Þjóðviljinn - 10.01.1984, Page 15

Þjóðviljinn - 10.01.1984, Page 15
I Þriðjudagur 10. janúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19 RUV 1 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Á virkum degi. 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur Erlings Sigurðarsonar frá kvöldinu áður. 8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð - Guðmundur Einarsson talar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Skóladag- ar“ eftir Stefán Jónsson Þórunn Hjartar- dóttir les (2). 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.) 10.45 „Ljáftu mér eyra“ Málmfríður Sigurðar- dóttir á Jaðri sér um þáttinn(RÚVAK) 11.15 Vift Pollinn. Gestur E. Jónasson velur. og kynnir létta tónlist (RÚVAK). 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynning- ar. Tónleikar. 13.30 Lög eftir Magnús Eiríksson og Gunn- ar Þórftarson. 14.00 „Brynjólfur Sveinsson biskup" eftir Torfhildi Þorsteinsdóttur Hólm Gunnar Stefánsson les (11). 14.30 Upptaktur - Guðmundur Benedikts- son. 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Islensk tónlist. Guðrún Tómasdóttir syngur þrjú log eftir Sigursvein D. Kristins- son. Ólafur Vignir Albertsson leikur á pianó / Sinfóníuhljómsveit Islands leikur Svítu nr. 2 og Elin Sigurvinsdóttir syngur tvö lög eftir Skúla Halldórsson; Páll P. Pálsson stj. og Guðrún A. Kristinsdóttir leikur á pianó / Sin- fóníuhljómsveit Islands leikur „Eld", ballett- tónlist, og JóhannaG. Möller og Guðmunda Elíasdóttir syngja lög eftir Jórunni Viðar. Chrystina Cortes og Magnús Blöndal Jó- hannsson leika á pianó. 17.10 Siftdegisvakan. 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.50 Vift stokkinn. Stjórnandi: Guðlaug M. Bjarnadóttir og Margrét Ólafsdóttir. 20.00 Barna- og unglingaleikrit: „Leyni- garfturinn1' Gert eftir samnefndri sögu Frances H. Burnett. (Áður útv. 1961). 2. þáttur: „Akurgerfti". Þýðandi og leikstjóri: Hildur Kalman. Leikendur: Helga Gunnars- dóttir, Rósa Sigurðardóttir, Gestur Pálsson, Bryndís Pétursdóttir, Áróra Halldórsdóttir, Lovisa Fjeldsted, Árni Tryggvason, Sigriður Hagalin og Erlingur Gíslason. 20.40 Kvöldvaka. a) Sauðaþjóður og úti- legumaður í Þingvallahrauni: fyrri hluti. Jón Gislason tekur saman og flytur trásögu- þátt. b) Kirkjukór Kópavogs syngur Stjórnandi: Guðmundur Gilsson. c) Úr Ijóðmælum Magnúsar Ásgeirssonar. Gyða Ragnarsdóttir les. Umsjón: Helga Ágústsdóttir. 21.15 Skákþáttur. Stjórnandi: Guðmundur Arnlaugsson. 21.40 Útvarpssagan: „Laundóttir hrepp- stjórans11 eftir Þórunni Elfu Magnúsdótt- ur. Höfundur les (18). 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun- dagsins. Orð kvöldsins. 22.35 Kvöldtónleikar: Robért Burns og skosk tónlist. Kynnir: Ýrr Ðertelsdóttir. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. RUV 2 10-12 Morgunútvarp að venju. 14-16 Gisli Sveinn Loftsson skemmtir hlust- endum með tónlist og léttu ívafi. 16- 17 Þjóftlagatónlist undir stjórn Kristjáns Sigurjónssonar kennara. 17- 18 Frístund. Eðvarð Ingólfsson nemandi í guðfræði sér um þáttinn. RUV 19.35 Bogi og Logi. 19.45 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veftur. 20.30 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Hví heyja menn stríft? Bresk heimilda- mynd sem rekur feril ófriðar og styrjalda í sögu mannkynsins. Þýðandi Bogi Arnar Finnbogason. 21.05 Derrick. Fjarvistarsönnun. Þýskur sakamálamyndaflokkur. Þýðandi Veturliði Guðnason. 22.05 Skiptar skoftanir. Umræðuþáttur. Um- sjón: Guðjón Einarsson, fréttamaður. 22.55 Fréttir í dagskrárlok. frá I racflum Ostjórn Áramótahugleiðing Jæja, nú er árið að líða í ald- anna skaut og það kemur víst aldrei aftur enda engin eftirsjá í því, aflatregða og stjórnleysi í þjóðmálum eða eigum við bara að segja óstjórn eða ráðaleysi. Hin nýja stjórn lét verða sitt fyrsta verk að ráðast á láglauna- manninn af sínum ofurþunga, sem er svo einkennandi fyrir kreppustjórnirenda hallærisnefir þar í Framsóknarmenn. Allir sjóðir sagðir galtómir, botninn farinn úr ríkiskassanum og allt í voða, enda þó væri hægt að slá um sig hundrað milljónum í flugstöð á Keflavíkurflugvelli og olíugeymum í Helguvík. Fiskiflotinn var allt í einu orð- inn of stór og netabátar mega ekki leggja net sín fyrr en í miðj- an febrúar og eina ráðið var að leggja togaraflotanum enda sjálf- gert vegna olíuskulda og annarra skulda. Vextir voru lækkaðir að minnsta kosti þrisvar sinnum á haustinu svo sparisjóðseigendum var gert ókleift að leggja til hliðar eina einustu krónu. Og hvar á svo að taka fé til framkvæmda? Hækka skatta, pína láglauna- menn eins og kjóinn gerir við rit- una á sumrin þegar hann nennir ekki að afla sér fæðu. Nei, það er síður en svo glæsilegt að líta fram á veginn á nýbyrjuðu ári. En það er að bera í bakkafullan lækinn að vera að bölsótast út í þessa ríkisstjórn - og þó er ekki hægt fyrir neinn sómakæran mann að gleyma misgerðum, sem eru framin af ásettu ráði. Vegna sérstöðu hérna verður ekki beint vá fyrir dyrum í Vestmannaeyj- um þó margur þurfi að herða sult- arólina. Fólk ntun hafa það sæmi- legt, en ekki meira. Hún mun fljót að étast upp hýr- an, sem það fékk íhaust, sem fólk fékk með því að leggja nótt við dag í síldinni, ef ekki á að byrja vertíð fyrr en í miðjan febrúar. Náttúrulega munu trollbátar og togararnir bjarga miklu og smá- bátar verða á línu. Það er af þegar flotinn fór á iínu strax upp-úr áramótum og vélaskellir bergmáluðu í klettun- um um miðnættið, þegar róðrar- merkið var gefið á Skansinum, en hann er nú horfinn og annar Skans kominn í staðinn. Þá var líf og fjör,- beitingamenn á harða spani og söngur í beituskúrum löngu áður en bjart var af degi.\ Nújieyrir þetta fortíðinni til. En þeir sem tóku þátt í þessu svarr- andi og salta lífi munu alltaf sakna þess þó erfitt væri. Enginn fæst til að beita nema í akkorði eða ákvæðisvinnu á góðri íslensku og yfirleitt að deyja út.Égsegifyrirsjálfanmig að ef ég hefði heilsu til hefði ég' viljað beita upp á hlut eða trygg- ingu. Ég held að upp úr trygging- unni fáist sæmilegt kaup og svo var það alltaf vonin um góðan afla. Þetta verður að breytast því besta hráefnið er línufiskurinn og þessi góði andi og keppnisskap, sem fylgdi beituskúralífinu verð- ur að koma aftur. Það má ekki ske að þessi hressandi andi til- heyri fortíðinni. En menn mega ekki vera eigingjarnir, hugsa um sjálfa sig. Það verður víða atvinnuleysi upp úr áramótunum þó við hérna í Vestmannaeyjum sleppum við atvinnuleysisvof- una, og úti í heimi deyi á hverjum degi þúsundir barna, og er það vægt farið í sakirnar. Magnús Jóhannsson frá Hafnarnesi. Vogur — ýmsir möguleikar eru á að afbaka nafn hinnar nýju sjúkrastöðvar SÁÁ Ögra orðhagri þjóð Drykkfelldur menntamaður hringdi: - Með nafngiftinni á sjúkra- stöð SÁÁ, Vogar, fylgdi sú skýring að ekki væri hægt að af- baka nafnið. Er ekki verið að ögra orðhagri þjóð með svoddan skýringum? Ekki trúi ég menn hafi gleymt Vogmerum eða Vogsósum. Menn verða sumsé vogssósa, neöia þeir hafi haft voggrís áður en þeir fóru í með- ferð. Menn gætu trúlega orðið vogs- fullir og drekka einsog vogskjaft- ur. Af öllu þessu og allra handa meðferð gætu menn orðið vog- skornir. Rás 1 kl. 20.00 , ,Leyiiigarðurinn‘4 Árni Tryggvason í kvöld verður fluttur 2. þáttur framhaldsleikritsins „Leynigarð- urinn“ eftir samnefndri sögu Frances H. Burnett. Útvarpsleik- gerð og þýðingu gerði Hildur Kalman. Þessi þáttur nefnist „Akurgerði“. í fyrsta þætti sagði frá því er ung ensk telpa, María Lennox, fluttist frá Indlandi til frænda síns á Englandi eftir að hún hafði misst foreldra sína úr kóleru. Þegar til Englands kom tók ráðs- , kona frænda hennar á móti henni, enda var hann fjarverandi og virtist ekki hafa mikinn áhuga á að hitta þessa litlu frænku sína. Leikendur í 2. þætti eru: Helga Gunnarsdóttir, Bryndís Péturs- dóttir, Rósa Sigurðardóttir, Árni Tryggvason og Gestur Pálsson. Bryndís Pétursdóttir Sjónvarp kl. 22.05 Skiptar skoðanir Völd og áhrif stjórnmálaflokkanna í ríkis- kerfmu og það hvort æskilegt er að löggjafarvaldið sé með sína fulltrúa í framkvæmdavaldinu, er á dagskrá í Skiptum skoðun- um í kvöld. Sumir eru á þeirri skoðun að það tryggi lýðræðislega stjórn- arhætti að fulltrúar flokkanna séu í stjórn og ráðum ýntissa ráða og banka á vegum ríkisins. Aðrir telja að þetta bjóði upp á samtryggingu, spillingu og pól- itíska fyrirgreiðslu. f kvöld skiptast þingmennirn- ir Stefán Benediktsson og Tóm- as Árnason á skoðunum. Tóm- as er framkvæmdastjóri Fram- kvæmdanefndar, Stefán er þingmaður Bandalags jafnað- armanna og þeir höfðu nú fyrir jólin setu í nefndum og ráðum sem kosið var um á þingi. bridge Feögarnir Vilhjálmur Sigurösson og sonur hans Vilhjálmur náðu mjög góöri vörn í spilinu i dag sem kom fyrir i hrað- sveitakeppni B.K. Vann sveit þeirra þar léttan sigur. Gjafari S, allir utan: Norður SG1072 H K843 TAG92 L 5 Vestur Austur S KD5 S 98643 H D H 9652 TK873 - T D5 LAG964 L103 Suður S A H AG107 T 1064 L KD872 S V N A Herm. Vilhj.S. Ármann Vilhj.V. 1-L dobl pass 1-T 1-H 2-L 4-H pass/hr. Útspil spaða-K. Sagnhali tór strax i trompið, gosi út og kóngur átti slaginn. Þá tromp á tíuna. Lauf kóngur drepinn og Vilhjáimur eldri skipti nú í tígul, hleypt og drottning vann. Spilið er nú létt til vinnings ef austur heldur áfram með tromp sem virðist blasa við i stöðunni. T romp er þá einfald- lega tekið i botn. Tígul tía síðan yfirtekin með gosa og spaða gosa spilað og lauti kastað heima. Tígul níu seinna svínað. Spaði veldur auðvitað engum vand- kvæðum og lauf þá ekki heldur. Vilhjálmur spilaði hins vegar áfram tígli, upp i „gatfalinn11 íborðinu! Sagnhafi reyndi tíuna en vestur var ekkert á því að gefa slaginn, hann lagðiá kóng. Ef tígul tía fær að eiga slaginn er lauf vitaskuld trompað með áttu, trompi svínað og tígli svínað. Nú, inni á tígul ás átti sagnhafi ekki lengur vinningsvon. Hámarkið er níu slagir (athugið vel). Góð samvinna, feðgar, og vægast sagt vandfundin vörn! Tikkanen Adam og Eva voru rekin úr Par- adís vegna þess að þau bjuggu saman án þess að vera gift. Gœtum tungunnar Sagt var: Hluti verksins var unnið í fyrra. Rétt væri: ... var unninn ... (Ath.: Hluti var unninn.).

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.