Þjóðviljinn - 20.01.1984, Page 8

Þjóðviljinn - 20.01.1984, Page 8
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN'Föstudagur 20. janúar 1984 Alþýðu- leikhúsið leggur Hótel Loftleiðir undir sig Tveir einþáttungar frumsýndir í kvöld Viðar Eggertsson og Helgi Björnsson í hlutverkum sínum í „Tilbrigði við önd“. Ljósm. -atli Sólveig Pálsdóttir, Kjartan Bjargmundsson og Ellert A. Ingimundarson í hlutverkum sínum í „Kynórum“. Ljósm. -atli. Andardráttur í kvöld kl. 20.30 frumsýnir Al- þýðuleikhúsið tvo einþáttunga undir samheitinu „Andardráttur“ að Hótel Loftleiðum. Alþýðuleik- húsið er „á götunni“ eins og sagt er, en þarna hefur það fengið „ekta leikhús“ upp í hendurnar, - 100 manna sal með mjúkum sætum, nýju leiksviði og öllum græjum. Að auki býður hótelið upp á leikhús- steik á kr. 194, sem gestir geta gætt sér á fyrir sýnigar og í hléi og eftir sýningu verða aðrar veitingar á boðstólum. Einþáttungarnir tveir heita „Kynórar“ og „Tilbrigði við önd“ og eru eftir ungan bandaríkja- mann, David Mamet. Mamet var 23 ja ára gamall þegar hann skrifaði „Tilbrigði við önd“ og hafa einþátt- ungarnir bæði verið sýndir sinn í hvoru lagi og saman. Umfjöllunarefni „Andardrátt- ar“ er náttúran í manninum og maðurinn í náttúrunni. í „Kynór- um“ er fjallað um meira og minna afbakaðar hugmyndir fjögurra ungmenna um lífið, - kynlífið og tilveruna og hvernig þeim gengur að púsla þessum hugmyndum sín- um saman við líf sitt. Svanhildur Jóhannesdóttir leikstjóri og leik- hópurinn önnuðust þýðingu verks- ins og leikendur eru Ellert A. Ing- imundarson, Kjartan Bjargmunds- son, Sólveig Halldórsdóttir og Sól- veig Pálsdóttir. „Tilbrigði við önd“ snýst um manninn í náttúrunni, - hvernig maðurinn er við náttúruna og um skoðanir og samband tveggja manna úti í garði. Þýðingu gerði Árni Ibsen og leikendur eru Helgi Björnsson og Viðar Eggertsson. Leikstjóri er Svanhildur Jóhannes- dóttir. Lýsingu í „Andardrætti" annaðist Ingvar Björnsson. Miðasala er opin sýningardaga frá kl. 17 og síminn er 22322 í gegn- um skiptiborð hótelsins. Önnur sýning er á laugardagskvöld 21. janúar kl. 20.30. Sýningartími er við það miðaður að fólk geti not- fært sér áætlunarferðir á vegum Kynnisferða kl. 20 frá Hlemmi og til baka eftir sýningu eða Vífil- staðastrætó 5 mínútur fyrir heila tí- mann úr Lækjargötu. Avarp vegna sjóslyss- ins við Bjarneyjar Jóhannes Árnason, sýslumað- ur, Ellert Kristinsson, oddviti og Gísli H. Kolbeins, sóknarprestur í Stykkishólmi, hafa sent frá sér eftirfarandi ávarp vegna sjó- slyssins sem varð við Bjarneyjar 31. október 1983: „Frásagnir af slysförum birtast jafnótt og slysin verða. Öllum mun því kunnugt um sjóslysið við Lón í Bjarneyjum mánudaginn 31. október 1983, þar sem 3 úr áhöfn Hafarnar SH 122 fórust. Frásagnir af því yfirgripsmikla leitarstarfi sem hefir verið innt af höndum frá þeim degi hafa ekki verið miklar. Leitað hefir verið alltafþegarmögulegt var. Árang- ur leitarinnar er, að einn hinna látnu fannst og mikil þekking og reynsla hefir fallið þeim í skaut, sem lagt hafa fram tæki, búnað og mannafla til fjöiþúsunda dags- verka við leit. Enginn hefir hreyft úrtölum og einbeittur hugur hefir fylgt áreynslufrekum athöfnum þar sem óbilandi kjarkur hefir fengið að reyna sig við misblíðar náttúrufarsástæður. Það fjármagn, sem leitin hefir kostað er ótvírætt mikið og hefir sjálfsagt komið við sjóði þeirra björgunarsveita og einstaklinga, sem lagt hafa til tæki sín og bún- að, báta sína og önnur flutnings- tæki. Við undirritaðir heitum því á alla velviljaða, sem lesa þetta ávarp að leggja nokkuð af mörk- um til þess að styðja við veiga- mikil störf þeirra leitar- og björg- unaraðila, sem hér eiga hlut að máli. Framlögum geta þeir, sem vilja styðja þá komið á framfæri með því að leggja inn á spari- sjóðsávísanareikning nr. 2214-3 við útibú Búnaðarbanka íslands í Stykkishólmi. Auðvelt er að gera það í hvaða sparisjóði eða banka sem er með C-gíró seðli. Einnig geta þeir sem vilja veita fjárstuðning þeim aðilum, sem urðu fyrir verulegri röskun á högum vegna slyssins á sama hátt komið framlögum sínum á fram- færi með því að leggja þau í spari- sjóðsávísanareikning nr. 2215-1 við sömu stofnun. Við undirritaðir viljum reyna að skipta því sem safnast á sem réttastan hátt milli þeirra sem hlut eiga að máli við vertíðarlok í vor. Við væntum að allir velunn- arar björgunarstarfs og vinir Stykkishólms leggi góðu málefni lið og þökkum fyrirfram sér- hverjum sem leggur lóð sitt á vog- arskálina til góðs. Guð blessi glaðan gjafara".

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.