Þjóðviljinn - 10.01.1984, Síða 12
16 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 10. janúar 1984
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Árshátíð og þorrablot
Árshátíð og þorrablót Alþýðubandalagsins í Reykjavík verður laugardaginn
28. janúar 1984. Þegar eru bókanir farnar að berast og eru menn hvattir til
að skrá sig fyrir miðum sem allra fyrst. í fyrra komust færri að en vildu.
Dagskrá og skemmtiatriði auglýst síðar. - Skemmtinefnd ABR
Alþýðubandalagið á Akureyri
Árshátíð
Árshátíð Alþýðubandalagsins á Akureyri verður haldin laugardaginn
21. janúar nk.
Glæsileg dagskrá með heimsþekktum skemmtikröftum. Látið skrá
ykkur sem fyrst til þátttöku hjá Ragnheiði í síma 23397 eða Óttari í
síma 21264. Nánar auglýst síðar.
Skemmtinefndin.
Alþýðubandalagið Hafnarfirði
Bæjarmálaráðsfundur
Bæjarmálaráðsfundur verður haldinn í Skálanum (Strandgötu 41)
mánudaginn 16. janúar kl. 20.30.
Fundarefni:
1) Málefni næsta bæjarstjórnarfundar.
2) Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðar.
3) Önnur mál.
Mætið vel og stundvíslega.
- Stjórn bæjarmálaráðs.
Alþýðubandalagið Hafnarfirði
Vinnuhópar bæjarmálaráðs
1. fundur vinnuhóps um verkalýðs- og atvinnumál verður haldinn í
Skálanum (Strandgötu 41) fimmtudaginn 12. janúar kl. 20.30.
Fundurinn er öllum opinn. Mætið stundvíslega.
- Stjórn bæjarmálaráðs.
Verkamannafélagið
Dagsbrún
Stjórnarkjör
Tillaga uppstillingarnefndar og trúnaðarráðs
um stjórn og aðra trúnaðarmenn félagsins
fyrir árið 1984 liggja frammi á skrifstofu fé-
lagsins frá og með miðvikudeginum 11. janú-
ar. Öðrum tillögum ber að skila á skrifstofu
Dagsbrúnar fyrir kl. 17 föstudaginn 13. janú-
ar 1984.
Kjörstjórn Dagsbrúnar
Aðalfundur
Reykjavíkurdeildar HFÍ
verður haldinn 26. janúar 1984 kl. 20.30 að
Grettisgötu 89 4. hæð.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
UTBOÐ
Tilboð óskast í 6 dreifistöðvarskýli úr stáli og timbri
fyrir Rafmagnsveitu Reykjavíkur.
Utboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að Fríkirkju-
vegi 3, Reykjavík, gegn 1500 kr. skilatryggingu, Til-
boðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 7. febrú-
ar 1984 kl. 11 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
Q
TILLITSSEMI
-ALLRA HAGUR
Lækkun orkureikninga heimila víða á landsbyggðinni væri mikilvæg kjarabót.
Alþýðubandalagsmenn leggja fram
mikilvœga stefnu í húshitunarmálum
Húshitunarkostnaður
verði minni og jafnari
Alþýðubandalagsmenn, undir
forystu Hjörleifs Guttormssonar,
hafa lagt fram tillögu til þingsálykt-
unar um lækkun og jöfnun húshit-
unarkostnaðar og átak í orkusp-
arnaði. Hér er um nýja og mikil-
væga stefnu að ræða sem byggir á
eftirfarandi meginatriðum:
1. Lagt er til að orkukostnaður
einstaklinga hafi laun sem viðmið-
un. Þannig ætti húshitunark-
ostnaður ekki að fara langt fram úr
greiðslugetu fólks.
2. Stefnt skuli að því að við árs-
lok 1984 verði hvergi meira en
hlemingsmunur á húshitunark-
ostnaði.
3. Stórátak verði gert í orkusp-
arnaði. Með útvegun fjármagns
verði hægt að veita lán og styrki til
þessara aðgerða.
4. Ráðgjafaþjónustu verði kom-
ið á, sem hafi það verkefni að veita
ráðgjöf og samhæfa aðgerðir til
lækkunar húshitunarkostnaði.
Um það bil þriðjungur lands-
manna býr við mjög háan hitunark-
ostnað þrátt fyrir niðurgreiðslur á
raforku og olíu til húshitunar. Mið-
að við gjaldskrá og vel einangrað
húsnæði þarf þessi hluti þjóðarinn-
ar að greiða um og yfir þrefalt
meira en aðrir fyrir hitun híbýla
sinna.
f svari við fyrirspurn Hjörleifs
Guttormssonar til viðskiptaráð-
herra í haust, um olíustyrki og inn-
lenda orku til húshitunar, kom
fram að 6% þjóðarinnar býr enn
við olíuhitun. Vitað er að olíust-
yrkir hafa ekki fylgt verðlagsþróun
og að stór hluti launa hefur farið í
kyndingarkostnað. Á meðfylgj-
andi línuriti, sem unnið var á veg-
um Húshitunarnefndar Samtaka
sveitarfélaga í Vesturlandskjör-
dæmi, kemur þessi þróun skýrt
fram.
456 \
byggingarvísit .
OLIUSTYRKUR
900
eoo.m
700 “
600
500
-400
-300
20J
Samanburður olíuverðs - olíustyrks við byggingarvísitölu.
Skipting hitaðs húsrýmis landsmanna
eftir orkugjöfum 1973-1982
1973 1974 1975 1976 1977 1978 1979 1980 1981 1982
Súluritið sýnir að jarðvarminn er að yfirtaka aðra orkugjafa til húshitun-
Skúli Alexandersson meðflutn-
ingsmaður tillögunnar um lækkun
og jöfnun húshitunar hefur einnig
unnið í Húshitunarnefnd SSVK. I
skýrslu nefndarinnar, sem heitir
Húshitun á Vesturlandi og var lögð
fram til aðalfundar SSVK í vetur,
er gerð grein fyrir aðgerðum til
oskusparnaðar. Þar kemur fram að
ráðgjöf er mikilvæg og að mikið er
hægt að spara í húshitun með
aukinni einangrun húsa.
Leiða, til að veita húseigendum
styrki og lán til að endurbæta og
ganga vel frá einangrun íbúðar- og
atvinnuhúsnæðis, verður því að
leita. Einnig er mikilvægt að jafna
húshitunarkostnað til að mismunur
á kjörum fólks hérlendis verði ekki
eins ójafn og raun ber vitni. -jp
Norður-Þingeyj arsýsla
Léleg sjónvarpsskilyrði
í Norður-Þingeyjarsýslu hefur
oft verið erfitt að fá góða mynd á
sjónvarpsskerminn. Þó hefur það
sjaldan verið jafn slæmt og nú í
vetur, síðan í júlí. Gerðust íbúar í
Öxarfirði því róttækir í vetur og
neituðu að borga afnotargjöld sín.
Steingrímur J. Sigfússon spurði
menntamálaráðherra að því, á
þingi í haust, hvort ekki stæði til að
bæta úr þessu ástandi. Nú hefur því
veriðlofað, að á sumri komanda
verði unnið að endurbótum.
Þjóðviljinn hafði samband við
Guðbjörgu Vignisdóttur, hrepp-
stjóra, og spurði hana frétta af
þessu máli. Hún sagði að fólk hefði
greitt sín afnotagjöld fyrir ára-
mótin vegna þess að loforð væru
komin um úrbætur.
Guðbjörg býr á Kópaskeri og
sagði hún að sjónvarpsmyndin
hefði verið þokkaleg þar í tvo daga
fyrir jól. Síðan hefði verið mikill
snjór á skjánum og myndtruflanir
að auki. Jóla- og áramótadagskrá
sjónvarpsins fór því fyrir ofan garö
og neðan þarna norður frá. Aftur á
íbúar Kópaskers verða bara að snúa sér að bókunum þangað til móttöku-
skilyrði sjónvarps verða lagfærð.
móti eru dæmi um að sendingar er- góðar, en horfðu menn t.d. á Dal-
lendra stöðva náist, reyndar ekki las með þýsku tali í eitt skiptið.-jp