Þjóðviljinn - 10.01.1984, Síða 3

Þjóðviljinn - 10.01.1984, Síða 3
Þriðjudagur 10. janúar 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 Styrkur borgarinnar til Alþýðuleikhússins: Attum ekkí von á þessari lækkun segir Tinna Gunnlaugsdóttir Alþýðuleikhúsið varð illa úti í styrkveitingu borgarinnar. „Við vonuðumst eftir meiri fyrir- greiðslu, en verðum að sætta okkur við þetta vegna lítillar starfsemi síðast liðið ár“, sagði Tinna Gunnlaugsdóttir leikari í samtali sem Þjóðviljinn átti við hana í gær. Eftir að hafa sent inn bréf og farið á fund borgarstjóra átti Alþýðu- leikhúsfólk von á að styrkveiting til þess stæði í stað. Svo varð þó ekki, því í fyrra fékk Alþýðuleikhúsið 140 þúsund en aðeins 80 þúsund í ár. Tinna sagði ennfremur að öflug starfsemi væri framundan þrátt fyrir litla fyrirgreiðslu borgarinnar. Stefnt er að því að geta sýnt fram á, að Alþýðuleikhúsið eigi betra skilið næsta ár. Alþýðuleikhúsið hefur verið í miklum húsnæðisvandræðum síð- an Hafnarbíó var rifið. „Engin að- staða er í húsnæði í eigu borgarinn- ar fyrir leiksýningar okkar. En leikfélög úti á landsbyggðinni geta oft fengið ódýrt húsnæði í eigu síns bæjarfélags á léigu,“ sagði Tinna og benti jafnframt á að þau voru á ýmsum stöðum í bænum með sínar sýningar. Starfsemi Alþýðuleikhússins er í mikilli uppsiglingu nú sem stendur: „Kaffitár og frelsi" eftir Fassbind- er, er sýnt á Kjarvalsstöðum um þessar mundir og var uppselt á síð- ustu sýningu þar. Ný leikgerð Þór- unnar Sigurðardóttur „Eldurinn" var frumsýnd á Kirkjubæjar- klaustri um áramótin. Leikrit Ein- ars Pálssonar „Brunnir Kolskógar“ er fyrirmynd þessa verks, sem fjall- ar um Skaftárelda. Farið verður með þetta verk í skólana og víðar. Tveir einþáttungar verða frum- sýndir þann 19. janúar. Þeir eru eftir David Mamet og hafa fengið heitið „Andardráttur". Sýningar verða í Ráðstefnusal Hótels Loft- leiða. „Viss ótti er við að fara út fyrir miðbæjarkjarnann með sýningar, því reynslan hefur sýnt að slíkt þýði minni aðsókn. En við ætlum að “reyna þetta því salurinn er virki- ega skemmtilegur“, sagði Tinna. Að lokum sagði hún að framtíðar- vonir Alþýðuleikhússins væru bundnar við Iðnó. Þegar Leikfélag Reykjavíkur kemst í Borgar- leikhúsið losnar það húsnæði, sem reyndar er ekki í eigu borgarinnar, en á sér hefð í sögu leiklistarinnar. -jP Dagana 21. og 22. janúar nk. Ráðstefna um sjávarútvegsmál Tinna Gunnlaugsdóttir: „Látum ekki deigan síga“. á vegum AB Dagana 21. og 22. janúar nk. mun Alþýðubandalagið gangast fyrir ráðstefnu um sjávarút- vegsmál að Hverfisgötu 105. Að sögn Baldurs Óskarssonar fram- kvæmdastjóra flokksins er ráð- stefnan haldin samkvæmt ákvörð- un Landsfundar með hliðsjón af mikilvægi sjávarútvegsins í íslensk- um þjóðarbúskap og einnig með til- liti til þeirra aðstæðna sem hafa verið að skapast í atvinnugreininni að undanförnu. Ráðstefnan hefst laugardaginn 21. janúar með ávarpi Svavars Gestssonar formanns Alþýðu- bandalagsins en síðan hefjast er- indi um eftirtalda málaflokka. Jóhann Antonsson útgerðar- maður á Dalvík mun ræða um eignarhald og skipulag í sjávarút- vegi. Kristján Ásgeirsson og Helgi Kristjánsson á Húsavík munu ræða um rekstrargrundvöll sjávarút- vegsins og framtíðarhorfur. Engil- bert Guðmundsson Akranesi fjall- ar um stjórnun fiskveiða. Margrét Frímannsdóttir og Þorbjörg Samú- elsdóttir ræða um kjör verkafólks í sjávarútvegi og Björn Arnórsson mun spjalla urn fjárfestingar og arðsemi í greininni. Þá mun Lúðvík Jósepsson Neskaupstað halda er- indi um stöðu sjávarútvegsins í þjóðarbúinu og horfur á árinu 1984. Jóhann J.E. Kúld mun flytja sérstakt ávarp á þessari ráðstefnu AB um sjávarútvegsmál en hann er löngu þjóðkunnur fyrir m.a. skrif sín í Þjóðviljanum um þennan mikilvæga atvinnuveg, sagði Bald- ur ennfremur. Ráðstefnustjórar verða þeir Brynjólfur Oddsson skipstjóri á Dalvík og Skúli Alexandersson al- þingismaður Hellissandi. Við von- umst til að sem allra flestir sæki þessa þýðingarmiklu ráðstefnu og tilkynni þátttöku sína sem allra fyrst til skrifstofu flokksins í Reykjavík, sagði Baldur Óskars- son að lokum. I undirbúningsnefnd fyrir ráðstefnuna voru þau Margrét Frímannsdóttir, Engilbert Guð- mundsdóttir og Steingrímur J. Sig- fússon. —v. Rautt þríhyrnt merki á lyfjaumbúðum táknar að notkun lyfsins dregur úr hæfni manna í umferðinni AUKIN ÞJONUSEÁ Alþýðubankinn opnar í dag gjaldeyrisafgreiðslu, sem annast al- menna þjónustu á sviði erlendra viðskipta. Við bjóðum velkomna ferðamenn, námsmenn og aðra þá sem vilja kaupa eða selja erlendan gjaldeyri, eða stofna innlendan gjaldeyrisreikning. VISA greiðslukort til notkunar innanlands og erlendis Við gerum vel við okkar fólk Alþýðubankinn hf. Laugavegi31 sími 28700 Útibú Suðurlandsbraut 30 sími 82911 IBM gefur KHI IBM-fyrirtækið á íslandi hefur fært Kennaraháskóla íslands að gjöf 5 tölvur af gerðinni IBM Personal Computer, ásamt ýmsum tilheyrandi vél- og hugbúnaði. Verðmæti gjafarinnar er 1.300 þús- und krónur. Forstjóri fyrirtækisins, Gunnar M. Hansson, kom í heimsókn í Kennaraháskólann nú um ára- mótin og afhenti rektor skólans formlega bréf þar sem frá þessu er greint. í gjafabréfinu segir m.a.: „Tölvurnar verði notaðar til þeirra kennslu- og þróunarverkefna sem Kennaraháskólinn telur réttast og hagkvæmast á hverjum tíma“. I bréfinu er ennfremur tekið fram að gjöfin sé afhent skilyrðis- og kvaðalaust af hálfu IBM. Rektor þakkaði að lokum fyrir hönd Kennaraskólans gefendum hina rausnarlegu gjöf, sem hann kvað koma á heppilegum tíma.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.