Þjóðviljinn - 26.10.1983, Blaðsíða 10
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Migvikudagur 26. október 1983
Minning___________
Kristín Jensdóttir
frá Árnagarði
F. 11. júlí 1892 —
Látin er í hárri elli góð kona,
Kristín Jensdóttir, fædd að Torfa-
stöðum í Fljótshlíð. Foreldrar
hennar voru Jens Guðnason bóndi
í Árnagerði og kona hans Sigrún
Sigurðardóttir bæði ættuð úr Rang-
árþingi.
Kristín ólst upp í systkinahópi í
Árnagerði og hvarf síðan til
Reykjavíkur á 2. áratug þessarar
aldar. Árið 1920 giftist hún Birni
Árnasyni sjómanni frá Móum á
Kjalarnesi. Hann var stýrimaður á
togaranum Robinson, sem var eitt
þeirra skipa sem týndist með allri
áhöfn í Halaveðrinu 25. febrúar
1925. Með Robinson fórust og
tveir bræður Björns ásamt systur-
manni Kristínar.
D. 13. okt. 1983
Kristín og Björn höfðu eignast
sonárið 1921. Jens hét hann og lést
úr berklum tveggja ára að aldri.
Við lát manns síns stóð Kristín uppi
með son þeirra Árna hálfs annars
árs og ófædda dóttur, Birnu, en
hún fæddist 29. maí 1925.
Nú hefst erfiður tími í lífi Kristín-
ar. Hún brýst með börnin sín tvö
austur í Fljótshlíð og gerist ráðs-
kona hjá Klemens Kristjánssyni til-
raunastjóra. Hjá honum er hún allt
fram til ársins 1931. Þá heldur hún
aftur til Reykjavíkur að afla börn-
um sínum menntunar. Hún tók að
sér alla vinnu sem til féll, ræstingar
og þjónustustörf jöfnum höndum.
Það vita varla aðrir en þeir sem
reynt hafa hve þungbær kreppuár-
in voru alþýðuheimiiunum á þessu
landi, þótt beggja foreldranna nyti
við. En Kristín lét ekki deigan síga.
Árni komst í gegnum nálarauga
Menntaskólans í Reykjavík og hóf
þar nám haustið 1937. Á
menntaskólaárum hans kynntist ég
þessari fjölskyldu og hef átt að vin-
um æ síðan. Dugnaður og
þrautseigja Kristínar við að búa í
haginn fyrir börnin var aðdáunar-
verð. Þrátt fyrir langan vinnudag
tók hún ætíð á móti skólafélögum
þeirra systkinaopnumörmum í litlu
íbúðinni á Spítalastígnum. Þar
skorti aldrei þann yl og hlýju sem
svo einkenndi alla framgöngu þess-
arar konu fyrr og síðar. Heimili
þeirra var eins og félagsmiðstöð.
Hvort það voru utanbæjarmenn
eða innan, ættingjar eða vanda-
lausir, allir voru velkomnir á öllum
tímum sólarhringsins. Alla tíð
sama brosið og hýran í augunum,
sem var Kristínu eins sjálfsagt og
að draga andann. Réttlætiskennd
var henni æ ofarlega í huga og rétt-
ur kvenna heilagt baráttumál. Árni
sonur hennar varð læknir og hefur
átt langa og farsæla starfsævi enda
ekki farið varhluta af mannkostum
móður sinnar. Hann er kvæntur
Guðnýju Bjarnar og eiga þau stór-
an barnahóp. Átti Kristín hauk í
horni þar sem þau hjón og börnin
fóru.
Birna leitaði ekki eftir eins löngu
námi og bróðir hennar. Hún var
hvers manns hugljúfi og sinnti
margvíslegum störfum. Síðustu
árin sem hún lifði var hún sjúkra-
liði og gat sér hið besta orð í hví-
vetna. Hún varð bráðkvödd 25.
nóvember 1980 og mikill harm-
dauði þeim sem hana þekktu. Hún
var gift Inga Lövdal og hefur hann
reynst tengdamóður sinni mjög
vel.
Kristín hélt reisn sinni allt fram
til hinstu stundar. Það er styrkur
manns í þessu lífi að eiga minningar
um elskulegar manneskjur eins Og
hana Kristínu.
Bestu samúðarkveðjur sendi ég
tveimur eftirlifandi systkinum
hennar Guðrúnu og Guðna, svo og
öllum öðrum ættingjum og vensla-
fólki.
Hjálmar Ólafsson.
Jarðaförin fer fram kl. 15.00 í dag,
miðvikudag, frá Fossvogskirkju.
Hinn 13. október síðastliðinn
lést hún amma okkar. Það koma
upp blendnar hugsanir þegar fólk á
hennar aldri fellur frá. Hún var
komin á tíræðisaldur, blessuð.
Maður verður jafnvel svolítið
hugsandi yfir því hvers vegna svona
gamalt fólk þarf að eiga í langri
baráttu við sjúkdóma sem virðast
svo vonlausir og tilgangslausir. En
amma var alltaf svo sterk og sá
styrkleiki var líka fyrir hendi í bar-
áttunni við dauðann. En eftir
dauðann finnur maður fyrir því
tómarúmi sem eftir er og byrjar að
sakna þrátt fyrir vissu um kær-
komna hvíld.
Alltaf man maður eftir ömmu
sem hárri myndarlegri konu sem
var vel tilhöfð alveg til hins síðasta.
Hún var alltaf hraustleg og missti
úr fáa vinnudaga vegna veikinda
þó aðhún hætti ekki að vinna fyrr
en hún varð áttræð, og það í erfiðis-
vinnu. Og þó að hún hætti að vinna
úti á þessum aldri var hún nú alls
ekki hætt að vinna og var alltaf jafn
kappsöm við allt sem hún gerði.
Talandi nú ekki um þegar hún
komst í berjamó. Slíkt var kappið
að hún hafði ekkert fyrir því að
hoppa um kjarr og lyng, kaffisop-
inn og nestið, sem meðferðis var,
gleymdist alveg.
Sjálfsagt mátti hún ekkert vera
að því að veikjast því hún var alltaf
svo upptekin við að heimsækja
gamlafólkið. Okkur barnabörnun-
um fannst hún alltaf vera gömul en
hún var ekki eldri en það að henni
fannst hún verða að líta eftir þessu
fólki sem sumt hvert var hennar
jafnaldrar. Gott var að heimsækja
ömmu því að þar mætti okkur
stöðugt hlýhugur og rausnar-
skapur.
Ámma hafði mikinn áhuga á
verkalýðsmálum og fylgdist ineð
baráttu verkalýðsins fram undir
það síðasta. Fyrir nokkrum árum
sat amma gamla á fundi með einum
sonarsyni sínum þar sem margir af
fulltrúum hinnar sósíalísku hreyf-
ingar voru. Þarna leið henni vel og
þegar Nallinn var leikinn mátti sjá
tár á hvarmi gömlu konunnar og
ungi sósíalistinn varð snortinn af
stemmningu þeirrar gömlu.
Við kveðjum þig amma með
söknuði. Njóttu hvíldarinnar vel.
Þú átt það svo sannarlega skilið
eftir langan vinnudag.
Vilborg Sigríður,
Kristín, Björn Theódór,
Einar Sveinn, Árni
og Vilhjálmur Jón.
AUGLÝSING
Hér meö er auglýst til umsóknar aöstaöa í
Iðngöröum Ólafsfjaröar. Nánari upplýsingar
veitir bæjarstjóri á skrifstofu sinni aö Kirkju-
vegi 12, Ólafsfirði og í síma (96) 62214.
Umsóknarfrestur er til 1. desember 1983.
Ólafsfirði 21. október 1983.
Bæjarstjórinn
Þjónustusíða Þjóðviljans
Reyking og sala á matvælum
iRO SW,2C2'
ý REYKOFNINN HF.
VJ/ Skemmuvegi 14 200 Kópavogi
Hellusteypan
r
STETT
Hyrjarhöfða 8. - Sími 86211.
II-
ALHLIÐA PÍPULAGNINGAÞJÓNUSTA
Sveinbjöm G. Hauksson
Pípulagningameistari
Simi46720
Ari Gústavsson
Pipulagningam
Simi 71577
Nýlagnir
Jarölagnir
Viðgeröir
Breytingar
Hreinsanir
VÉLA- OG TÆKJALEIGA
Alhliða véla- og tækjaleiga.
Heimsendingar á stærri tækjum.
S/áttuvé/a/eiga.
Múrara- og trésmiðaþjónusta,
minni háttar múrverk og smíðar.
BORTÆKNI SF.
Vélaleiga, sími 46980 — 72460,
Nýbýlavegi 22, Kópavogi,
(Dalbrekkumegin)
Steypusögun — Kjarnaborun — Vökvapressa.
STEYPUSÖGUN
vegg■ og góltsögun
VÖKVAPRESSA
í múfbrot og fleygun
KJARNABORUN
fyrir öllum lögnum
Tökum aö okkur verkefni um allt land. — Fljót og góó
þjónusta. — Þrifaleg umgengni.
BORTÆKNIS/F
trá ki. a—23. Vélaleiga S: 46980 - 72460.
TRAKT0RSGR0FUR
L0FTPRESSUR
SPRENGIVINNA
ifei 46297
GEYSIR
Bílaleiga____________
Car rental________________
BORGARTÚNI 24- 105 REYKJAVÍK, ICELAND - TEL. 11015
LIPUR ÞJ0NUSTA
VIÐ LANDSBYGGÐINA
PÖNTUM - PÖKKUM
SENDUM- SÆKJUM
TRYGGJUM
Leyfið okkur að létta ykkur sporin og losa
ykkur við kvabb á vinum og vandamönnum.
• •••
Ekkert er auðveldara en slá á þráðinn
og afla upplýsinga.
• •••
Opið frá kl. 9-19 alla virka daga.
Símsvari opinn allan sólarhringinn.
^7
JLandsþjonustan s.f.
Súðavogi 18. S.84490 box 4290
GLUGGAR
0G HURÐIR
Wönduð vinna á hagstæðu verði
Leitið tilboða.
ÚTIHURÐIR
Dalshrauni 9, Hf.
S. 54595.