Þjóðviljinn - 29.11.1983, Side 15

Þjóðviljinn - 29.11.1983, Side 15
1,1 '//.’.'ú;; *v. ‘í’ • ',-k.KL* K* Þriðjudagur' 29.' rióveiriher 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 19 RUV® 7.00 Veðurlregnir. Fréttir. Bæn. Á virkum degi. 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur Erlings Sigurðarsonar frá kvöldinu áður. 8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð - Sigurjón Heiðarsson talar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Katrfn" eftir Katarína Taikon Einar Bragi les þýð- ingu sina (11). 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar. 9.45 Þingfréttir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.). 10.45 „Ljáðu mér eyra“ Málmfríður Sigurðar- dóttir. á Jaðri sér um þáttinn (RÚVAK). 11.15 Við Pollinn Gestur E. Jónasson velur og kynnir létta tónlist (RÚVAK). 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynning- ar. 13.30 Létt popp frá árinu 1977 14.00 Á bókamarkaðinum Andrés Björnsson sér um lestur úr nýjum bókum. Kynnir: Dóra Ingvadóttir. 14.30 Upptaktur - Guðmundur Benedikts- son. 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Síðdegistónleikar „Tre Musici" leika Tríó í G-dúr fyrir pianó, flautu og selló eftir Friedrich Kuhlau/Barokkkvintettinn í Wint- erthur leikur Sónötu i D-dúr op. 4 fyrir óbó og fagott eftir Giuseppe Demachi og Sónötu f B-dúr op. 1 nr. 4 fyrir fiðlu, fagott og sembal eftir Nicolas Scherrer. 17.10 Siðdegisvakan 18.00 Tónleikar. Til- kynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 20.00 Barna- og unglingaieikrit: „Tordýfil- llnn flýgur í rökkrinu" eftir Mariu Gripe og Kay Pollak. Þýðandi: Olga Guðrún Árna- dóttir. 8. þáttur: „Þungur hlutur". Leikstjóri: Stefán Baldursson. Leikendur: Ragnheiður Elfa Arnardótlir, Aðalsteinn Bergdal, Jó- hann Sigurðsson, Guðrún S. Gísladóttir, Valur Glslason, Jón Hjartarson, Þorsteinn Gunnarsson, Róbert Arnfinnsson, Guð- mundur Ólafsson, Sigríður Hagalín, Ellert Ingimundarson og Karl Ágúst Ulfsson. 20.40 Kvöldvaka a. „Heyrði ég / hamrinum" Baldur Pálmason les Ijóð eftir Sigurjón Friðjónsson. b. „Baslganga Jóns Sigur- jónssonar" Árni Vigfússon flytur seinni hluta frásögu sinnar. Umsjón: Helga Ágústsdóttir. 21.15 Skákþáttur Stjórnandi: Guðmundur Arnlaugsson. 21.40 Útvarpssagan: „Hlutskipti manns“ eftir André Malraux Thor Vilhjálmsson les þýðingu sína (31). 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun- dagsins. Orð kvöldsins 22.35 Þýsk sálumessa op. 45 eftir Johann- es Brahms Edith Mathis og Dietrich Fischer-Dieskau syngja með Kór Edinborg- arhátíðarinnar og Filharmoníusveit Lundúna; Daníel Barenboim stj. - Helga Þ. Stephensen les ritningarorðin. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. Baldur Pálmason les ljóð eftir Sigurjón Friðjónsson á kvöld- vöku ki. 20.40. Ruve 19.45 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá. 20.40 Snúlli snigill og Alli álfur Teiknimynd ætluð bömum. Þýðandi Jóhanna Þráins- dóttir. Sögumaður Tinna Gunnlaugsdóttir. 20.50 Sniff - lífshættulegur leikur Endur- sýndur kafli úr „Kastljósi" föstudaginn 18. þ.m. Umsjónarmaður Sigurveig Jónsdóttir. 21.20 Derrick 4. Morðið I hraðlestinni Þýsk- ur sakamálamyndaflokkur. Þýðandi Vetur- liði Guðnason. 22.25 Viti að varast Breskur fréttaþáttur um ný sjónarmið I vigbúnaðarkapphlaupi stór- veldanna og hugmyndir um varnarkerfi í geimnum. Þýðandi Jón 0. Edwald. 23.20 Dágskrárlok. skák Karpov að tafli - 241 Karpov hefur um langt skeið átt furðulega létt með að sigra hinn geysisterka ungverska stór- meistara Lajos Portisch. Á skák- mótinu í Linares kom fyrir eitt dæmið þar um. Karpov sem hafði svart tefldi á gjörólíkan hátt því sem hann er vanur, hrókeraði langt í frémur rólyndislegri stöðu og hóf sókn á kóngsvæng. Þetta virtist koma Ungverjanum á ó- vart; hann fann ekki bestu vörn- ina og tapaði. Við skulum skoða niðurlag skákarinnar: abcdefgh Portisch - Karpov 25. .. f5! (Sallarólegur fórnaði heims- meistarinn skiptamun. Það kom mörgum viðstaddra á óvart en framhaldið leiddi enn einu sinni í Ijós að skynbragð Karpovs á stöðunni var rétt.) 26. Rxd5 Dxd5 27. f3 Kb8! (Einn af leikjunum á rólegu deildinni.) 28. Dd3 De6 29. fxg4 fxg4 30. Hf1 hxg3 31. hxg3 Dd5+ 32. e4 De6 33. Hce1 Dd6 34. Hh1 Hd8 •35. Dc4 d3! 36. Dc5 d2 37. Hd1 Dd3 - og Portisch gafst upp. bridge í gær urðum við vitni að fag- legu handbragði Hannesar R. Jónssonar í sveit Ágústs Helga- sonar. Andstæðingar í vörninni voru Jón Páll Sigurjónsson og Sigfús Örn Árnason. Við bregð- um aftur upp spilinu því það er sígilt dæmi um færi og gagnfæri í bridge: Suöur spilar 3 grönd (átt- um breytt); Norður S AD109 H 876 Vestur T D Austur S G3 L K9874 S K865 H G43 HKD1052 T 98643 Suöur T G5 LDK)3 S™2 LG5 H A9 TAK1072 L A62 Austur hafði sagt frá hjartalit og vestur spilaði út hjarta-3. Austur átti slaginn á drottningu og spilaði litlu hjarta til baka, ás og vestur gaf í fjarkann. Hannes spilaði nú tígli á drottningu og síð- an hjartað úr borði. Austur var glaðvakandi (?) og kom auga á tækifærið, lét tíuna, sagnhafi kastaði spaðaog vestur átti slaginn á gosa. Ábendingin var augljós, félagi hafði af ásettu ráði stíflað lit varn- arinnar með óeðlilega háu spili (tíu) í augljósri stöðu. Vestur skipti hlýðinn á spaða gosa. Ætl- un sagnhafa, að gefa austri (neyða) fjóra hjartaslagi strax, var nú dæmd af beittri vörn. Sagnhafi svínaði spaðanum og spilið fór einn niður. Þetta var sviðsetning á gagnfærum í sígildu spili, þar sem sagnhafi finnur skemmti- lega leið. í reynd misstu Jón Páll og Sigfús af þessari góðu vörn, því við borðið gaf vestur hjarta gosann í öðrum slag, og mögu- leikinn var þar með úr sögunni. Spurningunni, hvort austur hefði látið tíuna duga ef vestur hefði gleymt gosa (...kostar ekk- ert) verður því ekki svarað. Hannes R. Jónsson vann því, verðskuldað, sitt spil. Snirr lífshættulegur leikur Föstudaginn 18. nóv. sl. fjall- aði Sigurveig Jónsdóttir um sniff og afleiðingar þess, í Kastljóss- þætti. Þátturinn um sniffið vakti verulega athygli og umtal og verð- ur nú endursýndur í sjónvarpinu í kvöld. - Neysla þessa fíkniefnis virðist ganga í öldu, sagði Sigurveig, - og nú sýnist svo sem aldan sé að hvolfast yfir Hafnarfjörð. Það eru einkum 15-16 ára unglingar, sem helst sækjast eftir þessu stór- hættulega efni. f þættinum í kvöld er talað við lækni og móður 16 ára drengs, sem búinn er að vera algjör sjúklingur í tvö ár vegna ‘þessarar neyslu. Hann ræður ekki yfir hreyfingum sín- um, getur ekki tjáð sig, er í raun algerlega ósjálfbjarga. Ekki er vitað um annað dæmi hérlendis jafn ömurlegt vegna neyslu sniffsins, en hættan vofir yfir öllum þeim, sem út á þessa braut leiðast. - Þá er og rætt við mann í menntamálaráðuneytinu, sem vinnur að undirbúningi aukinnar fræðslu í skólum, um afleiðingar fíkniefnaneyslu. -mhg Beitir Morgun- blaðið ritskoðun? tekið og Tíminn líka. Það er eftir- tektarvert að ráðherrunum ber ekki saman. Slíkt hefur gerst áður, meira að segja fyrir 2000 árum, að vitnum ber ekki saman. Eins og menn vita er verðbólga það, sem vísitala framfærslu- kostnaðar hækkar á síðustu 12 mánuðum. í maí 1982 var vísital- an 160 stig. í maí, 1983, þegar Orðsending Orðsending til Þjóðviljans frá S.H.: „ Viljann“ má ei þrekið þrjóta - þytigir svörtu messuna -. Eldibröndum eg vil skjóta yfir hœgri pressuna. Hjörtur Geirsson hringdi: Morgunblaðið, sem sjálft kall- ar sig „blað allra landsmanna“, gumar mjög af frjálslyndi sínu og víðsýni. I því húsi „rúmist allir, allir“. Þar er nú ekki aldeilis verið að skilja að sauði og hafra, það er nú dálítið annað en framferði hinna blaðanna. „Drottinn, ég þakka þér“. En ekki eru nú allir á einu máli um frjálslyndi Morgunblaðsins, enda hafa fáir orð á því aðrir en blaðið sjálft. „Ég verð að hæla mér sjálfur úr því að aðrir gera það ekki“, sagði maðurinn. Ég tel mig hafa orðið varan við allt annað en frjálslyndi á þeim bæ, þegar ritað orð á í hlut. Og því vil ég spyrja ritstjórana: Giidir rit- skoðun hjá Morgunblaðinu? Vona ég að þeir sjái sér fært að svara þessari spurningu minni vafningalaust og sýni þá með rök- um fram á „sakleysið“. Sjónvarp kl. 20.50 Steingrímur: 130% Jón: 150% Geir: 180% Ósannindi ráðherranna Hárbarður skrifar: Ráðherrarnir hafa, hver í kapp við annan, haldið því fram á AI- þingi, í blöðum og á fundum, að verðbólgan hafi verið 130-180% sl. vor þegar þeir tóku við völd- um. Steingrímur forsætisráð- herra sagði verðbólguna hafa verið 130%. Tíminn hefur eftir Jóni Helgasyni dómsmálaráðherra að hún hafi verið 150% en Geir Hallgríms- son, utanríkisráðherra bætir um betur og segir á landsfundi hana hafa verið 180%. Þetta hafa svo hinir ráðherrarnir flestir endur- núverandi stjórn tók við, var vís- italan 298 stig. Hækkunin er því 138 stig eða 86,25%. Ósannindi Steingríms eru því 44 prósentu- stig, Jóns Helgasonar 64 prósent- ustig (ef Tíminn hefur rétt eftir honum), en ósannindi Geirs 94 prósentustig, eða ríflega helm- ingi meiri en vöxtur verðbólg- unnar varð. f erlendum lýðræðis- ríkjum yrði hver sá ráðherra að segja af sér sem reyndist sannur að því að fara með ósannindi frammi fyrir þingi eða þjóð sinni, en þeir íslensku sitja sem fastast og þykir sómi að. Onnur blekking ráðherranna er sú, að um næstu áramót hafi verðbólgan iækkað úr 130% (eða 150-180%) niður í 30%. Þetta eru líka ósannindi. Þótt verðbólgan verði 30% um áramótin hefur hún ekkert lækkað heldur hefur hún hækkað um 30%. Það eina sem hefur gerst er að hraði verð- bólguhækkana hefur lækkað úr 86% niður í 30%. Þá fyrst fer verðbólgan að lækka þegar hún kemst niður fyrir núll, þ.e. verð- lagið að lækka.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.