Þjóðviljinn - 10.01.1984, Page 6

Þjóðviljinn - 10.01.1984, Page 6
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJÍNN Þriðjudagur 10. janúar 1984 Starf forstjóra Norræna hússins í Reykjavík Hér með er auglýst laust til umsóknar starf forstjóra Norræna hússins í Reykjavík, og verður staðan veitt frá 1. nóvember 1984 til fjögurra ára. Forstjórinn á að skipuleggja og veita forstöðu daglegri starfsemi Norræna hússins, en hlut- verk þess er að stuðla að menningartengsl- um milli íslands og annarra Norðurlanda með því að efla og glæða áhuga íslendinga á norrænum málefnum og einnig að beina ís- lenskum menningarstraumum til norrænu bræðraþjóðanna. Ríkisstarfsmenn eiga rétt á allt að fjögurra ára leyfi frá störfum til að taka að sér stöður við norrænar stofnanir og geta talið sér starfstímann til jafns við starf unnið í heima- landinu. Laun og önnur kjör ákvarðast eftir nánara samkomulagi. Frítt húsnæði. Nánari upplýsingar um starfið veita Guð- laugur Þorvaldsson, stjórnarformaður NH, (s. 25644) og Ann Sandelin, Norræna húsinu (s. 17030). Umsóknir stílaðar til stjórnar Norræna húss- ins, sendist: Nordis.ka Ministerrádet, Kultursekretariatet, Snaregade 10, DK-1205 Kobenhavn K. Skulu þær hafa borist eigi síðar en 15. febr. 1984. Norræna húsiö er ein meðal 40 samnorrænna fasta- stofnana og framkvæmda, sem fé er veitt til á hinni sameiginlegu norrænu menningarfjárhagsáætlun. Ráðherranefnd Norðurlanda, þar sem menningar- og menntamálaráðherrarnir eiga sæti, fer með æðsta ákvörðunarvald í hinni norrænu samvinnu um menn- ingarmál. Framkvæmdir annast Menningarmálaskrifstofa ráð- herranefndarinnar í Kaupmannahöfn. Styrkir til Noregsfarar Stjórn sjóðsins Þjóðhátíðargjöf Norðmanna auglýsir eftir umsókn- um um styrki úr sjóðnum vegna Noregsferða 1984. Samkvæmt skipulagsskrá er tilgangur sjóðsins „að auðvelda Is- lendingum að ferðast til Noregs. í þessu skyni skal veita viður- kenndum félögum, samtökum, og skipulögðum hópum ferðastyrki til Noregs í því skyni að efla samskipti þjóðanna t.d. með þátttöku í mótum, ráðstefnum, eða kynnisferðum, sem efnt er til á tvíhliða grundvelli, þ.e.a.s. ekki eru veittir styrkir til þátttöku í samnorrænum mótum, sem haldin eru til skiptis á Norðurlöndunum. Ekki skal úthlutað ferðastyrkjum til einstaklinga, eða þeirra sem eru styrk- hæfir af öðrum aðilum". ( skipulagsskránni segir einnig, að áhersla skuli lögð á að veita styrki, sem renna til beins ferðakostnaðar, en umsækjendur sjálfir beri dvalarkostnað í Noregi. Hér með er auglýst eftir umsóknum frá þeim aðilum, sem uppfylla framangreind skilyrði. í umsókn skal getið um hvenær ferð verður farin, fjölda þátttakenda og tilgang fararinnar. Auk þess skal til- greina þá upphæð, sem farið er fram á. Umsóknir óskast sendar til stjórnar sjóðsins, Forsætisráðuneytinu, Stjórnarráðshúsinu, Reykjavík, fyrir 1. febrúar 1984. Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför Vilborgar Björnsdóttur Hallgerður Pálsdóttir Halldór B. Stefánsson Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og bróðir Ólafur Jónsson, ritstjóri, Hagamel 27, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 11. jan- úar kl. 3. Sigrún Steingrímsdóttir, Jón Ólafsson, Halldór Ólafsson, Valgerður Ólafsdóttir, Sólveig Jónsdóttir. Eldsneytis- birgðastöðin í Helguvík: Herstöðin á Keflavíkurflugvelli gegnir ekki bara hlutverki fyrir Nato, heldur þjónar hún einnig undir Strategic Air Command, sem er sá hluti bandaríska flughersins sem stýrir langdrægum landeld- flaugum og sprengjuflugvélum sem bera kjarnorkuvopn. Olíubirgðastöðin í Helguvík er að hluta til ætluð til þess að þjóna langdrægum sprengjuvélum bandaríska flughersins um leið og henni er ætlað að auka eldsneytis- forða bandaríska flughersins úr 6 í 45 daga á stríðstímum. Bandaríski herinn hefur uppi áform um að byggja nýja stjórn- stöð á Keflavíkurflugvelli þar sem stjórnendur geta hafst við í 7 daga án annars sambands við umheim- inn en í gegnum talstöð, komi til geislavirks úrfellis eða kjarnorku- árásar. íslenskir aðalverktakar eru þre- falt dýrari í framkvæmdum sínum á Keflavíkurflugvelli en hliðstæðir verktakar í Bandaríkjunum. Þetta voru nokkur þeirra atriða sem fram komu í fréttaskýringa- þætti sjónvarpsins, Kastljósi, síð- astliðinn laugardag, þar sem Ög- mundur Jónasson fréttamaður vitnaði í bandarísk þingtíðindi og ræddi við þá Gunnar Gunnarsson starfsmann öryggismálanefndar og Sverri Hauk Gunnlaugsson deildarstjóra Varnarmáladeildar utanríkisráðuneytisins. MUJTARY C0NSTRUCTI0N APPR0PRUT10NS FOR 1984 HEARINGS SUW.'OMiUTTEE OF THÉ C0MMITTEE 0N APPR0PRIATI0NS 1I0USE 0F REPRESENTATIVES NINETY-EIGHTH CONGRESS KIKST SESSION SUUCOMMITTEE ON MII.ITARY CONSTRUCTION APPROPRIATIONS W, (. JHII.l.i IIEINKK. Nurlh Curiflina, Ckmirman TOM HKVII.I.. Alahuina KAI.nl RCGULA. Ohm (T.AHKNI K II U)N(S. M.r,U«d MICKKY KOWARDS. OAI.hom. HIU. AUJCANUKK Ark.nM. TOM l/IKKKI.KH. T»» JOSKKII I’ AUOAHW). Nrw Y.irk HOH UVINCSTON. Uu...n. Hll.l. CIIAPPKU- J«. Kl.irnl. NOKMAN I) DICKS Wuhm«lnn VIC KAZIO. C.liforn.4 Tr..T H P.» onj M... W Mum.t. 4Uaff PAHT 4 Military (,'onstrurtion: | ftir Army ProKrum ........................................ | Nuvy/Marine ('orps l’roKrum ..................[.... 123 Defense AKencies 1'roKram ....................... 239 Keserve Components 1‘roKrum ...................... 291 Air Force ProKram (AM Session) .................... 337 Air Force Proxram (l'M Session)..................... 459 Fumily llousinK: Overall Issues .................................. 495 Army Projfrum .................................... 553 Navy/Marine Corps Pronrram ....................... 633 Air Force Proeram ............................. 667 Defense AKencies Pr»Krum .......................... 701 Appendix: Staff Study on Family llousinc Constmction Projram .......................................... 717 Forsíða bandarísku þingtíðind- anna sem vitnað er til. sem gerist með slíkar byggingar, sé sú að stjórnstöð þessi verði búin sérstökum búnaði sem sé að gæð- um sambærilegt við það sem er í stjórnstöð bandaríska flotans í Kings Bay. Eigi stjórnstöðin að vera að hluta til neðanjarðar og svo rammbyggð að hún geti staðið af sér höggbylgju frá sprengju. Þá eigi að vera sjálfvirkt loftræstikerfi er geri það kleift að loka byggingunni Þjónar bensíni í Helguvík segir talsmaður hersins að birgðir þessar eigi að fullnægja „öllum hernaðaraðgerð- um samkvæmt framkvæmanlegri stríðsáætlun er feli í sér fulla aukningu þess herafla sem stað- settur sé á íslandi á friðartímúm samkvæmt áætlun um liðsauka.“ Þá segir talsmaður hersins einnig að yfirstjórn hins sameiginlega her- afla á Atlantshafi líti á olíubirgða- stöðina sem forgangsverkefni númer eitt hvað varðar uppbygg- ingu aðstöðu fyrir flotann. Gunnar Gunnarsson starfsmað- ur Öryggismálanefndar staðfesti í viðtali við Ögmund Jónasson að Strategic Air Command, sem tals- menn hersins segja að hafa eigi af- not af Helguvíkurstöðinni, sé stjórnstöð hins langdræga kjarn- orkuvopnaforða bandaríska hers- ins. Sagði hann að þær langdrægu sprengjuflugvélar sem Bandaríkja- menn notuðu í þessu skyni væru af gerðinni B-52 og væri þeim beint gegn Sovétríkjunum. Sverrir Haukur Gunnlaugsson deildarstjóri varnarmáladeildar utanríkisráðuneytisins sagði í við- talinu við Ögmund Jónasson að þær framkvæmdir sem hér um ræðir hefðu ekki nema að hluta til verið samþykktar af íslenskum stjórnvöldum, en slíkt samþykki þyrfti um allar framkvæmdir á vell- inum. Sagði hann að 1. áfangi Helguvíkurframkvæmda, sem fæl- ist í pípulögnum, væri þegar hafinn og reiknað væri með að annar áfangi hefðist 1985 með hafnar- byggingunni, og að tankarnir yrðu síðan reistir í þriðja áfanga. Sverrir sagði það misskilning hjá talsmanni bandaríkjahers að Stra- tegic Air Command ætti að hafa afnot af Helguvíkurstöðinni og kallaði það „skýringardæmi" sem ekki ætti við Keflavík. Hins vegar ætti það við AWAC-radarflugvél- arnar sem staðsettar eru í Keflavík, - þær heyrðu ekki undir sameigin- kjarnorkusprengju- véliiin Bandaríkjanna Þingtíðindin sem hér um ræðir og Þjóðviljinn hefur einnig undir höndum varða fjárbeiðni banda- ríska hersins til framkvæmda á Keflavíkurflugvelli og hafa að geyma yfirheyrslur fjárveitinga- nefndar bandaríska þingsins á full- trúum hersins, þar sem þeir færa fram rök fyrir fjárbeiðnum til fram- kvæmda á Keflavíkurflugvelli. í tíðindum þessum kemur fram að fjárveitinganefnd þingsins spyr ítrakað hvers vegna hinar ýmsu framkvæmdir á vellinum séu ekki kostaðar af Nato. Kemur þar fram að Nato greiðir ekki þær fram- kvæmdir sem þjóna eiga banda- ríska hernum eingöngu, en ekki sameiginlegum herafla Nato. Þannig kemur fram að bandaríski herinn hefur farið fram á 60 miljón dollara fjárveitingu (1,8 miljarðar ísl. króna) til framkvæmda í Helgu- vík. Kemur fram að Nato sé ekki skuldbundið til að greiða fyrir meira en helming kostnaðar og sé þess vænst að bandalagið muni leggja fram sitt framlag 1985. Ástæðan fyrir því að Nato þarf ekki að greiða nema helming kostnaðar í Helguvík er að sögn talsmanns Bandaríkjahers sú að á stríðstím- um verði olíubirgðirnar í Helguvík að hálfu leyti notaðar undir farkost sem ekki heyrir undir Nato, heldur undir Strategic Air Command, sem er eins og áður segir stjórnstöð bandaríska flughersins á langdræg- um sprengjuflugvélum sem bera kjarnorkuvopn. Ný stjórnstöð í þingtíðindunum kemur einnig fram að bandaríski herinn hefur áform um að byggja neðanjárð- arstjórnstöð á Keflavíkurflugvelli sem áætlað er að muni kosta 15,8 miljónir dollara eða ca 474 miljónir ísl. króna. Kemur fram að skýring- in á hinu háa verði þessarar stjórn- stöðvar, sem sé langt umfram það Samkvæmt upplýsingum talsmanna hersins við bandaríska þingnefnd algjörlega í a.m.k. 7 daga. Segir fulltrúi hersins jafnframt að þær kröfur að hægt sé að dvelja 7 daga einangraður frá umheiminum í þessari stjórnstöð séu miðaðar við þarfir bandaríska hersins en ekki við þarfir Nato, og því lendi kostn- aðurinn á Bandaríkjunum. í þingtíðindunum kemur það fram að bandarísku fjárveitinga- nefndinni vex það mjög í augum að byggingakostnaður skuli vera þre- faldur á Keflavíkurflugvelli miðað við Bandaríkin. í skýringum tals- manna hersins kemur fram að auk veðurfars og náttúrulegra aðstæð- an þá sé meginástæðan sú að ís- lenskir aðalverktakar hafi einokun á framkvæmdum á vegum hersins og að verkalýðsfélög séu of sterk hér á landi. „Samkvæmt stríðsáætlun“ Varðandi þörfina á geymslurými fyrir 400.000 tunnur af flugvéla- legan herafla Nato, heldur lytu þær eingöngu stjórn bandaríska hers- ins. Nauðsynleg stjórnstöð Þá sagði Sverrir að bandaríska þingnefndin hefði hafnað hug- myndum hersins um byggingu nýrrar stjórnstöðvar á Keflavíkur- flugvelli, í fyrsta lagi á þeim for- sendum að hún væri of dýr og í öðru lagi vegna þess að hún ætti að vera kostuð af Nato. Hins vegar sagði Sverrir að það væri brýn nauðsyn að byggja nýja stjórnstöð á Keflavíkurflugvelli þar sem sú gamla væri löngu orðin úrelt. Ekki kom fram þarna hvort Sverrir tal- aði fyrir munn bandaríska hersins eða íslensku ríkisstjórnarinnar, en greinilega er íslenski deildarstjór- inn í utanríkisráðuneytinu á ann- arri skoðun en Bandaríkjaþing í þessum efnum. Þess má að lokum geta að í þing- tíðindum þeim sem til er vitnað eru margar útstrikanir þar sem sleppt er atriðum sem þykja varða öryggi Bandaríkjanna sérstaklega. í við- talinu við Ögmund Jónasson vék Sverrir Gunnlaugsson sér undan því að svara þeirri spurningu, hvort íslenska utanríkisráðuneytið hefði aðgahg að þingskjölum þessum óstyttum. Er forvitnilegt að vita hvort öryggismái er tengjast öryggi íslands sérstaklega séu rædd á lok- uðum nefndarfundum í bandaríska þinginu án þess að íslensk stjórnvöld fái um það nokkra vitn- eskju. Upplýsingar þær sem koma fram í umræddum þingskjölum sýna það hins vegar svart á hvítu að ísland er orðið að mikilvægum lið í kjarn- orkuvopnabúri Bandaríkjanna og að tæp áttföldun geymslurýmis á eldsneyti í Helguvík gegnir þar lyk- ilhlutverki. ólg.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.