Þjóðviljinn - 20.01.1984, Side 1
uomium
Alþýðuleikhúsið
hefur fengið inni
áHótelLoft-
leiðum og frum-
sýnir þar tvo
ameriskaein-
þáttunga í
kvöld.
Sjá 8.
janúar 1984
föstudagur
49. árgangur
16. tölublað
Forstjóri Framkvœmdastofnunar fœr 600.000 kr. að gjöf úr ríkissjóði
Tómas faldi bílinn
óskráðan í 3 mánuði!
„Þig varðar ekkert um þetta mál6É, sagði Tómas Árnason við blaðamann Þjóðviljans
„Þig varðar ekki nokkurn
skapaðn hlut um þetta mál, þetta
er mitt mál. Ég hef farið í öllu að
lögum og reglum og fer ekkert að
segja meira um þetta“, sagði
Tómas Árnason, forstjóri hjá
Framkvæmdastofnun og fyrr-
verandi ráðherra Framsóknar-
flokksins, þegar blaðamaður
Þjóðviljans spurði um bílakaup
hans á ráðherrakjörum í haust.
Tómas Árnason fékk niður-
felld gjöld af Mercedes Benz 280
SE árgerð 1984, þann 20. októ-
ber sl. samkv. upplýsingum sem
fengust í fjármálaráðuneytinu.
Bifreiðin er ekki á skrá hjá Bif-
reiðaeftirlitinu.
Gjöldin sem Tómas fékk felld
niður nema rúmlega 600.000.-
krónum. Heildarverð bflsins er
1.100.000,- krónur fyrir hinn al-
menna borgara. Tómas þurfti
hins vegar ekki að leggja út
nema innan við helming heildar-
verðs, sem eru 500.000.-.
„Bfllinn er ekki í notkun og ég
fer ekkert að ger þér grein fyrir
því hvar hann er og þú myndar
hvorki mig né bílinn“, sagði
Tómas þegar blaðamaður
óskaði eftir að fá að mynda
Benzinn. Hann neitaði ítrekað
að gefa upplýsingar um hvar bí-
linn væri að finna.
Fyrrverandi ráðherrar hafa
heimild til að fá niðurfelld að-
flutningsgjöld af bifreiðum í 1 ár
eftir að ráðherradómi lýkur.
Þessa heimild notfærði Tómas
Árnason sér þrátt fyrir að hann
flutti tillögu um breytingu á
þessari heimild þegar hann var
ráðherra. Hann sagði blaða-
manni Þjóðviljans að það mál
hefði á sínum tíma dagað uppi.
-JP
Sjá 24
Framhald ríkisstjórnar Framsóknar- og Sjálfstœðisflokks árið 1984
Sjónvarpsstöð kapítalsins?
® Stórauðvaldið sameinast í
fjölmiðlasamsteypu % SÍS, DV,
Morgunblaðið og Reykjavíkurborg
leggja saman í sjóðinn # „í þeim
tilgangi að annast fjölmiðlun(<
Stærstu fjölmiðlunarfyrirtæki
landsins auk Reykjavíkurborgar
hafa stofnað hlutafélag „í þeim til-
gangi að annast ýmiss konar fjöl-
miðlaþjónustu“. Davíð Oddsson
borgarstjóri lagði málið fyrir borg-
arráð sem „trúnaðarmál“ sl.
þriðjudag, en Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgarfulltrúi Kvenna-
framboðsins sagði upp „trúnaðin-
um“ I gærmorgun og var þá
leyndinni formlega aflétt.
Bandarísku eld-
flaugarnar hafa
flutthernaðar-
hyggju, óvináttu
og styrjaldar-
brjálæði til
Vestur-Evrópu,
sagði Andrej
Gromyko á ráð-
stefnunnil
Stokkhólmi.
Meðal stórfyrirtækjanna sem
standa að þessu fjölmiðlunarfyrir-
tæki sem margir óttast að hyggist
stofnsetja sjónvarpsstöð og ráða
enn frekar á upplýsingamarkaðin-
um en raunin er nú eru fyrirtækin
Árvakur hf sem gefur út Morgun-
blaðið, Frjáls fjölmiðlun sem gefur
'út DV, Vikuna og fleira, Samband
íslenskra samvinnufélaga sem á
mikil ítök í Tímanum, ísfilm sf.
sem Indriði G. Þorsteinsson rit-
höfundur á mikið í, Almenna
bókafélagið og Reykjavíkurborg
einsog áður sagði.
„Ég fæ ekki séð að neitt réttlæti
leynd um málið“, sagði Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir í viðtali við
Þjóðviljann í gær.
„Það er alveg greinilegt að þarna
eru hægri öflin í landinu að koma
sér upp upplýsingamiðli sem nota á
í áróðursskyni", sagði Sigurjón
Pétursson í viðtali við Þjóðviljann í
gær.
„Mér þykir líklegt að þetta sé
upphafið að öðru og meira“, sagði
Þorbjörn Broddason fjölmiðla-
fræðingur þegar Þjóðviljinn bar
þessi tíðindi undir hann.
Stofnsamningurinn er mjög al-
mennt orðaður og talað um „ýmsa
aðra fjölmiðlunarstarfsemi", en
ekki rekstur sjónvarpsstöðvar en
ríkisstjórnin, sem þessi stórfyrir-
tæki standa að, hefur lýst því yfir að
hún hyggist leggja fram frumvarp
um svokallaðan „frjálsan útvarps-
rekstur". Hlutafé samsteypunnar
er 15 miljónir.
-og
Sjá bls. 3
llÍflpl
Stjórn Nútímans tekin til starfa
Elías og Gísli tjúka
EUasi Snæland Jónssyni ritstjóra eWri heldur fá endurráðningu. Agnes Bragadóttir blaðamaður
Tímans mun ekki vera boðin Tilkynnt hefur verið að Magnús við blaðið mun hafa ráðið sig til
endurráðning hjá nýja hlutafé- Ólafsson hagfræðingur verði ráð- starfa á Morgunblaðið en mikil óá-
laginu sem tekið hefur við rekstri >nn ritstjóri í stað Elíasar en um nægja er meðal starfsfólks Tímans
blaðsins. Þá mun framkvæmda- endurráðingar blaðamanna hefur með óöryggið og starfshætti hins
stjóri blaðsins, GIsli Sigurðsson, enn ekkert verið tiikynnt. nýja hlutafélags.