Þjóðviljinn - 04.01.1984, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 04.01.1984, Blaðsíða 12
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 4. janúar 1984 ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Alþýðubandalagið í Reykjavík Árshátíð og þorrablot Árshátíð og þorrablót Alþýðubandalagsins í Reykjavík verður laugardaginn 28. janúar 1984. Þegar eru bókanir farnar að berast og eru menn hvattir til að skrá sig fyrir miðum sem allra fyrst. í fyrra komust færri að en vildu. Dagskrá og skemmtiatriði auglýst síðar. - Skemmtinefnd ABR Alþýðubandalagið á Akureyri Árshátíð Árshátíð Alþýðubandalagsins á Akureyri verður haldin laugardaginn 21. janúar nk. Glæsileg dagskrá með heimsþekktum skemmtikröftum. Látið skrá ykkur sem fyrst til þátttöku hjá Ragnheiði í síma 23397 eða Óttari í síma 21264. Nánar auglýst síðar. Skemmtinefndin. Alþýðubandalagið Grundarfirði Opinn fundur um sjávarútvegsmálin Alþýðubandalagið í Grundarfirði boðar til fundar um viðhorfin í sjávarútvegsmálum og kvótakerfið í samkomuhúsinu í Grundarfirði fimmtudagskvöldið 5. janúar næstkomandi kl. 20.30. Framsögumaður Skúli Alexandersson alþingis- maður. Fyrirspurnum svarað að aflokinni fram- sögu. Stjórn AB í Grundarfirði. Æskulýðsfylking Alþyðubandalagsins Ungt fólk í Kópavogi! Jæja, nú kýlum við á að stofna eitt stykki Æskulýðsfylkingu AB. í Kópavogskaupstað. Undirbúningsstofnsetningarmannfagnaðurinn verður háður í Þinghól félagsmiðstöð AB. í Kópavogi mánudaginn 9. janúar 1984. Félagsmiðstöðin er ítölusettu húsi nr. 11 við Hamraborg. Fundurinn hefst kl. 20.30 að staðartíma. - Hópnefndarráð. Frá Menntaskólanum við Hamrahlíð Stundatöflur nemenda í dagskóla veröa af- hentar hjá umsjónarkennurum mánudaginn 9. janúar kl. 8.30 gegn greiðslu 700 króna innritunargjalds. Kennsla hefst sama dag kl. 12.10. Kennsla í Öldungadeild hefst 9. janúar skv. stundaskrá. Innritun í deildina veröur 5. og 6. janúar kl. 15-18. Kennarafundur veröur 5. janúar kl. 13. Bóksala nemenda veröur opin kl. 9-12 mánu- daginn 9. janúar. Rektor Skúli jfc Auglýsing Jfff til skattgreiðenda Samkvæmt lögum um tekjuskatt og eignarskatt eru gjalddagar tekjuskatts og eignarskatts tíu á ári hverju þ.e. fyrsti dagur hvers mánaðar nema janúar og júlí. Dráttarvexti skal greiða af gjaldfallinni skuld sé skattur ekki greiddur innan mánaðar frá gjalddaga. Gilda sömu reglur um greiðslu annarra þinggjalda. Af tæknilegum ástæðum hefur til þessa ekki verið unnt að miða dráttarvaxtaútreikning við stöðu gjald- enda um hver mánaðamót. Hefur því í framkvæmd verið miðað við stöðuna 10. dag hvers mánaðar sbr. auglýsingu ráðuneytisins dags. 27. apríl 1982. Drátt- arvextir hafa því í reynd verið reiknaðir 10 dögum seinna en lög kveða á um. Er nú stefnt að því að stytta þennan frest eins og kostur er. Geta gjaldendur því framvegis búist við að dráttarvextir verði reiknaðir þegar eftir að mánuður er liðinn frá gjalddaga. Þá er sérstök athygli vakin á því að launagreiðendum ber að skila því fé sem haldið er eftir af kaupi launþega innan sex daga frá útborgunardegi launa. Fjármálaráðuneytið, 27. desember 1983. blaðið sem vitnað er i ___— - Síminn er Er ekki tilvalid að gerast áskrifandi? 81333 Sigríður Þorvaldsdóttir, Sigurður Sigurjónsson, Tinna Gunnlaugsdóttir, Rúrik Haraldsson, Þóra Friðriksdóttir og Bessi Bjarnason í Skvaldri sem nú verður á miðnætursýningum í Þjóðleikhúsinu. „Skvaldur64 sýnt fyrir nátt- hrafna á miðnætur- sýningum í Þjóðleikhúsinu Sýningar á „Skvaldri“ í Þjóðleik- húsinu eru nú að hefjast eftir ára- mótin og verður efnt til nokkurra miðnætursýninga á þessum vinsæla gamanleik. Þetta er að sögn for- svarsmanna Þjóðleikhússins gert til þess að koma til móts við hina fjölmörgu nátthrafna, sem reynslan sýnir að vilja gjarnan fara í leikhúsið og skemmta sér, þegar þeir ættu með réttu að vera farnir að sofa. Fyrsta miðnætursýningin á „Skvaldri" verðurn.k. laugardags- kvöld, 7. janúar, klukkan hálf tólf. „Noises Off“ eða Skvaldur eftir Michael Frayn var árið 1982 valinn besti gamanleikur í Bretlandi og hefur síðan farið sigurför um lönd og álfur. í Þjóðleikhúsinu hefur „Skvaldur" verið sýnt við miklar vinsældir í allt haust og lítið lát á aðsókn. Leikstjóri er Jill Brook Árnason, en leikendur: Gunnar Eyjólfsson, Þóra Friðriksdóttir, Sigriður Þorvaldsdóttir, Bessi Bjarnason, Rúrik Haraldsson, Sig- urður Sigurjónsson, Tinna Gunnlaugsdóttir, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir og Þórhallur Sig- urðsson. -ekh Nám í Frakklandi Umsóknir fyrir 26. janúar Franska sendiráðið bendir þeim nemendum sem óska eftir að innrita sig í franskan háskóla (í hvaða grein sem er) haustið 1984 að þeir verða að koma til að fá forinnritunareyðublöð fyrir mánu- daginn 16. janúar, í síðasta lagi. Eyðublöðin á aftur að koma með útfyllt og fullfrágengin eins og vera ber, fyrir 26. janúar, í síðasta lagi. Krafist er hæfnisprófs í tungu- málinu af öllum erlendum- nemendum sem vilja innrita sig í franskan háskóla og mun það verða haldið í Reykjavík, þriðju- daginn 14. febrúar 1984. Það ersíð- an í maímánuði sem háskólarnir, sem valdir eru, kunngera nemend- um svör sín. Þetta á þó ekki við um þá sem vilja fara til að læra frönsku eða fullkomna sig í þeirri tungu í deildum fyrir útlendinga í einhverj- um þeirra 30 háskóla, sem bjóða upp á þessa sérstöku kennslu. Menningardeild franska sendi- ráðsins (Túngötu 22, sími: 17621 eða 17622 / opnunartími 9-12 og 13.30-16.30) er reiðubúin að veita þeim nemendum sem vilja halda námi sínu áfram í Frakklandi upp- lýsingar og ráðleggingar í þeim efn- um. I þjálfun til Frakklands Skíðadeild KR hefur sent ungan skíðaþjálfara, Kára Elíasson, á 4 vikna námskeið í boði Sambands- ins, franska viðskiptaráðuneytisins og fyrirtækisins Trappeur. Nám- skeiðið hefst 9. þessa mánaðar í Chamonix, og verður kennt í frönsku Ölpunum m.a. á frægum skíðastöðum svo sem Les Arcs, La Plagne og Les 3 Valles. Auk skíða- iðkunar er þátttakendum boðið að skoða verksmiðjur margra virtra skíðavöruframleiðenda, og hlýða á fvrirlestra um skíðaíþróttina. Ástæðan fyrir þessu boði er stór- aukin sala á Trappeur skíðaskóm til íslands, Philippe Moreau verslunarfulltrúi franska sendiráðsins afhendir Kára Elíassyni farseðilinn til Frakklands. Með á myndinni er Guðjón Sigurðs- son deildarstjóri Búsáhaldadeildar Sambandsins. Námskeið fyrir dönskukennara Námskeið fyrir dönskukennara cand.mag., sem kunn er fyrir gerð Fjallað verður um notkun verðurhaldið Norræna húsinu kennslubóka í dönsku fyrir útlend- hljómbanda, myndbanda, mynd- föstudaginn 6. og laugardaginn 7. inga; enn fremur verður Hanne máls og söngtexta í tungumála- janúar nk. og stendur frá kl. 9 - 17 Marie Winkel, kennari frá Kaup- kennslu. Námskeiðið er opið öllum báða daga. Fyrirlesari og stjórn- mannahöfn, leiðbeinandi á nám- dönskukennurum á grunnskóla- og andi verður Merete Biprn, skeiðinu. framhaldsskólastigi.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.