Þjóðviljinn - 20.01.1984, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 20.01.1984, Qupperneq 7
Föstudagur 20. janúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7 Tillögur Alþýðubandalagsins á Akureyri um atvinnumál: Sókn til uppbyggingar í iðnaði Stutt verði við bakið á þeim fyrirtœkjum sem fyrir eru en berjast í bökkum Alþýðubandalagið á Akureyri hefur lagt eftirfarandi tillögur til uppbyggingar og stuðnings at- vinnulífinu í bænum, fram í bæjar- ráði og munu þær koma tii umfjöll- unar í bæjarstjórn nk. þriðjudag. Bæjarstjórn Akureyrar lýsir yfir áhyggjum sínum af horfum í at- vinnumálum við Eyjafjörð og þeim búferlaflutningum, sem átt hafa sér stað úr byggðum Eyjafjarðar til höfuðborgarsvæðisins á síðustu misserum. Varað er við afleiðing- um þess að ráðist verði í fjölmargar stórframkvæmdir á suðvestur homi landsins á sama tíma og eng- ar meiriháttar framkvæmdir af hálfu stjórnvalda eru í sjónmáli á Eyjafjarðarsvæðinu. Bæjarstjórn- in beinir til ríkisstjórnarinnar að hún geri allt sem í hennar valdi stendur til að koma í veg fyrir á- framhaldandi búseturöskun við Eyjafjörð. Bæjarstjórnin telur að fjármagn til atvinnuuppbyggingar nýtist best með því að styðja við þau fyrirtæki, sem þegar eru fyrir á svæðinu en berjast nú í bökkum, auk þess sem undirbúin verði sókn til alhliða uppbyggingar í iðnaði á næstu ámm. Varðandi nærtæk og mikilvæg verkendi, sem snúa að stjórnvöldum í þessu sambandi, bendir Bæjarstjórnin á eftirfar- andi: 1. Tryggð verði eðlileg endumýjun íslenska fiskiskipaflotans með skipasmíðum innanlands þannig að ekki þurfi að koma til stór- fellds innflutnings á fiskiskipum að nokkrum árum liðnum. Bæjarstjórnin skorar á ríkis- stjórnina, sem handhafa meiri- hluta hlutafjár í Slippstöðinni h.f., að hún beiti sér fyrir fjár- hagslegri fýrirgreiðslu til Slipps- töðvarinnar þannig að hún geti nú þegar gengið til samninga við Útgerðarfélag Akureyringa h.f. um smíði nýs togara fyrir fé- lagið. 2. Ríkisstjórnin tryggi að Útgerð- arfélagi Akureyringa verði út- hlutað aflakvóta miðað við 5 skip í rekstri félagsins, sem er sá fjöldi skipa, sem Útgerðarfélag- ið hefur ávallt gert út á undan- förnum árum og raunar sá fjöldi skipa, sem enn eru í eigu félags- ins. Bæjarstjórnin telur fráleitt að tímabundin rekstrarstöðvun eins togara hafi áhrif á væntan- . lega útreikninga á aflakvóta vegna útgerðar á vegum félags- ins. 3. Auknu fjármagni verði veitt til opinberra framkvæmda á Akur- eyri og m.a. verði tryggt að unnt verði að ljúka byggingu Verk- Gegn framvísun þessa miða færð þú 12 % kynningar- afslátt á plötum í nýrri og endurreistri STUÐ-búð. menntaskólans á næstu 5 árum. Ákvöðun verði tekin um að kennsla á háskólastigi hefjist á Akureyri haustið 1985 og tryggt verði fjármagn þannig að kennsla í iðnhönnun við Mynd- listaskólann á Akureyri geti haf- ist þegar næsta haust. Uppbyggingu opinberrar þjón- ustu á næstu árum verði í mun meira mæli en hingað til beint til staða utan höfuðborgarsvæðis- ins með hliðsjón af aðstæðum í einstökum tilvikum. Athugun verði gerð á hagkvæmni þess að flytja ákveðnar opinberar þjón- ustustofnanir til Akureyrar, einkum stofnanir, sem í raun þjóna landsbyggðinni eða atvinnulífi á landsbyggðinni í ríkara mæli en höfuðborgar- svæðinu s.s. Vegagerð ríkisins og Sölustofnun lagmetis. { Laugavegi 20 Sími27670 5. Skapaðar verði.forsendur fyrir stórsókn í almennri iðnaðarupp- byggingu hér á landi á næstu árum ma. með því að tryggja lánasjóðum iðnaðarins aukið fjármagn þannig að þeir geti staðið undir eðlilegum lán- veitingum til nýfjárfestinga og með því að veita auknu opin- beru fjármagni til að styrkja rannsóknir, vöruþróun og sölu- aðgerðir á erlendum mörkuð- um. Varðandi þróun atvinnulífsins til lengri tíma og umræður um orku- frekan iðnað við Eyjafjörð leggur bæjarstjórnin áherslu á að fullt samráð verði haft við heimamenn um athuganir og ákvarðanir hér að lútandi. Að mati bæjarstjómar er forsenda þess að orkufrekur iðnað- ur rísi við Eyjafjörð sú, að lífríki fjarðarins verði ekki stefnt í hættu, að tryggt verði forræði íslendinga yfir hugsanlegu iðjuveri og að gengið verði frá orkuverði og öðmm þáttum þannig að rekstur- inn skili þjóðinni viðunandi efna- hagslegri arðsemi. Leggur bæjar- stjórnin áherslu á að-öllum athug- unum í þessu sambandi verði hraðað svo sem frekast er kostur. Minning i ' Magnús Jónsson bankastjóri Að kveðjustund er komið. Treg- asár minning um mætan dreng og sannan geymist í muna. Fyrir eyrum mér ómar: Orð skulu standa. Það voru hans orð, það voru einkunnarorð allra hans verka. Aðrir munu rekja ævitíð hans, ótal störf í þjóðar þágu. Litríkan og farsælan feril fjölbreyttra athafna á hinum ýmsu sviðum. Menn minnast hins harðgreinda og harðduglega manns, sem hasl- aði sér ungur völl í orrahríð stjórnmálanna, en kom úr hverri hríð ósár og hvergi kalinn. Menn muna ráðherratíð hans, framgöngu sem enn er minnzt að makleikum jafnt af samherjum sem andstæðingum. Bankastjórinn er mönnum ferskur í minni. Á- reiðanlegur, atorkufullur og um- fram allt: Orð skyldu standa. En fyrst og síðast minnast menn ann- ars vegar hetjusögu hans síðustu árin og þess afreks að stunda erfitt og vandasamt starf af samvizku- semi þess, sem aldrei unni sér hvfldar, og hins vegar ljúflingsins glettna og gamansama á góðri stund, sem leikið gat á als oddi, þrátt fyrir alla erfiðleika. Margra samverustunda er mér ljúft að minnast með þökk þess trega, sem yfirskyggir allt í dag. Magnús setti sannarlega svip á sína samtíð, heilsteyptur hæfileikamað- ur, prúðmennið og reglumaðurinn, sem lagði alúð við hvert sinna smæstu verkefna. Hvergi var kast- að til höndum. Harðfylgni og lip- urð fóru saman. Grómlaus glettni og glöggskyggn rökfesta fylgdust að. Samstarf síðustu ára þakka ég hrærðum huga og heilladís hans, afrekskonunni Ingibjörgu eru færðar innilegar samúðarkveðjur. Og ofar öllu í minningastefi hug- ans um Magnús Jónsson vakir þessi vængjaða setning: Orð skulu standa. Blessuð sé skaparmanns. minning dreng- Helgi Seljan. Alþýðubandalagið ræðir stefnuna í sjávarútvegi. Svavar Gestsson Jóhann Antonsson Kristján Asgeirsson Engilbert Guömundsson Ráðstefna um sjávarútvegsmál Haldin dagana 21. og 22. janúar að Hverf isgötu 105 í Reykjavík Alþýðubandalagið gengst fyrir ráðstefnu nú um helgina, 21. og 22. janúar um sjávarútvegsmál. Ráð- stefnan verður haldin að Hverfisgötu 105 Reykjavík og hefst kl. 13 á laugardag og kl. 10 árdegis á sunnu- Laugardagur 21. Janúar Kl. 13.00 Setning: Svavar Gestsson, form. Alþýðubandalagsins. Kl. 13.15 Erindi: 1. Eignarhald og skipulag í sjávarútvegi: Jóhann Antonsson, Dalvík. 2. Rekstrargrundvöllur sjávarútvegsins og framtíðarhorfur: Kristján Ásgeirsson, Húsavík. 3. Stjórnun fiskveiða: Engilbert Guðmundsson, Akranesi. 4. Kjör verkafólks í sjávarútvegi: Þorbjörg Samúelsdóttir, Hafnarfirði, og Hreggviður Davíðsson, Selfossi. Kl. 15.00 Kaffihlé Kl. 15.30 Fjárfesting og arðsemi í sjávarútvegi: Björn Arnórsson, hagfræðingur. Staða sjávarútvegsins í þjóðarbúinu og horfur á árinu 1984: Lúðvík Jósepsson dag. Hún er haldin í samræmi við ákvörðun Lands- fundar Alþýðubandalagsins með hliðsjón af mikil- vægi sjávarútvegsins og þeim erfiðu aðstæðum sem hafa skapast í atvinnugreininni að undanförnu. Kl. 16.45 Ávarp: Jóhann J. E. Kúld Kl. 17.15 Umræður og fyrispurnir Kl. 19.00 Ráðstefnu frestað. Sunnudagur 22. janúar Kl. 10.00 Hópumræður Kl. 12.00 Hádegisverðarhlé Kl. 14.00 Almennar umræður og niðurstöður Kl. 18.00 Ráðstefnuslit. RÁÐSTEFNUSTJÓRAR: Brynjólfur Oddson, Dalvík ? Skúli Alexandersson, Hellissandi Þátttakendur ráðstefnunnar skrái sig í dag á skrifstofu Alþýðubandalagsins Hverfisgötu 105-sími 17500. I & I <5 öj‘ Þorbjörg Samúelsdóttir Björn Arnórsson Lúövik Jósepsson Jóhann J.E. Kúld Brynjólfur Oddsson Skúli Alexandersson

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.