Þjóðviljinn - 20.01.1984, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 20.01.1984, Qupperneq 3
Föstudagur 20. janúar 1984 ' ÞJÓÐVILJINN •- SÍÐA 3 „Ýmiss konar fjölmiðlunarþjónustaa Morgunblaðið, SÍS, DV og borgiii gera með sér samning Fjölmiðlasamsteypan sem Morg- unblaðið, DV, SÍS og fleiri hafa stofnað til ásamt borginni hefur gert með sér samning sem byrjar svo: „Almenna bókafélagið hf Austurstræti 18, Árvakur hf Aðal- stræti 6, Frjáls fjölmiðlun hf Síðu- múla 12-14, ísfilm sf Hafnarstræti 19, Reykjavíkurborg Austurstræti 16 og Samband íslenskra sam- vinnufélaga Sölvhólsgötu 4, allir í Reykjavík hafa orðið sammála um að mynda hlutafélag í þeim tilgangi að annast ýmisskonar fjölmiðlun- arþjónustu. Gera undirritaðir aðil- ar í því sambandi með sér svohljóð- andi Stofnsamning: 1. gr. Nafn félagsins er ísfilm hf. Heimili þess og vamarþing er í Reykjavík. 2. gr. Tilgangur félagsins er kvik- myndagerð, hvers konar mynd- bandagerð, þar á meðal gerð aug- lýsingamynda á myndböndum, sem og ýmis önnur þjónustustarf- semi á sviði fjölmiðlunar. 3. gr. Hlutafé er ákveðið krónur 12 miljónir. Innborgað hlutafé er krónur 3 miljónir. Hið ógreidda hlutafé skal greiða samkvæmt nán- ari ákvörðun stjórnar félagsins. Hluthafarnir hafa skráð sig fyrir hlutafé sem hér segir: Almenna bókafélagið krónur 2 miljónir, Ár- vakur hf krónur 2 miljónir, Frjáls fjölmiðlun krónur 2 miljónir, ís- fílm sf 2 miljónir, Reykjavíkurborg 2 miljónir, Samband íslenskra sam- vinnufélaga krónur 2 miljónir.“ Og síðan kemur upptalning á formsat- riðum. Á fundi borgarráðs Reykjavíkur sl. þriðjudag kynnti Davíð Odds- son þetta mál sem „trúnaðarmál“, þ.e. að borgarráðsmenn mættu ekki segja frá því. Hann kvaðst mundu skrifa undir stofnsamning- inn með fyrirvara um samþykki borgarstjórnar. Þannig hyggst borgarstjóri enn einu sinni stilla borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokks- ins upp við vegg á borgarstjómar- fundi. Misbeiting á valdi? - Ég tel að borgarstjóri hafi ekki farið rétt með vald sitt til að leggja fram þetta mál sem „trúnaðarmál“ sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarfulltrúi Kvennaframboðsins en hún sat á fundi borgarráðs á þriðjudag, en tilkynnti borgar- stjóra í gær að hún myndi ekki halda trúnaðinn um þetta mál. Með „trúnaði" em hagsmunir borgarinnar ekki í húfi, ekki al- mannaheill, málið varðar ekki ein- stakar persónu né neitt það sem réttlætt getur leynd um málið, sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarfulltrúi. Hvers vegna Reykjavíkurborg? - Hér er um að ræða nokkra mjög stóra og fjársterka aðila, þannig að það verður ekki með neinu móti séð að þeir þurfi á fjár- hagsaðstoð að halda til að setja á stofn fyrirtæki, sagði Sigurjón Pét- ursson borgarráðsmaður Alþýðu- bandalagsins. - Þetta eru engir bónbjargarmenn sem að þessu standa og þyrftu þess vegna á að- Borgarráð_________________________ Aukafundur um fjöl- miðlasamsteypuna Sérstakur borgarráðsfundur var boðaður í morgun, að kröfu Sigur- jóns Péturssonar um fjölmiðlasamsteypuna. Davíð Oddsson hafði ætl- að að skrifa upp á stofnsamninginn án opinberrar umræðu um málið. -óg Akureyri: Vaxandi atvinnuleysi og alvarlegar liorfur segir Sigríður Stefánsdóttir bœjarfulltrúi „Ástandið í atvinnumálum er allt annað en gott hér á Akureyri og horfurnar í þeim málum vægt sagt alvarlegar. Þess vegna höfum við í Alþýðubandalaginu iagt fram okk- ar tillögur tU lausnar þeim vanda sem við blasir“, sagði Sigríður Stef- ánsdóttir bæjarfulltrúi á Akureyri í samtali við Þjóðviljann. Hún sagði að 31. desember sl. hefðu 250 manns verið á atvinnu- leysisskrá á Akureyri og síðan hefði bæst við og er talið að nú séu um 280 manns á skrá. Það voru 178 karlar og 72 konur sem ekki höfðu atvinnu 31. desember sl. Sigríður sagði að í þessum hópi væri fólk úr öllum stéttum, en verkafólk þó í meirihluta. Þá bætti hún því við, að þetta segði ekki aUa söguna, því að hjá stóru fyrirtæki eins og Útgerð- arfélaginu væri ekki unnið nema 4 daga vikunnar og að sjálfsögðu aUs engin yfirvinna. „Við hér á Akureyri urðum einna fyrst vör við þá kreppu sem nú rflcir, en svo þegar kreppa fór að annarsstaðar er það tilgáta að Ak- ureyringar, sem störfuðu útum land og misstu vinnuna, hafi komið heim til að láta ská sig atvinnu- lausa. Þá benti Sigríður á að árið 1983 hefði orðið fólksfækkun á Akureyri um 16 manns og er það í fyrsta sinn í mörg ár sem ekki fjölgar á Akur- eyri. Varðandi horfurnar í atvinnu- málunum, sagði Sigrfður að horf- urnar væru dökkar og nefndi hún að búið væri að segja öUum upp hjá trésmiðjunni Haga, en verið væri að reyna að bjarga því fyrirtæki við. Þá eru líkur á uppsögnum i Slippstöðinni vegna verkefna- skorts. Eini ljósi punkturinn væru Ingibjörg Sólrún Gfsladóttir: Ekk- ert réttlætir leynd um málið. stoð borgarinnar að halda til að koma á svona fyrirtæki. í öðru lagi er ekki annað að sjá en að borgin sé f þessu tillit að efna til samkeppni við aðila sem sinna þessum verk- efnum í dag. Og mér er ekki kunn- ugt um að sé skortur á tækni og kunnáttu til að gera þessa hluti, sagði Sigurjón enn fremur. - Það er alveg greinilegt að þama em hægri öflin í landinu að koma sér upp upplýsingamiðli sem nota á í áróðursskyni, ég held að það sé enginn vafi, sagði Sigurjón Pétursson að lokum. Sjónvarpsstöð I bígerð? Nokkrir viðmælendur blaðsins í gær töldu að Reykjavíkurborg væri með í þessari samsteypu stór- auðvaldsins til að rýmka fyrir leyf- isveitingum alls konar og með „kapal“-lagningar í huga. Enn fremur nefndu sumir að sam- steypan fengi aðgang að skólunum í höfuðborginni í gegnum Reykja- víkurborg. Þegar Þjóðviljinn bar þessi tíð- indi undir Þorbjöm Broddason fé- lagsfræðing sem sérhæft hefur sig í fjölmiðlarannsóknum sagði hann: „Mér þykir líklegt að þetta sé upp- hafið að öðru og meira.“ - óg. Sigríður Stefánsdóttir bæjarfull- trúi á Akureyri. SÍS-verksmiðjurnar, þar væri jafnvel von til þess að fjölgað yrði fólki. Að lokum skal bent á að á bls 7 í Þjóðvifjanum f dag eru tillögur AB f atvinnumálum birtar. -S.dór Hraðfrystihúsið lokað en góð veiði hjá línubátum frá Ólafsvík Mikil ásókn í hrein neyslulán „Ef árangur á að nást í kjarabar- áttunni þá verður fólk að standa saman, það byggist ávallt á því að fólk standi saman í verkalýðsfélög- unum“, sagði Bárður Jensson for- maður Verkalýðsfélagsins Jökuls í Ólafsvík í samtali við Þjóðviljann. „Til marks um hvernig efnahags- ástandið er orðið hjá fólki má geta þess að ásókn í lífeyrislán hefur aldrei verið önnur eins og á síðasta ári. Þá sóttu milli 30 - 40 Ólafs- víkingar um lífeyrislán úr lífeyris- sjóði Vesturlands en aðeins tvær umsóknir komu héðan árið áður. Til viðbótar voru nærri 30 umsókn- ir um lán í lífeyrissjóði sjómanna héðan á síðasta ári. Þessi lán hafa þó alls ekki farið í framkvæmdir, því hér hafa aðeins verið byggð 3 ný íbúðarhús á síðustu árum. Ibú- um hér hefur fækkað. Þessi lán hafa verið hrein og bein neyslulán auk þess sem fólk er að bjarga eldri lánum með nýjum. Þannig er ást- andið“, sagði Bárður. Atvinnuleysi í Ólafsvík er þó nokkurt um þessar mundir, enda Hraðfrystihúsið lokað sem er ár- legur viðburður á þessum tíma. Eini togarinn sem eftir er í Ólaf- svík, Már SH-127, seldi erlendis um jólin og er nú á ísfiskveiðum. 20 skip og bátar eru gerð út frá Ólaf- svík og eru þau flest byrjuð veiðar. 7 bátar eru á línu og hafa veitt vel frá áramótum, 5-8 tonn í róðri, netabátar hafa veitt minna, 3-4 tonn í róðri. Þá eru nokkrir bátar gerðir í fyrsta sinn út á snurvoð í Breiðafirði en veiðar hafa gengið dræmt til þessa. Bárður sagði að mikið hagsmunamál væri fyrir sjómenn á Snæfellsnesi að Breiðafjörðurinn væri opnaður meira fyrir to- gveiðum og eins að leyft yrði að sækja á miðin að sunnanverðu við Nesið í Faxaflóa. Veðurfar var með eindæmum leiðinlegt á Snæfellsnesi um jólin og langt fram á nýárið. Meiri snjó hefur kyngt niður en dæmi eru um á síðustu árum, og allar samgöngur bæði á landi og í lofti gengið mjög erfiðlega. Þá er einnig nokkur urg- ur í Ólafsvíkingum vegna skertrar símaþjónustu í bænum. Samkvæmt boði yfirstjórnar Pósts og síma er ekki lengur hægt að fá langlínu- samtöl afgreidd í gegnum símstöð- ina til síns heima, en oft gengur mjög erfiðlega að ná sambandi út úr bænum. Þykir Ólafsvíkurbúum þetta mikil afturför, þar sem öll símaþjónusta hefur verið þar með mestum ágætum á liðnum árum. -*g- Sigurjón Pétursson: Hægri öflin f landinu að koma sér upp upplýs- ingamiðli sem nota á f áróðurs- skyni. Þorbjörn Broddason fjölmiðla- fræðingur: Lfklegt að þetta sé upp- hafið á öðru og meira. Yfirlýsing frá ritstjórn Tímans Starfsfólk á ritstjórn Tímans harmar þá ákvörðun stjórnar Nú- tímans, sem tekin var á ámdi henn- ! ar í dag, að ganga fram hjá Elíasi S. Jónssyni ristjóra blaðsins, þegar | ráðið var í starf ritstjóra hins nýja hlutafélags. Lýsa starfsmenn yfir fyllsta trausti á störf Elíasar S. Jónssonar þau tæpu 3 ár, sem hann hefur gegnt ritstjórastarfi. Er starfsmönnum ritstjórnar óskiljan- legt hvers vegna gengið var fram : hjá einum reyndasta blaðamanni íslenskra fjölmiðla, þegar ráðið var í stöðu þá sem Elías S. Jónsson hef- ur gegnt með slíkum ágætum undanfarin ár. Jafnframt lýsa i starfsmenn yfir furðu sinni á þeim , vinnubrögðum sem viðhöfð voru við þessa ákvörðun. Björn Bjarnason er látinn í gær lést í Reykjavík Björn Bjarnason fyrrverandi formaður Iðju félags verksmiðjufólks. Björn var einn af stofnendum Kommún- istaflokks íslands og átti sæti í mið- stjórn hans og einnig í miðstjórn Sósíalistaflokksins. Hann var bæjarfulltrúi f Reykjavík frá 1934 til 1950. Björns verður nánar minnst í Þjóðviljanuin.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.