Þjóðviljinn - 29.11.1983, Síða 7
og eftir tvo leiki höfðum við sömu
stöðu og í 2. einvígisskákinni, en
nú bregður Kortsnoj útaf og heldur
fast við þá stefnu sína í einvíginu að
koma andstæðingnum sífellt á
óvart með nýjum og óvæntum
leikjum.
Nú gefst tími til að skoða taflið,
til að líta á Kasparov nánar. Hann
leggst þegar í þunga þanka. Hann
virðist geta teflt Tarrasch-afbrigðið
sem varð upp á teningunum í 2.
skákinni aftur. Eitthvað í sam-
bandi við leikaðferð Kortsnojs
virðist þó angra hann og eftir 8
mínútna byrjun snýr hann taflinu
yfir í byrjun sem aldrei áður hefur
sést í skákum hans í einvíginu. 10
fyrstu leikirnir birtast skjótt á sýn-
ingarborðinu en í 11. ieiknum
hugsar Kasparov í meira en 40 mín-
útur. Enn og aftur hefur Kortsnoj
náð tímaforskoti. Við alla þessa
umhugsun virðist einnig hægjast á
Kortsnoj. Skákin tekur á sig sérk-
enni sín, hættir að vera partur af
bók sem einhver sérfræðingurinn
hefur skrifað, þeir eru farnir að
tefla frá eigin brjósti.
Gauragangurinn í
blaðamannaherberginu
Stóri salurinn hefur smátt og
smátt fyllst af fólki. Það má heyra
saumnál detta. Virðulegir menn
eru þar í meirihluta, minna af ungu
fólki sem er stærstur hluti áhorf-
enda þegar skákviðburðir fara
fram í Reykjavík. Þarna má líka sjá
menn sem hafa komið langa vegu
til að sjá einvígið. Indverji í sér-
kennilegum klæðnaði, Japani, Fil-
ippseyinga og þannig mætti lengi
telja.
I hliðarsal dvelur margur við
tölvur Accom fyrirtækisins, en inn-
ar af er blaðamannaherbergið. Þar
er gauragangur hinn mesti og þó
margir af sterkustu stórmeisturum
heims sæki þennan stað iðulega fer
ekkert á milli mála hverjir eru
„eigendur" blaðamannaherbergis-
ins. Kappsfullir ungir menn komn-
ir frá Bandaríkjunum láta móðan
mása tímunum saman, hreinlega
mæla sitt ágæta kúrekamál hver
upp í annan. Lágvaxinn maður sem
sýnilega hefur borðað sinn skammt
af hamborgurum um dagana er
greinilega fyrir þessum hópi. Hann
hefur yfirumsjón með herberginu.
„Ég held að Gary sé að ná sínu
formi aftur. Eitt tap er ekki svo
slæmt. Það mun aldrei gerast að
pilturinn fari héðan án þess að
vinna skák. Hann hefur nýlega
unnið Petrosjan pottþétt, Larsen,
Timman og fleiri. Með öðrum orð-
um marga af bestu skákmönnum
heims,“ segir þessi maður sem
þekkt hefur Kaspárov um langt
skeið. „Ég vissi að Gary var
þreyttur þegar hánn kom til
London," heldur hann áfram, „en
hann hefur náð sér. Hann hefur
enn ekki afhjúpað leynivopn sín að
fullu, svo mikið er víst. Ég held að
gengi Kasparovs í einvíginu megi
ráða af fimmtu skákinni, þá mun
hann reyna allt til að ná sigri“, bæt-
ir þessi glaðlyndi Bandaríkjamað-
ur við.
Hinn síungi Najdorf
Af þekktum skákmeisturum á
The Great Eastern Hotel, ber
einna mest á Michael Najdorf.
Hann er kominn hátt á áttræðisald-
ur og teflir enn með góðum árang-
ri, gengur léttstígur um skáksalina.
Hvarvetna sem þessi gamli maður
fer, sem í heimsstyrjöldinni síðari
missti fjölskyldu sína í gasklefa
nasista, setur hann svip sinn á um-
hverfið. Skarpskyggni hans og
rannsóknir á flóknum biðstöðum
er ótrúleg. Þarna er líka útsendari
stórblaðsins New York Times, Ro-
bert Burn sem m.a. hefur teflt á
tveimur Reykjavíkurskákmótum,
Sagt frá umfjöllun breskra fjöl-
miðla um skákeinvígin í London
Atómstríð
á 64 reitum
Lundúnum 27. nóvember/
Frá Helga Ólafssyni frétta-
manni Þjóðviljans.
Breskir fjölmiðlar, dagblöð, út-
varp og sjónvarp, hafa gert skák-
viðburðunum á Great Eastern
Hotel í London allmikil skil. Þegar
öllu er á botninn hvolft, þá er hér
altént um að ræða mikilvægasta
skákviðburð í Bretlandi í meira en
hundrað ár og þarf að leita allt aft-
ur til þess herrans árs 1851, þegar
5. alþjóðlega skákmótið var haldið
í Hastings til að finna samjöfnuð.
Stóru dagblöðin hér í London
eiga það flest sammerkt að hafa
fengið til liðs við sig þekkta skák-
menn og aðra sérfræðinga sem geta
tjáð sig með þeim hætti sem hæfir
svo merkum atburði. Þetta er þó
ekki einhlítt. Lundúnablaðið Sun,
blað sem um alllangt skeið hefur
gert út á hneykslismál hinnar
bresku konungsfjölskyldu, sendi
fréttaritara sinn á staðinn og út-
koman vakti athygli svo ekki sé
meira sagt. Á ritstjórnarskrifstofu
The Sun stendur eitt helsta vígi
„gulu pressunnar" og hefur blaðið
t.d. margsinnis slegið út helsta
keppinautinn á þessum vettvangi,
Daily Mirror sem rekur svipaða
fréttapólitík.
Er skákin spegill
Iífsins? spyr blaðið
„Ósköp hversdagslegur Rússi
lítur á skák sem einskonar æðra
form kynlífs“, skrifar blaðamaður í
upphafi. „Bretar líta þveröfugt á
málið. Kynlífið í þeirra augum er
æðra form skáklistarinnar. Þetta
skýrir hvers vegna Sovétmenn hafa
eignast svo marga heimsmeistara í
skák, ogjafnframt hvíBretar brosa
alla jafnan meira.“ Og áfram held-
ur blaðamaðurinn: „Margir halda
því fram að þú getir lesið hugarfar
Sovétmanna út frá þeim leikjum
sem þeir leika á skákborðinu. Þar
liggur allur metnaður þeirra.
A sama tíma og Sovétmenn
ganga frá borði í viðræðum sem í
raun snúast ekki um annað, en
hvort heimurinn eigi að springa
einn góðan veðurdag í loft upp,
stendur tölvufyrirtækið The Acom
Computer fyrir einum lokaáfang-
anum í heimsmeistarakeppninni í
skák. Þrír Sovétmenn og einn Ung-
verji berjast nú um það hver eigi að
skora á heimsmeistarann Anatoly
Karpov. Sé skákin spegill lífsins þá
erum við öll í miklum vanda stödd"
skrifar blaðamaðurinn. „Þeir sem
tefla best, eiga venjulega oft í erfið-
leikum með að ná fótfestu á þessari
plánetu. Jafnvel Lenin, harðvítug-
ur þrjótur, útfarinn í lævísum
leikjum, varð að hætta að tefla þar
sem skákin var farin að trufla hinar
byltingakenndu hugsanir og hug-
myndir.“
Býr með ráðríkri
móður sinni
„Skákmennirnir fjórir á The
Great Eastern Hotel, koma manni
skemmtilega fyrir sjónir sérstak-
lega hinn 20 ára gamli Harry Kasp-
arov. Með honum í förum er hin
ráðríka móðir hans. Allt líf þessa
drengs snýst í kringum skák. And-
stæðingur hans er hinn stórundar-
Þriðjudagur 29. nóvember 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
Breski stórmeistarinn Keene, er maðurinn á bak við áskorendaeinvígin í
London. Mynd - hól.
Hollendingurinn Sosonko sem er
velþekktur skákmaður, og af ensk-
um skákmönnum þekktum má
nefna John Nunn, Johathan Spiel-
mann og Niagel Short, undrabarn
sem gerir meira én að fylgjast með,
því að hann teflir hér einvígi við
ungan bandarískan skákmeistara
Joel Benjamin. Þó flestir þeir sem
hingað leggja leið sína séu komnir
til að fylgjast með baráttunni við
skákborðið, þá finnast þó þeir sem
koma hingað í öðrum erindagjörð-
um. Þannig stilltu nokkrar konur
sér upp fyrir framan hótelið og
mótmæltu meðferð sovéskra yfir-
valda á gyðingum þarlendis og
landflótta Úkraínumenn mót-
mæltu einn daginn þeirri meðferð
sem hin ýmsu þjóðabrot innan So-
vétríkjanna fá. Þá eru ótaldar fjöl-
mennari mótmælagöngur sem hafa
það að markmiði að stemma stigu
við uppsetningu kjarnorkuvopna á
breskri grund og nokkrar kerlingar
tóku sig til og mótmæltu fyrirhug-
aðri sýningu myndarinnar „The
day after". „Demonstration’s fe-
ver“ skrifaði eitt blaðið um ástand-
ið í London, og víst er að í Lundún-
aborg eru menn í betra lagi póli-
tískt meðvitaðir.
Tímahrakið nálgast
Á meðan ég hef verið að hripa
þessar hugleiðingar niður á blað,
hefur tíminn verið að hlaupa frá
keppendunum báðum á sviðinu.
Kortsnoj hefur reynst trúr hernað-
aráætlun sinni í einvíginu. Hánn
hefur beint skákinni inn á áhættu-
samar brautir, býður drottningar-
uppskipti, sem Kasparov er greini-
lega ekki nógu ánægður með. f 26.
leik virðist svartur vera að ná yfir-
hendinni en Kortsnoj er fljótur að
sannfæra menn um hið gagnstæða.
En þrátt fyrir lipra taflmennsku
beggja skynjar maður nálægð
jafnteflisstöðunnar. Kortsnoj hef-
ur eilítið meira rými, en staða
Kasparovs er traust. Undir lok set-
unnar færist heldur betur líf í
leikinn. Dálítið kæruleysislegur
leikur Kortsnojs 35 - Ke4, gefur
Kasparov mótfæri. Hann geysist
hratt fram með peðin á miðborðinu
og maður finnur að spenningurinn
hefur aukist með keppendum.
Kasparov sem verið hefur óvenju
afslappaður og rólegur hnykklar
nú brúni og einbeitir sér af öllum
lífs- og sálarkröftum. Kortsnoj
heldur ró sinni og færir kóng sinn í
átt að rás viðburðanna á miðborð-
inu, óg sýnt er að hann á ekki í
neinum erfiðleikum. Skákin fer í
bið eftir 41. leik Kortsnojs sem yfir
gefur sviðið öruggur með sinn hlut.
Flestir eru á því máli að skákin endi
með jafntefli og ef eitthvað er, þá
standi Kortsnoj betur að vígi. Eftir
drjúga stund skrifar Kasparov bið-
leikinn niður setur skorblað í um-
slagið og skundar út í rigninguna
fyrir utan. _ hól/_ lg
Klara Kasparov er syni sínum til aðstoðar og sáluhjálpar meðan á einvíginu stendur. Þessi mynd af þeim
heima í Bakú er frá Novosti fréttastofunni, og segir í myndatexta með henni að Kasparov þyki afar vænt um
móður sína.
legi bardagamaður Victor Korts-
noj. Sovétmenn líta á hann sem
fégráðugan svikahrapp. í næstum 6
ár reyndi Victor að fá konu sína og
son lausan frá Sovétríkjunum, haf-
andi á orði að þau væru höfð í gísl-
ingu svo að hann næði ekki árangri
við skákborðið. Upp á síðkastið
hefur hann ásakað Sovétmenn um
að nota geislunartæki til að hafa
áhrif á heilastarfsemi hennar. En
hingað til hefur engin slík
skemmtun átt sér stað á vettvangi
skákviðburðanna“, heldur blaða-
maður áfram. „Einvígið er reyndar
nýbyrjað og getur staðið til jóla.
Einhvern veginn hef ég það á til-
finningunni að skákmennirnir
muni ekki hverfa á braut eins og
miljónir Sovétmanna. Að minnsta
kosti ekki meðan vort kynlíf er
stundað af sama kappi og fyrr.“
Svo allt í einu, Bretum til óum-
ræðilegs léttis, hætta Lundúna-
blöðin skyndilega að koma út
vegna verkfalla.
Sjónvarpið
Dagblaðale'ysið getur sett Lund-
únaborgara í nokkurn vanda.
Staðreyndin er nefnilega sú að
maður hefur ekki tök á að fylgjast
með lífinu nema úr nokkurri fjar-
lægð og þá helst í gegnum fjölmiðl-
ana. Sjónvarpið gengur enn og það
á allmörgum rásum og þar hafa ein-
víginu verið gerð nokkur skil, bæði
í gamni og alvöru. Skemmtilegast
hefur breskur þáttur sýnt þá Harry
Kasparov og Viktor Kortsnoj að
tafli á The Great Eastern Hotel,
„þar sem þeir reyndu að ná sálf-
ræðilegu tangarhaldi hvor á öðr-
um“, eins og það var orðað í þætti-
num. Viktor hóf leik með því að
sletta jógúrt yfir Kasparov sem
svaraði með því að teygja út nasa-
vængina á Kortsnoj og koma þar
fyrir hvítlitum biskup sínum.
Kortsnoj lét ekki deigan síga og
hellti smávegis af kaffi yfir höfuð
Kasparovs, sem óðar kom hinum
biskupunum fyrir i nös Kortsnojs.
Þetta var hrikalegt hrópaði Korts-
noj upp yfir sig, en hann sér ekki
við næsta bragði mínu sagði hann
og kallaði á nokkra indverska dul-
arsálfræðinga sem komu nokkrum
nöglum sem fakírar eru öðrum
fremri að sitja á, undir stól Korts-
nojs. Þetta snilldarbragð bar tilætl-
aðan árangur. Kasparov gaf
skákina þó með þeim hætti að
smella taflborðinu yfir höfuð
Kortsnojs. „Eins og sönnum
íþróttamönnum sæmir,“ sagði
fréttamaður að lokum, „tókust
þeir í hendur að skákinni lokinni,
en af svip Kasparovs mátti ráða að
eitthvað hafði Kortsnoj falið í
hendi sér.“
- hól/— Ig.