Þjóðviljinn - 29.11.1983, Síða 1
MOÐVIUINN
„Sókn með
kjarnorkuvopn-
um er besta
vörnin,“segir í
kennslubók fyrir
bandaríska her-
menn í Evrópu.
Sjá5
nóvember 1983
þriðjudagur
273. tölublað
48. árgangur
Þjóð-
viljíim á
skákein-
víginu í
London
„Rétt í þann mund sem yflr-
dómarinn hafði sett klukkuna I
gang birtist Viktor Kortsnoj á
sviðinu. Skákmennirnir tókust
þéttingsfast í hendur og síðan
hófu þeir taflið.“
í frásögn Helga Ólafssonar skák-
meistara og blaðamanns Þjóðvilj-
ans af gangi mála á áskorenda-
einvígi þeirra Kasparovs og Korts-
nojs, sem hann fylgist með þar
ytra, er andrúmsloftinu lýst á
keppnisstað og umfjöllun fjölmiðla
í Bretlandi um einvígið. Helgi rek-
ur gang mála í fjórðu skákinni sem
hófst sl. sunnudag og var fram
haldið í gærkvöld.
Lesið frásögn
Helga Ólafsson-
ar á bls. 6-7.
Útgerðin á Stór-Reykjavíkursvæðinu og Suðumesjum:
Öllum togurunum lagt
sjómenn og landverkafólk sent í álverið?
Þegar Halldór Ásgrímsson sjavarútvegsráðherra hafði
lokið ræðu sinni við upphaf fiskiþings í gær spurði Ingólfur
Arnarson, starfsmaður Fiskifélagsins, hvort skilja bæri um-
mæli ráðherrans á þann veg að Ieggja ætti öllum togurum á
Stór-Reykjavíkursvæðinu og á Suðurnesjum því sú tala - 30
togarar - sem ráðherrann ætlaði að leggja á „helstu þéttbýl-
issvæðunum“ samsvaraði tölu togara á þessu svæði.
Halldór hvort það hefði verið rætt í
ríkisstjórninni að fækka togurum í
Reykjavík, Hafnarfirði og á Suður-
nesjum um 30 eins og haft hefur
verið eftir sjávarútvegsráðherra.
Hann benti á að á þessu umrædda
svæði væri aðeins 31 togari. Hann
benti ráðherra á það að þessi hug-
mynd væri litin alvarlegum augum
af fólki á svæðinu.
Halldór svaraði fyrirspurninni
og sagðist aldrei hafa sagt að fækka
ætti togurum um 30 á þessu svæði.
Hann sagði hinsvegar ljóst að á
umræddu svæði væru mestir mögu-
leikar fyrir það fólk sem missir at-
vinnu sína ef togurum er lagt, að fá
vinnu. Hann sagðist ennfremur
vera orðinn leiður á að ræða þessi
mál án þess menn ræði það, hvarog
hvernig fækka eigi skipum.
' - S.dór
Orkusóun við upphitun húsa
Engin skáldsaga
er nærumræðu
°gáhyggju tim-
ansensagaP.C.
Jcrsilds, eftir
flóðið, segir
Arni Bergmann í
ritdómier hann
nefnir: Á rústum
mannlegs félags.
Hægt væri að spara
gífúriega Ijármuni
Pegar fiskimálastjóri hafði sett
fiskiþingið ávarpaði sjávarútvegs-
ráðherra Halldór Ásgrímsson
þingið. Hann ræddi einkum mark-
aðsmál fiskiðnaðarins en vék þó að
öðrum atriðum svo sem hinum
óvekjandi vanda sem við blasir,
eins og hann komst að orði, og
fækkun togara.
Halldór sagði að víða útum land
stæði eitt togskip undir allri verð-
mætasköpun í viðkomandi byggð-
arlagi. Ef þessu skipi væri lagt væri
grundvöllurinn í reynd hruninn.
Annað væri uppá teningnum þar
sem þéttbýli er meira. Þar væru
meiri möguleikar til uppbyggingar
nýrra atvinnuvega og stækkunar á
þeim sem fyrir eru. Svo dæmi væri
tekið væri nú rætt um að stækka
álverið í Straumsvík um helming,
en ekki væru uppi raddir um orku-
frekan iðnað á Vestfjörðum.
Hér fór ekki á milli mála við
hvað ráðherra átti. Að ræðu hans
lokininni svaraði hann fyrirspurn-
um. Þá um leið stóð upp Ingólfur
Arnarson, starfsmaður Fiskifélags-
ins og fulltrúi á Fiskiþingi og spurði
segir Ingi Hans
Jónsson
á Grundarfirði
„Eigandi 140 fermetra steinhúss
hér á Grundarfírði gæti sparað sér
um 16.000 krónur á ári við upphit-
un ef hann einangraði hús sitt eins
og reglugerðir gera ráð fyrir. Hann
kaupir núna 53.273 kflóvattstundir
á ári til upphitunar en þyrfti aðeins
að kaupa 30.471 kflóvattstund ef
hann einangraði betur“, sagði Ingi
Hans Jónsson á Grundarfirði í
samtali við blaðið í gær.
Ingi Hans situr í Húshitunar-
nefnd Samtaka sveitarfélaga í
Vesturlandskjördæmi og hefur
nefndin unnið að athugun á leiðum
til að spara orku við upphitun húsa.
„Þessi nefnd var sett á laggirnar í
apríl 1982 en upphaf þessarar um-
ræðu hér.á Vesturlandi voru grein-
ar sem við Alþýðubandalagsmenn
á Grundarfirði skrifuðum í blað
okkar Birtingu á árunum 1981-82.
Þar kom m.a. fram að við sem
búum á þeim svæðum sem nota raf-
magn og olíu til upphitunar og
erum með 23.2% allra húsa í
landinu, greiðum 42% heildark-
yndingarkostnaður. Þessar upplýs-
ingar ýttu við mönnum og það varð
til þess að við ákváðum að skipa
nefnd til að athuga þessi mál.
Fyrstu niðurstöður könnunarinnar
sem Verkfræðiskrifstofu Sigurðar
Thoroddsen hefur annast, voru svo
kynntar nú fyrir helgina", sagði
Ingi Hans ennfremur.
„Það er alveg ljóst að hægt er að
spara gífurlegar upphæðir í úpphit-
un húsa ef einangrun þeirra er bætt
og varmatapið því heft. Við gerum
ýmsar tillögur til úrbóta og bend-
um á að bættari einangrun í loftinu,
með t.d. 9-10 tommu glerull, heftir
varmatapið mest. Þar kemur svo
hins vegar í ljós að ríkið tekur til sín
57% af verði glerullarinnar í formi
söluskatts og vörugjalds og segir
sig sjálft að slík skattheimta er með
öllu fráleit og síst til þess fallin að
hvetja til orkusparnaðar," sagði
Ingi Hans Jónsson að síðustu.- v.