Þjóðviljinn - 04.01.1984, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 04.01.1984, Qupperneq 3
 Dorriét Kavannah látin Dorriét Kavannah sópransöng- kona lést á gamlársdag í Bonn í V-Þýskalandi, aðeins hálffertug að aldri. Hún var gift Kristjáni Jó- hannssyni óperusöngvara. Dorriét var fædd á Spáni, flutti síðan til Bandaríkjanna en bjó síð- ustu æviárin á ftalíu. Eftir leik- listarnám um langt árabil hóf hún söngnám og þótti með athyglis- verðari sópransöngkonum. Dorriét Kavannah verður jarð- sungin frá Akureyrarkirkju. Þjóðleikhúsið velur höfunda: Nína Björk og Sigurður Pálsson ráðin Þjóðleikhúsið hefur nú ráðið höfunda fyrir árið 1984 og urðu Sigurður Pálsson og Nína Björk Arnadóttir fyrir valinu að þessu sinni; Sigurður fyrstu sex mán- uði ársins og Nína Björk síðari hluta ársins. Sigurður Pálsson fæddist 30. júlí 1948 á Skinnastað í Norður Þing- eyjarsýslu, varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1967, stundaði síðan nám í leikhúsfræðum og bókmenntum við Sorbonne háskólanum í París og lauk þaðan magistersprófi og DEA-prófi, þ.e. fyrri hluta dokt- orsgráðu. Ennfremur lauk hann prófi í kvikmyndaleikstjórn frá CLCF kvikmyndaskólanum í Par- ís. Hann var kennari við Leiklistar- skóla SÁL 1974-75 og við Leik- listarskóla íslands frá stofnun hans til ársins 1977. Hann hefur samið þrjú leikrit fyrir Nem- endaleikhús Leiklistarskóla ís- lands og heita þau Undir suðvest- urhimni (1976), Hlaupvídd sex (1977) og Miðjarðarför (1983). Þá hefur hann töluvert fengist við þýð- ingar og má þar á meðal nefna Svalirnar, eftir Jean Genet, Hótel Paradís, eftir Georges Feydeau (fyrir Þjóðleikhúsið), Þeir settu handjárn á blómin eftir Arrabal og Þegar vonin ein er eftir, eftir Cordelier. Loks hefur Sigurður fengist við leikstjórn, m.a. í sjón- varpinu, en þar stýrði hann leikriti Steinunnar Sigurðardóttur, Lík- amlegt samband í norðurbænum. Nína Björk Árnadóttir fæddist 7. júní 1941 að Þóreyjarnúpi í Vest- ur Húnavatnssýslu. Hún var við nám í Leiklistarskóla Leikfélags Reykjavíkur 1961-1964 og við framhaldsnám í Danmörku 73-75. Þjóðleikhúsið hefur sýnt tvö leikrit hennar, Hvað sögðu englarnir? (1979) og Súkkulaði handa Silju (1982), en önnur leikrit hennar eru Hælið, Geimið, Fótatak (L.R. 1972), Steinarnir hans Mána, Steinninn sem hló og Það sem gerðist í þögninni, en síðasttalda verkið var flutt í útvarp 1981. Miðvikudagur Uianúar 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 / '£tbr?lfr* e/n Ég veit ekki lengur hvað á til hragðs að taka ÞolinmæSi mín er á þrotum Reykjavík, 2. janúar 1984. Nú get ég ekki lengur orða bund- ist. Ég sit með launaseðil janúarmán- aðar í höndunum, ásamt nokkr- um föstum mánaðarreikningum. Afborgun af námsláni og banka- láni og síðast en ekki síst rafmagns-og hitareikningur, þ.e. uppgj ör frá árin u ’83, þar sem sést glöggt hve sú þjónusta hefur hækkað mikið á síðastliðnu ári, á meðan laun okkar hafa staðið í stað. í lok reikningsins er mér svo óskað gleðilegra jóla. Bjartsýni það. Þegar ég legg þessa reikninga saman ásamt matarreikning, vantar mig nokkur þúsund krón- ur uppá. Eg er allan mánuðinn að bíða eftir næstu mánaðamótum í von um að þá komi færri eða lægri reikningar, og þá verði hægt að borga einhverjar smáskuldir, t.d. lán af afmælispeningum barn- anna, eða lán úr flöskusjóði. (Börnin hafa komið með tómar flöskur, sem þau hafa fundið úti, og stofnaður var flöskusjóður). Ég er orðin leið á svona mánaða- mótum, þegar maður by r j ar strax að telja dagana fram að næstu mánaðarmótum. Éger kennari, bý ein með 2 börnum r.-.:_ eru bæði á skólaaldri. Ég veit að ég hef það betra en margur ann- ar, en samt ná endar engan veg- inn saman. Og nú er þolinmæði mín á þrotum. Ég verð reiðari og reiðari yfir óréttlæti og skilnings- leysi forráðamanna þjóðarinnar, og ég er að missa trúna á réttlæti og jafnrétti. Ég veit ekki lengur hvað á til bragðs að taka. Hvernig er hægt að ætlast til að fólk lifi af launum sem eru það lág, að það er alveg sama hvað er sparað mikið, endar geta ekki náð saman. Nú er ég vel sett að mörguleyti. Égþarft.d. ekki lengur að borga barnapössun. Yngra barn mitt gengur í notuð- um fötum af eldra systkini sínu og öðrum börnum úr fjölskyldunni. Ég er dugleg að nýta fatnað, geri við fötin okkar, og sauma þó- nokkuð sjálf. En aðeins úr gömlum efnum ogódýrum.Ég kaupi aldrei efni á fullu verði. Égáekki bíl, og hefoftekki efniá að kaupa strætisvagnakort. Ég hef ekki lengur efni á að fara í leikhús eða bíó, hvað þá annan lúxus, sem ætti þó ekki að þurfa að vera lúxus. Það ættu að vera sjálfsögð mannréttindi fyrir hvern og einn, fyrir utan mat og húsaskjól (sem þykir ekki lengur sjálfsagður hlutur), að geta fylgst með því sem er að gerast í menn- ingarlífi borgarinnar. Hvernig er með sumarfrí? Er það sjálfsagt og eðlilegt að geta ekki boðið börn- um sínum í smá sumarfrí? Ég hef oft velt þvt fyrir mér upp á síðkastið, hversvegna ekki heyrast fleiri óánægjuraddir. Það er greinilega ekki sama hvaða ríkisstjórnervið völd. Þegarein- stæð móðir sem vinnur fullan vinnudag, og getur engan veginn látiðendanásaman, verðurm.a. að neita börnum sínum um lif- andi jólatré á jólunum ásamt fleira jólastússi, getur svo sagt, „Þegar ég legg þessa reikninga saman ásamt matar- reikning, vantar mig nokkurþúsund krónur uppá. Ég er allan mánuðinn að bíða eftir nœstu mánaðamótum í von um að þá komi fœrri eða lœgri reikningar, og þá verði hægt að borga einhverjar smáskuldir, t.d. lán af afmœlispeningum barnanna, eða lán úr flöskusjóði. (Börnin hafa komið með tómar flöskur sem þau hafa fundið úti, og stofnaður var flöskusjóður)“. „Einstæðir foreldrar og börn þcirra hafa fullan tilverurétt og, ef ekki verður bundinn endir á þessa eymd og lítillækkun, þá þori ég ekki að hugsa um framhaldið, og hvernig árið ’84 verður hjá okkur iáglauna- fólki“, segir bréfritari. Myndin er táknræn. ,Á meðan ég vinn fullan vinnudag á ég rétt á að geta veitt mér og börnum mínum nœgan og hollan mat, hlýtt húsaskjól og hlýjan fatnað, ásamt því að leyfa þeim að kynnast svolitlu af því sem er að gerast í menningarlífi borgarinnar“. að hún vilji gjarnan taka þátt í því að koma verðbólgunni niður, og hún vilji gjarna gefa ríkisstjórn- inni tækifæri til að vinna í friði.... Af hver j u lætur fólk fara svona með sig? Vita þessir ráðamenn okkar nokkuð hvað þeir eru að fara framá við almenning í landinu? Hvernig væri fyrir þessa menn að fá sér blað og blýant í hönd og reikna sjálfir út kostnað fjölskyldu? Hvar á að spara? 1. Með því að borða minni og ein- hæfari mat? Kynnið ykkur fyrst hvað al- menningur hefur á borðum dagsdaglega. 2. Nota minna rafmagn með því að þvo í höndum og hafa ljós í einu herbergi í stað tveggja eða þriggja? 3. Nota minnaaf hcitu vatni með þvi að kynda minna og klæða sig betur, og fara sjaldnar í bað? 4. Sleppa fatakaupum, sem cru þó nær engin, og betla frá mæðrastyrksnefnd og fleiri góðgerðarstofnunum? Nei og aftur nei. Á meðan ég vinn fullan vinnudag á ég rétt á að geta veitt mér og börnum mínum næg- an oghollan mat, hlýtthúsaskjól og hlýjan fatnað, ásamt þvíað leyfa þeim að kynnast svolitlu af því sem er að gerast í menningar- lífi borgarinnar. Þá á ég við að geta boðið þeim í bíó eða leikhús endrum og eins, og síðast en ekki síst að geta leyft mér að vera stund og stund með börnum mín- um, án þess að vera með sam- viskubit yfir því að vera ekki að vinna fy rir peningum. Ég veit að það er hægt að spara með ýmsu öðru móti en að lækka laun almennings. Ég hef líka augu og sé að það eru ýmsir hóp- ar í þjóðfélaginu sem hafa miklu meir en nóg fyrir sig. Það hljóta allir að sjá sem ekki hafa bundið fyrir augun. Einstæðirforeldrar og börn þeirra hafa fullan tilveru- rétt, og ef ekki verður bundinn endir á þessa eymd og lítillækk- un, þá þori ég ekki að hugsa um framhaldið, og hvernig árið ’84 verður hj á okkur láglaunafólki. Einstæð móðir. Athugasemd ritstjóra Bréfritari vildi ekki láta nafn síns getið og er mörgum þannig farið að þeir vilja ekki bera fátækt sína á torg. En hér er um mikilsverðan og sannan vitnisburð að ræða sem þarf að koma fram og bréfritari lét fylgja með að svipað væri á- statt um fjölda annarra ein- stæðra mæðra sem ræddu mikið um sín kjör í sinn hóp þessa dagana. Bréfið var skrifað aðfaranótt 3. janúar og var lokið kl. 6 að morgni.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.