Þjóðviljinn - 04.01.1984, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 04.01.1984, Blaðsíða 8
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 4. janúar 1984 Móðir okkar fósturjörðin kallar! Sovétríkin 1941. Hetjudýrkun kemur víða fram í Ryðjið brautina! Kaupið hlutabréf í fjórða frelsisláninu. Bandaríkin 1914-18. sovéskri myndlist og áróðri, og var sérstaklega lögð áhersla á kvenhetjuna í stríði og framleiðslu. Um konur í auglýsingum í 100 ár Ein af grundvallarreglum auglýsingatækninnar er sú, aö til þess að ná til ákveðinna ein- staklinga með einhvern boð- skap er áhrifaríkt að birta mynd sem viðtakandinn getur séð sjálfan sig í með einhverju móti. Vandinn við að gera auglýsingu sem hittir í mark er því í því fólg- inn meðal annars að ná fram ímynd þeirrar manngerðar sem höfða á til. Einmitt vegna þessa verða auglýsingar og plaköt svo merkar og lýsandi sögulegar heimildir og raun ber vitni. Þau segja okkur oft meira um viðhorf og sjálfsskilning stórra þjóðfél- agshópa á ákveðnum tímum en langar og flóknar félagslegar og sögulegar rannsóknir. Hafi vel til tekist þá hitta slíkar myndir enn- þá í mark, löngu eftir að þær hafa glatað áróðursgildi sínu: þær hitta í mark sem ómetan- legar sögulegar heimildir um gömul viðhorf, fordóma og hug- arástand, sem fróðlegt er að horfa í eins og spegil. Því sagan er sá spegill sem maðurinn verður að horfast í augu við til þess að þekkja sjálfan sig. Nýlega barst okkur á Þjóðvilj- anum í hendur bók, sem jafn- framt er sýningarskrá fyrir sýn- ingu sem haldin var í Feneyjum fyrir 5 árum, þar sem sýndar voru auglýsingar og veggmyndir síðustu 100 ára þar sem sér- staklega var höfðað til kvenna í pólitískum tilgangi. Til fróðleiks birtum við hér nokkrar myndir úr bókinni þar sem höfðað er til kvenna af ýmsu tilefni. Ástæðan fyrir því að myndir þessar eru svo lýsandi og áhrifamiklar enn í dag er kannski sú að í fáum efn- um hefur þrátt fyrir allt orðið meiri breyting á síðustu hundrað árum í okkar þjóðfélagi en ein- mitt í sjálfskilningi kvenna og viðhorfi samfélagsins til þeirra. Jafnréttisbarátta kvenna hefur skilað árangri. En þau úreltu við- horf sem fram koma í mörgum þessara mynda voru eitt sinn góð og gild hjá stórum hópum karla og kvenna. Og enn mun langt í land að vitundin og skilningurinn á jafnrétti kynjanna sé orðinn rótgróinn í þjóðfé- laginu. Sjálfsímynd mannsins tekur stöðugum breytingum og efalaust eiga veggmyndir nútím- ans eftir að þykja skemmtilegir safngripir þegar frammí sækir. Myndimar sem hér eru valdar tengjast konunni sem móður og hjarta fjölskyldunnar, konunni og stríðinu og konunni og jafnréttisbaráttunni. -ólg. Frelsum suðrið, verjum norðrið og sameinum þjóðina. Berjumst fyrir frelsun lands- ins og sköpum hinn nýja mann. Víetnam 1970.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.