Þjóðviljinn - 10.01.1984, Side 5

Þjóðviljinn - 10.01.1984, Side 5
Þriðjudagur 10. janúar 1984 ÞJÓÐVILJINN. - SÍÐA 5 Nú er að hefjast námskeið í Reykjavík um Færeyjar en síðar í mánuðinum verður opnuð sérstök sýning um Færeyjar í Norræna húsinu. Færeyjar í dag Námsflokkar Reykjavíkur, Nor- ræna félagið, Norræna húsið og Færeyingafélagið munu gangast fyrir námskeiði um Færeyjar og byrjar það í janúar og stendur til 4. maí í vor. Leiðbeinandi verður Jónfinn Joensen kennari. Nám- skeiðið verður í Norræna húsinu á þriðjudagskvöldum kl. 20.30. 15 manns komast að á námskeiðið. Fjallað verður um sögu og tungu, staðhætti og náttúru, fær- eyska atvinnusögu og samband við ísland, en höfuðáherslan verður iögð á færeyska menningu og fær- eyskt þjóðfélag í dag. Færeyjakynningin verður opnuð laugardaginn 21. jan. kl. 15 í fund- arsal Norræna hússins. ER- LENDUR PATURSSON lög- þingsmaður heldur fyrirlestur um samband Færeyja og íslands. f tengslum við námskeiðið verða kynningar fyrir almenning á bók- menntum, kvikmyndum, fær- eyskum dansi og Heri Joensen cand. theol. heldur fyrirlestur um sögu Færeyinga. Þátttöku skal tilkynna skrifstofu Norræna hússins, sími 17030. Þátt- tökugjald verður 900 kr. Nýtt loðnuverð Yfirnefnd verðlagsráðs sjávarút- vegsins hefur ákveðið að lágmarks- verð á loðnu til bræðslu frá 2. janú- ar til loka vetrarvertíðar verði kr. 900 á hvert tonn. Verðið er miðað við 8% fituinni- hald og 16% fitufrítt þurrefni. Verðið breytist um kr. 77.00 til hækkunar eða lækkunar fyrir hvert 1%, sem fituinnihald breytist frá viðmiðun og hlutfallslega fyrir hvert 0.1%. Fitufrádráttur reiknast þó ekki, þegar fituinni- hald fer niður fyrir 3%. Verðið breytist urn kr. 82.00 til hækkunar eða lækknar fyrir hvert 1%, sem þurrefnismagn breytist frá viðmið- un og hlutfallslega fyrir hvert 0.1%. Ennfremur greiði kaupend- ur 2 krónur fyrir hvert tonn til Loðnunefndar. Fituinnihald og fitufrítt þurrefn- ismagn hvers loðnufarms skal ák- varðað af Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins eftir sýnum, sem tekin skulu sameiginlega af fulltrúa veiðiskips og fulltrúa verksmiðju í samráði við Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins. Verðið er miðað við loðnuna komna í löndunartæki verksmiðju. Lágmarksverð á úrgangsloðnu til bræðslu frá frystihúsum skal vera kr. 97.00 lægra fyrir hvert tonn en að ofan greinir og ákvarð- ast á sama hátt fyrir hvern farm samkvæmt teknum sýnum úr veiði- skipi. Verðið er uppsegjanlegt frá 1. febrúar 1984. Tillagan var samþykkt með at- kvæðum oddamanns ög fulltrúa seljenda. Fulltrúar kaupenda mót- mæltu verðákvörðuninni. í yfirnefndinni áttu sæti: Bolli Þór Bollason, sem var oddamaður nefndarinnar, Ágúst Einarsson og Ingólfur Stefánsson voru fulltrúar seljenda og fulltrúar kaupenda voru Guðmundur Kr. Jónsson og Jón Reynir Magnússon. Lausaskuld- ír bænda Margir bænda eiga í verulegum fjárhagsþrengingum vegna lausa- skulda. Unnið er nú að því að breyta þeitn ■ föst lán. Þessi skulda- mál voru til umræðu á nýaf- stöðnum kaupfélagsstjórafundi og var þar samþykkt cftirfarandi á- lyktun frá kaupfélagsstjórunum Olafi Friðrikssyni á Sauðárkróki og Ólafi Sverrissyni í Borgarnesi: „Fundurinn... lýsir stuðningi sínum við þá fyrirætlun landbúnað- arráðherra og stjórnvalda að breyta lausaskuldum bænda í föst lán. Fundurinn minnir þó á, að enn eru margar miljónir bundnar í lausaskuldabréfum í eigu kaupfé- laganna frá síðustu breytingu. Þessvegna telur fundurinn að fors- enda þess að félögin geti tekið við lausaskuldabréfum bænda sé sú, að þau geti selt bréfin, t.d. til Seðla- banka íslands, svipað því og gert var um lausaskuldabreytingu út- gerðarinnar fyrr á þessu ári“. - mhg. Dregid fímmtu- dagirni Umboðsmenn í Reykjayik og nágrenni Aðalumboð, Suðurgötu 10, sími 23130 Umboðið Grettisgötu 26, sími 13665 Sjóbúðin Grandagarði 7, sími 16814 Hreyfill, bensínsala, Fellsmúla 24, sími 85632 Verslunin Straumnes, Vesturbergi 76, sími 72800 Sparisjóðurinn Seltjarnarnesi, sími 25966 SIBS-deildin Reykjalundi, Mosfellssveit Borgarbúðin, Hófgerði 30, Kópavogi, sími 40180 Bókabúðin Gríma, Garðaflöt 16-18, Garðabæ, sími 42720 Vilborg Sigurjónsdóttir, c/o Bókabúð Olivers Steins, Strandgötu 31, Hafnarfirði, sími 50045 Lilja Sörladóttir, Túngötu 13, Bessastaðahreppi, sími 54163 Happdrætti SIBS i

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.