Þjóðviljinn - 26.10.1983, Qupperneq 16
dwðvhhnn
Miðvikudagur 26. október 1983
A&alsfmi Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tima er
haegt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er
hægt að ná i afgreiðslu blaðsins i síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348
og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld.
Aöalsími Kvöldsími Helgarsími
81333 81348 81663
Starfsfólkið bætir Alusuisse
hækkunina!
Skipt á sléttu
Kjaraskerðing ríkis-
stjórnarinnar skilar ál-
hringnum aftur öllu
Nordalsálaginu í Ziir-
ich-samningnum.
í sjónvarpsþætti um orku-
verð og orkunýtingu í gær-
kvöldi upplýsti Hjörleifur Gutt-
ormsson að í bráðabirgðasam-
komulagi ríkisstjórnarinnar og
Alusuisse frá 23. sept. sl. hefði
auðhringurinn fallist á „tíma-
bundið álag” á raforku en feng-
ið á móti í vor stórlækkaðan
launakostnað samkvæmt kjara-
skerðingarlögum ríkisstjórnar-
innar, auk alls annars í þessum
uppgj afasamningi.
Miðað við ári 1982, sem er það
síðasta sem reikningar liggja fyrir
um hjá ísal og Landsvirkjun, kem-
ur í ljós að 25% kjaraskerðing
starfsmanna hefði lækkað launa-
ko.stnað ísal um 46 m. kr.það ár,en
3 rnill í raforkuverðshækkun (úr
6,5 í 9,5) hefðu skilað 49 millj.
króna til Landsvirkjunar það árið.
Hér er því nánast um sömu upp-
hæðir að ræða. Pó að hlutföllin
Starfsmenn álversins greiða atkvæði á fundi fyrir skömmu.
breytist eitthvað á yfirstandandi ári
er ljóst, að Alusuisse sleppur að
mestu við að greiða í reynd við-
bótarálagið, sem samið er um til 1
árs, í íslenskt þjóðarbú.
Árið 1975 var skipt á raforku-
verðshækkun og skattalækkun, nú
eru skiptin raforkuverðsálag og
launalækkun. Þetta er verklag auð-
hringsins eftir formúlunni um „give
and take” og Jóhannes Nordal og
Sjálfstæðisflokkurinn eru orðnir
þjálfaðir í að beyga sig undir þá
reglu.
-ekh
Á leið til fundar í ráðherrabústaðnum í gær
„Það er munur að vera á góðum bíl”, sagði forsætisráðherra er hann steig Magnús L. Sveinsson, formaður
út úr Blazer-jeppanum góða. (Ljósm. Magnús). VR.
Guðmundur J. Guðmundsson, for- Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ.
maður Verkamannasambandsins.
Fyrirspurn um gæðamál á alþingi í gær
Tæplega tvær milljónir úr
gengismunars j óði
En hvað hefur Jóhann Briem
grætt á ,,gæðamálum”?
verið að umfjöllun í fjölmiðlum um
gæðamál með miðlun upplýsinga.
Framleitt hefur verið kynningar-
og fræðsluefni á myndböndum til
notkunar í fjölmiðlum og á vinnu-
stöðum”.
Af þeim tæplega tveimur miljón-
um króna sem ráðstafað hefur ver-
ið fóru í:
1. Ráðgjöf og þjónusta kr.
366.986.-
2. Kynning og fræðsla (Mynd-
bandagerð, upptaka, laun aðstoð-
armanna og önnur aðstoð) kr.
642.463.-
3. Auglýsingar kr. 440.684.-
{ aðra liði fóru tæplega 130 þús-
und (tilraunamat), 100 þúsund í
ráðstefnu um gæðamál, 178 þús-
und í styrki til tilrauna og 85 þús-
und til handbókar í fiskvinnslu.
Skúli Alexandersson og Svavar
Gestsson gagnrýndu vinnubrögð og
árangursleysi ráðuneytisins við-
víkjandi gæðamálum. Svavar benti
á að komið hefði fram að Jóhann
Briem hefði samhliða störfum sín-
um fyrir ráðuneytið verið að grauta
í fleiri fyrirtækjum sem hefðu haft
ágóða af því starfi. Ýmislegt benti
til að ráðuneytið hefði unnið með
þumalfingrunum að einu mesta
nauðsynjamáli þjóðarinnar, sem
væri að koma gæðamálunum í gott
horf. —óg
„Sjávarútvegsráðuneytið
hefur varið til gæðamála
1.943.832 krónum af gengis-
munarfé ársins 1982”, sagði Hall-
dór Ásgrímsson ráðherra í svari
við fyrirspurn Skúla Alexand-
erssonar um ráðstöfun fjárins
til gæðamála á alþingi í gær.
Halldór sagði að í árslok 1982
hefði þáverandi sjávarútvegs-
málaráðherra ráðið Jóhann
Briem til að annast skipulag og
stjórnun fræðslu og kynningar-
starfs.
Ráðherra sagði: „Stuðlað hefur
Hjartaskurðdeild komið á fót?
Ekki næst í röðinni
segir Matthías Bjarnason heilbrigðisráðherra
- Það liggur meira á að efla
rannsóknaraðstöðu og hjarta-
þræðingar heldur en koma upp
hjartaskurðlækningadcild við
Landspítalann, sagði Matthías
Bjarnason heilbrigðisráðherra í
svari við fyrirspurn Svavars
Gestssonar um hvort ekki yrði
séð svo um að slíkri deild yrði
komið á laggirnar á næstunni.
Svavar sagði fjárhagslegar,
mannlegar og tæknilegar rök-
semdir hníga að því að slíkri deild
yrði komið á fót. Matthías
Bjarnason kvaðst því í sjálfu sér
hlynntur, en önnur verkefni væru
framar í forgangsröðinni.
Davíð Aðalsteinsson, Eiður
Guðnason, Stefán Benediktsson,
Guðmundur Einarsson, Guðrún
Agnarsdóttir og Birgir ísleifur
Gunnarsson lýstu öll yfir stuðn-
ingi flokka sinna við að slíkri
deild yrði komið á fót.
—óg