumaður
Anna Sigriður Árnadóttir. Umsjónarmað-
ur Hrafnhildur Hreinsdóttir.
18.10 Amma og átta krakkar 10. þáttur.
Norskur framhaldsmyndaflokkur gerður
eftir barnabókum Anne-Cath. Vestly.
Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. (Nord-
vision - Norska sjónvarpið).
■ 18.30 Marglit hjörð Bresk náttúrulífsmynd
um starann sem er einn algengasti fugl í
Bretlandi og fer nú óðum fjölgandi hér.
Þýðandi og þulur Óskar Ingimarsson.
18.55 Hlé
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Akstur í myrkri Fræðslumynd frá
Umferðarráði sem leiðbeinir ökumönnum
um notkun Ijósa og ýmsar varúðarreglur
sem að gagni mega koma við akstur i
skammdeginu.
20.55 Vinnuvernd 3. Varnir gegn vinnu-
slysum Fræðsluþáttur um ýmis konar
hættur á vinnustöðum og varúðarráðstaf-
anir til að koma I veg fyrir vinnuslys.
Umsjónarmenn: Ásmundur Hilmarsson
og Agúst H. Elíasson. Stjórn upptöku:
Þrándur Thoroddsen.
21.30 Dallas Bandarískur framhalds-
myndaflokkur. Þýðandi Kristmann Eiðs-
son.
22.15 Richie Cole Bandariskur djassþáttur
með Richie Cole, (altósaxófónn), Bobby
Enriques (píanó) og fleiri djassleikurum.
22.50 Dagskrárlok.
Miðvikudagur 26. október 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
frá I
ndurn
í skjóli
þinghelginnar
J.G skrifar:
Það var sagt um Jón Sigurðs-
son, alþingismann og forseta, að
hann væri „sómi íslands, sverð
þess og skjöldur“. Það þykir nú
kannski heimtufrekja að ætlast til
slíks af þingmönnum okkar nú,
svona upp til hópa, enda er ég
smeykur um að sumir þeirra
kiknuðu undir þeirri kröfu.
En til þess ætti að mega ætlast,
að þeir noti ekki þinghelgina til
árása á þá, sem utan hennar eru,
og geta því ekki svarað fyrir sig á
sama vettvangi og ekki heldur
sótt viðkomandi þingmenn til
saka, þinghelgin verndar hann.
Þetta hefur því miður komið fyrir
og það er hvorki til sónta þingi,
þjóð né landi. Finnist þing-
mönnum að þeir þurfi að svala
sér á Pétri og Páli úti í þjóðfé-
laginu ættu þeir að gera það utan
þingveggja, þar sem báðir standa
jafnt að vígi, en ekki í skjóii þing-
helginnar! Það sýnist ekki vera
ósanngjörn krafa.
Gengisfelling
fyrr og nú
Gamall sjómaður skrifar:
Gengislækkun kemur ekki til
greina, segir ríkisstjórnin. Geng-
islækkun „virkar einungis á sjáv-
arútveginn eins og eiturlyfja-
skammtur á fíkniefnasjúkling,
hún friðar hann í stuttan tíma“,
hefur Mbl. eftir Geir Hallgríms-
syni.
Ósköp eru að heyra þetta.
Hafa ekki velflestar ríkisstjórnir,
sem setið hafa hér á landi allt frá
stríðslokum gripið til gengisfell-
inga æ ofan í æ til hjálpar sjávar-
útveginum, að því er okkur hefur
verið sagt? Hversvegna er gengis-
felling engin aðstoð við sjávarút-
veginn nú ef hún hefur verið það
ætíð áður? Hvað hefur breyst?
Eða hefur þessi gengisfellingar-
pólitík stjórnmálamannanna og
„efnahagsspekinganna" verið
tómur leikaraskapur og vitleysa
frá upphafi? Fróðlegt væri að fá
svör við því.
Útvarp kl. 20.40:
Allt
í blóma
á
Hesteyri
Hesteyri við Hestfjörð má
muna tímana tvenna. Byggð
hófst þar snemma á öldum en
eftir að Norðmaðurinn
M.C.BuIl reisti þar hvalveiði-
stöð árið 1894 fór að myndast
þorp. Bænhús var fyrrum á
Hesteyri og kirkja var reist
þar 1899. Hún var rifin 1960
og flutt til Súðavíkur og gegnir
nú hlutverki sínu þar. Minn-
Þorsteinn Matthíasson
isvarði var reistur á kirkju-
grunninum 1969. í honum er
komið fyrir klukku, sem var í
Hesteyrarkirkju. Er klukkan
frá 1691. Á minnisvarðanum
er og eirskjöldur, sem á eru
letruð nöfn allra þeirra, sem
grafnir eru í kirkjugarðinum.
Á Hesteyri var útgerðarstöð,
hvalveiðistöð, síldarbræðsla og
síldarsöltun, verslun, læknisbú
staður, loftskeytastöð og . sím-
stöð, og um 80 manna byggð.
Byggð tók að dragast saman á
Hesteyri upp úr 1940 og síðan
1952 hefur enginn ntaður átt þar
fasta búsetu.
Á kvöldvökunni í kvöld flytur
Þorsteinn Matthíasson þátt, sem
hann hefur skráð eftir Jóni Guð-
jónssyni fyrrverandi loftskeyta-
manni og símritara, og nefnir Allt
í blóma á Hesteyri. Rekur Jón
þar ýmsar minningar frá þessum
gömlu og góðu dögum og kemur
víða við. Segir hann m.a. frá upp-
hafsárum loftskeytanotkunar og
síma hér á landi. og ýmsum hug
myndunr fólks um möguleika í
margskonar nýtingu þessara
furðuverka. í þá daga datt
mönnum nefnilega ýmislegt í hug
ekkert síður en nú.
-mhg
skák
Karpov að tafli - 221
Á Evrópumeistaramótinu í Skara i Svi-
þjóð sáu menn heimsmeistara Karpov í
slakara formi en dæmi voru til um. Hann
tefldi fimm skákir, gerði fjögur jafntefli og
tapaði einni. Sovéska sveitin sigraði á
minútu en Karpov átti litinn þátt i þeim
sigri. Aftur á móti reyndist hinn 16 ára
gamli Kasparov betri en enginn, því í 6
skákum fékk hann 5V2 vinning og vakti
miklaathygli hversu hugmyndaauðugog
skemmtileg taflmennska hans var. Þá
þegar var farið að tala um Kasparov sem
næsta heimsmeistara í skák. Sigurskák
Englendingsins Tony Miles yfir Karpov
var sérlega athyglisverð ekki sist fyrir
sakir hinnar óvennulegu byrjunar skák-
arinnar. 1. e4 a6? Karpov, sem hafði
hvítt, náði sér aldrei á strik og tapaði.
Niðurlagið á þessar frægu skák varð
sem hér segir:
Karpov - Miles
40.... Hh1 +
41. Kd2 Hh2
42. g3 Bf3
43. Hg8 Hg2
44. Ke1 Bxe2
45. Bxe2 Hxg3
46. Ha8 Bc7
- og Karpov gafst upp.
bridge
Þegar leið á fyrri lotu isl.móts í
tvímenning kvenna var „mýktin"
ekki eins allsráðandi í sögnum og í
Ijós kom að 6. sagnstigiö var ekki
óyfirstíganlegt.
Spii no. 13, gjafari N/Allir á:
Noröur
S 9
H KG82
T 1062
L DG876
Vestur
S D853
M 9
T AG753
L A104
Austur
S G76
H 65
KD984
952
T
L
Suöur
S AK1042
H AD10743
T -
L K3
Reglulegt sælgæti þessi kort í
suður og þá eru „moiarnir“ í norður
ekkert slor heldur.
Nú, tvö pör af ellefu hittu beint í
mark, og annað þeirra, Steinunn
Snoripdóttirog Þorgerður Þórarins-
dóttir, eitt okkar sterkasta kvenna-
par gegnum tíðina. Þær voru ekkert
að tvínóna:
N
pass
4-H
A
pass
pass
S
2-H
6-H
pass
Dobl
Ágæt sagnsería eftir Vínar-
laufinu.
Gcetum
tungunnar
Rétt er að segja: Ég þori það, þú
þorir það, hann eða hún þorir það
þeir, þær eða þau þora það.
Sagt var: Israelsmenn réðust i
Palestínumenn og varð mannfall
liði beggja.
Rétt væri:... og varð mannfall í lið
hvorratveggju.
(Ath.: báðir er einungis hægt ac
segja um tvo, EKKI um tvenna.)