Þjóðviljinn - 17.11.1983, Side 15
Fimmtudagur 17. nóvember 1983 1 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15
RUV6>
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Á virkum
degi. 7.25 Leiktimi.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorð - Gísli Friðgeirsson talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: „Katrín"
eftir Katarína Taikon Einar Bragi les þýð-
ingu sína (3).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar.
9.45 Þingfréttir.
Einar Bragi heldur áfram lestri
sögunnar „Katrín“ í morgun-
stund barnanna kl. 9.05
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.).
10.45 „Ég man þá tíð“ Lög frá liðnum árum.
Umsjón: Lóa Guðjónsdóttir.
11.15 Kann ekki við að tapa Þórarinn Björns-
son ræðir við Björn Pálsson fyrrum bónda
og alþingismann á Ytri-Löngumýri í Austur-
Húnavatnssýslu. Fyrri hluti.
11.45 Tónleikar.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynning-
ar. Tónleikar.
14.00 Á bókamarkaðinum Andrés Björnsson
sér um lestur úr nýjum bókum. Kynnir: Dóra
Ingvadóttir.
Þórarinn Björnsson ræðir við
Björn á Löngumýri kl. 11.15.
14.30 Á frfvaktinni Margrét Guðmundsdóttir
kynnir óskalög sjómanna.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir.
16.20 Sfðdegistónleikar György Pauk og
Peter Frankl leika Rðlusónötu í A-dúr K. 526
eftir Wolfgang Amadeus Mozart/Mstislav
Rostropovitsj og Martha Argerich leika Sell-
ósónötu í g-moll op. 65 eftir Frédéric Chop-
in.
17.10 Sfðdegisvaka
18.00 Af stað með Tryggva Jakobssyni.
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. Daglegt
mál. Erfingur Sigurðarson flytur þáttinn.
19.50 Vlð stokkinn Stjórnendur: Guðlaug
María Bjarnadóttir og Margrét Bjamadóttir.
20.00 Halló krakkar! Stjórnandi: Jórunn Sig-
urðardóttir.
20.30 Rás 1 b -fræðilegur möguleiki? (Þetta
er ekki það sem þið haldið). Umsjón: Ölafur
H. Torfason. (RUVAK).
21.30 Einsöngur f útvarpssal Inga Maria
Eyjólfsdóttir syngur þjóðlög i útsetningu
Jóns Ásgeirssonar lög e. Kari 0. Runólfs-
son, Eyþór Stefánsson, Sigfús Einarsson,
Jón Þórarinsson og Þórarin Guðmundsson.
Ólafur Vignir Albertsson leikur á píanó.
21.55 Ljóð eftir Ara Jósefsson Herdís Þor-
valdsdóttir les.
22.15 Tónleikar.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins. Orð kvöldsins.
22.35 I beinu sambandi milli landshluta. Helgi
Pétursson og Kári Jónasson stjórna um-
ræðuþætti í beinni útsendingu frá tveimur
stöðum á landinu.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
\
G42 D72 3
ÁK8 DG105
Á9764 K1083
95 ÁK103
K976 6 DG52 G864
Weichel vakti á 1 tígli í Vestur,
Norður sagði 2 tígla (Michaels cue-
bid), Austur dobl, Suður 3 spaða og
yfir 5 tíglum fórnaði Norður í 5
spaða, utan hættu gegn á. Á flest-
um borðum varð lokasögnin sú
sama og alls staðar fóru 5 spaðar 3
niður, 500, nema við þetta borð.
Útspil Vesturs var spaðatveir,
áttan átti slaginn, smátt hjarta úr
borði, sem Vestur fékk á áttuna og
meiri spaði. Tekið í borði, hjarta
trompað, tígull trompaður, hjarta
trompað og smáu laufi spilað að
drottningu. Smith stakk upp laufa-
kóng og spilaði tígulkóng sem var
trompaður í borði, síðasta trompið
tekið og laufi spilað úr borði. í fjög-
urra spila endastöðu var Smith inni
á laufaás og nú spilaði hann hjarta-
drottningu og Suður var þvingaður
með laufagosa og litlu hjónin í tígli.
Vörnin átti því afganginn af slög-
unum, fjórir niður. Ath.
Karpov að tafli - 235
Ólympíuskákmótið á Malta varð
eitthvert erfiðasta, mest spennandi
og óvenjulegasta Olympíumót sem
haldið hefur verið. Eyjaskeggjar,
sem ekki hafa lagt sig eftir neyslu-
háttum Vesturlandabúa, réðust
ekki á garðinn þar sem hann er
lægstur þegar þeir ákváðu að halda
þetta mót. Margt fór reyndar úr-
skeiðis í skipulagningu, þó einkum
þau atriði sem sneru að aðbúnaði
keppenda en.flestar þátttökusveitir
urðu að gera sér að góðu ísköld og
óupphituð herbergi sem voru áreið-
anlega á mörkum þess að geta kall-
ast mannabústaðir. íslensk.u sveit-
lin'ni sem var skipuð þeim Friðriki
Ólafssyni, Helga Ólafssyni, Jóni L.
Árnasyni, Jóhanni Hjartarsyni og
Inga R. Jóhannssyni áskotnuðust
slík híbýli en hin sovéska, skipuð
Karpov, Polugajevskí, Geller, Tal,
Blashov og Kasparov krækti sér
hinsvegar í bestu hugsanlegu að-
stæður á einu af fáum hótelum í
höfuðborginni Valetta. Það varð
snemma Ijóst að hin ægisterka sov-
éska sveit myndi eiga við erfiðleika
að etja í mótinu. Þegar í 1. umferð
varð sveitin að gera sér að góðu
nauman sigur yfir Venezúela. Við
það fékk ungverska sveitin byr und-
ir báða vængi. Karpov var seinn í
gang, Polugajevskí virtist ekki geta
unnið eina einustu skák og Tal var
eitthvað miður sín. Aðeins stjarnan
Kasparov fékk vinningana á færi-
bandi og það með stórkostlegum
tilþrifum. Loks komst Karpov á skrið
þegar hann lagði Tékkann Hort að
velli í sögulegri viðureign:
m, mr —
11 B 11A!!
mjkm o
A íH JL A íé
m « A
m
abcdefgh
Karpov - Hort
60. Bxg6! Dxh6
(Ekki 60. -fxg6 61. h7+! og vinnur).
61. Bxf7+! Kh7
62. Df5+
- og Hort gafst upprEftir 62. - Kg7
63. e6 eða 63. Bxc4 bxc4 64. Dg4+
er öllu lokið.
bridge
i gær sáum við spil frá Sunday
Times tvímenningsmótinu 1973,
sem Ásmundur og Hjalti tóku þátt í.
Þeir náðu þar 10. sætinu af 22.
Voru fyrir ofan pör einsog
Flint-Cansino, Stayman-Mitchell,
Lebioda-Wilcosz, Ortiz Pat-
ino-Bernasconi o.fl.
Hér er fallegt varnarspil frá þessu
móti. Peter Weichel sem náði 2.
sæti á móti þ.v. félaga sínum Tom
Smith, nælir sér hér í gulltopp:
ÁD1085
97432
Flugvallargerð þar og hér
En, erum við ekki sjálfir að
kalla yfir okkur þessar ógnir með
því að selja land okkar undir víg-
hreiður? Jú, auðvitað. Það er
heldur ekki við öðru að búast
þegar ráðamenn okkar eru orðnir
svo sýktir af pólitískri blindu, að
þeir geta ekki orðið gert sér grein
fyrir hvað er rétt eða rangt.
Kannski eru þeir hættir að láta
okkur vita hvað þeir hafa í
hyggju?
Þegar Ingi mátaði Jón
Búandkarl skrifar:
Það var heldur bágborin
frammistaða hjá honum Jóni
mínum Magnússyni þegar hann
var að ræða við Inga Tryggvason
um landbúnaðarmálin í sjónvarp-
inu á dögunum. Ég held næstum
að hann hafi fundið það sjálfur.
Jón byrjaði með miklum
bægslagangi, veifaði í kringum
sig talnadáíkum, sem honum
fannst svo merkilegir, að hann
fór að sýna þá á skjánum. En ekki
hafði Ingi fyrr tekið á þessum
tölum Jóns en þar stóð ekki
steinn yfir steini. Og það var
sama upp á hverju Jón fitjaði,
hann var allstaðar mátaður.
Sjálfsagt má ýmislegt finna að
verðlagningarkerfi búvara og
enginn hefur á móti skynsam-
legum ábendingum um lagfær-
ingu á því. Jón fann kerfinu flest
til foráttu en sú gagnrýni reyndist
nú á ærið ótraustum grunni
byggð, enda bert, að maðurinn
vissi lítið um hvað hann var að
tala. Og þegar svo hafði að hon-
um kreppt, að hann komst ekki
Iengur hjá því að nefna hváð ætti
að koma í staðinn fyrir það kerfi,
sem hann vildi feigt, þá var það
frjáls verðmyndun. Með öðrum
orðum: það átti að hverfa aftur
fyrir tíma afurðasölulaganna þeg-
ar skipulagsleysið um nýtingu,
meðferð og sölu búvaranna var
að ríða bændastéttinni að fullu.
Það var óskaástand Jóns
Magnússonar.
Hvernig er það annars, er það
kannski frjáls verðmyndun, sem
ræður taxta lögfræðinga?
Útvarp - RÚVAK kl. 20.30
Rás 1-b - fræði-
Magnús Finnbogason skrifar:
Flugvallargerð
á Grenada:
Því hefur verið haldið fram að
innrás Bandaríkjamanna á Gren-
ada hafi verið gerð í þeim tilgangi
að koma í veg fyrir byggingu
hernaðarstöðva þar.
Bandaríkjamenn, sem að sjálf-
sögðu hafa fylgst vel með því sem
þarna var að gerast, hafa álitið að
nú væru Rússar og Kúbumenn að
koma sér upp herstöðvum til ár-
ása á Bandaríkin, með gerð flug-
valla og annarra mannvirkja.
Það er kannski ekki að furða þótt
Bandaríkjamönnum hafi verið
eitthvað órótt vegna þessara að-
gerða Rússa og Kúbumanna í ná-
grenni við sig, því að tortryggnin
milli þessara þjóða er orðin að
hættulegri geðveiki og innrásin á
Grenada afleiðing af því ástandi.
Flugvallargerð
á Islandi
Við íslendingar þurfum líka að
byggja flugvelli og radarstöðvar,
segja ráðamenn þjóðarinnar. Við
þurfum varaflugvöll og flugvöll
til að auka ferðamannastraum til
Iandsins. Og svo þurfum við radar-
stöðvar til að fylgjast með flug-
vélum og öðrum óboðnum gest-
um, sem eru á sveimi hér á
norðurslóðum. Svo þurfum við
líka olíuhafnir fyrir skipaflota
okkar.
Auðvitað eru þetta allt blekk-
ingar, til að leyna hinum raun-
verulega tilgangi. Útlent herveldi
er að leggja undir sig landið til að
koma hér upp hernaðarstöðvum.
En til þess þurfa þeir líka inn-
lenda agenta til að blekkja þjóð-
ina. Okkur er talin trú um að
þetta sé gert til að verja landið
fyrir innrás austrænna villi-
manna. Hætta á hernaðarátökum
hér er nú þegar fyrir hendi og er
því meir sem uppbygging hernað-
armannvirkja hér eykst. Það
verður að gera ráð fyrir því, að
sálarástand Rússanna sé ekkert
betra en Ameríkana og þeir til
alls vísir. Enda hafa þeir orðið
fordæmið frá Ameríkönum
hvernig bregðast eigi við í svona
tilfelli, (innrás Ameríkana á
Grenada).
Náttúrlega þurfa Rússarnir
ekki að gera innrás hérna til að
eyðileggja hernaðarmannvirki
Ameríkana. Það er nóg fyrir þá
að snúa eldflaugaskotpöllum sín-
um í átt að íslandi og fer það þá
eftir geðþótta þeirra hvenær þeir
hleypa af og hætt er þá við að lítið
verði um varnir þegar tugir flug-
skeyta rigna yfir okkur og ann-
arra nágrannaríkja þeirra.
legur möguleiki
Rás lb, fræðilegur möguleiki,
(þetta er ekki það, sem þið hald-
ið). Þannig hljóðar yfirskrift
þáttar, sem Ólafur H. Torfason
sér um í Akureyrarútvarpinu í
kvöld. - Jú, sjáðu til, sagði
Ólafur, Reykjavík er með rás 1 og
rás 2 og þykir eðlilegt að kenna
þær við bókstafinn A. En nú
erum við hér Itka komnir með
okkar rás og getum þá, eftir
atvikum og svo komnu máli, fall-
ist á að hún sé kennd við bókstaf-
inn B.
Þessi útsending á aðeins að ná
til Norðurlands þannig að það
væri skynsamlegt fyrir Reykvík-
inga að loka bara fyrir tækin hjá
sér. En ef flutningurinn lekur
eitthvað út fyrir Norðlendinga-
fjórðung þá er það ekki okkar sök
heldur fyrir einhver mistök hjá
Pósti og síma, og á ábyrgð þeirrar
stofnunar. Innihald þáttarins er
ákaflega blandað, er á ýmsu tekið
og víða komið við. Meðal þeirra,
sem þarna koma fram, eru leikar-
arnir Hjalti Rögnvaldsson og
Þráinn ÍCarlsson, Erla Stefáns-
dóttir söngkona, tónlistarmenn-
irnir Hannes Árnason og Krist-
ján Guðmundsson. En ég er ekki
einn um þennan þátt, sagði
Ólafur H. Torfason
Ólafur, - þótt ég hafi umsjón
með honum. Að gerð hans hefur
Reynir Antonsson einnig unnið.
-mhg