Þjóðviljinn - 29.11.1983, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 29.11.1983, Blaðsíða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 29. nóvember 1983 Helgi Ólafsson lýsir andrúmsloftinu á keppnisstað og framgangi 4. einvígisskákar Kasparovs og Kortsnojs. Kortsnoj hefur undirtökin „Á litlu sviði í samkomusal The Great Eastern hótelsins í miðri Lundúnaborg hefur verið komið fyrir tafli, klukku, fánum Sviss og Sovétríkjanna. Sérsmíðaður ljósa- hjálmur umlykur sviðið. Klukkan er rétt að verða fjögur. Það er sunnudagur. Áhorfendur hafa þyrpst inn í salinn þar sem komið hefur verið fyrir aragrúa af litlum sjónvarpsskermum sem sýna mynd af taflborði og óhreyfðum mönnum. Fjórða einvígisskákin í keppni Kortsnojs, landflótta So- vétmannsins og Kasparovs er að hefjast. Það er tölvufyrirtækið Ac- orn Computer sem tekið hefur að sér að sjá um einvígi þetta og reyndar annað sem þeir heyja, Va- sily Smyslov frá Sovétríkjunum og Zoltán Ribli frá Ungverjalandi. Milliliðurinn fyrir einvígjunum er breski stórmeistarinn Ray Ke- ene. Sagt er að hann hafi gengið á milli breskra stórfyrirtækja þegar sovéska skáksambandið ákvað að þeir Kasparov og Smyslov skyldu ekki mæta til þeirra einvígisstaða sem áður höfðu verið ákveðnir. Pasadena í Bandaríkjunum og Abu Dabi í Sameinuðu Furstadæmun- um. Eftir mikinn málrekstur sem margoft hefur veríð rakinn tókst að bjarga einvígjunum. í Englandi er svo litið á að hér sé um einn merk- asta skákviðburð að ræða í London í langt yfir 100 ár. Á slaginu klukkan 16.00 gengur dómarinn fram á sviðið og setur klukkuna í gang. Kasparov er mættur til leiks nokkuð á undan andstæðingi sínum. Hinn tvítugi Sovétmaður er af mörgum talinn sterkasti skákmaður heims í dag. Gengi hans hefur verið slíkt að með ólíkindum er. Frá árinu 1981 hefur hann teflt til sigurs á hverju einasta skákmóti sem hann hefur tekið þátt í. Skáksnillingurinn er feiknalega skarpur, einbeitni hans við borðið er annáiuð og þekking hans á hinum flóknustu afbrigðum með ólíkindum. Hann er dáður fyrir dirfsku og fágætt hugarflug, hvassari en Fischer en öruggari en Tal. Hann kemur frá Bakúborg í Azerbædsjan. Útlitsins vegna gæti hann hæglega verið 10 árum eldri. Hann er dökkur á brún og brá og vöðvastæltur og minnir meira á Kortsnoj leikur fyrsta leikinn í 4. skákinni sl. sunnudag. D-peðið fram um tvo reiti. Kasparov fylgist athugull með. Mynd - Helgi Olafsson. íþróttahetju en skáksnilling. Til Lundúna hefur hann ferðast með móður sinni, hinni undrafögru Klöru Kasparovu, þjálfara sínum Nikitin og skákmeistara og vini Vladimirot. Þá eru hér staddir ýmsir háttsett- ir úr sovéska skáksambandinu, s.s. Júrí Averbakh fyrrverandi forseti þess og sérfræðingur, sterkur stór- meistari í endatöflum. Alexander Rosjal blaðamaður við hið víð- þekkta tímarit „64“ og fleiri til. So- vétmennirnir halda vel saman, sitja gjarnan á fremstu bekkjunum fyrir framan sviðið og hafa hægt um sig. Þó er greinilegt að móðir unga mannsins er ókyrr nokkuð sem vonlegt má teljast. Þetta er íifyrsta sinn sem hún kemurtil V-Hvrónu. Rétt í þá mund sem yfirdómar- inn hefur sett klukkuna í gang, birt- ist Viktor Kortsnoj á sviðinu. Skákmennirnir takast þéttingsfast í hendur og síðan hefja þeir taflið. Upp kemur í hugann viðureign þeirra frá ólympíumótinu í Luzern í fyrra. Fyrir þá skák snerist um- ræðan um það hvort þeir tækjust í hendur eða ekki. Svo varð ekki. Sú stefnubreyting sem hér hefur orðið kemur mestan part til af því, að Kortsnoj sem áður hafði verið dæmdur sigur í einvíginu í Pasa- dena fékkst þá til að tefla m.a. með þeim skilyrðum, að Sovétmenn hættu að sniðganga mót þar sem hann væri meðal þátttakenda, að Sovétmenn bæðust afsökunar á frarnferói sínu frá í sumar þegar þeir drógu þá Kasparov og Smysl- ov úr keppni og þriðja skilyrðið og það sem margir vilja meina að hafi fyrst og fremst komið Kortsnoj að taflinu snerist um peninga. Hann fékk það fram að verð- launaupphæðin yrði ekki lægri en sú sem átti að vera í Pasadena. Það má bæta því við að fundur þeirra Kortsnojs og Kasparovs fyrr í haust hefur áreiðanlega gert sitt til að auka vinskap með þeim. Nóg um það. Þessi mál eru bless- unarlega í höfn og fjórða skákin hafin. Byrjunarleikirnir ganga hratt fyrir sig. Vafningalaust snarar Kortsnoj d peðinu um tvo reiti. Öðru hefur ekki verið leikið í fyrsta leik hér í London. Kasparov var líka fljótur að ákveða viðbrögð sín Helgi Ólafsson skrifar um skákeinvígin Eins og margir höfðu gert ráð fyrir, sömdu þeir Kortsnoj og Kasparov jafntefli í 4. einvígis- skákinni, en biðskákina átti að tefla í gær. Friðarsamningar voru gerðir í gegnum síma. Helgi Ólafsson gerir grein fyrir andlegri upplifun sinni á skák- staðnum hér á síðunni, en fyrir þá sem vilja renna skákinni á tafl- borði birtist hún hér: Hvítt: Viktor Kortsnoj Svart: Garrí Kasparov Katalónsk byrjun. 1. d4 d5 3. RO Rf6 2. c4 e6 4. g3 (Upphafsleikurinn í Katalónísku byrjuninni, en ekki er vitað til að Kasparov hafi áður mætt henni í kappskák. Aftur á móti hefur hann örugglega átt von á að Kortsnoj notaði hana í einvíg- inu). 4. - Be7 9. Dc2 Bb7 5. Bg2 0-0 10. Bd2 Be4 6. 0-0 dxc4 11* Dcl Rc6 7. Dc2 a6 12. Be3! 8. Dxc4 b5 (Nýi leikurinn í stöðunni. Áður hefur sést til leikja á borð við 12. e3, sem svarað var með 12. - b4! (Sosonko-Gligoric). 12. - Rb4 (Það tók Kasparov heilar fjörutíu mínútur að leika þessum leik. í skák milli Agzamov og Gligoric kom framhaldið 12. .. Hc8 13. Rbd2 Bd5 14. Hdl Rg4 með flók- inni stöðu, sem hvítur vann eftir 47 leiki.) 13. Rbd2 Bb7 18. Rc6 Bxc6 14. Bg5 Hc8 19. Bxf6 Bb7 15. a3 Rbd5 20. Bxe7 Dxe7 16. Rb3 h6 21. Dc5 17. Ra5 Ba8 (Einkennandi fyrir Kortsnoj. Hann tekur alla spennu úr stöð- unni og stefnir út í endataflið. 21. b4 kom sterklega til greina.). 21. - Dxc5 23. a4 b4 22. dxc5 Re7 24. Rd4 Bxg2 (í fyrsta sinn f einvíginu var Kasp- arov kominn með betri tíma. Hvítur 1:54. Svartur 1:45). 25. Kxg2 Hfd8 26. Hfdl Hd5 27. Rc2 (Ekki 27. Rb3 Hcd8 og svartur stendur betur. Hvítur varð að gæta sín vegna hótunarinnar 27. .. Hcd8 og 28. e5). Hb8 34. Hd2 f6 28. Hxd5 Rxd5 35. Ke4 f5+ 29. Rd4 Re7 36. Kd3 e5 30. Hdl Kf8 37. e4 Ke6 31. Rb3 Rc6 38. Ke3 exf4 32. f4 Ke7 39. gxf4 g5 33. KÍ3 g6 40. Rd4+ (Mörgum virtist að Kortsnoj væri með þessum leik að sækjast frem- ur eftir jafntefli en sigri í skák- inni.). 40. - Rxd4 41. Hxd4 Rf3 Rbd7 Bd3 dxc4 Bxc4 b5 8. Bd3 a6 9. e4 c5 10. d5 Bb7 11. 0-0 Be7 12. Bf4! abcdefgh Skákinni var aldrei haldið áfram þar sem Kortsnoj bauð jafntefli nokkrum klukkustund- um áður en tekið skyldi til við biðskákina. Það var hin 19 ára gamla Jane Seymor aðstoðar- dómari í einvíginu, sem flutti skilaboðin til Kasparovs. Að- aldómarinn Gligoric fannst nefnilega ekki!!! Kasparov tók jafnteflisboðinu, en biðleikur hans var 41. - gxf4. Staðan: Kortsnoj 2.5 Kasparov 1.5. Þeir voru ekki mikið fleiri en tíu, áhorfendurnir sem fylgdust í gær með 4. einvígisskák þeirra Smyslof og Riblis enda virðist hitt einvígið eiga hug og hjörtu skák- áhugamanna. Hvítt: Zoltán Ribli Svart: Vasily Smyslov 1. d4 d5 3. Rc3 Rf6 2. c4 c6 4. e3 e6 (Þetta virtist koma Smyslov á óvart, því hann tók sér 13 mínút- ur til að ákveða svar sitt, sem bendir til þess að hann hafi ekki athugað þessa stöðu fyrir einvíg- ið. Hótun hvíts er vitaskuld 13. d6!) 12. - Rh5 17. Hel Bf8 13. Be3 e5 18. g3 g6 14. a4! b4 19. Hcl Rhf6 15. Rbl 0-0. 20. Rb3? 16. Rbd2 He8 (Ribli, sem byggt hefur upp mikla yfirburðastöðu, gefur Smyslov kost á að létta á stöðu- nni. Miklu betra var 20. Rc4). 24, 25, Hxe8 Rxe8 Rxd3 Dxd5 sleppur nú út úr þrengingum sín- um). 21. exd5 e4 22. Bxc5 Rxc5 23. Rxc5 exd3 (Smyslov bauð þennan leik, en 26. De2 Rf6 27. Rf4 Db7 28. Hc4 He8 29. Dd3 a5 jafntefli eftir Ribli hafnaði). 30. h3 Bg7 31. Hc5 Rc4 32. Hc2! abcdefgl* 20. - Bxd5! (Auðvitað! 20.-Hc8 21. Rld2 er afleit staða á svart. Smyslov (32. Db5 strandar á 32. - Da8! og 32. Hxa5 strandar hinsvegar á 32. - Db6 og svartur vinnur. 32. - Rf6 33. He2 Hxe2 34. Rxe2 Dd7 (Leikið á augabragði. Staðan gerist nú æði jafnteflisleg). 35. Db3 (Svörtum stendur nú til boða peðið á h3, en ekki virðist það lystugur biti að kyngja, því bæði á hvítur 36. Dxf7+ og 36. Re5!). 35. - Re4 36. Dc2 Df5! 37. Red4 Dd5? (Mun sterkara var 37. - Bxd4 38. Rxd4 Dd5). 38. Dc8+ Bf8 42. Rxa5 Rxa4 39. Kg2 Kg7 43. b3 Rc3 40. Dc6 Dxc6 44. Re5 f6 41. Rxc6 Rc5 45. Rd3 Og hér mættust keppendur á jafntefli. Staðan Smyslov 2 Ribli 2. - hól/eik -

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.